Barnaréttur, Heimsmarkmiðin, Mennta- og barnamálaráðuneytið
Hagsmunamat fyrir börn í allri stefnumótun
Í dag er dagur mannréttinda barna og markar dagurinn 35 ára afmæli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út leiðarvísi um hagsmunamat út frá réttindum barna í allri stefnumótun stjórnvalda. Markmiðið er að stjórnvöld hugi markvisst að því hvaða áhrif ákvarðanir þeirra hafa á börn og réttindi þeirra og hvort og þá með hvaða hætti er nauðsynlegt að bregðast við þeim áhrifum.