Kröfur um kerfisbundið innra eftirlit heilbrigðisþjónustu frá 1. janúar
Reglugerð heilbrigðisráðherra um innra eftirlit heilbrigðisstofnana og annarra rekstraraðila sem veita heilbrigðisþjónustu tók gildi 8. ágúst sl. Meginmarkmið reglugerðarinnar er að efla gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Reglugerðin kveður á um skyldur þjónustuveitenda til að fylgjast kerfisbundið með eigin starfsemi, draga úr áhættu og vinna markvisst að umbótum. Þeir skulu jafnframt tryggja að þjónustan samræmist gildandi lögum, stjórnvaldsfyrirmælum, gæðaviðmiðum, samningum og leiðbeiningum, með öryggi sjúklinga að leiðarljósi. Vakin er athygli á því að verklag og verkþættir vegna innra eftirlits skulu liggja fyrir og teknir í notkun eigi síðar en 1. janúar næstkomandi.
Allir veitendur heilbrigðisþjónustu skulu móta, skjalfesta og innleiða verklag fyrir innra eftirlit sem tryggir að þjónusta sé veitt í samræmi við þær reglur sem gilda um starfsemina. Slíkt skjalfest verklag skal vera aðgengilegt starfsfólki og notendum þjónustunnar. Í reglugerðinni eru tilgreindar lágmarkskröfur til verklags innra eftirlits, s.s. um ábyrgð á framkvæmd einstakra þátta og hversu reglubundið eftirlit skuli fara fram. Niðurstöður innra eftirlits skulu teknar saman með reglubundnum hætti og kynntar stjórnendum til að styðja við ákvarðanatöku og umbætur í starfseminni. Í reglugerðinni eru skýr ákvæði um ábyrgð á innra eftirliti og hvað í ábyrgðinni felst. Meðal annars skal ábyrgðaraðili sjá til þess að allir stjórnendur og starfsmenn þekki til og taki þátt í innra eftirliti eftir því sem það á við.
Þættir og framkvæmd innra eftirlits
Innra eftirlit skal taka mið af eðli og áhættu þjónustunnar og umfangi starfseminnar. Í 6. gr. reglugerðarinnar eru tilgreindir þeir þættir sem innra eftirlit felur í sér að lágmarki. Þessir þættir lúta m.a. að mönnun, hæfni og þjálfun starfsfólks, húsnæði, lækningatækjum og öðrum búnaði. Einnig eru kröfur um:
- Að biðtími eftir þjónustu sé metinn reglulega.
- Að reglulega sé farið yfir aðgangsstýringu að kerfum þjónustuveitenda, öryggi sjúkraskráa og meðferð persónuupplýsinga.
- Að fyrir hendi sé verklag sem tryggir örugga meðferð og geymslu lyfja.
- Að fyrir hendi sé verklag vegna óvæntra og alvarlegra atvika og eftirfylgni með að því sé fylgt.
- Að til staðar sé verklag vegna ábendinga og athugasemda við þjónustu eða framkomu heilbrigðisstarfsfólks, kvartana og niðurstöðu þjónustukannana ásamt eftirfylgni.
Tilkynna skal embætti landlæknis um niðurstöður innra eftirlits ef ætla má að tilefni sé til, svo sem ef ástæða er til að hefja rannsókn eða annað eftirlit á grundvelli eftirlitshlutverks embættis landlæknis.