Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Norðurslóðir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 51–100 af 150
    Raða eftir:
    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurslóðamálin til umræðu á opnum fundi á Akureyri

    Utanríkisráðuneytið efndi til opins fundar um málefni norðurslóða í Háskólanum á Akureyri í dag. Fundurinn er mikilvægur liður í að efla innlent samráð og samstarf um málefni norðurslóða og markar upphafið að gerð framkvæmdaáætlunar fyrir stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    03. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál, Úkraína

    Hernaði Rússlands mótmælt á vettvangi Norðurskautsráðsins

    Aðildarríki Norðurskautsráðsins, utan Rússlands, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem tilefnislaus innrás Rússlands í Úkraínu er fordæmd. Í ljósi grófra brota Rússlands á alþjóðalögum munu fulltrúar ríkjanna ekki ferðast til Rússlands á fundi Norðurskautsráðsins, en Rússland fer nú með formennsku í ráðinu. Þá verði gert tímabundið hlé á þátttöku í öllum fundum ráðsins og undirstofnana þess.

    18. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávarpaði málþing um jafnrétti á norðurslóðum

    Mikilvægi kynjajafnréttis fyrir sjálfbæra þróun á norðurslóðum var helsta umfjöllunarefnið í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á málþingi um jafnréttismál á norðurslóðum. Málþingið er hluti af fyrirlestraröðinni Vísindi á norðurslóðum, sem er samstarfsverkefni sendiráðs Íslands í Ottawa, sendiráðs Kanada í Reykjavík, Polar Knowledge Canada og Norðurslóðanets Íslands.

    13. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún ræddi við Antony Blinken

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti í dag símafund með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

    23. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir

    Yfirlýsing um aukið samstarf Íslands og Grænlands undirrituð

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Pele Broberg, ráðherra utanríkis-, iðnaðar-, viðskipta- og loftslagsmála á Grænlandi, undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf landanna tveggja. Þar fagna ráðherrarnir þróttmiklu samstarfi landanna með sérstakri áherslu á skýrsluna Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum sem kom út í ársbyrjun.

    01. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Endurnýjaður samstarfssamningur við Norðurslóðanetið

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Eyjólfur Guðmundsson, formaður stjórnar Norðurslóðanets Íslands og rektor Háskólans á Akureyri, hafa undirritað endurnýjaðan samstarfssamning til fimm ára.

    16. jún. 2021Rit og skýrslur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Norðurslóðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Knowledge for a sustainable Arctic - ASM3 report

    júní 2021 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Knowledge for a sustainable Arctic - ASM3 report Lokaskýrsla alþjóðlegs fundar vísindamálaráðherra sem fram fór í Tókíó í maí 2021 ber yfirskriftina Knowledge for a sustainable Arctic. Þetta var þriðji fundurinn af þessu tagi (e

    21. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fundað með Murkowski, Broberg og Bárði af Steig

    Í tengslum við ráðherrafund Norðurskautsráðsins átti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tvíhliðafundi með grænlenskum og færeyskum ráðamönnum auk þess sem hann hitti bandaríska öldungadeildarþingmanninn Lisu Murkowski.

    20. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi mannréttindi í Rússlandi á fundi sínum með Lavrov

    Viðskiptamál, tvíhliða samskipti, alþjóðamál og mannréttindi voru helstu umræðuefnin á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í dag í Hörpu.

    19. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherrum Kanada, Finnlands og Svíþjóðar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra átti í dag tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Kanada, Finnlands og Svíþjóðar sem komnir eru hingað til lands í tilefni af ráðherrafundi Norðurskautsráðsins. Samskipti ríkjanna og ýmis önnur málefni voru þar til umræðu.

    18. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Einhugur á fundi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Íslands

    Viðskiptamál, öryggis- og varnarmál, málefni norðurslóða, alþjóðamál og mannréttindi voru helstu umræðuefnin á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag. Ráðherrarnir skoðuðu Hellisheiðarvirkjun og Carbfix-verkefnið síðdegis.

    17. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins í Reykjavík

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins verður haldinn í Reykjavík síðar í þessari viku og er von á utanríkisráðherrum allra aðildarríkjanna hingað til lands af því tilefni. Fundurinn markar lok tveggja ára formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu.

    14. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurljós: Skýrsla um efnahagstækifæri á norðurslóðum komin út

    Starfshópur um efnahagstækifæri á norðurslóðum hefur afhent utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skýrsluna Norðurljós, sem hefur að geyma tillögur um hvernig Ísland geti sem best staðið að því að vernda og efla efnahagslega hagsmuni Íslands á norðurslóðum til framtíðar.

    14. maí 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Norðurljós: Skýrsla starfshóps um efnahagstækifæri á norðurslóðum

    Starfshópur um efnahagstækifæri á norðurslóðum hefur afhent utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skýrsluna Norðurljós, sem hefur að geyma tillögur um hvernig Ísland geti sem best staðið að því að vernda og efla efnahagslega hagsmuni Íslands á norðurslóðum til framtíðar.

    04. maí 2021Norðurslóðir, Forsætisráðuneytið

    Tíu milljónir til undirbúnings stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar um norðurslóðir

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um stuðning við að setja á fót sjálfseignarstofnun Ólafs Ragnars Grímssonar um málefni norðurslóða í Reykjavík. Hringborði Norðurslóða – Arctic Circle verða lagðar til 10 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til að standa straum af frekari undirbúningi verkefnisins.

    28. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi við Antony Blinken

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins, tvíhliða samskipti og samstarf á alþjóðavettvangi voru til umræðu á símafundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag.

    26. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ráðherra sat fyrir svörum á viðburði Harvard og Wilson Center um norðurslóðir

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flutti ávarp og sat fyrir svörum á vefviðburði um sjálfbæra framtíð á norðurslóðum sem haldinn var í samvinnu við Arctic Initiative hjá Harvard Kennedy School og Polar Institute hjá Woodrow Wilson Center í Bandaríkjunum.

    21. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ráðherra ávarpaði fund áheyrnaraðila Norðurskautsráðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, áréttaði gildi laga og réttar á norðurslóðum og vægi Norðurskautsráðsins í samstarfi um svæðið á ráðstefnu áheyrnaraðila ráðsins sem fram fór í dag.

    14. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir

    Guðlaugur Þór ávarpaði ráðstefnu þingmannanefndar norðurslóða

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra gerði grein fyrir formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu síðastliðin tvö ár og sat fyrir svörum á tveggja daga ráðstefnu á vegum norska þingsins þar sem þingmannanefnd norðurslóða kom saman. Ráðstefnunni lauk í dag en hún fór að mestu fram með rafrænum hætti vegna heimsfaraldursins.

    19. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Leit og björgun, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók við tillögum að endurskoðaðri norðurslóðastefnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag við tillögum nefndar þingmanna úr öllum flokkum sem hann hafði falið að endurskoða stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. Á grundvelli tillagna nefndarinnar mun utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra leggja fram á næstunni tillögu til þingsályktunar um nýja norðurslóðastefnu.

    11. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Mannréttindi, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherrum Norðurlanda og Bretlands

    ​Öryggis- og alþjóðamál voru ofarlega á baugi á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra og utanríkisráðherra Norðurlanda (N5), með Dominic Raab utanríkisráðherra Bretlands.

    03. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ávarpaði Arctic Frontiers-norðurslóðaráðstefnuna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði áherslu á mikilvægi sjálfbærni þegar hann flutti opnunarávarp og tók þátt pallborðsumræðum á ráðstefnunni Arctic Frontiers sem fram fór í dag.

    02. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fjölsóttur fundur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra með erlendum sendiherrum

    Hátt í eitt hundrað fulltrúar erlendra ríkja með fyrirsvar gagnvart Íslandi tóku þátt í fjarfundi sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra stóð fyrir í dag. Nýútkomnar skýrslur um utanríkisviðskipti og samstarf við Grænland voru þar efst á baugi.

    21. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Skýrsla Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra komin út

    Grænlandsnefnd​ utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur skilað af sér ítarlegri skýrslu með tillögum um aukið samstarf Grænlands og Íslands á nýjum norðurslóðum.​ Ráðherra kynnti utanríkisráðherra Grænlands skýrsluna í gær.

    26. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ungir íslenskir frumkvöðlar hrepptu öll verðlaunin

    Íslenskir frumkvöðlar voru sigursælir í nýsköpunarsamkeppni fyrir ungmenni á norðurslóðum en úrslit hennar voru kynnt í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, var á meðal þeirra sem tók þátt í netviðburði í tilefni af því.

    20. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir

    Haustfundi embættismannanefndar Norðurskautsráðsins lokið

    Loftslagsmál, grænar orkulausnir, málefni hafsins og heilbrigðismál voru á meðal fundarefna á þriggja daga haustfundi embættismannanefndar Norðurskautsráðsins (e. Senior Arctic Officials Plenary) sem lauk í gær. Fundarefnin voru í samræmi við formennskuáherslur Íslands í ráðinu en til umræðu var einnig ráðherrafundur Norðurskautsráðsins sem halda á í maí 2021. Þar taka Rússar við formennskukeflinu af Íslendingum.

