18. nóvember 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Aðhald í gjaldskrám og launaákvörðunum hjá ríkinu

Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 8. október 2026 vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði eru boðaðar aðgerðir til að styðja við verðstöðugleika. Þær lúta meðal annars að gjaldskrám og launaákvörðunum hjá stofnunum og fyrirtækjum ríkisins.

Gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs skulu ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2027. Krafan tekur til þeirra gjaldskráa sem koma beint inn í útreikning vísitölunnar. Jafnframt beinir ríkisstjórnin þeim tilmælum til ríkisstofnana að gæta aðhalds í launaákvörðunum og hækka ekki laun umfram það sem kjarasamningar kveða á um.

Hvað fyrirtæki í eigu ríkisins varðar er í yfirlýsingunni lögð áhersla á að gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs hækki ekki umfram 2,5% á árinu 2027. Jafnframt er lögð áhersla á aðhald í launaákvörðunum og að launahækkanir verði ekki umfram það sem kjarasamningar kveða á um.

Stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins eru hvattar til að horfa til þessara áherslna ríkisstjórnarinnar og leita leiða til að styðja við verðstöðugleika og aðhald í launaákvörðunum. Það er á ábyrgð hverrar stjórnar að meta sjálfstætt hvort og að hvaða marki unnt sé að verða við hvatningunni, með hliðsjón af hagsmunum félagsins, fjárhagsstöðu þess, hlutverki og skyldum, og taka ákvarðanir á þeim grundvelli.

Var efnið hjálplegt?