3. nóvember 2026 /

Mál nr. 8/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. ágúst 2026

í máli nr. 8/2026:

Alefli ehf.

gegn

Félagsbústöðum

 

Lykilorð

Öllum tilboðum hafnað. Útboðsgögn. Valforsendur.

Útdráttur

A kærði til kærunefndar útboðsmála þá ákvörðun F að hafna öllum tilboðum í alútboði um hönnun og byggingu nýs íbúðarkjarna í Reykjavík. A taldi að ákvörðun F væri óheimil, þar sem tilboð A hefði verið lægst ef miðað væri við reiknaða tilboðsfjárhæð samkvæmt valforsendum alútboðsgagna. F vísaði til þess að tilboðsfjárhæð A hafi verið 7,9% yfir kostnaðaráætlun og heimilt væri samkvæmt 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 að hafna tilboðinu af þeim sökum. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var rakið að áskilnaður útboðsgagna um að hafna öllum tilboðum yfir kostnaðaráætlun vísaði til þeirra fjárhæða sem fram kæmu á tilboðsgögnum bjóðenda. Kostnaðaráætlun þjónaði almennt því markmiði að vera grundvöllur áætlanagerðar kaupanda og tilboð hærri en hún væru til þess fallin að raska áætlun hans. A hefði ekki fært nein viðhlítandi rök fyrir því að kostnaðaráætlunin væri óraunhæf, og var fallist á að F hefði verið heimilt að hafna öllum tilboðum í hinu kærða alútboði. Með vísan til þessa og annars sem rakið var í úrskurði kærunefndarinnar var öllum kröfum A hafnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 10. mars 2026 kærði Alefli ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Félagsbústaða (hér eftir „varnaraðili“) um að hafna öllum tilboðum í alútboði auðkenndu „Stekkjarbakki – íbúðakjarni.“

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að hafna öllum tilboðum í hinu kærða alútboði verði felld úr gildi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærandi krefst þess jafnframt að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, sbr. 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Kærandi krefst einnig málskostnaðar, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Að auki krefst kærandi þess að samningsgerð varnaraðila verði stöðvuð um stundarsakir þar til leyst hefur verið endanlega úr kæru, sbr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Loks krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála kalli eftir öllum gögnum varnaraðila um fyrirhugaða samningsgerð með vísan til 4. mgr. 108. gr. laga nr. 1202016.

Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 12. mars 2026 að kærunni verði vísað frá kærunefnd útboðsmála en til vara að öllum kröfum kæranda verði hafnað, auk þess sem varnaraðili krefst þess að kæranda verði gert til að greiða varnaraðila málskostnað samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Með ákvörðun 16. apríl 2026 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda um að samningsgerð varnaraðila yrði stöðvuð um stundarsakir.

Varnaraðili tilkynnti kærunefnd útboðsmála 7. maí 2026 að hann hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir í málinu.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 21. maí 2026.

 

I

Varnaraðili auglýsti forval vegna hins kærða útboðs í byrjun árs 2025 og voru fimm fyrirtæki valin til þess að taka þátt í lokuðu alútboði þann 27. febrúar 2025. Alútboðsgögn voru send til þeirra fimm bjóðenda sem höfðu verið valdir 17. mars 2025. Í grein 0.1.2 í alútboðsgögnum kom fram að í útboðinu væri leitað tilboða í hönnun og framkvæmd nýs íbúðakjarna að Stekkjarbakka 5. Þá kom fram í grein 0.1.4 að alverktaki skyldi byggja og fullgera húsnæðið ásamt lóð og bílastæðum og skila því fullbúnu til notkunar, að undanskildum innréttingum og heimilistækjum.

Í grein 0.1.3 í alútboðsgögnum kom fram að við mat á tilboðum yrði gengið út frá þeim forsendum sem getið væri í grein 0.4.7. Tilboð bjóðenda yrðu metin út frá hönnun, fyrirkomulagi og gæðum þeirrar byggingar sem boðin væri. Heildartilboðsfjárhæð bjóðanda skyldi sundurliðuð og færð á tilboðsblað. Í sömu grein kom fram áskilnaður varnaraðila um að hafna þeim tilboðum sem ekki uppfylltu skilyrði greinarinnar, um skil á tilboði og fylgigögnum, eða þeim sem væru yfir kostnaðaráætlun varnaraðila.

Í grein 0.4.5 í alútboðsgögnum, sem bar heitið innifalið í tilboði, kom fram að allur kostnaður bjóðanda/alverktaka vegna verksins hverju nafni sem hann nefndist til að hanna, byggja og fullgera mannvirkið skyldi vera innifalinn í hinni föstu samningsfjárhæð. Í grein 0.4.6 kom fram að verkkaupi myndi skipa matsnefnd sem skipuð væru fulltrúum varnaraðila og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem hafi sérþekkingu á rekstri íbúðakjarna.

Í grein 0.4.7 var fjallað um meðferð og mat tillagna, og kom þar fram að ákvæði um mat á tillögu væru í grein 2.7 í ÍST 30 og lögum nr. 120/2016. Val verkkaupa á alverktaka myndi miðast við bestu tillöguna í samræmi við fyrirframgefnar forsendur í alútboðsgögnum með tillit til gæða hönnunarinnar. Við mat á tillögum yrðu einstakir fyrirfram skilgreindir þættir metnir. Matsnefndin myndi fara yfir og meta tilboð samkvæmt þeim reglum sem kæmu fram síðar í greininni. Matsnefndin myndi aðeins taka fyrir gild tilboð samkvæmt ákvæðum alútboðsgagna. Þá var gerð sú krafa að tillaga skyldi vera í samræmi við gildandi deiliskipulag til þess að vera tæk til mats. Við mat á úrlausnum skyldi matsnefnd taka tillit til þess í fyrsta lagi hvort tillagan félli vel að umhverfi sínu (10% vægi), í öðru lagi hvort tillagan samræmist byggingarlýsingu, þ.e. stærð, rekstrarlegt hæfi, og innra og ytra fyrirkomulag (50% vægi), og í þriðja lagi hvort tillagan samræmdist kröfulýsingu, þ.e. tæknilegar lausnir og efnisval (40% vægi).

Í sömu grein var loks tekið fram að einkunn skyldi innifela alla ofangreinda þætti og aðra, sem fram kynnu að koma við yfirferð úrlausna. Einkunnir yrðu gefnar á bilinu 1,00 – 1,20 og yrði einkunn síðan deilt upp í viðkomandi tilboðsfjárhæð til að fá verðsamanburð milli tilboða. Það tilboð sem þá fengi lægstu tilboðsfjárhæð væri hagstæðasta tilboðið.

Hinn 25. júní 2025 tilkynnti varnaraðili að ákveðið hefði verið að velja tilboð Mannverks ehf. Kærandi kærði þá ákvörðun varnaraðila til kærunefndar útboðsmála, og með úrskurði nefndarinnar 20. febrúar 2026 í máli nr. 29/2025 var ákvörðun varnaraðila um val tilboðs felld úr gildi sökum þess að tilboðið uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsgagna um nafnleynd. Þá vísaði kærunefnd útboðsmála frá kröfu kæranda um að veita álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila þar sem útboðið væri enn í gangi og kynni varnaraðili því að taka ákvörðun um val á tilboði annars bjóðanda í framhaldinu.

Hinn 6. mars 2025 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að ákveðið hefði verið að hafna öllum tilboðum í hinu kærða alútboði með vísan til heimildar í grein 0.1.3 í alútboðsgögnum þar sem gild tilboð væru yfir kostnaðaráætlun.

 

II

Kærandi byggir á því að hann hafi verið með hagstæðasta gilda tilboðið í hinu kærða útboði og að varnaraðila hafi því borið að taka tilboði félagsins. Kærandi hafi tilkynnt varnaraðila, eftir að úrskurður kærunefndar útboðsmála hafi verið kveðinn upp, að hann væri tilbúinn að lýsa því yfir að tilboð félagsins væri gilt að nýju samkvæmt 4. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 kæmi beiðni um slíkt frá varnaraðila. Þess í stað hafi varnaraðili ákveðið að hafna öllum tilboðum og telji kærandi ástæðu þess vera þá að varnaraðili hafi ekki viljað semja við kæranda vegna fyrri kæru og kærandi hafi með henni komið í veg fyrir samningsgerð varnaraðila við Mannverk ehf. Því sé um ómálefnalegar ástæður að ræða.