    07. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Norðurslóðir, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Verulegur ávinningur af þátttöku Íslands í Norðurslóðaáætlun

    Ný greinargerð um starfsemi Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPA) fyrir 2014-2020 staðfestir verulegan ávinning fyrir Ísland.

    24. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðherra bandaríska flughersins

    Öryggis- og varnarmál á norðurslóðum voru helsta umræðuefnið á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Barböru M. Barrett, ráðherra bandaríska flughersins í morgun.

    02. apr. 2020Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Norðurslóðir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mikilvægi vísindasamstarfs aldrei meira en nú

    „Kastljós heimsins hefur beinst að loftslagsmálum og mikilvægi norðurslóða á síðustu misserum en nú vofir einnig yfir okkur önnur sameiginleg ógn, afleiðingar COVID-19 á bæði heilsu okkar og efnahag. Það sem helst mun tryggja árangur þeirra aðgerða sem þjóðir heims grípa nú til vegna þeirra áskorana eru náin samvinna og áhersla á vöktun og miðlun vísindalegra gagna,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir í lokaávarpi sínu á fundi AOS (e. Arctic Observing Summit) í dag.

    19. feb. 2020Utanríkisráðuneytið, Netöryggi, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Netvarnir ofarlega á baugi í Eistlandsheimsókn utanríkisráðherra

    Öryggis- og alþjóðamál, tvíhliða samskipti, norðurslóðamál og þróunarsamvinna voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Urmas Reinsalu, utanríkisráðherra Eistlands, í Tallinn í dag. Guðlaugur Þór átti fundi með fleiri eistneskum ráðamönnum og heimsótti öndvegissetur Atlantshafsbandalagsins á sviði netvarna.

    18. feb. 2020Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Lettlands funduðu í Ríga

    Öryggis- og alþjóðamál, tvíhliða samskipti og málefni norðurslóða voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, í Ríga í dag. Utanríkisráðherra átti einnig fundi með forseta Lettlands og varnarmálaráðherra og heimsótti lettneska þjóðþingið.

    29. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra á norðurslóðaráðstefnu í Finnlandi

    Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra ávarpaði í dag alþjóðlega ráðstefnu um málefni norðurslóða sem haldin var í Helsinki. Utanríkisráðherra ræddi meðal annars alþjóðamál og tvíhliða samskipti á fundi með Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands.

    26. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Moskvu, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherrar Íslands og Rússlands ræddu norðurslóðir og viðskipti

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddu norðurslóðamál, tvíhliða samskipti og viðskipti á fundi sínum í Moskvu í dag. Þá voru öryggismál í Evrópu og alþjóðamál einnig til umræðu.

    21. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Fólk og samfélög í brennidepli á Hveragerðisfundi Norðurskautsráðsins

    Á fundi embættismannanefndar Norðurskautsráðsins sem fram fór í Hveragerði í dag ræddu fulltrúar aukna samvinnu um málefni sem tengjast fólki og samfélögum á norðurslóðum.

    11. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Guðmundur Ingi ræðir náttúruvernd og loftslagsmál á Hringborði norðurslóða

    Loftslagsmál og norðurskautið eru í forgrunni tvíhliða funda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur átt á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða sem nú stendur yfir í Hörpu. Fjallað verður um Vatnajökulsþjóðgarð og friðlýst svæði á norðurslóðum á sérstakri málstofu á ráðstefnunni á morgun.

    10. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd, Formennska Íslands 2019

    Forsætisráðherra flutti ávarp á alþjóðaþingi Hringborðs norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á alþjóðaþingi Hringborðs norðurslóða, Arctic Circle, í Hörpu í dag.

    09. okt. 2019Utanríkismál, Alþjóðamál, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Auðlindir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland getur haft góð áhrif á þróun Norðurslóða

    „Við deilum öll ábyrgðinni á Norðurslóðum. Saman skulum við tryggja að kynslóðir framtíðarinnar geti notið töfra Norðurslóða, líkt og við gerum í dag,“ sagði ráðherra.

    09. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurskautsráðið og Efnahagsráð norðurslóða funda saman í fyrsta sinn

    Nú stendur yfir fundur Norðurskautsráðsins og Efnahagsráðs norðurslóða en þetta er í fyrsta sinn sem ráðin koma saman. Fundurinn sem sóttur er af fulltrúum aðildarríkja Norðurskautsráðsins, vinnuhópa ráðsins, fastafulltrúum frumbyggjasamtaka á norðurslóðum og fulltrúum viðskiptalífs er liður í þeirri stefnu að auka samstarf milli ráðanna tveggja.

    03. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Efnahagssamvinna efst á baugi á Barentsráðsfundi

    Styrking efnahagslegrar samvinnu á Barentssvæðinu var aðalumræðuefnið á ráðherrafundi Barentsráðsins í Umeå í Svíþjóð í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fundinn og tók um leið þátt í ráðstefnunni EU Arctic Forum.

    20. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra styrkir tengslin við Bandaríkjaþing

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fundaði í vikunni með þingmönnum öldunga- og fulltrúadeildar Bandaríkjaþings með það að markmiði að efla tengslin á sviði efnahags- og viðskiptamála og kynna stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    12. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir

    Vinnuhópur Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun samþykkir verkefni um bláa lífhagkerfið og sjálfbærar orkulausnir á Norðurslóðum

    Um sjötíu embættismenn frá öllum átta ríkjum Norðurskautsráðsins, fulltrúar frá frumbyggjasamtökum af svæðinu og áheyrnaraðilum, sóttu fund vinnuhóps ráðsins um sjálfbæra þróun (SDWG) sem fram fór á Ísafirði dagana 10.-12. september. Jafnframt naut fundurinn þess að öflug þátttaka var af hálfu fulltrúa ungs fólks sem boðið var til fundarins til að ræða niðurstöður ráðstefnunnar „Velferð, styrkur og samfélagsleg þátttaka ungmenna á norðurslóðum“ sem haldin var í Reykjavík daginn áður. Ísland veitir vinnuhópnum um sjálfbæra þróun formennsku samhliða formennsku landsins í Norðurskautsráðinu.

    12. sep. 2019Utanríkismál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Borgarnesfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna lokið

    Fundum utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í Borgarnesi lauk um hádegisbil í dag, en fundarhöld hófust í gær með síðbúnum sumarfundi norrænu ráðherranna. Alþjóða- og öryggismál og málefni norðurslóða voru í brennidepli á fundi NB8-ríkjanna, ásamt loftslagsmálum.

    10. sep. 2019Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Vel heppnuð ráðstefna um velferð og samfélagslega þátttöku ungmenna á norðurslóðum

    Fjöldi fólks lagði leið sína á ráðstefnuna Velferð, styrkur og samfélagsleg þátttaka ungmenna á norðurslóðum sem fram fór frá hádegi í gær í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

    09. sep. 2019Norðurslóðir, Annað, Utanríkisráðuneytið

    Fundur vinnuhóps Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun á Íslandi

    Dagana 10.-12. september mun vinnuhópur Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun (e. Sustainable Development Working Group - SDWG) funda á Íslandi.

    04. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundaði með varaforseta Bandaríkjanna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í kvöld. Fundurinn fór fram í húsnæði Landhelgisgæslunnar á Suðurnesjum skömmu eftir að forsætisráðherra kom til landsins frá Svíþjóð og Danmörku.

    21. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Grænland

    Guðlaugur Þór Þorðarson, utanríkisráðherra átti í dag fund með Ane Lone Bagger sem fer með utanríkismál í Grænlensku landsstjórninni þar sem ákveðið var að efla til reglulegs samráðs milli landanna. Hann er staddur í vinnuheimsókn á Grænlandi til að kynna sér starfsemi ýmissa fyrirtækja og sveitarfélaga en þónokkuð er um íslenskar fjárfestingar í þessum hluta landsins.

    14. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Evrópusamvinna, Heimsmarkmiðin, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, funda á Íslandi í næstu viku í boði Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra

    Þriðjudaginn 20. ágúst nk. koma forsætisráðherrar Norðurlandanna saman í Reykjavík til árlegs sumarfundar. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, verður sérstakur gestur fundarins.

    09. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Milliríkjaviðskipti í brennidepli á fundi með bandarískum þingmönnum

    Aukið samstarf á sviði milliríkjaviðskipta og málefni norðurslóða voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og fjögurra bandarískra þingmanna í Reykjavík í dag.

    19. jún. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Fyrsti stjórnarnefndarfundur Norðurskautsráðsins í formennskutíð Íslands haldinn í Reykjanesbæ

    Ísland tók í byrjun maí síðastliðnum við formennsku í Norðurskautsráðinu til næstu tveggja ára. Dagana 18.-19. júní var fyrsti stjórnarfundur embættismannanefndar ráðsins, á formennskutíma Íslands, haldinn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Með fundinum er hrundið af stað röð reglubundinna funda Norðurskautsráðsins og tengdra viðburða sem fara munu fram víðsvegar um landið næstu tvö árin.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Formennska Íslands 2019

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi

    Öryggismál á Norður-Atlantshafi, fyrirhuguð verkefni Íslands í Kosovo, norrænt öryggismálasamstarf og fjölþátta ógnir voru aðalumræðuefnin á fundum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Stoltenberg er staddur hér á landi í heimsókn í boði forsætisráðherra.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband