3. nóvember 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Gunnar Tryggvason nýr formaður 6. áfanga rammaáætlunar
Gunnar Tryggvason hefur verið skipaður formaður verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar. Gunnar tekur við formennskunni af Svanfríði Jónasdóttur.
Gunnar er raforkufræðingur að mennt með MSc-gráðu frá háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi og Bsc frá Háskóla Íslands. Hann hefur áratuga reynslu af málefnum orkugeirans og hefur starfað í áliðnaði og við fjármálaráðgjöf fyrir orkugeirann. Þá sat hann í stjórn Landsvirkjunar í sjö ár. Gunnar er nú hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Hlutverk verkefnisstjórnar rammaáætlunar er að veita umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ráðgjöf um vernd og orkunýtingu landsvæða. Ráðherra skipaði verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar sumarið 2025 og telur hún sex manns.