11. nóvember 2026 /
Innviðaráðuneytið

Fjölbreyttar aðgerðir til að efla byggðir landsins í tillögu að nýrri byggðaáætlun

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041 og aðgerðaáætlun til fimm ára. Í aðgerðaáætluninni eru kynntar 44 fjölbreyttar aðgerðir til að efla byggðir landsins þvert á alla málaflokka. Þar af eru kynntar 30 nýjar aðgerðir.

„Kjarninn í byggðastefnunni sem lögð er fram er að fólk hafi raunverulegt val um hvar á landinu það kýs sér búsetu og að byggðir um land allt hafi tækifæri til að þróast á eigin forsendum. Styrkur Íslands felst í fjölbreytni byggðanna, fólkinu sem þar býr og þeim verðmætum sem þar verða til. Með þessari tillögu viljum við skapa betri skilyrði til að nýta þann styrk og byggja upp samfélög þar sem fólk sér tækifæri og framtíð,“ sagði Eyjólfur í framsöguræðu sinni á Alþingi.

Byggðaáætlun tekur til landsins alls en sérstök áhersla er lögð á svæði sem glíma við sértækar áskoranir. Jafnframt er horft til þess hvernig ólíkar byggðir geti nýtt eigin styrkleika til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og verðmætasköpunar.

Þrjátíu nýjar aðgerðir

Meðal nýrra aðgerða í byggðaáætlun eru stuðningur við börn og ungmenni í dreifbýli til þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi, efling stoðkerfis nýsköpunar, stuðningur við innflytjendur á landsbyggðinni og aðgerð sem snýr að því að flýta lagningu bundins slitlags á tengivegum. Þá er lagt til að efla getu landshluta til að leiða eigin þróun og þróa sóknaráætlanir landshluta áfram sem vettvang þess starfs.

Verkefnið um Loftbrú hefur bæst við aðgerðaáætlunina sem sérstök aðgerð. Með því er lögð áhersla á að festa hlutverk hennar enn frekar í sessi og styrkja eftirfylgni með því hvernig hún stuðlar að jöfnun búsetuskilyrða.

Lagt er til að verkefnið Brothættar byggðir haldi áfram og að það verði þróað á þann veg að það geti nýst fleiri byggðarlögum. Einnig verður haldið áfram að styðja við verslun í dreifbýli, efla almenningssamgöngur milli byggða og hvetja til fjölgunar óstaðbundinna starfa svo nokkuð sé nefnt.

Víðtækt samráð og markviss eftirfylgni

Þingsályktunartillagan byggist á víðtæku samráði um land allt, m.a. á opnum íbúafundum. Sérstök áhersla var lögð á samráð við landshlutasamtök sveitarfélaga og ráðuneyti.

Byggðamál snerta alla málaflokka ríkisins. Byggðaáætlun gegnir því mikilvægu samhæfingarhlutverki og stuðlar að því að ákvarðanir stjórnvalda á ólíkum málefnasviðum vinni saman að jákvæðri byggðaþróun. Öll ráðuneyti eiga beina aðkomu að áætluninni og hvert þeirra ber ábyrgð á að minnsta kosti einni aðgerð.

Til að styrkja framkvæmd og eftirfylgni eru í fyrsta sinn sett fram viðmið um árangur einstakra aðgerða. Innviðaráðherra mun sem fyrr gera grein fyrir framgangi allra aðgerða og áætlunarinnar í heild með árlegri skýrslu til Alþingis.

Innviðaráðherra fjallaði einnig í framsögu sinni um þau fjölbreyttu og veigamiklu verkefni sem snerta málefni landsbyggðar sem stæðu utan byggðaáætlunar. Ríkisstjórnin hafi á kjörtímabilinu unnið að margvíslegum áherslumálum þvert á ráðuneyti sem styrkja byggðir landsins.

„Þar má nefna aukið fjármagn í viðhald vega, fullfjármögnun vetrarþjónustu og stofnun innviðafélags til að hraða stórframkvæmdum á sviði samgangna. Liðkað hefur verið fyrir framkvæmdum í orkumálum, m.a. til að styrkja flutningskerfi raforku. Jöfnun á dreifikostnaði raforku kemur sér vel í dreifbýli og á köldum svæðum og sérstakur fjárfestingarstuðningur stjórnvalda við ylrækt stuðlar að lægri raforkukostnaði fyrir garðyrkjubændur. Þá hefur verið ráðist í átak í fjölgun hjúkrunarrýma um land allt, ráðist í aðgerðir til að fjölga læknum á landsbyggðinni og hafist handa við framkvæmdir á heilbrigðisstofnunum. Fyrsta atvinnustefna Ísland hefur verið samþykkt, búvörusamningar framlengdir og sérstakir starfshópar verið skipaðir til að bregðast við umtalsverðum breytingum á atvinnulífi á Húsavík og Seyðisfirði. Framkvæmdir við verknámsskóla í fjórum sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins eru í burðarliðnum og menningarsamningar hafa verið gerðir á Akureyri og Austurlandi og einn í bígerð á Ísafirði,“ sagði Eyjólfur.

Var efnið hjálplegt?