Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 3013
    Raða eftir:
    10. okt. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 26/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja endurupptökubeiðni kæranda vegna ákvörðunar embættisins um að synja tilkynningu kæranda um rekstur heilbrigðisþjónustu. Byggði embættið synjun sína á því að lausn kæranda væri ósannreynd og að þjónusta sem kærandi hugðist veita skyldi fyrst prófuð og þróuð á heilsugæslu. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að í reynd hefði synjun embættisins falið í sér synjun á tilkynningu um rekstur heilbrigðisþjónustu. Þá komst ráðuneytið að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð embættisins hafi ekki verið í fullu samráði við kröfur stjórnsýsluréttarins. Þá hafi embættið að auki byggt synjun sína á málsástæðum sem ekki ættu viðhlítandi stoð í lögum.…

    08. okt. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 11/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja einstaklingi um starfsleyfi sem þroskaþjálfi, en einstaklingurinn hafði starfað undir heitinu um langan tíma án starfsleyfis. Við meðferð málsins kom fram að einstaklingurinn hefði lokið tilskildu námi til að starfa sem slíkur á sínum tíma. Hins vegar hefði einstaklingurinn aldrei sótt um starfsleyfi en kröfur til starfsleyfis sem þroskaþjálfi hafi aukist frá þeim tíma. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að frá því að kæra einstaklingsins barst ráðuneytinu hefði verið bætt við reglugerð um menntun, réttindi og skyldur þroskaþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi, ákvæði sem gæti mögulega leitt til þess að einstaklingurinn ætti nú rétt á umræddu starfsleyfi.…

    08. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um lyfjaumsýslu á heilbrigðisstofnunum

    Heilbrigðisráðuneytið, í samstarfi við landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu, stóð nýverið fyrir vinnustofu um lyfjaumsýslu á heilbrigðisstofnunum. Ráðuneytið og landsráð hafa verið með verkaskiptingu heilbrigðisstarfsfólks til skoðunar um nokkurn tíma og hvort ávinningur geti falist í því að gera einhverjar breytingar hvað þetta varðar. Þetta var til umfjöllunar á vinnustofunni þar sem sjónum var beint að umsýslu með lyfjum.

    04. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir úr lýðheilsusjóði auglýstir til umsóknar

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lýðheilsusjóði árið 2025. Umsóknarfrestur er til 22. október næstkomandi. Hlutverk Lýðheilsusjóðs er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu, í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Styrkir eru veittir til verkefna og afmarkaðra hagnýtra rannsókna.

    30. sep. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Önnur áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    september 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Önnur áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir Önnur áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    27. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Opin umræða um fóstur- og nýburaskimanir mikilvæg og tímabær

    Fóstur- og nýburaskimanir, tæknin og tækifærin, siðferðileg álitamál og samfélagslegar áskoranir voru til umfjöllunar á vel sóttu málþingi heilbrigðisráðuneytisins og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í vikunni. Markmið þingsins var að efna til opinnar umræðu um þetta flókna viðfangsefni og draga fram sem flest sjónarmið.

    25. sep. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja - Skýrsla starfshóps

    september 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja - Skýrsla starfshóps Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja - Skýrsla starfshóps

    25. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hjartastuðtæki um allt land verði skráð og sýnileg í kortasjá

    Starfshópur Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra leggur til að komið verði upp kortasjá fyrir sjálfvirk hjartastuðtæki um allt land. Markmiðið er að „fækka dauðsföllum af völdum hjartastoppa með því að bæta aðgang að sjálfvirkum hjartastuðtækjum á Íslandi og þannig stytta tíma frá hjartastoppi að stuði" eins og segir í skýrslu hópsins til ráðherra.

