Vendipunktar bíða ekki eftir pólitískri samstöðu – ráðherra leggur áherslu á öryggi og samstarf um endurnýjanlega orku
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, lagði áherslu á loftslagsmál og öryggi í ávarpi sínu á COP 31 í Antalya í dag. Á blaðamannafundi með orkumálaráðherra Nýja-Sjálands kynnti hann jafnframt reynslu Íslands af jarðhitanýtingu og mikilvægi aukins alþjóðlegs samstarfs um þróun jarðhita í þágu orkuöryggis.
„Jarðhiti hefur aldrei áður fengið jafn mikla athygli á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og nú. Það endurspeglar vaxandi skilning á því að áreiðanleg, endurnýjanleg orka er ekki aðeins lykill að því að draga úr losun heldur einnig að orkuöryggi, efnahagslegum stöðugleika og viðnámsþrótti samfélaga,“ segir Jóhann Páll.
Í ávarpi sínu á leiðtogahluta ráðstefnunnar fjallaði ráðherra um hvernig alþjóðleg spenna og óvissa hafi sýnt fram á áhættuna sem fylgir því að reiða sig á innflutt jarðefnaeldsneyti. Orkuöryggi og loftslagsöryggi verði ekki aðskilin. Því hraðar sem ríki byggja upp hrein orkukerfi, því betur séu þau í stakk búin til að takast á við bæði loftslagsvá og breyttar aðstæður í alþjóðamálum.
Loftslagsvendipunktar bíða ekki pólitískrar samstöðu
Jóhann Páll lagði jafnframt áherslu á að loftslagsbreytingar væru ógn við þjóðaröryggi og að hlýnun umfram 1,5°C yki hættuna á því að farið yrði yfir mikilvæg vendipunktamörk náttúrulegra kerfa jarðar. Slíkir vendipunktar geta haft snöggar, óafturkræfar og keðjuverkandi afleiðingar.
Sagði ráðherra sérstakar áhyggjur Íslands beinast að mögulegri veikingu eða hruni Veltihringrásar Atlantshafsins, AMOC, sem gegnir lykilhlutverki í loftslagi Norður-Atlantshafsins. Ísland hefur þegar lyft þeirri áhættu í umræðu um þjóðaröryggi og vinnur að því að efla vísindasamstarf, vöktun og viðbúnað.
„Vendipunktar bíða ekki eftir pólitískri samstöðu. Samstaða er mikilvæg, en skortur á henni má aldrei verða afsökun fyrir aðgerðarleysi.“
Aukið alþjóðlegt samstarf um jarðhita
Áhersla var einnig lögð á jarðhitann á blaðamannafundi Advancing Global Geothermal Collaboration, sem Jóhann Páll hélt í dag með Simon Watts, ráðherra loftslagsmála Nýja-Sjálands, og fulltrúum alþjóðlegu samtakanna Clean Air Task Force og Ungverjalands, þar sem sjónum var beint að því hvernig efla megi alþjóðlega samvinnu um jarðhita.
Ísland og Nýja-Sjáland hafa átt í nánu samstarfi á þessu sviði frá því að Jóhann Páll og Simon Watts undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf þjóðanna á COP 30 í fyrra. Markmiðið er að efla jarðhitarannsóknir, þróa borunartækni og vinna að næstu kynslóð jarðhitakerfa.
„Engin ein þjóð býr yfir allri þeirri þekkingu, tækni og fjárfestingargetu sem þarf til að nýta jarðhita á heimsvísu. Með því að deila reynslu, rannsóknum og tækni getum við dregið úr áhættu, flýtt þróun og opnað ný tækifæri fyrir fleiri ríki,“ segir Jóhann Páll.
Ísland hefur áratuga reynslu af jarðhitanýtingu og hefur miðlað þekkingu sinni víða um heim, meðal annars í gegnum Jarðhitaskólann, GRÓ – alþjóðlega þekkingarmiðstöð um jarðhita sem rekin er á Íslandi undir merkjum UNESCO. Þar hafa hundruð sérfræðinga frá fjölmörgum löndum hlotið þjálfun. Með samstarfinu við Nýja-Sjáland og öðrum alþjóðlegum samstarfsverkefnum vill Ísland stuðla að því að jarðhiti verði aðgengilegri og raunhæfari orkukostur í fleiri ríkjum.
Ráðherra segir að umbreyting orkukerfa verði ekki sjálfkrafa vegna þess að náttúruauðlindir séu til staðar. Til þess þurfi langtímastefnu, fjárfestingar, rannsóknir og uppbyggingu innviða. Sú reynsla sem Ísland hefur öðlast geti nýst öðrum ríkjum sem vilja styrkja orkuöryggi sitt og flýta orkuskiptum.