3. nóvember 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 42/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. ágúst 2026

í máli nr. 42/2025:

Hirzlan ehf.

gegn

Háskóla Íslands og

Pennanum ehf.

 

Lykilorð

Rammasamningur. Örútboð. Krafa um óvirkni samnings. Stjórnvaldssekt. Viðmiðunarfjárhæð. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður.

Útdráttur

HÍ auglýsti örútboð innan rammasamnings vegna innkaupa á húsgögnum fyrir kennslustofur. Tilboði H var hafnað á þeim grundvelli að boðnir stólar hefðu ekki uppfyllt kröfur örútboðsgagna, og valdi HÍ tilboð P. H kærði þá ákvörðun til kærunefndar útboðsmála. Í niðurstöðu nefndarinnar var tekið fram að kominn væri á bindandi samningur við P sem ekki yrði felldur úr gildi. Var kröfu H um að felld yrði úr gildi ákvörðun um val tilboðs P því hafnað. H krafðist einnig óvirkni samningsins eða, eftir atvikum, að kærunefnd útboðsmála myndi beita öðrum viðurlögum samkvæmt 118. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í niðurstöðu nefndarinnar var tekið fram að skilyrði þess að beiting óvirkni kæmi til greina væri að viðmiðunarfjárhæðum 4. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016 væri náð. Kærunefndin hafnaði þeim sjónarmiðum H að við mat á því þessu skyldi líta til allra innkaupa innan rammasamningsins. Ljóst væri að innkaupin væru undir viðmiðunarfjárhæðum og var kröfu um óvirkni samningsins því hafnað. Með sömu rökum var kröfu um beitingu annarra viðurlaga samkvæmt 118. gr. laga nr. 120/2016 hafnað. Við mat á skaðabótaskyldu HÍ gagnvart H leit kærunefndin til tilboðsgagna H sem bæru með sér að tilboð H hefði uppfyllt þær kröfur sem gerðar hefðu verið til boðinna stóla. Var því fallist á kröfu H um að HÍ væri skaðabótaskylt gagnvart H. Þá var HÍ gert að greiða H málskostnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. september 2025 kærði Hirzlan ehf. (hér eftir „kærandi“) örútboð Háskóla Íslands (hér eftir „varnaraðili“) nr. EHI-2025-001 innan rammasamnings nr. 04.01 auðkenndu „Húsgagnakaup fyrir kennslustofur hjá Endurmenntun HÍ.“

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Pennans ehf., sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Hafi bindandi samningur verið gerður krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála óvirki samninginn samkvæmt 115. gr. laga nr. 120/2016 eða beiti öðrum úrræðum samkvæmt 118. gr. laga nr. 120/2016. Kærandi krefst þess jafnframt að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila samkvæmt 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 119. gr. sömu laga. Kærandi krefst einnig málskostnaðar, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Loks tekur kærandi fram að verði ekki fallist á að biðtími gildi um hið kærða örútboð, og að samningsgerð hafi stöðvast sjálfkrafa með framlagningu kæru, krefst kærandi þess til vara að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir, sbr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Varnaraðila og Pennanum ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 30. september 2025 að kærunefnd útboðsmála vísi frá kröfu um ógildingu ákvörðunar um val tilboðs og kröfu um óvirkni samnings. Að auki krefst varnaraðili þess að hafnað verði kröfum kæranda um álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og um greiðslu málskostnaðar. Þá krefst varnaraðili þess að kærunefnd útboðsmála úrskurði kæranda til greiðslu málskostnaðar í þágu varnaraðila.

Penninn ehf. sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 8. október 2025 vegna kæru málsins og benti á að þar sem um væri að ræða örútboð þá væri kominn á samningur. Aðrar athugasemdir hefði félagið ekki við kæruna.

Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir frekari skýringum frá varnaraðila með tölvupósti 10. október 2025 um hvort kominn væri á bindandi samningur og, ef svo væri, að slíkur samningur yrði lagður fram. Varnaraðili svaraði erindi kærunefndarinnar 15. október 2025 og lagði fram umræddan samning. Samkvæmt samningnum mun tilboð Pennans ehf. hafa verið samþykkt 12. september 2025.

Með ákvörðun 17. nóvember 2025 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda þess efnis að samningsgerð yrði stöðvuð um stundarsakir.

Varnaraðili tilkynnti kærunefnd útboðsmála 2. desember að hann hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir í málinu.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar í málinu 9. desember 2025.

 

I

Varnaraðili auglýsti hið kærða útboð í ágúst 2025, en um var að ræða örútboð innan rammasamnings um húsgögn RK 04.01. Var tekið fram í grein 1 í örútboðsgögnum að samningsskilmálar rammasamningsins giltu um örútboðið nema annað væri tekið fram. Í grein 3 kom fram að óskað væri eftir tilboðum í húsgögn fyrir kennslustofur Endurmenntunar HÍ. Óskað væri eftir 42 nemendaborðum (trapezu) á hjólum, 18 nemendaborðum (veltiplötuborð) og 104 léttum stólum á hjólum fyrir kennslustofur. Í grein 4 var tekið fram hvaða seljendur mættu gera tilboð í örútboðinu, alls 9 talsins.

Í grein 4.1 og undirgreinum komu fram frekari lýsingar á þeim kröfum sem gerðar væru til boðinna vara. Í grein 4.1.2 var kröfum til stólanna lýst þannig að óskað væri eftir léttum stólum á hjólum undir kennslustofur við trapezuborð og felliplötuborð. Þeir skyldu vera bólstraðir og með netbak og án arma. Jafnframt skyldi vera svart tauáklæði, og svart netbak úr sterku netáklæði, og setuhæð skyldi vera 46 cm. Fætur þeirra skyldu vera svartir og efniviðurinn skyldi vera sterk stálgrind, á fjórum mjúkum hjólum. Þá skyldu stólarnir vera staflanlegir, minnst 4 stykki, og gert væri ráð fyrir að gæðin væru framúrskarandi og gæðavottuð, áklæði sterkt og endingargott ásamt sterkri grind.

Í grein 2.5 komu fram valforsendur og tekið fram að lægsta tilboði yrði tekið ef allar kröfur settar fram í örútboðslýsingu og ákvæðum rammasamnings væru uppfylltar. Tilboð sem næðu ekki til allra þátta í lista yfir húsgögn yrðu metin ógild.

Tilboð voru opnuð hinn 5. september 2025 og bárust alls sex tilboð. Tilboð kæranda var næst lægsta tilboðið og nam alls 6.067.000 krónum. Tilboð Pennans ehf. var næst hæsta tilboðið og nam alls 7.215.400 krónum. Kostnaðaráætlun varnaraðila nam 7.550.000 krónum með virðisaukaskatti. Hinn 12. september 2025 tilkynnti varnaraðili að ákveðið hefði verið að velja tilboð Pennans ehf. í hinu kærða örútboði. Þann sama dag sendi kærandi tölvupóst til varnaraðila og óskaði eftir rökstuðningi fyrir því að tilboði félagsins hefði ekki verið tekið. Í svari varnaraðila þann sama dag var upplýst um að tilboði félagsins hefði verið hafnað á þeim grundvelli að stólarnir hefðu átt að vera með tauáklæði á setu og netbaki. Kærandi hefði hins vegar boðið stól sem hefði plasthlíf (e. plastic cover) sem uppfyllti ekki kröfur örútboðsgagna. Kærandi sendi varnaraðila þrjá tölvupósta í kjölfarið þann sama dag þar sem því var haldið fram að boðinn stóll uppfyllti kröfur örútboðsgagna, en samkvæmt gögnum málsins svaraði varnaraðili þeim erindum ekki.

 

II

Kærandi vísar til greinar 1.1.12 í rammasamningi 04.01 um húsgögn þar sem fram komi að óheimilt sé gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að lögmætum biðtíma, sbr. 86. gr. laga nr. 120/2016. Biðtíminn sé tíu dagar í útboðum yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins og fimm dagar í útboðum undir þeim viðmiðunarfjárhæðum. Biðtími hefjist degi eftir að tilkynning um val tilboðs hafi verið send bjóðendum. Í örútboðsgögnum hafi komið fram að um væri að ræða örútboð innan rammasamnings um húsgögn og að samningsskilmálar rammasamningsins gildi um örútboðið nema annað sé tekið fram. Í því ljósi telji kærandi að fimm daga biðtími sé í þessu örútboði og ef komi í ljós að samningur hafi verið gerður á biðtíma þá sé það skýrt brot á ákvæðum rammasamningsins. Kæran hafi borist innan biðtíma og hafi í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, en verði ekki fallist á það geri kærandi kröfu um að samningsgerð verði stöðvuð þar til endanlega hafi verið skorið úr kæru með vísan til 110. gr. laga nr. 120/2016.

Kærandi byggir á því að tilboð hans hafi uppfyllt alla skilmála örútboðsins og hafi verið mun lægra en tilboð Pennans ehf. Varnaraðili hafi ekki tilkynnt kæranda sérstaklega um að tilboði hans hafi verið hafnað og hvers vegna, heldur hafi aðeins verið send út tilkynning um að tilboð Pennans ehf. hefði verið valið. Með því hafi varnaraðili í raun og veru sagt að öll fjögur tilboðin sem voru lægri en tilboð Pennans ehf. hafi verið ógild enda hafi verð verið eina valforsendan.

Kærandi hafi sent varnaraðila beiðni um rökstuðning sama dag og tilkynning um val tilboðs hafi verið send bjóðendum. Í beiðni kæranda hafi verið tekið fram að félagið teldi öllum skilyrðum örútboðsins hafi verið fullnægt. Í svari varnaraðila hafi komið fram að í örútboðsgögnum hafi komið fram að stólarnir hafi átt að vera með tauáklæði á setu og netbaki, en í tilboði kæranda hefði verið boðinn tiltekinn stóll með plasthlíf (e. plastic cover) sem uppfylli ekki kröfur örútboðsgagna. Kærandi hafi sent varnaraðila frekari skýringar og bent á að sætið væri bólstrað með tauáklæði eins og beðið hafi verið um og hvergi hafi verið tekið fram að ekki mætti vera plasthlíf undir stólnum. Hún væri ekki sjáanleg fyrir notandann og þjóni verndartilgangi þegar stólunum sé staflað upp. Það væri ekkert mál að sleppa plasthlífinni. Kærandi hafi einnig bent á að í tækniblaði framleiðanda komi fram að setan væri bólstruð (e. upholstered) og svampur setunnar væri skorinn en ekki sprautaður. Það segi með mikilli vissu að stóllinn væri vissulega með bólstraðri setu, enda væri ekkert áklæði eða svampur ef stóllinn væri með plastsetu. Þá hafi kærandi sent varnaraðila með tölvupóstinum sömu skjöl og hafi fylgt með tilboði félagsins, og telji kærandi því ljóst að allar upplýsingar hafi legið fyrir í tilboðinu og skýringar félagsins séu einungis til þess að upplýsa varnaraðila um að tilboðið hafi uppfyllt allar kröfur örútboðsins.

Kærandi telji að framkvæmd örútboðsins hafi ekki samrýmst góðum útboðsháttum og sé í andstöðu við lög nr. 120/2016. Kærandi hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn af kaupanda og að möguleikar hans hafi skerst við umrædd brot, sbr. 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016. Þá séu öll innkaup innan rammasamnings um húsgögn samanlagt innkaup yfir viðmiðunarmörkum um útboðsskyldu á EES-svæðinu og sé rammasamningurinn auglýstur þar. Telji kærandi að samanlagt hafi öll innkaup innan rammasamningsins farið yfir viðmiðunarfjárhæð á EES-svæðinu og séu innkaup í þessu örútboði hluti af því heildarmengi. Óski kærandi því eftir að kærunefnd útboðsmála kalli eftir upplýsingum um innkaup á vörum innan rammasamningsins. Byggi kærandi kröfu sína um óvirkni samnings á því að innkaup varnaraðila samkvæmt örútboðinu séu hluti af öðrum innkaupum varnaraðila yfir viðmiðunarfjárhæðum á EES-svæðinu, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016.

Í lokaathugasemdum sínum 9. desember 2025 ítrekar kærandi að hann hafi boðið fram stól með setu sem væri bæði bólstruð og klædd tauáklæði, og þær upplýsingar hafi fylgt með tilboði kæranda. Því hafi höfnun á tilboði kæranda verið ólögmæt. Kærandi ítrekar að auki að varnaraðila hafi verið skylt að viðhafa biðtíma. Varnaraðili hafi í greinargerð sinni haldið því fram að fortakslaust sé kveðið á um í 3. tölul. 2. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 að biðtími samningsgerðar gildi ekki við gerð samnings á grundvelli rammasamnings samkvæmt 40. gr. laganna, en kærandi bendi á að umræddu ákvæði hafi þá þegar verið breytt. Í umræddu ákvæði sé nú kveðið á um að heimilt sé að sleppa biðtíma í tilvikum sem þessum. Þá sé ákvæði um biðtíma í rammasamningi um húsgögn, sem hér um ræði. Í rammasamningnum segi að óheimilt sé að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum lögmæltum biðtíma samkvæmt 86. gr. laga nr. 120/2016. Í örútboðinu hafi verið tekið fram að samningsskilmálar rammasamningsins giltu um örútboðið, og því sé ljóst að fimm daga biðtími hafi gilt í örútboðinu. Varnaraðili hafi gert samning á meðan biðtíma hafi staðið og því beri að gera samninginn óvirkan eða beita öðrum úrræðum samkvæmt 118. gr. laga nr. 120/2016.

 

III

Varnaraðili bendir á að við yfirferð tilboða hafi komið í ljós að fjögur lægstu tilboðin, þ.á m. tilboð kæranda, hafi ekki uppfyllt þær lágmarkskröfur sem gerðar hafi verið í örútboðslýsingu. Tilboði Pennans ehf. hafi því verið tekið, þar sem það hafi verið metið lægsta gilda tilboðið sem hafi borist í hinu kærða örútboði.

Varnaraðili vísar til þess að samkvæmt 3. tölul. 2. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 sé fortakslaust kveðið á um að biðtími samningsgerðar gildi ekki við gerð samnings á grundvelli rammasamnings samkvæmt 40. gr. laganna. Kærunefnd útboðsmála hafi margsinnis staðfest þann skilning og litið svo á að um ófrávíkjanlegt lagaákvæði sé að ræða, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 9/2023. Þar sem lögboðinn biðtími hafi ekki verið fyrir hendi í umræddu örútboði hafi kæran ekki leitt til sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar samkvæmt 107. gr. laga nr. 120/2016. Í samræmi við 3. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 teljist bindandi samningur hafa komist á við tilkynningu um val tilboðs hinn 12. september 2025. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verði bindandi samningi, sem gerður hafi verið í samræmi við lögin, ekki breytt eða hann felldur úr gildi þótt ákvörðun kaupanda hafi verið ólögmæt. Af þessum sökum beri að vísa kröfum kæranda um ógildingu ákvörðunar og óvirkni samnings frá nefndinni. Hið sama gildi um varakröfu kæranda, um stöðvun samningsgerðar, enda sé samningur þegar kominn á.

Þá vísar varnaraðili til þess að í grein 4.1.2 í örútboðslýsingu hafi verið gerð skýr og ótvíræð krafa um að umbeðnir stólar skyldu vera með tauáklæði, svart á litinn, á setu. Í vörulýsingu fyrir þann stól sem kærandi hafi boðið hafi komið fram að hann væri bólstraður (e. upholstered) með plasthlíf (e. plastic cover). Hafi varnaraðili talið, á grundvelli þessara ótvíræðu upplýsinga frá framleiðanda, að boðin vara hafi ekki uppfyllt lágmarkskröfu um tauáklæði. Sú ábyrgð hvíli á bjóðanda að leggja fram gögn sem sýni fram á með skýrum og ótvíræðum hætti að allar lágmarkskröfur væru uppfylltar. Þar sem tekið væri fram að stóllinn væri með plasthlíf hafi það gefið varnaraðila fullt tilefni til þess að álykta að varan hafi ekki verið í samræmi við útboðsgögn. Að túlka það á annan veg hefði falið í sér ígildi þess að horfa fram hjá skýrum texta í tilboðsgögnum kæranda. Samkvæmt staðfastri framkvæmd kærunefndar útboðsmála beri kaupanda ekki skylda til að óska eftir frekari skýringum á tilboði eftir að tilboðsfrestur sé liðinn, þegar upplýsingar í tilboðinu sjálfu gefa tilefni til að hafna því. Slíkt gæti raskað jafnræði bjóðenda, sbr. t.d. úrskurði kærunefndar útboðsmála nr. 30/2013 og 11/2023. Þær skýringar, myndir og gögn sem kærandi hafi sent varnaraðila eftir að tilkynning um val tilboðs hafi verið send út breyti engu um mat á tilboðinu eins og það hafi legið fyrir við opnun. Það hafi verið á ábyrgð kæranda að tryggja að vörulýsingin sem hafi fylgt tilboðinu væri ótvíræð og í fullu samræmi við kröfur. Þar sem svo hafi ekki verið hafi höfnun tilboðsins verið bæði málefnaleg og lögmæt. Kærandi hafi jafnframt ekki átt raunhæfa möguleika á að verða valinn í hinu kærða örútboði og sé skilyrði skaðabótaskyldu samkvæmt 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 því ekki uppfyllt.

 

IV

Hið kærða útboð var örútboð innan rammasamnings um húsgögn nr. 04.01. Varnaraðili tilkynnti 12. september 2025 um val á tilboði Pennans ehf. og var gerður bindandi samningur milli varnaraðila og Pennans ehf. þann sama dag. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður bindandi samningur ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Pennans ehf. í hinu kærða örútboði.

Í kæru málsins er þess jafnframt krafist að ef bindandi samningur sé kominn á þá verði hann lýstur óvirkur og/eða kærunefnd útboðsmála beiti öðrum úrræðum samkvæmt 118. gr. laga nr. 120/2016, þ.e. stjórnvaldssekt.

Samkvæmt 1. mgr. 115. gr. laga nr. 120/2016 skal kærunefnd útboðsmála lýsa samning sem er yfir viðmiðunarfjárhæðum vegna útboðsskyldu á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. óvirkan í þeim tilvikum sem nánar eru tilgreind í 2. mgr. Ráðherra hefur sett reglugerð á grundvelli þessa ákvæðis, sbr. reglugerð nr. 360/2022. Í 3. gr. reglugerðarinnar var viðmiðunarfjárhæð vegna vörukaupa á þeim tíma sem innkaupin áttu sér stað 20.866.000 krónur. Kemur beiting óvirkni því aðeins til álita að virði innkaupa fari fram úr umræddri viðmiðunarfjárhæð.

Hér háttar svo til að kæra beinist að innkaupum sem fóru fram að loknu örútboði á grundvelli rammasamnings. Kæran í málinu sem slíku beinist ekki að gerð rammasamningsins sjálfs. Kemur því ekki til álita við mat á viðmiðunarfjárhæð vegna örútboðsins að horfa til virðis heildarinnkaupa sem fram fara samkvæmt rammasamningnum sjálfum. Afleiðing þess yrði enda sú að óvirkni gæti átt við hver einustu innkaup samkvæmt rammasamningi þótt umfang þeirra væri langt undir því sem löggjafinn taldi réttlæta beitingu þessa íþyngjandi úrræðis. Af því leiðir að leggja verður sjálfstætt mat á virði þeirra innkaupa sem örútboðið beindist að.

Tilboð Pennans ehf. nam 7.215.400 krónum og tilboð kæranda 6.067.000 krónum. Þá voru öll önnur tilboð í hinu kærða örútboði langt undir viðmiðunarfjárhæð 4. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016. Af gögnum málsins verður ekki ráðið annað en að hin umþrættu innkaup hafi verið sjálfstæð og ekki staðið í neinum sérstökum tengslum við önnur innkaup varnaraðila innan rammasamningsins. Þá er jafnframt til þess að líta að Ríkiskaup, nú Fjársýsla ríkisins, auglýstu rammasamninginn fyrir hönd áskrifenda að honum árið 2023 og því ekki óvarlegt að álykta sem svo að mun fleiri kaupendur séu áskrifendur að rammasamningnum en aðeins varnaraðili í máli þessu. Verður ekki séð að innkaup annarra áskrifenda innan rammasamningsins geti talist í neinum tengslum við þau innkaup sem hér um ræðir. Auk þessa má líta til þess að örútboð innan rammasamnings fela iðulega í sér að óskað sé eftir því að bregðast við þörfum kaupanda hverju sinni fyrir tilteknar vörur eða þjónustu, eftir atvikum. Hin kærðu innkaup teljast því ekki falla undir 2. mgr. 115. gr. laga nr. 120/2016 og kemur því beiting óvirkni, og þar af leiðandi einnig annarra viðurlaga skv. 118. gr. laganna, ekki til álita í málinu. Kröfum kæranda þar að lútandi er því hafnað.

Kærandi krefst einnig álits á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi aðeins að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið.

Samkvæmt örútboðsgögnum var óskað eftir tilboðum í borð, felliborð og stóla fyrir varnaraðila, en varnaraðili hugðist kaupa alls 104 létta stóla á hjólum fyrir kennslustofur Endurmenntunar Háskóla Íslands. Í grein 4.1.2 var fjallað um þær kröfur sem gerðar voru til stólanna. Kom þar fram að þeir skyldu vera með bólstraða sessu og netbak, og án arma. Að því er varðar áferð og lit þá kom fram að stólarnir skyldu vera með tauáklæði sem væri svart á litinn, netabakið skyldi vera úr sterku netáklæði sem væri einnig svart á litinn og setuhæðin skyldi vera 46 cm. Fyrir liggur að tilboði kæranda var hafnað á þeim grundvelli að boðnir stólar væru með plasthlíf sem uppfyllti ekki kröfur örútboðsgagna.

Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér tilboð kæranda og fylgiskjöl þess. Samkvæmt tilboðinu bauð kærandi svokallaðan Era Intrata stól. Í vörulýsingu, sem fylgdi með tilboði kæranda, kemur fram að hann sé með fjórum fótum og á hjólum. Stólbakið sé netabak (e. mesh) og sætið bólstrað og með plasthlíf (e. upholstered, plastic cover). Að auki er tekið fram að svampur setunnar sé skorinn (e. cut). Í vörulýsingunni er jafnframt að finna myndir af umræddum stól. Að mati kærunefndar útboðsmála þykir mega vera ljóst af vörulýsingunni, sem og myndunum, að umrædd plasthlíf er undir stólsetunni. Þá verður ráðið af tilboði kæranda að stóll sá, sem hann bauð, sé með bólstraðri setu og að engin plasthlíf sé yfir setunni. Hvergi í örútboðsgögnum var tekið fram að undir stólnum mætti ekki vera plasthlíf. Að mati kærunefndar útboðsmála verður því að telja að boðinn stóll kæranda hafi uppfyllt þær kröfur sem gerðar voru í örútboðsgögnum.

Af þessum sökum var höfnun varnaraðila á tilboði kæranda óheimil. Þá liggur fyrir að kærandi átti lægsta tilboðið í hinu kærða örútboði, en tilboð hans nam 6.067.000 krónum. Verður samkvæmt framangreindu því að telja að kærandi hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn af varnaraðila og að möguleikar hans hafi skerst við það brot varnaraðila að hafna tilboði félagsins. Eru því skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 uppfyllt.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar útboðsmála að varnaraðili sé skaðabótaskyldur gagnvart kæranda.

Eftir framangreindum málsúrslitum verður varnaraðila gert að greiða kæranda málskostnað svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.

 
 
 
 

Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu Hrizlunnar ehf. um að felld verði úr gildi ákvörðun Háskóla Íslands að velja tilboð Pennans ehf. í örútboði nr. EHI2025-001 auðkenndu „Húsgagnakaup fyrir kennslustofur hjá Endurmenntun HÍ.“

Kröfu Hirzlunnar ehf., um óvirkni samnings milli Háskóla Íslands og Pennans ehf., sem komst á í kjölfar örútboðsins, er hafnað.

Kröfu Hirzlunnar ehf., um að Háskóla Íslands verði gerð stjórnvaldssekt, er hafnað.

Háskóli Íslands er skaðabótaskyldur gagnvart Hirzlunni ehf.

Háskóli Íslands greiði Hirzlunni ehf. 1.000.000 krónur í málskostnað.

 

Reykjavík, 24. ágúst 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?