Kærandi bendir á varnaraðili beri því fyrst núna við að tilboð kæranda hafi verið yfir kostnaðaráætlun og því hafi verið heimilt að hafna því. Tilboð hafi verið opnuð 12. maí 2025 og ef varnaraðili hafi talið tilboð kæranda hafa verið yfir kostnaðaráætlun þá hafi honum þá þegar borið að hafna því og tilkynna kæranda það eins fljótt og mögulegt var samkvæmt 85. gr. laga nr. 120/2016. Varnaraðili hafi ekki heldur borið því við í samskiptum eftir tilkynningu tilboðs 25. júní 2025 að tilboð kæranda hafi verið yfir kostnaðaráætlun, né heldur hafi varnaraðili borið því við í greinargerðum sínum til kærunefndar útboðsmála vegna fyrra kærumáls.

Í áskilnaði alútboðsgagna um höfnun tilboða yfir kostnaðaráætlun hafi ekki komið fram hvort kostnaðaráætlun skyldi miðast við reiknaða tilboðsfjárhæð eða upphaflegt verðtilboð. Það hafi verið varnaraðili sjálfur sem hafi ákveðið að hafa þessa framsetningu á tilboðsfjárhæðum, þar sem verðtilboð yrðu reiknuð samkvæmt formúlu í grein 0.4.7, og allan vafa um efni útboðsgagna verði skýrður bjóðanda í hag. Matsnefnd varnaraðila hafi að auki ekki gert athugasemd um að tilboð kæranda hefði verið yfir kostnaðaráætlun og að því bæri að hafna af þeirri ástæðu.

Verði litið svo á að horfa beri til upphaflegs verðtilboðs kæranda þá beri að skoða orðalag útboðsgagna varðandi áskilnað varnaraðila í grein 0.1.3 sem skilja megi þannig að hugsanlega muni varnaraðili taka tilboði sem sé yfir kostnaðaráætlun en hann áskilji sér rétt til þess að hafna slíkum tilboðum. Ekki sé sagt fortakslaust að tilboðum fyrir kostnaðaráætlun yrði hafnað. Varnaraðili beri hallann af óskýru og misvísandi orðalagi í útboðsgögnum, en með þessum áskilnaði hafi varnaraðili jafnframt í raun áskilið sér rétt til að taka tilboði yfir fjárhagsáætlun sinni, sbr. orðalag 2. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016. Því hafi tilboð kæranda ekki verið óaðgengilegt í skilningi ákvæðisins.

Kærandi bendi að auki á að heimilt hafi verið að hafna öllum tilboðum samkvæmt 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016, en sú heimild sé bundin þeim skilyrðum að málefnalegar ástæður séu fyrir hendi eða almennar forsendur fyrir útboði hafi brostið, og vísar kærandi í þeim efnum til dóms Hæstaréttar Íslands nr. 182/2005 og dóm Landsréttar nr. 635/2020. Þessi skilyrði séu sett til að koma í veg fyrir að kaupandi taki geðþóttaákvörðun um höfnun allra tilboða ef honum þóknast ekki að semja við þann aðila sem sé með hagstæðasta gilda tilboðið. Varnaraðili hafi ekki borið því við að hann ætli sér að hætta við byggingu íbúðarkjarna og að almennar forsendur verkefnisins hafi brostið, auk þess sem engar málefnalegar forsendur séu fyrir hendi, fyrir utan þá ástæðu sem varnaraðili beri nú fyrir sig, sem kærandi telji ómálefnalega.

Í lokaathugasemdum kæranda er ítrekað að hann telji varnaraðila hafa brotið gegn meginreglum 15. gr. laga nr. 120/2016 með því að hafna gildu tilboði án málefnalegra ástæðna og án þess að brostnar forsendur séu fyrir hendi í skilningi 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016, og reglum um skyldu samkvæmt beiðni um að rökstyðja höfnun tilboðs samkvæmt 1. og 4. mgr. 85. sömu laga. Varnaraðili hafi ekki þurft að bíða úrskurðar kærunefndar útboðsmála í fyrra kærumáli til að bera því við að tilboð kæranda hafi verið yfir kostnaðaráætlun. Þögn varnaraðila allan þann tíma hafi þvert á móti gefið til kynna að varnaraðili hafi talið tilboð kæranda geta komið til álita. Kærandi ítrekar jafnframt að tilboð hans hafi frá upphafi verið metið gilt og aðgengilegt og séu bæði varnaraðili og kærandi sammála því. Útboðsgögn hafi hins vegar ekki verið skýr um hvort miðað yrði við reiknað tilboðsverð með tillit til kostnaðaráætlunar eða upphaflegt tilboðsverð.