    25. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi til sóttvarnalaga og frumvarpi um heilbrigðisskrár

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær frumvarpi sínu til nýrra sóttvarnalaga og frumvarpi sem fjallar um heilbrigðisskrár og felur í sér breytingar á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um sjúkraskrár. Frumvörpunum hefur nú verið vísað til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis. Heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram 15 lagafrumvörp á 155. löggjafarþingi, þar af tólf á haustþinginu.

    24. sep. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 16/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að svipta lækni með sérfræðileyfi í geðlækningum starfsleyfi á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Voru ástæður starfsleyfissviptingarinnar að meginstefnu tvær. Annars vegar byggði embættið á að kærandi hafi ávísað óhoflegu magni af ávana- og fíknilyfjum til fjögurra sjúklinga hans um langan tíma. Þá hefðu þau lyf sem kærandi ávísaði til umræddra sjúklinga ekki virkað saman og ekki ætluð til framhaldsmeðferðar auk þess sem eftirlit og eftirfylgni kæranda var ábótavant. Hins vegar byggði embættið á að einn af umræddum sjúklingum hefði verið látinn frá árinu 2014.…

    24. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir

    Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir í dag, þriðjudaginn 24. september kl. 13:00-16:30. Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp. Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða.

    18. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Læknisfræðileg myndgreiningarþjónusta boðin út innan skamms

    Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur hafið formlega rannsókn á því hvort gildandi samningar Sjúkratrygginga Íslands um læknisfræðilega myndgreiningarþjónustu kunni að brjóta í bága við reglur EES um ríkisaðstoð. Heilbrigðisráðuneytið hefur verið með þessi mál til skoðunar um nokkurt skeið og skipaði ráðherra starfshóp til þess að vinna stöðugreiningu og tillögur að framtíðarskipulagi myndgreiningarþjónustu. Í framhaldi af þeirri skýrslu og frekari úrvinnslu tillagna, fól heilbrigðisráðherra Sjúkratryggingum Íslands í ágúst í fyrra að bjóða þessa þjónustu út. Undirbúningur stofnunarinnar að slíku útboði er nú að mestu lokið og stefnt að því að auglýsing um útboð þessarar þjónustu verði birt innan skamms.

    18. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Fullur salur á Haustdegi Gott að eldast

    Haustdagur Gott að eldast fór fram á dögunum en þar kom saman fólk héðan og þaðan af landinu sem tekur þátt í þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu. Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög voru í fyrra valin til þátttöku í verkefnunum og á haustdeginum hittist fólk af öllum svæðunum í fyrsta skipti.

    18. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Málþing um fóstur- og nýburaskimanir þriðjudaginn 24. september

    Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir þriðjudaginn 24. september nk. Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp. Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða. Þingið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 13.00-16.30. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

    12. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Um bakaðgerðir og yfirstandandi vinnu heilbrigðisyfirvalda til að fjölga þeim

    Vegna umræðu í fjölmiðlum um hryggjaraðgerðir (bakaðgerðir) vill heilbrigðisráðuneytið gera grein fyrir þeirri vinnu sem nú stendur yfir til að fjölga slíkum aðgerðum með greiðsluþátttöku hins opinbera. Sjúkratryggingar Íslands vinna nú að því að semja við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna um framkvæmd bakaðgerða, í samræmi við ákvörðun og fyrirmæli ráðuneytisins. Ekki hafa áður verið gerðir samningar um hryggjaraðgerðir en við samningsgerðina er horft til fenginnar reynslu af samningum um liðskiptaaðgerðir sem gefið hafa góða raun.

    12. sep. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 23/2024

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja tilkynningu kæranda um breytingu á rekstri í heilbrigðisþjónustu þar sem kærandi taldi að embættinu skorti lagastoð til að synja tilkynningunni. Embættið hélt því fram að margt væri óljóst við rekstrartilkynningu kæranda auk þess sem þjónustan væri að meginstefnu til ætluð heilbrigðum einstaklingum. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að synjun á tilkynningu um rekstur eða breytingu á rekstri yrði að eiga sér stoð í 75. gr. stjórnarskrárinnar og ákvæðum laganna. Í úrskurði ráðuneytisins nr. 18/2024 hefði verið fjallað um frekari kröfur landlæknis og að hverju þær mættu lúta. Var niðurstaða ráðuneytisins sú að embættið hefði að hluta til byggt á sjónarmiðum sem það hefði ekki heimild til að lögum.…

    11. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum

    Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.

