18. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

„Áhrifavaldurinn í vasanum okkar“

Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís - Netöryggismiðstöðvar Íslands
Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís - Netöryggismiðstöðvar Íslands

Í vasanum okkar leynist áhrifavaldur sem mótar daglegt líf okkar, hegðun, samskipti og jafnvel sjálfsmynd segir Skúli Bragi Geirdal fjölmiðlafræðingur og sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis. Hann er meðal fyrirlesara á heilbrigðisþinginu um geðheilsu barna og ungmenna 26. nóvember næstkomandi og ætlar að ræða um þennan áhrifavald og hvernig algóritmar og samfélagsmiðlar móta stafrænan veruleika, stýra athygli og hafa áhrif á ákvarðanir, oft án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Jafnframt kynnir hann leiðir og hagnýt ráð til að endurheimta stjórnina og skapa heilbrigðara stafrænt umhverfi fyrir okkur öll.

Aida Bikic, dósent við Háskóla Suður-Danmerkur verður einnig með erindi á þinginu. Aida sinnir rannsóknum í samstarfi við Yale-háskólann á áhrif skjánotkunar á heila, líðan og þroska barna og ungmenna. Aida starfar einnig sem ráðgjafi í Danmörku, Þýskalandi og á vettvangi Evrópusambandsins, með áherslu á að styðja skóla, stofnanir/félög og stefnumótendur við að skapa heilbrigðara stafrænt umhverfi fyrir börn og ungmenni.

Fjölbreytt dagskrá heilbrigðisþings

Dagskrá heilbrigðisþingsins er fjölbreytt og áhugaverð og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér dagskrána og fyrirlesarana á vefsvæði þingsins. Fyrri hluti þingsins endurspeglar yfirskrift þess; Það þarf þorp… þar sem fjallað verður um geðheilsu barna og helstu áhrifaþætti í víðu samhengi. Þar verður jafnframt dregið fram hve samvinna allra þeirra sem koma á einhvern hátt að uppvexti og þroska barna skiptir miklu máli. Í öðrum hluta þingsins verður fjallað um nýsköpun á sviði geðheilbrigðisþjónustu við börn, lágþröskuldaþjónustu, hagnýtingu fjarheilbrigðislausna, heildstæða nálgun gagnvart ofbeldismálum s.s. skimun í skólum og þverfaglega móttöku og meðferð vegna slíkra mála. Þriðji hlutinn verður helgaður áhrifaþáttum og áskorununum geðheilbrigðis í nútímanum. Þar verður sjónum m.a. beint að stafrænum áhrifaþáttum, áhrifum þeirra á þroska, hegðun og líðan barna og ungmenna og birtingarmyndum þeirra. Í pallborði sérfræðinga verður rætt um flókin tengsl áhrifaþátta við líðan barna, litið til lausna og hvað er til ráða. Síðan verður pallborð ungmenna með vangaveltum þeirra um þessi mál og skilaboðum til stjórnvalda og samfélagsins.

Var efnið hjálplegt?