Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
12. febrúar 2021 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Byggðasafn Árnesinga stækkar: 25 milljóna kr. styrkur

Búðarstígur 22 verður hluti af starfsemi Byggðasafns Árnesinga, einskonar hjarta safnsins og mun þjóna fjölbreyttu hlutverki..
Búðarstígur 22 verður hluti af starfsemi Byggðasafns Árnesinga, einskonar hjarta safnsins og mun þjóna fjölbreyttu hlutverki..

Unnið er að stækkun húsakynna fyrir Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka og á dögunum skrifaði Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarráðherra undir samning við safnið um 25 milljóna kr. styrk vegna kaupa og framkvæmda þess við hús að Búðarstíg 22, stundum kallað Alpanhúsið.

„Þessar framkvæmdir fela í sér að leyst verður úr margra ára húsnæðisvanda safnsins sem meðal annars býr við mikil þrengsli í núverandi geymslum. Bætt aðstaða mun gera safninu kleift að varðveita, rannsaka, forverja og sýna menningararf Árnesinga við bestu skilyrði sem völ er á,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Búðarstígur 22 verður hluti af starfsemi Byggðasafns Árnesinga, einskonar hjarta safnsins og mun þjóna fjölbreyttu sýningahaldi í Húsinu, Kirkjubæ, Eggjaskúrnum og Sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Stefnt er að verklokum framkvæmdanna í vor. Þjóðminjasafn Íslands mun einnig leigja aðstöðu í geymslum byggðasafnsins fyrir stærri muni sína.


Var efnið hjálplegt?