Þá hafi tilboð kæranda verið aðeins 7,9% yfir kostnaðaráætlun og hafi verið hagstæðasta gilda tilboðið, sem geti ekki talist fara verulega fram úr kostnaðaráætlun og geti að auki talist brostin forsenda. Þá hafi varnaraðili ekki borið því við að hann hafi þurft að mæta ófyrirsjáanlegum útgjöldum, að þarfir hans hafi breyst eða að honum sé ókleift að framkvæma kaupin, svo sem fjallað sé um í grein 0.3.14 í útboðsgögnum. Varnaraðili geti því hvorki borið fyrir sig málefnalegar aðstæður né brostnar forsendur.

 

III

Varnaraðili bendir á að samkvæmt 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 sé heimilt að hafna öllum tilboðum standi málefnalegar ástæður til þess eða hafi almennar forsendur útboðs brostið. Ákvæðið endurspegli þá meginreglu útboðsréttar að bjóðendur eigi ekki lögvarinn rétt til samningsgerðar þótt tilboð þeirra teljist gilt. Hafi kaupandi þannig ákveðið svigrúm til að meta hvort grundvöllur sé fyrir því að ganga til samninga á grundvelli framkominna tilboða. Í útboðsgögnum hafi verið sérstaklega áskilinn réttur til að hafna tilboðum sem færu fram úr kostnaðaráætlun varnaraðila. Sá fyrirvari hafi verið hluti af forsendum útboðsins og hafi bjóðendur mátt vera þess meðvitaðir að tilboðum sem færu fram úr kostnaðaráætlun kynni að verða hafnað.

Eftir að úrskurður kærunefndar útboðsmála í fyrra kærumáli lá fyrir hafi aðeins staðið eftir tilboð sem hafi verið yfir kostnaðaráætlun verkkaupa. Við þær aðstæður hafi legið fyrir málefnaleg ástæða í skilningi 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 til að hafna öllum tilboðum, en varnaraðili sé félag í almannaeigu sem hafi það hlutverk að tryggja hagkvæmt húsnæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem standi höllum fæti í samfélaginu. Eðlilegt hafi því verið að líta til þess hvort tilboð gætu rúmast innan þeirra fjárhagslegu forsendna sem verkefninu hafi verið settar. Tilboð sem fari verulega fram úr kostnaðaráætlun geti haft áhrif á fjárhagslega sjálfbærni verkefnisins og þar með á getu varnaraðila til að sinna lögbundnu hlutverki sínu.

Þá vísar varnaraðili til þess að kostnaðaráætlun hans hafi numið 749.000.000 krónum og af þeim hafi þrjú tilboð verið undir kostnaðaráætluninni en tvö þeirra, þar á meðal tilboð kæranda, verið yfir henni. Tilboð kæranda hafi samkvæmt tilkynningu varnaraðila um opnun tilboða numið 107,9% af kostnaðaráætlun. Ekki hafi getað farið fram hjá kæranda að varnaraðili hafi reiknað hlutfall tilboðs kæranda út frá kostnaðaráætlun út frá raunverulegri tilboðsfjárhæð hans. Hafi kærandi talið þá framsetningu ranga hafi honum borið að gera athugasemd við hana þegar í stað og eftir atvikum kæra hana til kærunefndar útboðsmála. Athugasemdir í þessa veru séu of seint fram komnar, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Að gengnum úrskurði kærunefndar útboðsmála í fyrra kærumáli hafi staðið eftir tvö gild tilboð í útboðinu, þ. á m. tilboð kæranda. Bæði hafi þau verið yfir kostnaðaráætlun varnaraðila. Þótt tilboðin hafi verið tekin til mats samkvæmt valforsendum hins kærða alútboðs takmarki það ekki heimild varnaraðila til að hafna öllum tilboðum síðar ef málefnalegar ástæður komi í ljós við endanlegt mat á forsendum verkefnisins. Kostnaðaráætlun sé hluti af fjárhagslegum forsendum verkefnisins og marki þann fjárhagsramma sem varnaraðili hafi ráðstafað til framkvæmdarinnar. Fari tilboð fram úr þeim ramma sé varnaraðila heimilt að hafna tilboðum og endurskoða forsendur verkefnisins.

Þá andmælir varnaraðili þeirri málsástæðu kæranda um að tilboð hans hafi verið innan kostnaðaráætlunar sé miðað við svonefnda reiknaða tilboðsfjárhæð samkvæmt matsformúlu útboðsgagna, sbr. grein 0.4.7. Í greininni kom fram að reiknuð tilboðsfjárhæð sé samanburðarstærð sem notuð sé við að bera saman tilboð, en samkvæmt þeirri aðferð meti matsnefnd gæði tillagna samkvæmt þeim matsþáttum sem tilgreindir séu í útboðsgögnum og veiti hverri tillögu einkunn. Sú einkunn endurspegli mat matsnefndar á gæðum tillögunnar samkvæmt þeim atriðum sem tilgreind séu í valforsendum. Einkunnin sé síðan notuð í matsformúlu þar sem henni er deilt upp í tilboðsfjárhæð viðkomandi bjóðanda til að fá fram svokallaða reiknaða tilboðsfjárhæð. Hún sé þannig einungis tæknileg samanburðarstærð sem verði til við beitingu matsreglna útboðsgagna og sé notuð til þess að bera tilboð saman innbyrðis, en hún byggi að hluta á huglægu mati matsnefndar á gæðum tillagna og geti því verið frábrugðin þeirri fjárhæð sem bjóðandi hafi raunverulega boðið í verkið. Þessi reikniaðferð hafi hins vegar engin áhrif á þá fjárhæð sem varnaraðili greiði samkvæmt samningi.

Að því er varðar tilvísun kæranda til 82. gr. laga nr. 120/2016 bendir varnaraðili á að það ákvæði fjalli um tilvik þar sem tilboð teljist ógilt eða óaðgengilegt, svo sem þegar tilboð sé ekki í samræmi við útboðsgögn, berist of seint eða þegar bjóðandi býður hærra verð en fyrir fram ákveðin fjárhagsáætlun kaupanda geri ráð fyrir. Tilvísun kæranda til þessa ákvæðis eigi hins vegar ekki við í máli þessu, enda hafi ákvörðun varnaraðila ekki lotið að því hvort tilboð kæranda væri ógilt eða óaðgengilegt. Tilboð kæranda hafi verið tekið til mats samkvæmt valforsendum útboðsgagna og ekkert í málinu bendi til þess að varnaraðili hafi talið tilboðið ógilt. Ákvörðun varnaraðila byggist á 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016, en ákvæðið kveður á um heimild til handa kaupanda að hafna öllum tilboðum standi málefnalegar ástæður til þess eða almennar forsendur útboðs hafi brostið. Ákvæðið sé sjálfstæð heimild og óháð því hvort einstök tilboð teljist ógild eða óaðgengileg samkvæmt 82. gr. laga nr. 120/2016.

Að auki telji varnaraðili að sú málsástæða kæranda, um að varnaraðili hafi nú fyrst vísað til kostnaðaráætlun sem ástæðu til þess að hafna tilboðum, fái ekki staðist. Ekki hafi verið þörf á að vísa til kostnaðaráætlunar undir rekstri fyrra kærumáls, en í kjölfar þess hafi varnaraðila verið skylt að taka afstöðu til nýrrar og heildstæðrar endurskoðunar. Við það mat hafi verið eðlilegt að líta til þess hvort þau tilboð sem eftir stæðu gætu rúmast innan fjárhagslegra forsendna verkefnisins og hvort málefnalegar ástæður í skilningi 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 stæðu til þess að hafna öllum tilboðum. Vísar varnaraðili í þessum efnum til orðalags kærunefndar útboðsmála í fyrra kærumáli nr. 29/2025, þar sem beinlínis hafi komið fram að kærunefndin teldi ekki fyrirfram gefið að tilboði kæranda yrði tekið heldur að varnaraðili þyrfti að taka nýja efnislega ákvörðun um framhald útboðsins.

 

IV

Kæra málsins lýtur að alútboði varnaraðila um byggingu íbúðakjarna í Reykjavík. Með úrskurði kærunefndar útboðsmála 20. febrúar 2026 var felld úr gildi ákvörðun varnaraðila um val tilboðs. Kröfu kæranda í því máli, sem er sá hinn sami og í þessu máli, um álit kærunefndar útboðsmála á skaðabótaskyldu varnaraðila var vísað frá nefndinni þar sem fyrir lá að útboðið væri enn í gildi og varnaraðili kynni að taka nýja ákvörðun um val á tilboði. Með bréfi 6. mars 2026 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að öllum tilboðum væri hafnað á þeim grundvelli að þau gildu tilboð sem stæðu eftir væru yfir kostnaðaráætlun varnaraðila, sbr. áskilnað í grein 0.1.3 í útboðsgögnum.

Líkt og að framan greinir kom fram í grein 0.1.3 í útboðsgögnum að heildartilboðsfjárhæð bjóðanda skyldi vera sundurliðuð og færð á tilboðsblað. Tilboðið skyldi m.a. innihalda sundurliðun tilboðs á tilboðsblaði sem sýndi eðlilega kostnaðarskiptingu aðalverkþátta verksins, auk ítarlegra upplýsinga um byggingahluta, helsta efnisval, yfirborðsfrágang, búnað og tæki. Í sömu grein var tekið fram að varnaraðili áskildi sér rétt til þess að hafna þeim tilboðum sem ekki uppfylltu skilyrði greinarinnar eða væru yfir kostnaðaráætlun. Þá kom fram í grein 0.4.5 að allur kostnaður bjóðanda/alverktaka vegna verksins hverju nafni sem hann nefndist til að hanna, byggja og fullgera mannvirkið skyldi innifalinn í hinni föstu samningsfjárhæð.

Af grein 0.1.3 má ráða að áskilnaður um að hafna tilboðum yfir kostnaðaráætlun vísaði til þeirra fjárhæða sem fram komu á tilboðsblöðum bjóðenda. Málsástæðum kæranda í aðra veru verður því hafnað og verður því miðað við það í úrskurði þessum að tilboð kæranda hafi numið 808.316.460 krónum og hafi verið 7,9% yfir kostnaðaráætlun varnaraðila.

Í 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupanda sé heimilt að hafna öllum tilboðum standi málefnalegar ástæður til þess eða hafi almennar forsendur fyrir útboði brostið. Kaupandi skuli rökstyðja ákvörðun sína um að hafna öllum tilboðum. Hafi áskilnaður komið fram í útboðsgögnum um að hafna tilboðum yfir kostnaðaráætlun verður ákvörðun um slíkt alla jafnan talin málefnaleg. Kostnaðaráætlun þjónar enda almennt meðal annars því markmiði að vera grundvöllur áætlanagerðar kaupanda og tilboð að hærri fjárhæð eru því til þess fallinn að raska áætlunum hans. Að þessu gættu og því að engin viðhlítandi rök hafi verið færð að því að kostnaðaráætlunin hafi verið óraunhæf er fallist á með varnaraðila að ákvörðun hans að hafna öllum tilboðum fái stoð í 2. mgr. 83. gr.

Að því er varðar þær málsástæður kæranda að tilboð hans hafi verið metið gilt þar sem það hafi verið tekið til mats, þá skal tekið fram að tilboði kæranda var ekki hafnað á grundvelli þess að það hafi verið ógilt og óaðgengilegt í skilningi 82. gr. laga nr. 120/2016, heldur var því hafnað á grundvelli 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016. Þá verður ekki leiddur sá skilningur af útboðsgögnum eða lögum nr. 120/2016 að þótt tilboð sé tekið til efnislegs mats þá felist í því afstaða kaupanda um að tilboðinu verði tekið þótt það sé yfir kostnaðaráætlun.

Með vísan til alls framangreinds er það mat kærunefndar útboðsmála að höfnun varnaraðila á öllum tilboðum í hinu kærða alútboði hafi verið í samræmi við skilyrði 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016. Verður kröfu kæranda, um að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna öllum tilboðum, því hafnað.

Kærandi krefst þess jafnframt að kærunefnd útboðsmála veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér. Í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna tjóns sem brot á lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skuli miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði. Fyrir liggur í máli þessu að varnaraðila var samkvæmt framangreindu heimilt að hafna öllum tilboðum í hinu kærða alútboði á þeim grundvelli að þau væru yfir kostnaðaráætlun. Af þessum sökum gat tilboð kæranda ekki komið til greina. Verður kröfu kæranda um álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér því hafnað.

Með vísan til framangreindra málsúrslita þykir rétt að málskostnaður falli niður.

 

Úrskurðarorð

Öllum kröfum kæranda, Alefli ehf., í máli þessu er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 24. ágúst 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?