Samtal við tengiliði farsældar í framhaldsskólum
Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu, stóð fyrir vinnudegi með tengiliðum farsældar í framhaldsskólum síðastliðinn föstudag. Markmið vinnudagsins var að bæta aðgengi að og þekkingu á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum og auka samfellu í þjónustu þegar barn færist úr grunnskóla í framhaldsskóla. Greindar voru áskoranir og leitað var lausna við innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum.
Í hverjum leik-, grunn- og framhaldsskóla og á hverri heilsugæslustöð er nú að finna tengilið farsældar. Tengiliður farsældar er starfsmaður í nærumhverfi barns og foreldra sem fjölskyldur geta leitað til í tengslum við áskoranir sem börn standa frammi fyrir. Yfir 700 tengiliðir eru nú starfandi í nærumhverfi barna.
Tengiliðurinn er brú milli barna eða aðstandenda þeirra sem þurfa á aðstoð að halda og þeirrar þjónustu sem þeim stendur til boða þvert á kerfi og stofnanir. Hann er sá aðili sem styður við samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns. Hann veitir foreldrum og eftir atvikum barni upplýsingar um þjónustu, tryggir aðgang að frummati og kemur upplýsingum áfram til sveitarfélags þegar barnið hefur þörf fyrir þjónustu á öðru eða þriðja þjónustustigi til lengri tíma.
Um fjörutíu tengiliðir alls staðar af landinu tóku þátt í vinnudeginum og umræðum, ásamt forseta og stjórnarmanni Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
Emil Arthúr Júlíusson, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema, kemur sjónarmiðum framhaldsskólanema á framfæri
Stuðningur við farsæld í framhaldsskólum er meðal aðgerða í framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030. Mennta- og barnamálaráðuneytið þakkar þátttakendum fyrir góða framsögu og umræður á vinnudeginum og vinnur nú áfram með niðurstöðurnar.