Vísindi, öryggi og hraðari orkuskipti rauður þráður Íslands á COP31
Ísland beitir sér fyrir því að dregið verði hratt úr notkun jarðefnaeldsneytis til þess að halda aftur af hlýnun jarðar og að ákvarðanir um loftslagsskuldbindingar byggi á vísindum í samningaviðræðum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP31) í Antalya í Tyrklandi. Þá hafa kynjajafnrétti og vernd mannréttinda verið áberandi í málflutningi Íslands.
Hart hefur verið tekist á um lokaákvörðun og samkomulagstexta ráðstefnunnar og hafa viðræður dregist fram yfir áætluð ráðstefnulok. Ísland er meðal þeirra ríkja sem leggja ríka áherslu á að fjallað sé um mikilvægi þess að hverfa frá notkun jarðefnaeldsneytis í samkomulagstextanum. Fjöldi olíuframleiðsluríkja beitir sér gegn því.
Fjármögnun loftslagsaðgerða er jafnframt eitt helsta ágreiningsefnið. Þróunarríki kalla eftir auknu fjármagni, einkum til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga, en þróuð ríki hafa ekki viljað fallast á ný bindandi markmið og vísa meðal annars til þess að nýlega hafi náðst samkomulag um umgjörð fjármögnunarinnar.
Orkuskipti snúist um öryggi og sjálfstæði
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sat ráðstefnuna í vikunni og tók þátt í fjölda viðburða. Rauður þráður í málflutningi hans var að hnattræn hlýnun og örar breytingar á þeim náttúrulegu kerfum sem gera jörðina okkar byggilega skapi öryggishættu fyrir þjóðir heimsins og ógni því sem okkur er kært.
„Stríðsátök og spenna í alþjóðakerfinu minna okkur á hvað það er hættulegt fyrir þjóðir að vera of háðar innfluttu jarðefnaeldsneyti. Þannig að orkuskiptin snúast ekki aðeins um að vernda loftslagið heldur líka um að verja öryggi okkar, sjálfstæði og frelsi,“ sagði Jóhann Páll í opnu samtali allra ráðherra á miðvikudag.
„Við vitum öll hvað vísindin segja: Við erum að brenna plánetuna okkar. Loftslagsáhætta eykst og við erum að renna út á tíma að afstýra alvarlegustu afleiðingunum. Vísindin, ásamt siðferðiskennd okkar og umhyggju fyrir hvert öðru og komandi kynslóðum, eru eini almennilegi áttavitinn sem við höfum til þess að takast á við þennan vanda. Þess vegna verðum við að standa vörð um vísindin og starf Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, IPCC.“
Vendipunktar og þjóðaröryggi
Ísland stóð ásamt Norrænu ráðherranefndinni og fleiri samstarfsaðilum fyrir alþjóðlegum viðburði um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC). Þar ræddu ráðamenn og leiðandi vísindamenn, meðal annars Johan Rockström, forstjóri Potsdam Institute for Climate Impact Research, Stefan Rahmstorf hafstraumafræðingur og Costas Kadis, framkvæmdastjóri sjávarútvegs- og hafmála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, mikilvægi þess að vísindaleg þekking leiði ákvarðanir stjórnvalda og að brugðist verði við loftslagsáhættu áður en alvarlegar og hugsanlega óafturkræfar breytingar verða á loftslagskerfinu.
Á viðburði Evrópusambandsins um alþjóðasamstarfið EU Ocean Eye International Alliance tilkynnti ráðherra jafnframt að Ísland muni leggja fimm milljónir króna árlega til hnattræna hafathugunarkerfisins (GOOS) og að árlegt framlag Íslands til haffræðinefndar UNESCO (IOC) hækki úr sjö í tíu milljónir króna.
Jarðhiti settur rækilega á dagskrá
Jarðhiti hefur fengið talsvert meiri athygli á ráðstefnunni að þessu sinni en undanfarin ár. Á blaðamannafundi sem Jóhann Páll hélt með Simon Watts, orkumálaráðherra Nýja-Sjálands og fleiri samstarfsaðilum, var fjallað um hvernig efla megi alþjóðlegt samstarf um rannsóknir, tækniþróun og nýtingu jarðhita. Samstarfið byggir meðal annars á viljayfirlýsingu Íslands og Nýja-Sjálands frá COP30 í Brasilíu í fyrra og miðar að því að gera fleiri ríkjum kleift að nýta jarðhita sem áreiðanlegan og endurnýjanlegan orkugjafa.
Þá tók Ísland einnig þátt í Geothermal Ambition, viðburði IRENA (International Renewable Energy Agency) þar sem áhersla var lögð á að auka vægi jarðhita í orkuskiptum. Fjöldi ríkja á COP31 hefur sameinast um metnaðarfulla yfirlýsingu þar sem stefnt er að tólfföldun á afkastagetu jarðhita til raforku- og varmaframleiðslu á heimsvísu fyrir árið 2050.
„Jarðhiti getur skilað hreinni og áreiðanlegri orku allan sólarhringinn, styrkt orkuöryggi, dregið úr kolefnislosun og skapað ný tækifæri til atvinnuuppbyggingar. Og með nýrri tækni er orðið mögulegt að nýta jarðhita við aðstæður þar sem það var áður talið óhagkvæmt eða ómögulegt. Hér mun íslensk þekking og reynsla sannarlega koma að gagni,“ sagði ráðherra.