    04. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gulur september um geðrækt og forvarnir

    Hafinn er gulur september, helgaður samvinnu stofnana og félagasamtaka sem vinna að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Gulur er litur sjálfsvígsforvarna og táknrænn fyrir þá vitundarvakningu sem er markmið mánaðarins og einkennist af fjölbreyttum viðburðum sem allir fjalla um þetta mikilvæga samfélagsmál á einn eða annan hátt.

    04. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og á meðal barna tekur til starfa

    Nýskipaður aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og á meðal barna hóf störf í dag. Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní sl. og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins er lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Með aðgerðunum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

    04. sep. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 24/2024

    Kærandi óskaði eftir endurupptöku á úrskurði ráðuneytisins nr. 10/2023, og varðaði málsmeðferðarkæru kæranda vegna málsmeðferðar embættis landlæknis samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, en ráðuneytið staðfesti með áðurgreindum úrskurði málsmeðferð embættisins í málinu. Kærandi byggði endurupptöku beiðni sína á áliti umboðsmanns Alþingis nr. 12179/2023 sem tilkomið var vegna kvörtunar kæranda til umboðsmanns vegnar úrskurðar ráðuneytisins. Í álitinu kom fram að umboðsmaður teldi að málsmeðferð embættisins hefði ekki verið í samræmi við lög og niðurstaða ráðuneytisins í úrskurðinum af þeim sökum ekki heldur. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að fallist væri á álit umboðsmanns og var endurupptökubeiðnin af þeim sökum samþykkt.…

    02. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Aukið aðgengi að viðhaldsmeðferð og flýtiþjónustu hjá SÁÁ

    Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, hefur staðfest viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknsjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningur þess efnis var undirritaður í dag við sjúkrahúsið á Vogi.

    30. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsugæsluþjónusta í Suðurnesjabæ

    Í dag var undirrituð viljayfirlýsing um opnun heilsugæslustöðvar í Suðurnesjabæ. Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir 6 árum og er ört vaxandi sveitarfélag. Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum og telur íbúafjöldi í Suðurnesjabæ 4.184 íbúa. Þjónustan verður staðsett í Vörðunni, húsnæði Suðurnesjabæjar að Miðnestorgi 3 í Sandgerði.

    30. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 18/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja tilkynningu kæranda um breytingu á rekstri í heilbrigðisþjónustu. Í málinu reyndi á hvort frekari kröfur landlæknis, sem honum er heimilt að setja vegna rekstrartilkynninga, samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 41/2007 og 2. mgr. 26. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, fælu í sér of víðtækt framsal valds til landlæknis. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að nauðsynlegt gæti verið að veita landlækni heimild til að gera ákveðnar frekari kröfur til verndar öryggi sjúklinga og gæða heilbrigðisþjónustu. Þær yrðu þó ávallt að eiga sér stoð í ákvæðum fyrrgreindra laga og 75. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944.…

    27. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 17/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja umsókn kæranda um sérfræðileyfi í hjartalækningum sem undirsérgrein við lyflækningar. Kærandi í málinu hélt því fram að skilyrði væru til að staðfesta umsókn hans, enda hefði hann lokið sérfræðinámi. Embætti landlæknis taldi að skilyrði fyrir að veita kæranda sérfræðileyfi væru ekki fyrir hendi, enda væri það forsenda fyrir veitingu sérfræðileyfis, ef ekki er fyrir að fara marklýsingu fyrir námið hér á landi, að umsækjandi hafi fengið útgefið leyfi í námsríkinu sem embætti landlæknis er heimilt að staðfesta á Íslandi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði reglugerðar nr. 856/2023 né reglugerðar nr. 467/2015 til að hljóta sérfræðileyfi. Var ákvörðun embættis landlæknis af þeim sökum staðfest.

