Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Úkraína
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–100 af 306
    Raða eftir:
    03. sep. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogar NB8-ríkjanna funda með Úkraínuforseta í Kaupmannahöfn

    Efnt verður í dag til fundar leiðtoga Norrænu ríkjanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja með Úkraínuforseta í Kaupmannahöfn í boði forsætisráðherra Danmerkur.

    17. ágú. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu ítrekaður í yfirlýsingu leiðtoga NB8-ríkjanna

    Leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8-ríkjanna) ítreka stuðning sinn við Úkraínu í sameiginlegri yfirlýsingu.

    26. jún. 2025Utanríkismál, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Sögulegur dómstóll vegna glæpa gegn friði í Úkraínu

    Sögulegt skref var stigið í gærkvöldi þegar Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, og Alain Berset, aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins, undirrituðu samning um stofnun sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu. Viðburðurinn fór fram í Evrópuráðinu í Strassborg að viðstöddum fulltrúum aðildarríkja. Þá ávarpaði Selenskí einnig Evrópuráðsþingið, en þingmenn Íslandsdeildar Evrópuráðsins tóku þátt í þinginu þessa viku.

    23. jún. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ríkjahópur um sprengjuleit og eyðingu í Úkraínu fundar í Reykjavík

    Fulltrúar ríkja sem skipa ríkjahóp um sprengjuleit- og eyðingu í Úkraínu, áttu sameiginlegan fund í Reykjavík í síðustu viku.

    20. jún. 2025Utanríkismál, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Um 7000 kröfur bætast við tjónaskrá fyrir Úkraínu

    Stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu, sem komið var á fót á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023, fundaði í vikunni í Reykjavík. Þar voru skráðar tæplega sjö þúsund nýjar kröfur í tjónaskrána, sem ætluð er til að tryggja réttindi þeirra sem orðið hafa fyrir tjóni vegna ólöglegrar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Heildarfjöldi krafna í tjónaskránni eru nú um 35 þúsund talsins. Tjónaskráin leggur grunn að starfi skaðabótanefndar sem unnið er að stofnsetja.

    06. jún. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Efling varnargetu og stuðningur við Úkraínu

    Aukin útgjöld til varnarmála í þágu sameiginlegra varna, stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Haag voru meginefni fundar varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk ´´i gær í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    28. maí 2025Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Áréttuðu stuðning Íslands í heimsókn til Úkraínu

    Fulltrúar utanríkisráðuneytisins heimsóttu Úkraínu í síðastliðinni viku þar sem þau áttu fundi með stjórnvöldum og samstarfsaðilum og ræddu við fulltrúa ráðuneyta, alþjóðastofnana, félagasamtaka, hugveitna og heimafólk um stöðu mála nú þegar þrjú ár og þrír mánuðir eru liðnir frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu.

    12. maí 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga NB8 ríkjanna til stuðnings Úkraínu

    Norðurlöndin- og Eystrasaltsríkin (NB8) standa með Úkraínu í átt til friðar og endaloka árásarstríðs Rússlands.

    29. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á utanríkisráðherrafundi á Borgundarhólmi

    Nýjar áskoranir á sviði öryggismála, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og viðbrögð við fjölþáttaógnum voru í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna, Frakklands, Þýskalands og Póllands sem fram fór á Borgundarhólmi í Danmörku dagana 28. og 29. apríl.

    23. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Þorri Íslendinga telur hagsæld landsins byggja á alþjóðaviðskiptum

    Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, eða 80 prósent, telur hagsæld Íslands byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þá segja 81 prósent skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu og 70 prósent segja að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi landsins. Íslendingar eru sem fyrr afar jákvæðir gagnvart norrænu samstarfi en alls segjast 87 prósent landsmanna jákvæðir gagnvart því að Ísland taki virkan þátt í því.

    23. apr. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Úkraína, Alþjóðamál

    Daði Már sækir vorfundi AGS og Alþjóðabankans

    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, tekur næstu daga þátt í vorfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington. Staða og þróun efnahagsmála á heimsvísu er helsta umræðuefni fundanna.

    11. apr. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Málefni Úkraínu í brennidepli í ferð ráðherra til Brussel

    Möguleg fjölþjóðleg stuðningsaðgerð til handa Úkraínu, áframhaldandi varnartengdur stuðningur við varnarbaráttu landsins og samstarf innan sameiginlegu viðbragðssveitarinnar JEF voru til umræðu á fundum varnarmálaráðherra sem fram fóru í Brussel í dag og í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundunum.

    09. apr. 2025Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra fundaði með starfsbræðrum sínum í Noregi

    Sameiginlegar áskoranir, öryggismál á norðurslóðum og aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála var ofarlega á baugi á tvíhliða fundum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Tore O. Sandvik varnarmálaráðherra Noregs og Espen Barth Eide utanríkisráðherra, sem fram fóru í Ósló í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands til Noregs. Ráðherrarnir áréttuðu áframhaldandi og óbilandi stuðning ríkjanna við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu og blóðugu innrásarstríði Rússlands. Þá voru hörmungarnar fyrir botni Miðjarðarhafs sömuleiðis til umræðu og ítrekuðu ráðherrarnir mikilvægi mannúðaraðstoðar og virðingu fyrir alþjóðalögum.

    08. apr. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Úkraína, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Uppfærður fríverslunarsamningur við Úkraínu undirritaður í Kyiv

    Uppfærður fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu var undirritaður í Kyiv í dag. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd.

    04. apr. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Samstaða á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins

    Aukin framlög til varnarmála, innrásarstríðið í Úkraínu og samstarf við Indó-Kyrrahafsríkin og Evrópusambandið voru meðal helstu umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn sem var fyrsti fundur utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, með utanríkisráðherrum bandalagsins.

    28. mar. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Eindregin samstaða Evrópuríkja með Úkraínu

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þátt í fjölmennum leiðtogafundi Evrópuríkja í Elysée-höll í París í gær.

    26. mar. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund um Úkraínu í París

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur á morgun þátt í leiðtogafundi í París um málefni Úkraínu. Á fundinum munu leiðtogarnir ræða um áframhaldandi stuðning við Úkraínu, viðræður um vopnahlé og hvernig megi tryggja frið og öryggi í Úkraínu til frambúðar. Gestgjafi fundarins er Emmanuel Macron, forseti Frakklands, en um 30 þjóðarleiðtogar sækja fundinn sem haldinn verður í Elysée-höll. ​

    13. mar. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra Tékklands í heimsókn á Íslandi

    Málefni Úkraínu, staða öryggis- og varnarmála í Evrópu, náið vinsamband Íslands og Tékklands og fyrirhuguð loftrýmisgæsla tékkneska flughersins á Íslandi, var efst á baugi fundar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherar og Jan Lipavský utanríkisráðherra Tékklands sem fram fór í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í Reykjavík í dag.

    24. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ísland sýnir stuðning við Úkraínu í verki

    Kristún Frostadóttir forsætisráðherra sækir í dag leiðtogafund í Kænugarði í Úkraínu í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá ólögmætri allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. Forsætisráðherra tók í morgun þátt í minningarathöfn um úkraínska hermenn sem hafa fallið í varnarbaráttu þjóðarinnar á undanförnum árum.

    16. feb. 2025Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í München

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti öryggisráðstefnuna í München sem lauk í dag, ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ítreka stuðning við Úkraínu

    Leiðtogar Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu til stuðnings Úkraínu og segja þar að gera verði Úkraínumönnum kleift að verjast og standa af sér árásarstríð Rússa til að tryggja réttlátan og langvarandi frið.

    13. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarbúnað og stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarviðbúnað og fælingarmátt bandalagsins og stuðning bandalagsríkja við Úkraínu á ráðherrafundi sem lauk í Brussel í dag. Á fundinum var farið yfir helstu aðgerðir og áætlanir sem miða að því að styrkja fælingar- og varnargetu bandalagsins, meðal annars aukin framlög til varnarmála, eflingu herstjórnarkerfisins, ítarlegri áætlanagerð og samstarf ríkjanna á sviði hergagnaframleiðslu og tækniþróunar.

    12. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu og norðurslóða í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna

    Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða mála þar og framtíðarhorfur, voru efst á baugi fjarfundar utanríkisráðherra Norðurlandanna sem fram fór í gær. Norðurlöndin eru einhuga um áframhaldandi stuðning við varnarbaráttu landsins og leggja áherslu á að Evrópuríki og Úkraínu verði tryggð sæti við samningaborðið er kemur að mögulegum friðarumleitunum, sem fyrirhugað er að bandarísk stjórnvöld hafi forgöngu um.

    30. jan. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Norrænt varnarsamstarf stendur styrkari fótum en nokkru sinni fyrr

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í dag í Helsinki þar sem Finnland gegnir formennsku í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) í ár.

    24. jan. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra fundaði með utanríkisráðherra Króatíu

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Gordan Grlić-Radman utanríkisráðherra Króatíu í Zagreb. Þorgerður Katrín er sem kunnugt er stödd á eigin vegum í Króatíu til að styðja íslenska karlalandsliðið í handbolta á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.

    16. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

    Stuðningur við Úkraínu og varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í höfuðstöðvum bandalagsins í dag.

    15. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Brussel

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Maros Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, og Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.

    10. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður

    Varnarmálaráðherrar ríkja sem styðja varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) funduðu í gær um stöðuna á vígvellinum og stuðning ríkjanna við baráttu íbúa Úkraínu gegn innrásarstríði Rússlands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn í beinu framhaldi af heimsókn sinni til Kænugarðs þar sem hún ræddi við ráðamenn og kynnti sér afleiðingar stríðsins.

    07. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra í vinnuheimsókn í Úkraínu

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nú stödd í vinnuheimsókn í Úkraínu þar sem hún fundar með ráðamönnum, áréttar stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu og kynnir sér stöðu mála. Þorgerður Katrín hefur í dag meðal annars átt fundi með Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu og Denys Shmyhal forsætisráðherra.

    06. jan. 2025Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkismál

    Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Noregs

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs. Tilgangur fundarins var að koma á samtali ráðherranna og ræða áframhaldandi gott samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu.

    31. des. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Úkraínu

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Er það fyrsta símtalið sem ráðherra tekur við erlendan samstarfsmann sinn.

    18. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjórar NB8-ríkjanna ræddu aðgerðir gegn fjölþáttaógnum Rússa

    Samstarf og aðgerðir vegna fjölþáttaógna, svonefnds „skuggaflota“ og þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi, sem og áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu voru helstu umræðuefni fundar ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem haldinn var í Stokkhólmi 12.-13. desember síðastliðinn.

    17. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Leiðtogafundur JEF undirstrikar stuðning við varnarbaráttu Úkraínu

    Þróun öryggismála í Evrópu, varnarstuðningur við Úkraínu og aukið samstarf JEF ríkjanna var meðal þess sem leiðtogar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) ræddu á fundi sínum í Tallinn í Eistlandi sem lauk í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir hönd forsætisráðherra.

    10. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Úkraína og Sýrland í brennidepli á síðasta norræna utanríkisráðherrafundi ársins

    Málefni Úkraínu, þróun mála í Sýrlandi og samskipti við Bandaríkin voru efst á baugi á fjarfundi norrænu utanríkisráðherranna sem fram fór í dag.

    09. des. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Úkraína og hlutverk ÖSE í öryggismálum í Evrópu í forgrunni ráðherrafundar ÖSE

    Stuðningur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) við Úkraínu og hlutverk stofnunarinnar í öryggismálum í Evrópu og alþjóðlegum aðgerðum til að byggja upp og viðhalda friði voru á meðal umræðuefna á árlegum ráðherrafundi ÖSE sem fór fram á Möltu 5. og 6. desember. Malta hefur gegnt formennsku í ÖSE á þessu ári en Finnland tekur við formennskukeflinu á nýju ári.

    05. des. 2024Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu stríðið í Úkraínu og átökin í Mið-Austurlöndum

    Áframhaldandi stríðsrekstur Rússlands og stuðningur bandalagsríkja við varnarbaráttu Úkraínu, sem og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, voru helstu umræðuefni á utanríkisráðaherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í gær í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn.

    03. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Úkraína, Flóttafólk, Útlendingar

    Vernd vegna fjöldaflótta lengd í fimm ár í stað þriggja að hámarki

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, verði lengdur úr þremur árum í fimm. Í 4. mgr. 44. gr. laganna er kveðið á um að umsókn útlendings sem fellur undir 2. mgr. um alþjóðlega vernd megi leggja til hliðar í allt að þrjú ár frá því að umsækjandi fékk fyrst leyfi. Breytt ákvæði felur í sér að stjórnvöldum verði heimilt að leggja umsókn um vernd til hliðar í allt að fimm ár eða í tvö ár til viðbótar. Breytingin á við um þá sem þegar hafa fengið sameiginlega vernd á grundvelli fjöldaflótta sem og þá sem kunna að fá slíka vernd í framtíðinni.

    22. nóv. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Norðurlöndin einróma um öflugri stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og öflugri stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og aukið samstarf Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála voru helstu umræðuefni fundar varnarmálaráðherra norrænu ríkjanna sem fram fór í gær.

    31. okt. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu og Belarús í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda

    Samvinna um öryggismál, málefni Úkraínu og ástandið í Mið-Austurlöndum voru til umræðu á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í vikunni, sem haldinn var samhliða 76. þingi Norðurlandaráðs. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sat fundinn sem utanríkisráðherra Svíþjóðar stýrði þar sem Svíþjóð fer með formennsku í norrænu samstarfi utanríkisráðherranna í ár.

    29. okt. 2024Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Fjórði leiðtogafundur Norðurlandanna og Úkraínu fór fram á Þingvöllum

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna og forseti Úkraínu funduðu í gær á Þingvöllum. Um var að ræða fjórða leiðtogafund Norðurlandanna og Úkraínu en sá fyrsti fór fram vorið 2023.

    22. okt. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu sameiginlegar varnir og Úkraínu

    Sameiginlegar varnir, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og aukið samstarf við Indó-Kyrrahafsríkin voru meðal helstu umræðuefna á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk á föstudag í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.

    17. okt. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna heimsóttu Úkraínu og Moldóvu

    Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna heimsóttu Úkraínu í gær. Andrii Sybhia, utanríkisráðherra Úkraínu, átti fund með ráðherrunum í hafnarborginni Odesa. Heimsóknin hófst með því að lagður var blómsveigur að minnismerki um fallna hermenn. Þá kynntu fulltrúar hafnaryfirvalda og fyrirtækja í matvælaframleiðslu fyrir ráðherrunum mikilvægi áburðar- og kornúflutnings frá Odesa fyrir matvælaöryggi á heimsvísu.

    28. sep. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Samtakamáttur aldrei mikilvægari en nú

    Virðing fyrir mannréttindum, einstaklingsfrelsinu og alþjóðalögum voru leiðarstef í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, sem hún flutti á 79. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Þá voru þær áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir nú um stundir, meðan stríð geisa og víða er gerð aðför að lýðræðinu utanríkisráðherra sömuleiðis ofarlega í huga.

    27. sep. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ríkjahópur um sprengjuleit og eyðingu í Úkraínu fundar í Reykjavík

    Fulltrúar ríkja sem skipa ríkjahóp um sprengjuleit- og eyðingu í Úkraínu, áttu sameiginlegan fund í Reykjavík dagana 26. og 27. september. Ísland og Litáen leiða vinnu hópsins sem styður við þjálfun og kaup á margvíslegum búnaði til sprengjuleitar og eyðingar. Alls taka 22 ríki þátt í starfi hópsins.

    18. sep. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Enduruppbygging Úkraínu og nýsköpun í þróunarsamvinnu í brennidepli á fundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna

    Nýsköpun í þróunarsamvinnu, stuðningur við enduruppbyggingu Úkraínu, græn orkuskipti í þróunarríkjum og lýðræðisþróun í Austur-Evrópu voru meðal viðfangsefna á fundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlandanna sem fram fór í Stokkhólmi í dag. Benjamin Dousa, nýskipaður þróunarsamvinnuráðherra Svíþjóðar, tók þar á móti norrænum starfssystkinum sínum en fundurinn er liður í formennsku Svíþjóðar í norrænu samstarfi.

    13. sep. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Varautanríkisráðherra Bandaríkjanna á Íslandi

    Aukið samstarf Bandaríkjanna og Íslands, m.a. á sviðum tækni og nýsköpunar, og tvíhliða samskipti þjóðanna voru á meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Kurt M. Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    10. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Úkraína

    Dómsmálaráðuneyti leggur til að tímabundin vernd Úkraínubúa verði framlengd

    Dómsmálaráðuneytið hyggst leggja fram frumvarp fyrir Alþingi í haust þar sem tímabundin vernd vegna fjöldaflótta Úkraínubúa samkvæmt 44. gr. útlendingalaga verður framlengd til allt að fimm ára. Evrópusambandið og Noregur áforma samskonar framlengingu á sameiginlegri vernd vegna fjöldaflótta Úkraínubúa.

    16. ágú. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Íslendingar jákvæðir í garð alþjóðastarfs

    Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna, eða 90,2 prósent, segja skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu. Alls segja 75 prósent hagsæld Íslands byggja að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 76,8 prósent segja hagsæld Íslands byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 74,2 prósent að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum árlegrar skoðanakönnunar sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið.

    17. júl. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lokið í Genf

    Sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, sem hófst 18. júní sl, er lokið eftir fjögurra vikna fundarsetur og samningaviðræður.

    11. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og einarður stuðningur Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu var áréttaður á þriggja daga leiðtogafundi bandalagsins, sem lauk í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag. Bandalagsríkin ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að halda áfram að styrkja fælingar- og varnarstöðu sína samhliða því að efla samvinnu við helstu samstarfsríki til mæta nýjum áskorunum.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband