Öflugur innri markaður og samkeppnishæf Evrópa efst á baugi á fundi EES-ráðsins
Mikilvægi öflugs innri markaður, samkeppnishæfrar Evrópu og markvissrar framkvæmdar EES-samningsins voru meðal þess sem kom fram á fundi EES-ráðsins sem fram fór í Brussel í gær. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisríkisráðuneytisins, sat fundinn fyrir Íslands hönd.
Á fundinum var rætt um aðgerðir til að styrkja innri markaðinn og EES-samstarfið, með það að markmiði að efla samkeppnishæfni og hagvöxt. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að bæta framkvæmdina innan EES-samstarfsins. Í því samhengi beindist umræðan sérstaklega að því hvernig megi draga úr svonefndum upptökuhalla, þ.e. löggjöf sem hefur tekið gildi innan Evrópusambandsins (ESB) en bíður upptöku í EES-samninginn. Vaxandi þrýstings hefur gætt frá framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjum um að sömu reglur gildi innan innri markaðar EES á hverjum tíma.
Í máli sínu lagði ráðuneytisstjóri áherslu á að ráðstafanir til að takast á við flóknara umhverfi í utanríkisviðskiptum mættu ekki leiða til þess að til yrðu hindranir milli ESB-ríkjanna og EFTA-ríkjanna á innri markaðnum. Í því sambandi var verndarráðstöfunum á járnblendi mótmælt og því komið á framfæri að mikilvægt væri að tekið yrði tillit til sjónarmiða EFTA-ríkjanna innan EES við endurskoðun þeirra ráðstafana.
Í tengslum við fund EES-ráðsins fór einnig fram pólitískt samráð EFTA-ríkjanna innan EES og ESB þar sem farið var yfir stöðuna á hinu alþjóðapólitíska sviði, einkum í tengslum við allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu, stöðuna í Mið-Austurlöndum og málefni norðurslóða þar sem meðal annars var rætt um norðurslóðastefna ESB sem var uppfærð í október síðastliðnum.
EES-ráðið er pólitískur vettvangur EES-samstarfsins sem kemur saman tvisvar á ári. Í því eiga sæti fulltrúar EFTA-ríkjanna innan EES, það er Íslands, Noregs og Liechtenstein, auk Evrópusambandsins.