    21. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Akureyrarklíníkin formlega stofnuð

    Formleg stofnun Akureyrarklíníkurinnar, þekkingar og ráðgjafamiðstöðvar um ME sjúkdóminn, fór fram á Akureyri sl. föstudag. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir verkefnið einstakt á margan hátt: „Með klíníkinni verður unnt að bæta þjónustu á landsvísu við sjúklinga sem glíma við ME sjúkdóminn og styðja við rannsóknir og greiningu á sjúkdóminum.“ Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) innsigluðu stofnun Akureyrarklíníkurinnar með undirritun samstarfsyfirlýsingar við hátíðlega athöfn í Menntaskólanum á Akureyri.…

    16. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Samningur undirritaður um samþætta heimaþjónustu í Vesturbyggð

    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Vesturbyggð hafa gert með sér samning um rekstur samþættrar heimaþjónustu í sveitarfélaginu. Samningurinn er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda; Gott að eldast, sem felur í sér heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk með áherslu á að þjónusta sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi.

    14. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 22/2024

    Kærð var ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins um að synja umsókn kæranda um færni- og heilsumat þar sem talið var að forsendur fyrir færni- og heilsumati væru ekki nægjanlegar að sinni auk þess sem heimaþjónusta væri ekki fullnýtt. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að af gögnum málsins og samskiptum við kæranda væri ljóst að gögn málsins sem færni- og heilsumatsnefndin aflaði um stöðu kæranda væru röng og ættu líkast til ekki við um kæranda. Var því ekki mótmælt af hálfu nefndarinnar. Var það mat ráðuneytisins að af þeim sökum gæti málið ekki talist rannsakað með fullnægjandi hætti. Ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar var af þeim sökum felld úr gildi og lagt fyrir nefndina að taka umsókn kæranda fyrir að nýju.

    13. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið við húsnæði heilsugæslunnar í Sunnuhlíð á Akureyri

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur heimilað Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) að taka á leigu um 250 fermetra húsnæðis í Sunnuhlíð og skapa þannig aukið rými fyrir starfsemi heilsugæslunnar sem þar er til húsa. Þar verður einnig starfsstöð Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands sem hefur verið með aðsetur í gömlu heilsugæslustöðinni við Hafnarstræti.

    13. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samkomulag um úrbætur á húsnæði Hlíðar á Akureyri

    Ríkið og Akureyrarbær hafa komist að samkomulagi um fyrirkomulag vegna nauðsynlegra framkvæmda við húsnæði hjúkrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri. FSRE (Framkvæmdasýslan Ríkiseignir) stýrir verkefninu sem er hafið og gert ráð fyrir að verði að fullu lokið fyrir lok næsta árs. Kostnaður við framkvæmdirnar, allt að 1.250 milljónir króna, greiðist úr ríkissjóði.

    13. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Sonja Lind nýr aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf í vikunni.

    09. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ylja - Neyslurými

    Ylja, fyrsta staðbundna neyslurýmið sem byggir á hugmyndafræði skaðaminnkunar hefur verið opnað í Borgartúni í Reykjavík. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir opnun þess marka tímamót í þjónustu við fólk sem glímir við fíknisjúkdóma.

    09. ágú. 2024Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Líf og heilsa, Neytendamál, Umhverfi og náttúruvernd, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    ágúst 2024 / Atvinnuvegaráðuneytið Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis (íslenska) Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis (enska)

    09. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi staðfest

    Eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans er að varðveita virkni sýklalyfja fyrir komandi kynslóðir. Til þess þarf að ráðast í víðtækar aðgerðir og setja metnaðarfull markmið í baráttunni við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun þessa efnis sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin felur í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem ráðast þarf í, forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat.

