18. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Vinnustofa um tækifæri í líf- og heilbrigðistækni á Íslandi

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávörpuðu vinnustofuna. Sjá fleiri myndir hér að neðan.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávörpuðu vinnustofuna. Sjá fleiri myndir hér að neðan.

Heilbrigðisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stóðu fyrir vinnustofu um tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar og útflutnings á sviði líf- og heilbrigðistækni þann 12. nóvember síðastliðinn. Vinnustofan var haldin í tengslum við aðgerðina Líf- og heilbrigðistækni sem mikilvæg stoð í útflutningi, sem er hluti af aðgerðaáætlun Atvinnustefnu Íslands 2026-2027.

Markmið aðgerðarinnar er að auka verðmætasköpun og útflutning á sviði líf- og heilbrigðistækni með því að nýta betur styrkleika sem Ísland býr yfir á sviði  lífvísinda, erfðarannsókna og heilbrigðisþjónustu. Sérstök áhersla er lögð á að efla samstarf háskóla, heilbrigðisstofnana og atvinnulífs, styrkja rannsókna- og gagnainnviði og skapa betri forsendur fyrir þróun, prófun og innleiðingu  nýrra lausna.

Á vinnustofunni komu saman fulltrúar  háskólasamfélagsins, frumkvöðla og sprotafyrirtækja, auk aðila úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á sviði líf- og heilbrigðistækni. Markmiðið var að greina helstu tækifæri og áskoranir á þessu sviði og ræða hvernig  nýta megi betur þá þekkingu, rannsóknir og innviði sem þegar eru til staðar til að stuðla að nýsköpun, aukinni verðmætasköpun og útflutningi.

Í umræðum var meðal annars lögð áhersla á mikilvægi öflugs samstarfs háskóla, heilbrigðisstofnana og atvinnulífs, bætt aðgengi að rannsókna- og prófunaraðstöðu og nauðsyn þess að greiða fyrir þróun og innleiðingu nýrra lausna í heilbrigðisþjónustu.

Á vinnustofunni komu fram fjölmargar  hugmyndir og tillögur sem munu nýtast við  frekari útfærslu aðgerðarinnar í samstarfi ráðuneytanna. Má þar nefna bætta samræmingu heilbrigðisgagna og aðgengi að þeim, eflingu innviða fyrir þróun og nýtingu gervigreindarlausna og þróun hvata innan háskólasamfélagsins til að styðja við nýsköpun og hagnýtingu rannsóknarniðurstaðna.

„Samkeppnishæfni ríkja og Evrópu í heild er sífellt meira í brennidepli, ekki síst á sviði líf- og heilbrigðistækni. Við þurfum að vita hvar styrkleikar okkar liggja og hvernig við getum nýtt sérhæfingu, þekkingu og alþjóðlegt samstarf til að skapa okkur samkeppnisforskot á þessu sviði. Við byggjum á traustum grunni.  Kortlagning á íslenskum lífvísindaiðnaði sýnir að rúmlega 4.300 einstaklingar starfa í greininni og að árleg velta hennar nemur um 266 milljörðum króna. Þar á meðal eru fyrirtæki á sviði lyfjaframleiðslu, líftækni og lækninga- og heilsutækni. Ísland býr yfir ýmsum styrkleikum sem geta skapað okkur sérstöðu og samkeppnisforskot á alþjóðavettvangi“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Það er dýrmætt að vísindafólk, frumkvöðlar, fyrirtæki og heilbrigðisstofnanir gefi sér tíma til að deila reynslu sinni og vinna með stjórnvöldum að því að greiða leið nýrra heilbrigðislausna. Það er sú vegferð sem við erum á, að virkja íslenskt hugvit til að bæta lífsgæði okkar og þróa lausnir sem geta nýst fólki um allan heim og um leið orðið mikilvæg stoð í útflutningi Íslands,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

 

Var efnið hjálplegt?