29. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Styttri bið og öflugri þjónusta á bráðamóttöku Landspítala

{image.Description}
Bið á bráðamóttöku eftir innlögn fyrir og eftir opnun bráðamatsdeildarinnar í Fossvogi

Fyrstu niðurstöður sýna að bið eftir innlögn hefur styst verulega eftir opnun nýrrar bráðamatsdeildar á Landspítala samhliða umfangsmiklum breytingum á bráðaþjónustu spítalans. Dvalartími á bráða- og göngudeild G3 hefur einnig styst þrátt fyrir að komum hafi fjölgað. Þá hefur bið eldra fólks eftir hjúkrunarrými að lokinni sjúkrahúsmeðferð styst verulega samhliða opnun tæplega 270 hjúkrunarrýma á síðustu 12–13 mánuðum.

Samkvæmt samantekt stjórnenda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans benda ný gögn til þess að breytingarnar séu þegar farnar að skila verulegum árangri. Áhersla er lögð á að nýta sérþekkingu starfsfólks og greiða aðgang sjúklinga að sérfræðimati, rannsóknum og meðferð á spítalanum.  Sum úrræðin eru þegar komin í gagnið en önnur eru í undirbúningi eða uppbyggingu.

„Hér sjáum við frábæran árangur af öflugri uppbyggingu stjórnvalda á hjúkrunarrýmum líkt og lofað var, þéttu og góðu samstarfi heilbrigðisráðuneytisins og Landspítala og markvissu þróunarstarfi og nýsköpun innan spítalans sjálfs til að efla og bæta þjónustu við sjúklinga” segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Styttri bið eftir opnun bráðamatsdeildar

Nýja bráðamatsdeildin með tuttugu rúmum tók til starfa fyrir rúmum mánuði. Þangað fara sjúklingar sem þurfa frekara mat og meðferð á vegum lyflækna eftir fyrstu rannsóknir og meðferð á bráðamóttöku. Eftir opnun hennar bíða nú að jafnaði um helmingi færri eftir innlögn af bráðamóttöku inn á deildir spítalans miðað við meðaltal þriggja mánaða fyrir opnun deildarinnar.  Mánuðinn áður en bráðamatsdeildin var opnuð var þessi bið að meðaltali 26,5 klst. en er nú 15,2 klst., sem samsvarar 43% styttingu. Einn aðaltilgangurinn með stofnun deildarinnar var einmitt að draga úr þessari bið, bæta flæðið og skapa örugga og skilvirka þjónustu. Um leið batna vinnuaðstæður á bráðamóttökunni sjálfri til hagsmuna fyrir bæði sjúklinga og starfsfólk.

Starfsfólk úr mörgum fagstéttum kemur að þjónustu bráðamatsdeildarinnar. Þar starfa meðal annars læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, lyfjafræðingar og félagsráðgjafar. Starfsfólkið sinnir sjúklingum fram á kvöld til að stytta bið eftir mati og ákvörðunum um næstu skref.

Þótt skammt sé liðið frá opnun bráðamatsdeildarinnar eru sterkar vísbendingar um að starfsemi hennar leiði til þess að sjúklingar komist hraðar í gegnum bráðamóttökuna og að þeir sem þurfa á innlögn að halda bíði skemur en ella.

Fleiri fá meðferð án þess að leggjast inn

HRATT-teymi hóf störf á bráðamóttöku 15. maí síðastliðinn. Í því starfa sérfræðilæknir í bráðalækningum og hjúkrunarfræðingur. Þau sinna sjúklingum sem að jafnaði ættu ekki að þurfa að leggjast inn á legudeild. Markmiðið er að greina vandann, veita meðferð og ákveða næstu skref innan sex klukkustunda.

Jafnframt er verið að þróa svonefnt leiðarmat. Það bætist við hefðbundið mat á því hversu brátt sjúklingur þarf að fá aðstoð. Hjúkrunarfræðingur metur þá einnig hvar sjúklingurinn fái mest viðeigandi þjónustu, til dæmis á bráðamóttöku, bráðadagdeild eða flýtimóttöku sérgreinar.

Flýtimóttökur sérhæfðra þjónustueininga veita sjúklingum greiðari aðgang að sérfræðingum á dag- og göngudeildum. Þá er verið að þróa þjónustu bráðadagdeildar lyflækninga svo fleiri geti lokið rannsóknum og meðferð án innlagnar.

Þjónustan efld innan spítalans og á heimilum sjúklinga

Landspítali hefur einnig tekið upp nýtt verklag um yfirfærslu læknisfræðilegrar ábyrgðar þvert á spítalann. Verklagið eykur öryggi sjúklinga með því að tryggja skýrt upplýsingaflæði, skýra ábyrgð og markviss samskipti milli meðferðaraðila. Jafnframt stuðlar það að betra flæði sjúklinga með því að draga úr töfum, óvissu og tvíverknaði þegar sjúklingur færist milli deilda eða sérgreina.

Reglulegir samráðsfundir hafa jafnframt verið teknir upp til að samhæfa þjónustu við fólk sem fær slag, allt frá bráðameðferð til endurhæfingar.

Samhliða er unnið að því að fleiri sjúklingar geti fengið sjúkrahúsþjónustu heima þegar ástand þeirra leyfir. Heimaspítali krabbameinsþjónustu er þegar starfandi, heimaspítali lyflækninga er í undirbúningi og unnið er að uppbyggingu sambærilegrar þjónustu fyrir börn.

Ofangreindar breytingarnar hafa það sameiginlega markmið að sjúklingar fái fyrr þá þjónustu sem þeir þurfa og geti útskrifast um leið og það er metið öruggt. Áfram verður fylgst með biðtíma, lengd sjúkrahúsdvalar, innlögnum og gæðum þjónustunnar og starfsemin þróuð í samræmi við niðurstöðurnar.

 

„Við höfum unnið markvisst að endurskipulagningu bráðaþjónustu Landspítala undanfarin 5 ár og hefur einkum verið stuðst við fyrirmynd frá Bretlandi. Enn fremur höfum við nýtt okkur jákvæða reynslu af ferliþjónustu við bráðveika einstaklinga sem beitt var í viðureigninni við faraldur Covid-19. Ástæða þess að við höfum ráðist í þessar umfangsmiklu breytingar er ekki eingöngu skortur á legurýmum, sem litað hefur bráðaþjónustu Landspítala mörg undanfarin ár, heldur einnig aukin eftirspurn eftir þjónustu sem fyrirsjáanlegt er að muni halda áfram að vaxa á komandi árum. Það er afar ánægjulegt að sjá þann árangur sem þegar hefur náðst og ber hann vott um frumkvæði og færni starfsfólks spítalans“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.

 

Sjá einnig: