3. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Árlegt samráð við Bandaríkin á sviði varnar- og öryggispólitískra mála

{image.Description}

Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnar- og öryggispólitískra mála (e. Strategic dialogue) var haldið í Reykjavík og Keflavík dagana 2. – 3. nóvember. Þar var farið yfir þróun öryggismála í Evrópu sem og á alþjóðavettvangi, með sérstaka áherslu á aukið samstarf ríkjanna á norðurslóðum og vettvangi Atlantshafsbandalagsins.

Fundurinn byggði á þeim góða grunni sem lagður var með nýlegri heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands og þá var þess jafnframt minnst að 75 ár eru nú liðin frá því að Ísland og Bandaríkin hófu náið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála með tvíhliða varnarsamkomulagi.

Áhersla var lögð á að efla samstarf á norðurslóðum, styrkja sameiginlegar varnir og fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins og þróa áfram tvíhliða verkefni á sviði öryggis- og varnarmála.  Þá var rætt um aukna yfirsýn yfir öryggisumhverfi norðurslóða, vernd mikilvægara innviða og aðgerðir gegn ógnum og undirróðri.

Einnig voru rædd ný tækifæri til samstarfs á sviði tvínota tækni, öryggis aðfangakeðja og nýsköpunar, sem og möguleikinn á auknu samstarfi við þjóðvarðalið Bandaríkjanna (e. National Guard).

Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu, og Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, leiddu viðræðurnar fyrir hönd Íslands. Af hálfu Bandaríkjanna sátu fundinn Peter Andreoli, varaskrifstofustjóri Evrópu- og Evrasíuskrifstofu bandaríska utanríkisráðuneytisins, og Alton Buland, yfirmaður mála Evrópu og Atlantshafsbandalagsins í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Þá tóku Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Washington D.C., og Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, sömuleiðis þátt í samráðinu.

Var efnið hjálplegt?