Ný skýrsla sýnir leiðir að 30% vernd lands og ferskvatns á Íslandi
Ísland hefur raunhæfa möguleika á að ná því markmiði að vernda að minnsta kosti 30% lands og ferskvatnssvæða fyrir árið 2030. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu sem Háskóli Íslands vann fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Skýrslan fjallar um hvernig Ísland geti unnið að markmiði Kunming–Montreal-samkomulagsins um vernd líffræðilegrar fjölbreytni, sem Ísland hefur tekið upp í stefnu sína um líffræðilega fjölbreytni.
Samkvæmt skýrslunni eru rúmlega 20% lands og ferskvatnssvæða nú þegar friðlýst. Í skýrslunni er lagt til að Ísland vinni jafnframt að því að fjölga viðurkenndum verndarsvæðum, þ.e. svæðum sem eru ekki formlega friðlýst en þar sem stjórnun svæðanna skilar varanlegum árangri fyrir líffræðilega fjölbreytni. Skýrslan bendir meðal annars á valin skógræktar- og landgræðslusvæði, svæði á ríkisjörðum og vatnsverndarsvæði sem möguleg fyrstu skref.
Í skýrslunni kemur fram að slík svæði gætu, að undangenginni nánari skoðun og afmörkun, náð yfir um 6% landsins. Samanlagt gætu friðlýst svæði og þessi svæði þá náð yfir um 26%.
Skýrslan undirstrikar þó að árangur mælist ekki eingöngu í ferkílómetrum. Stór hluti friðlýsts lands er á hálendinu, meðal annars á jöklum, á meðan mikilvæg búsvæði og lífrík svæði á láglendi njóta ekki alltaf sambærilegrar verndar. Því þurfi að velja ný svæði með hliðsjón af verndargildi þeirra og vinna með landeigendum og rétthöfum þar sem það á við.
Jafnframt eru gerðar tillögur að skýrari reglum um nýju verndarráðstafanirnar, að landfræðilegar upplýsingar um verndarsvæði verði lagfærðar og gerðar aðgengilegar á einum stað, og að áætlanir um stjórnun friðlýstra svæða verði fullgerðar. Skýrslan veitir þannig stjórnvöldum leiðarlýsingu að 30% markmiðinu, en minnir um leið á að verndin þarf að skila raunverulegum árangri fyrir íslenska náttúru.
Skýrslubeiðnin náði eingöngu til verndar lands og ferskvatns en Ísland er jafnframt skuldbundið til að vernda 30% hafsvæða fyrir árið 2030. Aðeins um 1,6% hafsvæða í efnahagslögsögu Íslands geta talist til þeirrar verndar skv. skýrslu stýrihóps um verndarsvæði í hafi frá 2024. Í aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni er kveðið á um að leiðarvísar fyrir hafvernd verði greindir og stýrihópur þvert á ráðuneyti og stofnanir hefur tekið til starfa til að vinna að verndun hafsvæða. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur jafnframt boðað frumvarp til breytinga á náttúruverndarlögum á þingmálaskrá yfirstandandi þings sem mun skýra stjórnsýslu hafverndar til að liðka fyrir möguleikum Íslands á að ná markmiðinu.
Area-based conservation in Iceland: Status and the way forward to the 30x30 area cover goal