4. desember 2025 /
Dómsmálaráðuneytið

Embætti ríkislögreglustjóra laust til umsóknar

Hari

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti ríkislögreglustjóra. Leitað er að öflugum leiðtoga með skýra sýn og getu til þess að leiða fólk til árangurs, í þeim tilgangi að móta og efla starfsemi embættisins.

Hlutverk og ábyrgð

Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglu í umboði dómsmálaráðherra. Ríkislögreglustjóri er forstöðumaður embættisins og ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á starfi þess. Hlutverki ríkislögreglustjóra er nánar lýst í 5. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og reglugerð um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra nr. 325/2021. Eitt af hlutverkum ríkislögreglustjóra er að starfrækja lögregluráð sem er formlegur samráðsvettvangur lögreglustjóra og er ríkislögreglustjóri formaður ráðsins.

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

Aðrar hæfniskröfur

  • Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun er skilyrði.
  • Rík samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði.
  • Þekking og yfirsýn yfir verkefni lögreglunnar og skýr framtíðarsýn varðandi embætti ríkislögreglustjóra og þróun löggæslu er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á sviði reksturs og áætlanagerðar er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af umbótastarfi er kostur.
  • Reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur.
  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Dómsmálaráðherra skipar í embætti ríkislögreglustjóra til fimm ára í senn og skipað verður í embættið þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.

Nánari upplýsingar um starfið má finna á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2025 og skal umsókn skilað í gegnum Starfatorg.

Var efnið hjálplegt?