3.000 manns hafa skrifað undir ákall til Apple: „Það myndi breyta ótrúlega miklu í mínu lífi“
Að svara tölvupósti frá frístundaheimili barnsins eða opna Hljóðbókasafnið með raddstýringu getur reynst ómögulegt þegar tæknin skilur ekki íslensku er meðal þess sem kemur fram í notendadæmum sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur safnað.
Verkefnið er hluti af máltæknivinnu stjórnvalda sem miðar að því að nýjasta tækni ásamt þeim aðgengismöguleikum sem hún býður – virki á íslensku.
Vill geta svarað frístundaheimili barnsins
Nokkur af dæmunum sem ráðuneytinu bárust má sjá í þessu myndbandi sem verður miðlað áfram til aðgengisteymi Apple. Þar kemur meðal annars fram hvernig skortur á íslenskri máltækni getur gert fólki erfitt fyrir að sinna hversdagslegum verkefnum án aðstoðar. Tveggja barna móðir sem er fljót að tileinka sér nýja tækni segir innleiðingu á íslensku hjá Apple myndi breyta ótrúlega miklu fyrir hana og fjölskyldu hennar. Í dag getur hún ekki svarað tölvupóst frá frístundarheimilinu með innbyggðu aðgengilausnunum í Apple síma sínum. Tæknin sé til staðar en tungumálið sé hindrun.
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra var fyrsta manneskjan með fötlun til að gegna ráðherraembætti á Íslandi. Inga þekkir aðgengishindranir af eigin raun en hún er með 10% sjón og segir réttan stuðning skipta sköpum. Hún les allan texta í 18 punkta letri en gæti hlustað á minnisblöð og skýrslur sem dæmi ef tæknin talaði íslensku.
Verkefnastjóri upplýsingatækni í grunnskóla lýsir því í myndbandinu hvernig nemendur sem þurfa mest á stuðningi tækninnar að halda fá minnst út úr henni sökum þessa. Í dæmunum sem ráðuneytinu hafa borist kemur fram hversu mikilvægur þessi stuðningur er fyrir börn með tjáskipta- eða lestrarvanda, börn með sjón- eða heyrnarskerðingu og börn af erlendum uppruna sem eru að læra íslensku.
Geta misst röddina dögum saman
Fagfólk sem starfar með fólki með málstol, málleysi eða annan tjáskiptavanda bendir á að innbyggður íslenskur talgervill í iPad gæti gert tjáskiptaforritum kleift að lesa upp íslenskan texta og orð sem tengjast táknmyndum án þess að taka þurfi hljóðið upp fyrir fram.
„Ef sérlausn fyrir íslenska rödd í tjáskiptaforriti hættir að virka við uppfærslu stýrikerfis getur einstaklingur misst rödd sína dögum eða vikum saman á meðan beðið er eftir lagfæringu frá forritara. Innbyggð íslensk kerfisrödd myndi draga úr þörfinni fyrir slíkar sérlausnir og þar með úr því óöryggi sem þeim fylgir,“ segir í einu dæmanna.
ÖBÍ réttindasamtök og TMF (áður Tölvumiðstöð fatlaðra) hafa lagt áherslu á að skortur á íslenskri máltækni skapi beinar aðgengishindranir fyrir fatlað fólk. Til að fólk geti nýtt tækin á íslensku þarf vandaðan talgervil sem les texta upp, talgreiningu sem gerir fólki kleift að skrifa með röddinni og raddstýringu sem skilur íslenskar skipanir.
Tryggjum íslensku
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hrinti áskorun til Apple af stað á degi íslenskrar tungu. Áskorunin er samstarfsverkefni Almannaróms og Íslandsstofu með stuðningi stjórnvalda. Ráðuneytið hyggst senda notendadæmin til aðgengisteymis Apple til að fylgja áskoruninni eftir og sýna hvar þörfin fyrir íslenskan stuðning er brýnust.
„Þegar nýjar lausnir styðja ekki íslensku situr okkar fólk eftir – fólk með tjáskiptavanda, sjúkdóma, fötlun eða aldurstengdar áskoranir. Við erum að tala um drjúgan hluta þjóðarinnar. Fyrir þennan hóp er máltækni ekki munaður heldur mannréttindi. Ef íslenska á að eiga framtíð í gervigreind og stafrænum lausnum þarf hún að vera sjálfsagður hluti af tækninni sem við notum á hverjum degi. Það er okkar sameiginlega verk að hlúa að íslenskunni og sjá til þess að við getum öll notað hana í daglegu lífi. Við höfum afhent Apple íslensk máltæknigögn. Nú þurfum við að láta í okkur heyra og þrýsta á Apple að setja íslensku á dagskrá í tækjum sínum. Því hvet ég sem flesta til að skrifa undir sameiginlegt ákall til Apple á tryggjumislensku.is,“ segir Logi Einarsson sem gerði aðgengismál að umfjöllunarefni sínu í greininni Sæl Sigríður
3.000 manns hafa þegar skrifa undir – taktu þátt og hvettu Apple til að innleiða íslensku.
Skrifaðu undir áskorunina á tryggjumislensku.is