    19. júl. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 20/2024

    Óskað var eftir endurupptöku á úrskurði ráðuneytisins nr. 12/2024 þar sem talið var að úrskurðurinn væri haldinn efnislegum annmörkum. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að skilyrði fyrir endurupptöku væru ekki fyrir hendi enda væru atvik málsins ekki með þeim hætti sem greinir í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Engu að síður taldi ráðuneytið að því bæri skylda til að líta til annarra heimilda sem það hefði til að endurskoða ákvörðunina. Kannaði ráðuneytið m.a. hvort skilyrði fyrir afturköllun ákvörðunar væru fyrir hendi. Niðurstaða ráðuneytisins var að svo væri ekki enda væri úrskurðurinn lögum samkvæmt. Var endurupptökubeiðni kæranda af þeim sökum hafnað.

    18. júl. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 14/2024

    Kærð var málsmeðferð setts landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Gerðar voru athugasemdir við marga þætti málsmeðferðar setts landlæknis í kærum sem stöfuðu bæði frá heilbrigðisstofnun og sjúklingi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að hvorki yrði hæfi setts landlæknis né óháðu sérfræðinga málsins dregin í efa. Rannsókn málsins hefði verið fullnægjandi og andmælaréttur virtur. Hins vegar hefði málsmeðferðartími farið úr hófi fram og að rökstuðningur setts landlæknis í málinu hefði ekki að fullu samrýmst ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 og laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Var málsmeðferð setts landlæknis staðfest að öðru leyti.…

    10. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viðbótarmenntun sjúkraliða formlega viðurkennd með reglugerð

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðarbreytingin felur í sér viðurkenningu á viðbótarmenntun sjúkraliða við Háskólann á Akureyri sem gerir þeim kleift að takast á við flóknari verkefni og takast á hendur aukna ábyrgð í störfum sínum.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar Landspítala að hefjast

    Samningur um framkvæmdir við 4.400 fermetra nýbyggingu endurhæfingardeildar Landspíta við Grensás var undirritaður í dag. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í ágúst og ljúki á árinu 2026. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Karl Andreassen forstjóri Ístaks undirrituðu samninginn og vottar að honum voru Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og Guðrún Pétursdóttir formaður Hollvina Grensásdeildar.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á stöðu markmiðs heilbrigðisstefnu um rétta þjónustu á réttum stað

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að greina hver sé staðan á því markmiði heilbrigðisstefnu að notendur heilbrigðisþjónustu fái þá þjónustu sem þeir þarfnast, á réttu þjónustustigi og að þjónustan sé samfelld. Í heilbrigðisstefnunni eru talin 13 stefnumið sem þarf að uppfylla til að ná settu marki. Hlutverk starfshópsins verður að greina hvað áunnist hefur í þessu skyni og jafnframt að gera tillögur um aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að ná þeim árangri sem að er stefnt.

    09. júl. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    „Börn eru ekki litlir fullorðnir“ – Skýrsla um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis

    júlí 2024 / Heilbrigðisráðuneytið „Börn eru ekki litlir fullorðnir“ – Skýrsla um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis Börn eru ekki litlir fullorðnir - skýrsla starfshóps um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    „Börn eru ekki litlir fullorðnir“ – Skýrsla starfshóps um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis hefur nú lokið störfum og skilað ráðherra skýrslu ásamt tillögum. Til afmörkunar efnisins voru skoðaðar tvær birtingarmyndir ofbeldis í garð barna. Annars vegar börn sem þolendur heimilisofbeldis og hins vegar sá hópur barna sem útsettur er fyrir að undirgangast limlestingar á kynfærum.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áformað að skipa stjórn Sjúkrahússins á Akureyri

    Birt hafa verið til umsagnar áform um lagabreytingu sem gerir kleift að skipa stjórn yfir Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið er að styrkja enn frekar stjórnun sjúkrahússins og faglegan rekstur þess. Horft er til þess að sambærileg ákvörðun um skipun stjórnar yfir Landspítala árið 2022 hefur gefist vel. Því er talið skynsamlegt að stíga sama skref varðandi Sjúkrahúsið á Akureyri sem er ein af stærstu stofnunum ríkisins, hvort sem litið er til starfsmannafjölda eða fjárheimilda.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstofnun Vesturlands viðurkennd fyrir sérnámskennslu í bæklunarlækningum

    ​Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala. Haustið 2022 var ný og fullkominn skurðstofa fyrir liðskiptaaðgerðir tekin í notkun á Sjúkrahúsinu á Akranesi.

    08. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform um afnám kostnaðarþátttöku sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt áform heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða 15% stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þetta er liður í því að hrinda í framkvæmd ákvörðun heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að taka upp nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili sem kynnt var í byrjun þessa árs.

    05. júl. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2025 til 2029

    júlí 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Skýrsla heilbrigðisráðherra um fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2025 til 2029 Skýrsla heilbrigðisráðherra um fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2025 til 2029

    05. júl. 2024Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Almannaöryggi, Dómstólar, Fullnusta refsinga, Löggæsla, Réttarfar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Mælaborð birt vegna aðgerðaáætlunar um meðferð kynferðisbrota

    Vinna við aðgerðaáætlun til ársins 2025 um meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu heldur áfram af fullum krafti. Á vef Stjórnarráðsins hefur verið birt mælaborð um eftirfylgni þar sem hægt er að kynna sér stöðu einstakra atriða í aðgerðaáætluninni.

    05. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvörp heilbrigðisráðherra sem urðu að lögum á vorþingi

    Fimm frumvörp heilbrigðisráðherra urðu að lögum frá Alþingi á liðnu vorþingi. Í þeim felast ýmis nýmæli sem eru mikilvæg fyrir notendur og veitendur heilbrigðisþjónustu og styrkja stjórnsýslu heilbrigðismála. Þar má nefna ákvæði um umsýsluumboð vegna aðgangs að stafrænum heilbrigðisgáttum, miðlun sjúkraskrárupplýsinga milli landa í þágu meðferðar sjúklinga og ákvæði sem einfaldar umsóknarferli vegna tiltekinna vísindarannsókna. Samþykkt var ný heildarlöggjöf um sjúklingatryggingu og gerðar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu þannig að í löggjöfinni sé tekið mið af þeim breytingum sem leiða af örri þróun á sviði fjarheilbrigðisþjónustu.

    05. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Viljayfirlýsing um uppbyggingu Sementsreits á Akranesi undirrituð

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í gær ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu Sementsreits á Akranesi fyrir starfsemi ríkis og sveitarfélagsins.

    03. júl. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Stafrænt Ísland, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áfram unnið að þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk

    Tillögur starfshóps um þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk voru kynntar í ríkisstjórn á dögunum. Vinnan byggir á viljayfirlýsingu sem fjórir ráðherrar undirrituðu vorið 2023 og var hópnum falið að útfæra tillögur og tryggja aukið samstarf á milli aðila innan og utan stjórnkerfisins.

    03. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjórar ferðir fást nú endurgreiddar vegna heilbrigðisþjónustu innanlands

    Almennur réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast við nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. Reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi 1. júlí. Í byrjun þessa árs var rétturinn aukinn úr tveimur ferðum í þrjár og nú hefur fjórða ferðin bæst við.

    01. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjölgun meðferðarrýma í Krýsuvík

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúa Krýsuvíkursamtakana hafa undirritað samkomulag um fjölgun rýma og aukinn stuðning við meðferðarheimilið Krýsuvík. Samkomulagið kveður á um aukið aðgengi að þjónustunni og fjölgun meðferðarplássa um þriðjung, ásamt því að efla faglegt meðferðarstarf í Krýsuvík.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband