Ísland eykur framlög til hafvöktunar og leiðir umræðu um loftslagsvendipunkta sem þjóðaröryggishættu
Ísland stóð fyrir alþjóðlegum viðburði á COP31 um loftslagsvendipunkta og loftslagsáhættu sem getur haft víðtæk og óafturkræf áhrif á samfélög og hagkerfi. Þar komu saman vísindafólk og ráðamenn, en auk umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra voru þar m.a. Costas Kadis, framkvæmdastjóri sjávarútvegs- og hafmála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Sigrun Aaslund, umhverfis- og loftslagsráðherra Noregs, Johan Rockström, forstjóri Potsdam Institute for Climate Impact Research, Stefan Rahmstorf, haffræðingur við sömu stofnun, Mike Meredith, haffræðingur og stjórnandi hjá British Antarctic Survey, og Bill Hare, loftslagsfræðingur hjá Climate Analytics.
Viðburðurinn var haldinn með Norræna ráðherraráðinu og fleiri samstarfsaðilum. Megináhersla var á vísindalega þekkingu á vendipunktum í loftslagskerfinu, þar á meðal veltihringrás Atlantshafsins (AMOC), og hvernig stjórnvöld geti brugðist við áhættu sem einkennist af óvissu en gæti haft alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar.
AMOC gegnir lykilhlutverki í loftslagskerfi Norður-Atlantshafsins. Veruleg veiking eða hrun kerfisins gæti haft áhrif á sjávarútveg, fæðuöryggi, innviði, orkukerfi og samgöngur. Ríkisstjórnin vísaði áhættu vegna breytinga á AMOC til þjóðaröryggisráðs í september 2025. Í kjölfarið skipaði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sérfræðingahóp um loftslagsvendipunkta sem mun skila niðurstöðum á næstunni. Ráðherra tók jafnframt málið upp á fundi Norræna ráðherraráðsins og haldin var sviðsmyndaæfing í október 2026 með fjölda aðila úr íslensku stjórnkerfi til að greina veikleika Íslands gagnvart loftslagsvendipunktum og meta möguleg viðbrögð.
Aukin fjárframlög og öflugri stuðningur við hafvöktun
Jóhann Páll tók jafnframt þátt í viðburði Evrópusambandsins um EU Ocean Eye International Alliance-alþjóðasamstarfið og tilkynnti þar að Ísland muni leggja fimm milljónir króna árlega til hnattræna hafvöktunarkerfisins GOOS í gegnum Ocean Eye. Jafnframt hækkar árlegt framlag Íslands til Alþjóðahaffræðinefndar UNESCO (IOC) úr sjö í tíu milljónir króna.
OceanEye International Alliance er alþjóðlegt samstarf sem miðar að því að styrkja fjármögnun og samfellu hnattrænnar hafvöktunar. Með þátttöku Íslands í OceanEye og frumkvæði í umræðu um AMOC vill Ísland stuðla að því að vísindaleg þekking, alþjóðleg vöktun og mat á kerfislægri loftslagsáhættu verði betur samþætt stefnumótun og viðbúnaði stjórnvalda.
Í ávörpum sínum lagði ráðherra áherslu á að engin þjóð geti vaktað hafið ein síns liðs. „Við þurfum samfelldar mælingar, opna miðlun gagna og alþjóðlegt samstarf til að skilja þær breytingar sem eiga sér stað í hafinu. Fyrir Ísland eru þetta ekki fjarlæg vísindaleg viðfangsefni heldur spurningar sem tengjast beint öryggi okkar, afkomu og framtíð,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Aukin framlög Íslands styðja við alþjóðlega samvinnu um hafmælingar og langtímavöktun. Jafnframt verður lögð áhersla á opna gagnamiðlun og á að tengja íslenskar mælingar betur alþjóðlegum kerfum á borð við GOOS, OceanOPS, ICES og IODE. Jóhann Páll benti á að Ísland býr yfir áratugalangri reynslu af haf- og umhverfisvöktun og er í einstakri stöðu til að leggja sitt af mörkum til rannsókna og vöktunar í Norður-Atlantshafi.