Dagur íslenskrar tungu: Verðlaunaafhending í Eddu og ákall til Apple
Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur mánudaginn næstkomandi í Eddu kl. 15:00, þegar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í 31. skipti. Við sama tilefni er veitt sérstök viðurkenning íslenskrar tungu. Viðurkenninguna skal veita hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki.
Meðal fyrri verðlaunahafa eru Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur sem hlaut verðlaunin á síðasta ári, Ari Eldjárn uppistandari og frú Vigdís Finnbogadóttir.
Máltækni er mannréttindamál
Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Það er því viðeigandi að við tilefnið verður einnig hrint af stað ákalli til tæknirisans Apple þar sem ráðherra óskar eftir stuðningi landsmanna við að þrýsta á Apple til að innleiða íslensku í stýrikerfi sitt. Framtíð íslenskrar tungu krefst þess að hún verði aðgengileg í nýjustu tækni og framtíð þeirra sem eiga við aðgengi hindranir að stríða er samofin því að sú tækni sé aðgengileg á móðurmálinu.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert. Víða er efnt til margvíslegra menningarviðburða í tilefni dagsins.
Viku íslenskunnar 2026
16.–22. nóvember (ásamt tengdum opnunarviðburðum 13.–15. nóvember)
| Dagsetning | Tími | Viðburður | Staður / Skipuleggjandi |
|---|---|---|---|
| 10:00–11:15 | Skiptir íslenska máli? Málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku | Háskóli Íslands, Edda |
| 16:00–17:00 | Hvað er í öskjunum? Fornbréf í safni Árna Magnússonar. | Árnastofnun, Edda |
| 09:00–15:30 | Hvernig getum við nýtt tungumálagögn til að efla íslensku í stafrænum heimi? | Vigdísarstofnun, Veröld |
| 14:00–17:30 | Málþing í tilefni af opnun gagnagrunns um fornbréf í safni Árna Magnússonar | Árnastofnun, Edda |
| 15:00 | Upplestur meistaranema í ritlist | Gljúfrasteinn |
| Allan daginn | Niðurstöður úr lestrarkönnun birtar | Á vef Miðstöðvar íslenskra bókmennta |
| 12:00 | Hér má skýr orð skilja: Íslenskan og sjálfsmyndin | Þjóðminjasafn Íslands |
| 12:00 | Norðlenskt, nýtt og svolítið blótað | Háskólinn á Akureyri |
| 12:00–13:00 | Málþing í tilefni af 10 ára afmæli Málið.is | Árnastofnun, Edda |
| 15:00 | Afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningar íslenskrar tungu | Bókasafnið í Eddu |
| Allan daginn | Frítt á sýninguna í Eddu | Edda |
| 15:45/16:00 | Apple – ýttu á takkann. Kynning ráðherra | Edda |
| Allan daginn | Íslensk útgáfuskrá – ný útgáfa | Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn |
| 19:45 | Sjónvarpsþátturinn Málæði | RÚV |
| 18:00 | Jónasarljóð í Jónasarlaug | Hörgársveit |
| 13:00 | Grettluþing | Árnastofnun |
| 20.–22. nóvember | Samkvæmt sýningartíma | Ormstunga í Viku íslenskunnar | Þjóðleikhúsið |