Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
8. maí 2013 /
Utanríkisráðuneytið
Ísland tekur upp stjórnmálasamband við Trínidad og Tóbagó

Fastafulltrúar Íslands og Trínidad og Tóbagó hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherrarnir Gréta Gunnarsdóttir og Rodney Charles, undirrituðu í New York, miðvikudaginn 8. maí, yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna.