Aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni gefin út
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur gefið út aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Áætlunin markar fyrsta áfanga í innleiðingu á stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 sem samþykkt var í upphafi árs.
Aðgerðaáætlunin setur fram forgangsaðgerðir sem stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á að hrinda í framkvæmd, með skýra ábyrgð og tryggða fjármögnun. Forgangsaðgerðirnar ná til verndaraðgerða, beitingu ýmissa stjórntækja og hvata til endurheimtar, verndar, sjálfbærrar nýtingar og landbúnaðar. Þá endurspegla aðgerðirnar áherslur ríkisstjórnarinnar í stefnuyfirlýsingu Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins um að efla líffræðilega fjölbreytni og ráðast í aðgerðir til verndar hafsvæðum og ósnortnum víðernum. Forgangsaðgerðirnar eru:
- Verndarsvæði í hafi
- Virk svæðisvernd á landi
- Átak í gerð stjórnunar- og verndaráætlana
- Landbúnaður og náttúruvernd
- Innleiðing hvata fyrir vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra nýtingu
Aðgerðir áætlunarinnar falla undir fimm kjarnaviðfangsefni. Þau eru:
- Verndun lífríkis: Skilgreina og efla svæðisbundna vernd líffræðilegrar fjölbreytni á landi og hafi sem styður við markmið Íslands um að 30% landsvæða og 30% hafsvæða verði undir skipulagðri vernd og stjórnun fyrir árið 2030.
- Endurheimt vistkerfa: Skilgreina, kortleggja og meta umfang hnignaðra vistkerfa á Íslandi og hrinda í framkvæmd markvissum aðgerðum til endurheimtar raskaðra vistkerfa í ferskvatni og á haf- og strandsvæðum.
- Þekking gagna og vöktun: Auka áreiðanleika gagna sem notuð eru í skipulags-, landnotkunar- og verndarvinnu.
- Atvinnulíf og samfélag: Efla líffræðilega fjölbreytni í landbúnaði með samþættingu náttúruverndar og búskaparhátta, þróun þekkingar og innleiðingu hvetjandi styrkjakerfa og styrkja samstarf hins opinbera við atvinnulífið hvað varðar fræðslu, upplýsingamiðlun og ráðgjöf sem tengist líffræðilegri fjölbreytni.
- Stjórnsýsla og samhæfing: Efla hlutverk og aðkomu sveitarfélaga að verkefnum er varða líffræðilega fjölbreytni.
Aðgerðirnar styðja við sex leiðarljós stefnunnar sem samþykkt var í upphafi árs og leggja grunn að áframhaldandi framkvæmd hennar.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Aðgerðaáætlunin er mikilvægur liður í því að auka vernd líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Svona fylgjum við stefnunni eftir sem við samþykktum fyrr á árinu, höldum áfram að gera vísindunum hátt undir höfði eftir að ríkisstjórnin gerði Ísland að fullgildum aðila að IPBES og lögfestum samninginn um vernd líffræðilegrar fjölbreytni á úthöfum – BBNJ.
Nú tekur við að koma aðgerðum áætlunarinnar hratt í framkvæmd. Þá er lykilatriðið að forgangsraða – rétt eins og við höfum gert í loftslagsmálum. Þar hefur skýr forgangsröðun þegar borið árangur, til dæmis með því að rjúfa kyrrstöðuna í endurheimt votlendis. Með þessari aðgerðaáætlun færist enn meiri þungi í það verkefni, enda margþættur ávinningur sem fylgir þeirri aðgerð, þar á meðal fyrir líffræðilega fjölbreytni, náttúruvernd og viðnámsþol gagnvart loftslagsbreytingum.“
Frekari aðgerðir á öðrum sviðum geta bæst við þegar útfærsla þeirra, ábyrgð og fjármögnun liggja fyrir.