Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Útlendingar
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–100 af 198
    Raða eftir:
    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Háskólar, Menntamál

    Opinberir háskólar fái heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hyggst leggja fram frumvarp á haustþingi um breytingar á lögum um opinbera háskóla sem fela í sér heimild til skólanna til að innheimta skólagjöld fyrir nemendur sem koma frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins (EES). Samhliða þessu verða teknir upp námsstyrkir fyrir afburðanemendur frá þessum löndum í þeim tilgangi að efnilegir nemendur hafi áfram tækifæri til náms á Íslandi, óháð efnahag.

    12. júl. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Jákvæðir hvatar við sjálfviljuga heimför

    Dómsmálaráðuneytið hefur gert breytingar á reglugerð um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför útlendinga. Markmiðið með breytingunum er að skapa jákvæðan hvata fyrir umsækjendur um vernd frá Venesúela og öðrum ríkjum til að snúa til síns heima. Þannig verði létt álagi af verndarkerfinu og komið í veg fyrir að málarekstur dragist á langinn að óþörfu með tilheyrandi kostnaði.

    14. jún. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra samþykkt

    Alþingi samþykkti frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum föstudaginn 14. júní.

    25. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Útlendingar

    Fyrsta hvítbókin í málaflokknum: Samfélag okkar allra – framtíð og stefna Íslands í málefnum innflytjenda

    Drög að stefnu (hvítbók) í málefnum innflytjenda hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Stefnan er sú fyrsta sem íslenska ríkið mótar sér um málefni innflytjenda og markar tímamót á málefnasviðinu. Yfirskrift hennar er „Samfélag okkar allra – framtíð og stefna Íslands í málefnum innflytjenda“.

    16. apr. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Útlendingar, Vinnumál, Innflytjendur, Almannatryggingar og lífeyrir

    Hækkun á framlögum til Fæðingarorlofssjóðs, útvíkkun sorgarleyfis og aðgerðir til að aðstoða fólk með mismikla starfsgetu út á vinnumarkað

    Átta milljarða króna hækkun á framlögum til Fæðingarorlofssjóðs og aukin framlög vegna sorgarleyfis eru hluti af fjármálaáætlun 2025-2029 sem kynnt var í morgun. Þá bætist á tímabili áætlunarinnar við fjármagn í vinnusamninga örorkulífeyrisþega og vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnuleitendur og fólk með skerta starfsgetu sem nemur 900 milljónum kr. árlegu framlagi frá og með árinu 2027.

    29. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Útlendingar

    Fullur salur á samráðsfundi um málefni innflytjenda

    Hátt í tvö hundruð manns tóku þátt í opnum samráðsfundi um málefni innflytjenda sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stóð fyrir á Grand hótel í gær. Mikill meirihluti þátttakenda voru innflytjendur. Fundurinn var hluti af hringferð um landið vegna stefnumótunar í málaflokknum.

    26. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda: Opinn fundur í Reykjavík

    Vinna við stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda er í fullum gangi og næsti samráðsfundur ferm fram í Reykjavík nú á miðvikudaginn. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta. Markmiðið með stefnunni og framtíðarsýninni er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.

    22. feb. 2024Dómsmálaráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Útlendingar

    Dómsmálaráðherra framlengir beitingu 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016

    Dómsmálaráðherra hefur tekið ákvörðun um að framlengja ákvörðun um beitingu 44. gr. laga um útlendinga um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu til og með 2. mars 2025. Upphaflega var ákvörðun um beitingu ákvæðisins tekin þann 4. mars 2022 og gilti til eins árs. Hinn 1. febrúar 2023 ákvað ráðherra að framlengja beitingu ákvæðisins um eitt ár, eða til og með 2. mars 2024. Ákvörðun um framlengingu er tekin að undangengnu samráði, innan lands sem utan, þ. á m. við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

    20. feb. 2024Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Innflytjendur, Flóttafólk

    Heildarsýn í útlendingamálum

    Ríkisstjórnin sammæltist í dag um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Á grundvelli þeirra aðgerða verður tekið utan um málaflokkinn með heildstæðum hætti með aukinni samhæfingu á milli ráðuneyta og stofnana. Markmiðið er að stuðla að betri, skilvirkari og skýrari framkvæmd innan málaflokksins, og bættri þjónustu til að renna styrkari stoðum undir stjórn útlendingamála. Með þessari heildarsýn er lögð áhersla á mannúð og virðingu og unnið gegn skautun í íslensku samfélagi. Horft er sérstaklega til framkvæmdar þessara mála á Norðurlöndum þannig að aukið samræmi sé á milli landa.

    06. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda: Næstu fundir

    Vinna við stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda er í fullum gangi og verða næstu samráðsfundir haldnir í Reykjanesbæ og Reykjavík. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta. Markmiðið með stefnunni og framtíðarsýninni er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.

    19. jan. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Frumvarp um lokað búsetuúrræði til umsagnar í Samráðsgátt

    Lokað búsetuúrræði til að vista útlendinga sem eiga eða gætu þurft að yfirgefa landið.

    19. jan. 2024Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Mannréttindi, Útlendingar

    Mannréttindadómstóll Evrópu vísar máli gegn íslenska ríkinu frá dómi

    Bráðabirgðastöðvun á flutningi umsækjanda til Grikklands aflétt og kæran felld af málaskrá dómstólsins.

    18. jan. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda. Markmiðið er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Ráðuneytið býður til samtals hringinn í kringum landið og eru innflytjendur sérstaklega hvattir til að mæta.

    15. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Fyrsta grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks

    Stöðumat og valkostagreining (grænbók) í málefnum innflytjenda og flóttafólks hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þetta er í fyrsta sinn sem slík grænbók hefur verið unnin í málaflokknum.

    13. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Útlendingar

    Rannsóknir og úttektir vegna stefnumótunar um framhaldsfræðslu

    Mat innflytjenda á eigin færni í íslensku og staða fullorðinna innflytjenda í framhaldsfræðslu er meðal efnis í þeim fimm úttektum og rannsóknum sem gerðar hafa verið vegna yfirstandandi stefnumótunar um framhaldsfræðslu hér á landi.

    31. okt. 2023Dómsmálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Útlendingar

    Aukið norrænt samstarf í málefnum útlendinga

    Þrjú framtaksverkefni til að styrkja og útvíkka norræna samvinnu í málefnum útlendinga á sviði endursendinga.

    20. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, Útlendingar

    Kynning á niðurstöðum könnunar á félagslegri einangrun og einmanaleika eldra fólks eftir uppruna

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stendur fyrir kynningarfundi um niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á líðan eldra fólks af íslenskum og erlendum uppruna en í henni var sérstök áhersla lögð á félagslega einangrun og einmanaleika.

    23. ágú. 2023Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Dómsmálaráðherra heimsækir Útlendingastofnun

    Á móti ráðherra tók forstjóri Útlendingastofnunar Kristín Völundardóttir ásamt sviðsstjórum stofnunarinnar.

    14. ágú. 2023Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Varðandi niðurfellingu þjónustu vegna umsókna um vernd

    Fólki ber að yfirgefa landið eftir endanlega synjun á sinni umsókn.

    16. jún. 2023Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Valgerður María skipuð varaformaður kærunefndar útlendingamála

    Dómsmálaráðherra hefur skipað Valgerði Maríu Sigurðardóttur varaformann kærunefndar útlendingamála. Valgerður var valin úr hópi fimm umsækjanda.

    12. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Útlendingar, Vinnumál, Fatlað fólk, Flóttafólk, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, NPA, Almannatryggingar og lífeyrir

    Níu frumvörp félags- og vinnumarkaðsráðherra urðu að lögum í þinginu

    Níu frumvörp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, urðu að lögum á liðnu þingi, auk þess sem Alþingi samþykkti tillögu ráðherra til þingsályktunar. Fjögur frumvörp urðu að lögum á haustþinginu og má þar nefna lög sem fólu í sér fyrstu hækkun á frítekjumarki örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega í 14 ár. Frítekjumarkið nær tvöfaldaðist og tóku breytingarnar gildi strax 1. janúar síðastliðinn.

    12. maí 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Útlendingar, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Raddir innflytjenda á Íslandi

    Raddir innflytjenda voru til umræðu á norrænni ráðstefnu sem fram fór í Reykjavík í gær og haldin var í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Ráðstefnan tengist verkefninu „Raddir fólks með erlendan bakgrunn – inngilding í nám, starf og samfélag“ sem ætlað er að draga fram sjónarhorn ungra innflytjenda á Íslandi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Norræna samstarfsnetið um fullorðinsfræðslu (NVL) stýra verkefninu í samstarfi við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.

    04. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Erlendir nemendur efla háskólastig á Íslandi

    Efnt var til stefnumarkandi umræðu um erlenda háskólanema og þýðingu þeirra fyrir íslenska háskóla á vinnustofu sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra stóð nýlega fyrir.

    24. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Skipulagsmál, Útlendingar, Flóttafólk, Innviðaráðuneytið

    Tímabundnar undanþágur verði veittar vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt drög að stjórnarfrumvarpi sem veitir heimild til að veita tímabundnar og skilyrtar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    23. mar. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Nýsköpun, Menntamál

    Þriggja ára dvalarleyfi erlendra háskólanema á Íslandi að námi loknu

    Nýtt og skilvirkara kerfi um atvinnuréttindi útlendinga utan EES felur meðal annars í sér stóraukin réttindi erlendra háskólanema hér á landi sem nú fá þriggja ára dvalarleyfi að námi loknu.

    09. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Framhaldsfræðsla, Innflytjendur, Útlendingar

    Úttektir á íslenskukennslu fyrir útlendinga

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur ákveðið að styðja við þrjár rannsóknir og úttektir á íslenskukennslu fyrir útlendinga, auk þess að láta framkvæma kerfisbundna greiningu á innlendum og alþjóðlegum ritrýndum rannsóknum sem varða framhaldsfræðslu. Á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis er nú unnið að heildarendurskoðun á framhaldsfræðslukerfinu og lögum um framhaldsfræðslu og eru verkefnin liður í þeirri vegferð.

    28. feb. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    19 verkefni fá styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála – aukin samfélagsleg þátttaka flóttafólks og innflytjenda í forgrunni

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, tilkynnti í dag hver hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála. Alls fengu 19 verkefni og rannsóknir samtals ríflega 40 milljónir króna.

    22. feb. 2023Dómsmálaráðuneytið, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Útlendingar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Breytingar á lögum um dvalarleyfi útlendinga og vegabréfsáritanir

    Margháttaðar breytingar rýmka reglur um dvalarleyfi fyrir ólíka hópa

    06. feb. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Alþjóðleg sérfræðiþekking á Íslandi aukin með samstarfsverkefnum háskólanna

    Meðal aðgerða sem greiða aðgengi íslenskra fyrirtækja að alþjóðlegri sérfræðiþekkingu er að íslenskir háskólar verði eftirsóknarverðir fyrir námsmenn óháð þjóðerni. Fjölgun alþjóðlegra háskólanema er eitt af megináherslum í verkefninu Samstarf háskóla en ljóst er að fjölgun alþjóðlegra nemenda felur í sér bæði eflingu háskólanna sem og fjárfestingu í þekkingu fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.

    25. jan. 2023Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Í tilefni af skýrslu Rauða krossins um „stöðu fólks í umborinni dvöl á Íslandi“

    Dómsmálaráðuneytið hefur margvíslegar athugasemdir við efni og framsetningu skýrslu Rauða krossins

    24. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Stýrihópur vinnur að mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks

    Stýrihópur um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks hefur hafið störf. Áshildur Linnet, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, er formaður hópsins og hittist hann í ráðuneytinu nú í morgun.

    19. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Stuðningur við heyrnarlaust flóttafólk, fötluð börn af erlendum uppruna og hinsegin flóttafólk

    Stutt verður sérstaklega við heyrnarlaust flóttafólk sem leitað hefur skjóls á Íslandi, fötluð börn af erlendum uppruna og hinsegin flóttafólk. Þetta er efni þriggja samninga sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað við Félag heyrnarlausra, Landssamtökin Þroskahjálp og Samtökin 78.

    19. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Rauði krossinn tekur að sér fræðslu til þjónustu- og viðbragðsaðila um menningarnæmi og fjölmenningu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Silja Bára Ómarsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi, hafa undirritað samning um fræðslu um menningarnæmi og fjölmenningu fyrir þjónustu- og viðbragðsaðila hér á landi sem sinna þolendum og gerendum ofbeldis af erlendum uppruna.

    20. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Lokaávarp á norrænni ráðstefnu: Brýnt að meta menntun og reynslu innflytjenda og flóttafólks

    Atvinnuþátttaka innflytjenda og flóttafólks getur ekki einskorðast við störf sem ekki krefjast sérþekkingar. Brýnt er að tryggja raunveruleg tækifæri á öllum sviðum þar sem innflytjendur og flóttafólk, rétt eins og aðrir, hafa möguleika á að taka þátt, vaxa og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Þetta kom fram í lokaávarpi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, á ráðstefnu sem fram fór í Osló nýverið um konur sem innflytjendur og flóttafólk á Norðurlöndunum. Ráðstefnan fór fram á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar.

    14. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Um fólk á flótta og verndarumsóknir

    Útlendingastofnun hefur birt sérstakar upplýsingar á vef sínum í tengslum við Jóladagatalið sem sýnt er í ríkissjónvarpinu í aðdraganda jóla.

    12. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Efni með tilgang: 12 milljónir króna til að vinna gegn félagslegri einangrun kvenna af erlendum uppruna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt 12 milljóna króna styrk til verkefnisins „Efni með tilgang“ sem er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Reykjavíkurborgar. Verkefnið er hugsað fyrir konur úr hópi innflytjenda, flóttafólks og hælisleitenda sem eru útsettar fyrir félagslegri einangrun.

    29. nóv. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Flóttafólk, Innflytjendur, NPA, Útlendingar

    Tvöföldun frítekjumarks öryrkja og stóraukin framlög vegna NPA, innflytjenda og flóttafólks

    Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögur sínar að breytingum við aðra umræðu fjárlagafrumvarps ársins 2023 til fjárlaganefndar Alþingis. Breytingarnar gera ráð fyrir stórauknum framlögum vegna málefna öryrkja, fatlaðs fólks, innflytjenda og flóttafólks.

    29. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Mannauðsmál ríkisins

    Berglind Ásgeirsdóttir fylgir eftir stefnu ráðherra um alþjóðlega sérfræðinga

    Berglind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu til 6 mánaða og mun hún hafa starfsstöð í Reykjavík og á Akureyri.

    24. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál

    Betra aðgengi að gögnum á ensku og skjótari afgreiðsla opinberra aðila forgangsmál fyrir alþjóðlega sérfræðinga á Íslandi

    Fjölsótt vinnustofa fór fram í vikunni þar sem rætt var um stöðu alþjóðlegra sérfræðinga á Íslandi og hvar tækifæri liggja til að gera betur í þeim málum.

    04. nóv. 2022Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Útlendingar

    Í tilefni af aðgerðum lögreglu 3. nóvember

    Í tilefni af aðgerðum lögreglu aðfaranótt 3. nóvember sl. þegar 15 fullorðnir einstaklingar voru fluttir frá Íslandi til Grikklands vill ráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.

    12. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Félags- og fjölskyldumál, Menntamál, Útlendingar, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Innflytjendur, Nýsköpun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland býður erlenda sérfræðinga velkomna

    Fjórar leiðir hafa nú verið kynntar fyrir ríkisstjórn sem ætlað er að liðka fyrir komu erlendra sérfræðinga og aðgengi að sérhæfðri þekkingu, en þær falla undir ábyrgðarsvið nokkurra ráðuneyta.

    20. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Landamæraeftirlit, Persónuskilríki, Útlendingar

    Rafræn skilríki verði aðgengilegri fyrir flóttafólk og innflytjendur

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur lagt til samráðs í samráðsgátt drög að reglugerð um breytingartillögu þess efnis að dvalarleyfiskort útgefin af Útlendingastofnun verði bætt á lista yfir viðurkennd persónuskilríki við útgáfu rafrænna skilríkja.

    26. ágú. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Heildstæð stefna mótuð í málefnum innflytjenda og flóttafólks

    Skipaður verður stýrihópur um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks hér á landi.

    12. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Háskólar, Úkraína, Menntamál

    Námsframboð íslenskra háskóla til úkraínskra námsmanna á flótta

    Á island.is er nú að finna upplýsingar fyrir úkraínska háskólanema sem dvelja nú á Íslandi um námsmöguleika í íslenskum háskólum. Þar má nálgast allar upplýsingar bæði á ensku og úkraínsku.

    30. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Trú og lífsskoðun, Útlendingar, Vinnumál, Félags- og fjölskyldumál

    Starfshópur gegn hatursorðræðu tekur til starfa

    Starfshópur gegn hatursorðræðu kom í fyrsta skipti saman nú í vikunni en hann var skipaður af forsætisráðherra þann 16. júní sl. til að bregðast við vísbendingum um vaxandi hatursorðræðu í íslensku samfélagi.

    15. jún. 2022Rit og skýrslur, Útlendingar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Staða og þróun í málefnum innflytjenda

    júní 2022 / Félags- og húsnæðismálaráðuneytið Staða og þróun í málefnum innflytjenda Staða og þróun í málefnum innflytjenda

    13. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Útlendingar, Alþjóðamál, Flóttafólk, Úkraína, Líf og heilsa

    Fyrstu gæludýr flóttamanna frá Úkraínu koma til landsins

    Tekið verður á móti tveimur hundum á nýrri einangrunarstöð Matvælastofnunar í dag og eru þeir fyrstu gæludýrin í eigu flóttafólks frá Úkraínu sem tekið er á móti. Von er á fleiri dýrum á komandi vikum.

    03. jún. 2022Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Innflytjendur, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ráðherranefnd um málefni innflytjenda og flóttafólks

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um skipun tímabundinnar ráðherranefndar um málefni innflytjenda og flóttafólks.

    22. apr. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Félags- og fjölskyldumál, Menntastefna

    Óttarr Proppé leiðir stýrihópa um málefni barna á flótta og barna af erlendum uppruna

    Óttarr Ólafur Proppé mun leiða stýrihóp mennta– og barnamálaráðuneytisins um málefni barna á flótta og undirbúa og leiða stýrihóp um málefni barna af erlendum uppruna. Verkefnin eru m.a. þáttur í innleiðingu löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030.

    22. apr. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Félags- og fjölskyldumál, Menntastefna

    Stýrihópur um málefni barna á flótta

    Mennta – og barnamálaráðherra hefur ákveðið að stofna stýrihóp um málefni barna á flótta. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að vakta stöðu barna sem hingað leita frá öðrum löndum eftir alþjóðlegri vernd og tryggja réttindi og velferð þeirra.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband