Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Samgöngur og fjarskipti
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 835
    Raða eftir:
    09. maí 2018Innviðaráðuneytið, Siglingar, Samgöngur og fjarskipti

    Drög að reglugerð um leyfi til rekstrar báta í farþegaflutningum til umsagnar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um leyfi til rekstrar báta í farþegaflutningum. Þar er m.a. brugðist við tillögum rannsóknarnefndar samgönguslysa um aukið öryggi vegna slysa sem orðið hafa um borð í harðbotna slöngubátum (RIB). Umsagnarfrestur er til og með 25. maí.

    03. maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Hjólum í vinnuna

    Heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, er hafið. Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgönguleiðum.

    30. apr. 2018Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Skýrsla Oxford-háskóla: Cybersecurity Capacity Review – Republic of Iceland

    apríl 2018 / Innviðaráðuneytið Skýrsla Oxford-háskóla: Cybersecurity Capacity Review – Republic of Iceland Skýrsla Oxford-háskóla: Cybersecurity Capacity Review – Republic of Iceland

    30. apr. 2018Netöryggi, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Úttekt Oxford-háskóla á stöðu netöryggis og aðgerðir til eflingar þess

    Oxford-háskóli, sem var fenginn í júní 2017 til að gera úttekt á stöðu netöryggis í íslensku samfélagi, hefur skilað ítarlegri úttekt sinni. Þar er að finna ráðleggingar til úrbóta sem ráðuneyti og stofnanir hafa þegar tekið til skoðunar og ákvörðunar varðandi skipulag næstu skrefa. Mikilvægt er að þeim sé fylgt vel eftir því flestir innviðir nútímasamfélags byggja beint eða óbeint á fjarskipta- og upplýsingatækni.

    27. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur, Samgöngur og fjarskipti

    Ríkisstjórnin úthlutar fjórum milljörðum króna til brýnna vegaframkvæmda

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að veita fjögurra milljarða króna framlag til brýnna vegaframkvæmda árið 2018 úr almennum varasjóði sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með. Sú staða sem nú er uppi varðandi slæmt ástand vegakerfisins og viðbótarviðhaldsþörf hefur jafnframt áður verið rædd í ráðherranefnd um ríkisfjármál.

    23. apr. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Samgöngur og fjarskipti

    Tillaga um breytingu á verkaskiptingu er varða hergagnaflutninga kynnt ríkisstjórn

    Forsætisráðherra hyggst leggja til við forseta Íslands að stjórnskipuleg ábyrgð á leyfisveitingum íslenskra stjórnvalda skv. 1. mgr. 78. gr. loftferðalaga vegna hergagnaflutninga með borgaralegum loftförum verði færð frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til utanríkisráðuneytisins.

    16. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgönguáætlun, Siglingar, Samgöngur og fjarskipti

    Styrkir til verkefna sem ætlað er að auka öryggi sjófarenda

    Árlega eru veittir styrkir til hugvitsmanna til rannsókna og þróunar verkefna sem geta stuðlað að auknu öryggi sjófarenda. Styrkir eru nú lausir til umsóknar og er frestur til að skila inn umsóknum til 15. maí nk. Frekari upplýsingar er að finna á vef Samgöngustofu.

    16. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Almannaöryggi

    Drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd siglingaverndar í umsagnarferli

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú birt til umsagnar í Samráðsgáttinni drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd siglingaverndar. Með drögunum eru lagðar til breytingar sem fela í sér að Samgöngustofa skuli tilnefna stjórnvald hafnaverndar fyrir hverja höfn og það stjórnvald skuli vera ábyrgt fyrir gerð og framkvæmd verndaráætlana. Opið er fyrir innsendingu umsagna til og með 30. apríl nk.

    16. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur, Samgöngur og fjarskipti

    Ný reglugerð um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot tekur gildi 1. maí

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skrifað undir nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot. Tekur hún gildi 1. maí næstkomandi. Sektir við umferðarlagabrotum hafa ekki hækkað í rúman áratug og er talin ástæða til að sektarupphæðir fylgi þróun verðlags. Nauðsynlegt er að fjárhæð sekta endurspegli alvarleika umferðarlagabrota og þá hættu sem þau skapa. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig að auknu umferðaröryggi.

    13. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti

    Áfangaskýrsla vegna flutninga á hergögnum með íslenskum loftförum 2008-2017

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag áfangaskýrslu vegna könnunar á flutningi á hergögnum með borgaralegum loftförum en sú vinna var gerð að beiðni forsætisráðherra.

    13. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti

    Ráðgert að hefja vinnu við ný lög um leigubifreiðar með hliðsjón af tillögum starfshóps

    Starfshópur sem skipaður var á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í október á síðasta ári til að endurskoða í heild regluverk um leigubifreiðaakstur á Íslandi hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Starfshópurinn telur m.a. rétt að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshópsins tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi 2019.

