Minningardagur: Fjórðungur landsmanna hefur misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn sunnudaginn 15. nóvember og verða minningarstundir haldnar víða um land af því tilefni. Tilgangur dagsins er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni
Ljóst er að umferðarslys hafa víðtæk áhrif í samfélaginu og snerta landsmenn alla með einum eða öðrum hætti. Í nýrri könnun Samgöngustofu kom m.a. fram að u.þ.b. fjórðungur Íslendinga, rúmlega 26%, hafi misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.
Sjónum beint að ungum vegfarendum
Sjónum minningardagsins er beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks.
Ungir ökumenn eru hlutfallslega talsvert líklegri til að lenda í slysum og óhöppum en þeir eldri. Það sem kann helst að skýra þetta er að ungir ökumenn búa yfir minni reynslu og að ungmenni meta oft eigin hæfni meiri en raunhæft er.
Á hinn bóginn hafa ungir ökumenn, samkvæmt slysaskráningu og viðhorfskönnunum Samgöngustofu, bætt sig á síðustu árum og standa sig almennt betur í umferðinni en áður. Slysum af völdum ungra ökumanna hefur fækkað talsvert á síðustu 20 árum. Þá hefur slösuðum ungmennum í bifreið einnig fækkað mikið. Þessa jákvæðu þróun má rekja til nokkurra samverkandi þátta. Þar má nefna öflugt ökunám, auknar kröfur um öryggi ökutækja, betri öryggisráðstafanir á vegum og markvisst fræðslustarf á öllum skólastigum og í fjölmiðlum.
Mjög alvarlegar undantekningar eru frá þessari almennu þróun. Síðustu mánuði og misseri hafa orðið hræðileg slys sem rekja má til hraðaksturs eða annarrar áhættuhegðunar ungra ökumanna. Samkvæmt gögnum Lögreglunnar eru skýr merki um að slík áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum.
Minningarstundir á sautján stöðum um land allt
Haldnar verða minningarstundir á minnst 17 stöðum um allt land að Reykjavík meðtalinni. Staðfest er viðburðir verði á Akureyri, Borgarnesi, Grundarfirði, Hnífsdal/Ísafirði, Hólmavík, Kirkjubæjarklaustri, Kjalarnesi, Kópavogi, Ólafsfirði, Ólafsvík, Patreksfirði, Reykjanesbæ, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Vopnafirði í samvinnu við einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðila. Unglingadeildir björgunarsveitanna gegna lykilhlutverki við skipulagningu viðburða. Fleiri staðir kunna að bætast við en nánari upplýsingar má finna á minningardagur.is.
Í Reykjavík verður athöfn haldin venju samkvæmt við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir þar kl. 13:45 og er stillt upp ásamt ökutækjum annarra viðbragðsaðila. Athöfnin hefst kl. 14 og munu Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja ávörp. Haraldur Már Haraldsson er ræðumaður dagsins og segir reynslusögu sína en ungur að árum varð hann sökum hraðaksturs valdur að banaslysi æskuvinar síns. Fólk er hvatt til að mæta og taka þátt í minningarstund og einnar mínútu þögn.
Athöfnin er einnig í beinu streymi á netinu.
Við athöfnina flytur MH-kórinn einkennislag dagsins, I Think of Angels. KK samdi lagið til minningar um systur sína, sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið í flutningi KK og Ellenar, systur hans, verður leikið samtímis á öllum útvarpsstöðvum kl. 14 á minningardaginn.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þetta er í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.
Banaslyum fækkað á síðustu áratugum
Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1.645 látist í umferðinni (til og með 10. nóv. 2026). Enn fleiri slasast alvarlega eða takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum. Það sem af er þessu ári hafa 12 einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Hér að neðan er yfirlit yfir fjölda látinna í umferðinni í ár og á undanförnum árum.
2026 12 látnir (það sem af er ári)
2025 10 látnir
2024 13 látnir
2023 8 látnir
2022 9 látnir
2021 9 látnir
2020 7 látnir
2016–2025 115 látnir – 11,5 látnir að meðaltali á ári
2006–2015 139 látnir – 13,9 látnir að meðaltali á ári
1996–2005 223 látnir – 22,3 látnir að meðaltali á ári
1986–1995 230 látnir – 23 látnir að meðaltali á ári
Í slysaskýrslum Samgöngustofu er að finna mikilvæga tölfræði. Þróun er í rétta átt þótt vitanlega sé eitt banaslys einu of mikið.