18. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Mál nr. 113/2026 Úrskurður 18. nóvember 2026
Mál nr. 113/2026 Aðlögun kenninafns: Íansdóttir
Hinn 18. nóvember 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 109/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 12. nóvember 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að kenna dóttur sína við föður, Ian, þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hennar verði Íansdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Íansdóttir.