    11. apr. 2018Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Netöryggi, Samgöngur og fjarskipti, Upplýsingatæknimál ríkisins, Innviðaráðuneytið

    Ísland í 1. sæti meðal þjóða heims í upplýsingatækni og fjarskiptum

    „Ríkisstjórnin hefur metnað til að Ísland haldi stöðu sinni sem eitt af forysturíkjum heims í fjarskiptainnviðum og nýtingu þeirra í þágu samfélagsins,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eftir að hafa veitt viðtöku viðurkenningu frá Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU) þar sem Ísland náði þeim árangri að verða í 1. sæti á heimsvísu á einkunnalista sambandsins árið 2017 í upplýsingatækni og fjarskiptum. Houlin Zhao, aðalritari ITU kom hingað til lands til að afhenda viðurkenninguna.

    11. apr. 2018Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Samgöngur og fjarskipti, Byggðamál

    Aukin áhersla á samgöngu- og byggðamál

    Gert er ráð fyrir töluverðri aukningu til málefnasviðs samgöngu- og fjarskiptamála og málefnasviðs sveitarstjórna og byggðamála í tillögu að fjármálaáætlun 2019-2023 ef miðað er við fjármálaáætlun 2018-2022. Aukningin til málefnasviðs samgöngu- og fjarskiptamála nemur alls 13,6 ma.kr. yfir tímabil áætlunarinnar og aukningin á heildarframlagi til málefnasviðs sveitarfélaga og byggðamála alls 791 m.kr.

    06. apr. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Embætti forstjóra Vegagerðarinnar auglýst laust til umsóknar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra auglýsir embætti forstjóra Vegagerðarinnar laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 23. apríl næstkomandi.

    05. apr. 2018Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpaði aðalfund Isavia

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti í dag ávarp við upphaf aðalfundar Isavia sem haldinn var í Reykjavík. Fram kom meðal annars í máli hans að samkvæmt fjármálaáætlun næstu ár verður auknu fé varið til viðhalds flugvalla en á liðnum árum. Einnig sagði ráðherra að nú væri að hefjast mótun fyrstu flugstefnu á Íslandi sem muni taka á öllum þáttum í flugstarfsemi.

    22. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Skrifað undir samninga um ljósleiðarastyrki verkefnisins Ísland ljóstengt

    Fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga skrifuðu í dag undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í ráðuneytinu.

    20. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Opnaði vef um öryggismat íslenska vegakerfisins

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði í dag aðgang að vef evrópska vegamatskerfisins EuroRAP á morgunfundi Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Félagið hefur frá árinu 2004 unnið reglulega að öryggisúttekt á þjóðvegum á Íslandi og hefur ráðuneytið ásamt öðrum opinberum aðilum og einkaaðilum stutt verkefnið með fjárframlögum.

    16. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Afhentu ráðherra undirskriftarlista frá Borgfirðingum eystra

    Þrír íbúar og fulltrúar sveitarfélagsins Borgafjarðar eystri afhentu Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lista með 2.461 nafni þess efnis að ráðherra setti Borgarfjarðarveg nr. 84 á samgönguáætlun.

    15. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Ræddi við bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar um rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fundaði í dag með bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar um mögulegt rekstrarfyrirkomulag nýrrar Vestmannaeyjaferju.

    14. mar. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Samgöngur og fjarskipti

    Reglugerð um vegi í náttúru Íslands tekur gildi

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd.

    13. mar. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Sama fargjald með Herjólfi í Landeyjahöfn og Þorlákshöfn

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið breytingar á gjaldskrá Herjólfs að sama fargjald verði fyrir ferðir milli lands og Eyja hvort heldur siglt er til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar. Sama gjald verður fyrir einstaklinga og fólksbíla burtséð frá því í hvaða höfn verður siglt.

    27. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Staða vegamála og mat á útgjaldaþörf

    Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti stöðu vegamála og mat á útgjaldaþörf á ríkisstjórnarfundi 23. febrúar. Fór hann þar yfir þörfina fyrir nýjar framkvæmdir, viðhald og þjónustu og benti á að fjárframlög til vegaframkvæmda hefðu ekki hækkað í hlutfalli við aukna umferð og auknar kröfur um þjónustu.

    27. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur

    Drög að lagafrumvarpi til nýrra umferðarlaga birt í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga hefur verið birt á samráðsgátt stjórnvalda við almenning og er unnt að senda þar umsagnir um frumvarpið til 16. mars næstkomandi. Unnið hefur verið að endurskoðuninni undanfarin ár og hefur frumvarp verið lagt fram fjórum sinnum en ekki hlotið afgreiðslu.

    23. feb. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Drög að skýrslu starfshóps um skattlagningu ökutækja og eldsneytis birt á samráðsgátt

    Hinn 5. febrúar 2016 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem falið var að taka skattlagningu ökutækja og eldsneytis til endurskoðunar. Nánari upplýsingar um starfshópinn og verkefni hans má finna á vefsíðu stjórnarráðsins. Starfshópurinn hefur átt fundi með nokkrum fjölda haghafa ásamt því sem honum bárust ýmsar upplýsingar og ábendingar eftir að þeirra hafði verið leitað.

    16. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar um vinnuskilyrði farmanna

    Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna hafa verið sett fram til umsagnar á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda við almenning. Umsagnarfrestur er til 2. mars.

    16. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Fyrirlestur um netöryggisrannsóknir

    Dr. Katrin Franke, prófessor í tölvuvísindum og netöryggismálum, heldur fyrirlestur um netöryggisrannsóknir við Tækniháskóla Noregs (NTNU) í Gjøvik og samstarf opinberra aðila og einkaaðila við uppbyggingu þessara rannsókna. Eitt slíkra verkefna sem kynnt verður er uppbygging á nýju æfingasvæði þar sem unnt verður að rannsaka og æfa viðbrögð við samverkandi áhrifum víðtækra netárása.

    15. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Innviðaráðuneytið

    Drög að lagafrumvarpi til að samræma áætlanir á sviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis til umsagnar

    Til umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum ráðuneytisins: Samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun, sem og ný áætlun um stefnu ríkisins á málefnum sveitarfélaga. Unnt er að skoða drögin á samráðsgáttinni um opið samráð stjórnvalda við almenning og senda umsagnir til 1. mars nk.

    07. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Flugvallarskilyrði í Hvassahrauni verði fullrannsökuð

    Starfshópur um framtíð Reykjavíkurflugvallar skilaði Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, nýverið áfangaskýrslu sinni. Jón Gunnarsson, fyrrverandi ráðherra, skipaði hópinn í september síðastliðnum.

    02. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Mótun heildarlöggjafar um net- og upplýsingaöryggi

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í dag, mótun heildarlöggjafar um net- og upplýsingaöryggi sem er næsta skref til eflingar netöryggis á Íslandi.

    25. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Samið um þjónustu Netöryggissveitarinnar við stjórnsýsluna

    Í dag var undirritaður fyrsti þjónustusamningur sem gerður hefur verið um þjónustu Netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar við stjórnsýsluna. Samninginn undirrituðu fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Póst- og fjarskiptastofnunar.

    25. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Ráðherra tók þátt í borgarafundi um samgöngumál á Vesturlandi

    Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi fór fram á Akranesi í gær og var Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, afhent þar áskorun fundarins um tafarlausar úrbætur á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Fundurinn var haldinn að frumkvæði bæjarstjórnar Akraness í samvinnu við önnur sveitarfélög á Vesturlandi.

    25. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra heimsótti Isavia

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, heimsótti Isavia á Keflavíkurflugvelli í dag ásamt fylgdarliði. Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, og nokkrir samstarfsmenn fóru yfir helstu þættina í starfseminni og greindu frá þróunaráætlun og þeirri uppbyggingu sem fyrirsjáanleg er á næstu árum og áratugum vegna aukinna umsvifa í fluginu.

    22. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Sex drög að reglugerðum um flugmál til umsagnar

    Drög að sex reglugerðum er varða flugrekstur og flugmál eru nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 5. febrúar næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið postur@srn.is.

    19. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur

    Áform um setningu nýrra umferðarlaga

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið undirbýr nú heildarendurskoðun umferðarlaga. Frestur til að koma að ábendingum og umsögnum er til og með 2. febrúar næstkomandi og sendist á netfangið postur@srn.is.

    17. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Drög að frumvarpi til laga um köfun í atvinnuskyni til umsagnar

    Til umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um köfun í atvinnuskyni. Unnt er að senda umsagnir um drögin til 30. janúar nk. og skulu þau send á netfangið postur@srn.is.

    10. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Áform um lagasetningu vegna innleiðingar alþjóðasamþykktar um vinnuskilyrði farmanna

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið undirbýr nú innleiðingu á alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði farmanna og áformar í því skyni að leggja frumvarp fyrir Alþingi svo unnt verði að fullgilda samþykktina. Frestur til að koma að umsögnum og ábendingum er veittur til og með 25. janúar næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið postur@srn.is.

    05. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Vetrarþjónusta verður aukin á þjóðvegum

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið í samráði við Vegagerðina að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegakerfinu í því skyni að bæta umferðaröryggi. Ráðherra og vegamálastjóri hafa að undanförnu kannað með hvaða hætti og hvar helst þarf að bæta þjónustuna og Vegagerðin hefur áætlað kostnað við þessa auknu þjónustu.

    04. jan. 2018Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Innviðaráðuneytið

    Þórunn Egilsdóttir formaður samgönguráðs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur skipað Þórunni Egilsdóttur alþingismann formann samgönguráðs. Í samgönguráði sitja einnig forstöðumenn Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Isavia.

    29. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Drög að breytingu á reglugerð um markaðsgreiningar í fjarskiptum til umsagnar

    Til umsagnar eru nú hjá ráðuneytinu drög að breytingu á reglugerð um markaðsgreiningar á sviði fjarskipta. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 17. janúar 2018 á netfangið postur@srn.is.

    21. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Umsagnarfrestur framlengdur

    Framlengdur hefur verið umsagnarfrestur um áform um lagasetningu er varðar samnýtingu jarðvegsframkvæmda til að greiða fyrir ljósleiðaralagningu. Er fresturinn nú til og með 15. janúar næstkomandi.

    18. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Fundaði með forstöðumönnun stofnana ráðuneytisins

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra átti óformlegar viðræður við forstöðumenn stofnana ráðuneytisins um það sem efst væri á baugi í starfseminni. Fundurinn var haldinn í dag í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

    15. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Mislæg gatnamót á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi í notkun

    Tekin hafa verið í notkun hin nýju mislægu gatnamót á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi sem unnið hefur verið að frá liðnu vori. Um 15-20 þúsund bílar fara um mannvirkið á degi hverjum og með mislægum gatnamótum er umferðaröryggi verulega aukið.

    07. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Úthlutun 450 milljóna króna til ljósleiðaraverkefna undirbúin

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórarráðherra, mun eftir að fjárlög liggja fyrir staðfesta samninga við sveitarfélög um lagningu ljósleiðara í kjölfar umsókna. Gert er ráð fyrir að samanlögð styrkupphæð nemi 450 milljónum króna.

    07. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Áform um lagasetningu um samnýtingu jarðvegsframkvæmda til að greiða fyrir ljósleiðaralagningu

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið undirbýr nú innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/61/EB og áformar í því skyni að leggja frumvarp fyrir Alþingi er varðar samnýtingu jarðvegsframkvæmda á sviði fjarskipta-, raforku- og veitukerfa. Meginmarkmið tilskipunarinnar snúa að því að draga úr kostnaði við uppbyggingu háhraða fjarskiptaneta.

    05. des. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur

    Drög að breytingu á reglugerð um skoðun ökutækja til umsagnar

    Til umsagnar eru nú drög að breytingu á reglugerð um skoðun ökutækja. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 13. desember næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið postur@srn.is.

    30. nóv. 2017Fjarskipti, Upplýsingatæknimál ríkisins, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Reykjavíkurborg og Stjórnarráðið fengu viðurkenningu fyrir bestu vefi ríkisstofnunar og sveitarfélags

    Reykjavíkurborg og Stjórnarráðið fengu viðurkenningu fyrir bestu vefi ríkisstofnunar og sveitarfélaga á degi upplýsingartækninnar sem fram fór í dag í Reykjavík. Fjallað var um fjölmargar hliðar vef- og uppýsingatækni á vinnustofu og ráðstefnu UT dagsins sem stóð daglangt.

    24. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Niðurstaða opnunar styrkbeiðna fyrir Ísland ljóstengt 2018

    Fjarskiptasjóður úthlutar styrkjum til sveitarfélaga til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli utan markaðssvæða.

    23. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Upplýsingatæknimál ríkisins, Almannaöryggi, Fjarskipti, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    UT-dagurinn haldinn 30. nóvember

    Dagur upplýsingatækninnar 2017 verður haldinn á Grand hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 30. nóvember. Fyrir hádegi fer fram vinnustofa um nýjungar í vefmálum ríkis og sveitarfélaga. Fjallað verður um vefstefnu og lýðræðisleg verkefni Reykjavíkurborgar, nýja samráðsgátt ráðuneytanna og sögð reynslusaga af þróun á nýjum vef stjórnarráðsins. Einnig verður fjallað um niðurstöður úttektarinnar „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2017?“ og niðurstöður öryggisúttektar á sömu vefjum.

    22. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Staðlar um áhrif þungra ökutækja til umsagnar

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti þann 20. nóvember síðastliðinn áhrifamat á tillögu sinni um staðla um losun koltvíoxíðs frá þungum ökutækjum. Hægt er að koma að athugasemdum og sjónarmiðum til 18. desember 2017.

    19. nóv. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Mínútu þögn í minningu þeirra sem látist hafa í umferðarslysum

    Minningarathöfn um þá sem hafa látist í umferðarslysum á Íslandi var haldin í Reykjavík í dag. Um leið var viðbragðsaðilum, lögreglu, Landhelgisgæslu, björgunarsveitum og heilbrigðisstéttum þakkað fyrir framlag þeirra.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband