Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 1862
    Raða eftir:
    24. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ráðherrar EFTA-ríkjanna undirrita uppfærðan fríverslunarsamning við Chile

    Fríverslunarnet EFTA og viðtækar áskoranir í alþjóðaviðskiptakerfinu voru til umræðu á ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, sem lauk í dag í Genf. Á fundinum undirrituðu ráðherrar EFTA-ríkjanna og utanríkisráðherra Chile einnig uppfærðan fríverslunarsamning.

    21. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Mið-Austurlanda efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í Stokkhólmi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að Norðurlöndin séu samstíga og tali áfram einni röddu þegar kemur að öryggi á svæðinu, sérstaklega nú þegar Norðurlöndin eru öll komin í Atlantshafsbandalagið. Ráðherra sótti árlegan sumarfund utanríkisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi í gær.

    19. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar samþykkja aukinn stuðning við Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarviðbúnað, undirbúning leiðtogafundar sem fer fram í næsta mánuði og stuðning bandalagsríkja við varnarbaráttu Úkraínu á ráðherrafundi í Brussel í síðustu viku. Fundurinn var jafnframt fyrsti varnarmálaráðherrafundur Svía eftir inngöngu í bandalagið.

    18. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Starfshópur utanríkisráðherra leggur til aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða

    Mikilvægt er að auka gæði lagasetningar við innleiðingu EES-gerða til að forðast gullhúðun sem kemur niður á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á innri markaði EES. Þetta er niðurstaða starfshóps sem utanríkisráðherra skipaði til að skoða aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða, en skýrsla starfshópsins var birt í dag.

    14. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Viðskiptaumhverfi Íslands opið og gagnsætt samkvæmt úttekt Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar

    Í dag lauk reglubundinni úttekt á viðskiptastefnu Íslands á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Er þetta í sjötta skipti sem slík úttekt fer fram á vegum stofnunarinnar, en síðasta rýni fór fram árið 2017. Í tengslum við úttektina gaf skrifstofa WTO út ítarlega skýrslu um viðskiptastefnu Íslands og íslensk stjórnvöld gáfu sömuleiðis út styttri skýrslu um stefnuna. Í kjölfarið héldu aðildarríki WTO tvo fundi þar sem farið var ítarlega yfir efni skýrslnanna tveggja.

    14. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Viðbrögð við fjölþáttaógnum efst á baugi ráðherrafundar Eystrasaltsráðsins

    Viðbrögð við fjölþáttaógnum, viðnámsþol samfélaga og málefni Úkraínu voru ofarlega á baugi á fundi utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins sem fram fór í Porvoo í Finnlandi í dag. Í sameiginlegri yfirlýsingu fordæma utanríkisráðherrarnir harðlega innrásarstríð Rússlands og lýsa yfir algjörri samstöðu með Úkraínu.

    13. jún. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á öryggismál til umræðu í Hörpu

    Á fyrsta fundi sendiherra og sérstakra erindreka í loftslagsmálum hjá aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, sem fram fór í Hörpu í vikunni, voru loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á öryggimál til umræðu.

    12. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Loftslagsverkefni Íslands í Úganda þegar farið að skila árangri

    Ný og betri skólaeldhús sem greidd eru af íslensku þróunarfé hafa verið sett upp í tuttugu grunnskólum á Karamoja-svæðinu í Úganda undanfarna mánuði. Með þessu næst fram verulegur sparnaður á eldivið auk þess sem stuðlað er að fæðuöryggi skólabarna. Til stendur að endurbæta rúmlega fimmtíu skólaeldhús til viðbótar á svæðinu áður en árið er liðið fyrir fjárframlög frá Íslandi.

    11. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ræddu náið samstarf Íslands og Kanada

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra átti í dag símafund með Bill Blair, varnarmálaráðherra Kanada, þar sem aukið samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum og þróun öryggismála á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi var til umræðu.

    11. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Forsætisráðuneytið

    Ísland sýnir stuðning í verki vegna mannúðarmála á Gaza

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sótti í dag fyrir hönd forsætisráðherra ráðstefnu um mannúðarástandið á Gaza sem haldin var í Jórdaníu. Jórdaníukonungur, forseti Egyptalands og aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna bjóða til ráðstefnunnar og hana sækja þjóðarleiðtogar og ráðamenn víða að.

    11. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland fjármagnar orkubúnað til Úkraínu í samstarfi við UNDP

    Ísland færði Úkraínu orkubúnað í síðustu viku sem styður við starfsemi sjö raforkustöðva víðs vegar í landinu. Um er að ræða samstarfsverkefni Íslands og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) en ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins tók þátt í afhendingarathöfn í gegnum fjarfundabúnað þar sem Ísland, ásamt Suður-Kóreu, færðu úkraínska orkufyrirtækinu Ukrenergo búnaðinn.

    07. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Norðurlönd og Eystrasaltsríkin sameinuð í öflugum stuðningi við Úkraínu

    Utanríkisráðherra sat í dag fjarfund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna með Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu. Rædd var samhæfing og samstarf um stuðning, auk undirbúnings fyrir friðarráðstefnuna sem haldin verður í Sviss 15. og 16. júní næstkomandi. Forsætisráðherra mun sækja ráðstefnuna fyrir Íslands hönd.

    06. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Aukin samvinna rædd á reglulegum samráðsfundi Íslands og Frakklands

    Tvíhliða samráð utanríkisráðuneyta Íslands og Frakklands fór fram þann 5. júní í Reykjavík. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland og Frakkland eiga samráð af þessu tagi, en fundir hafa verið haldnir með 18 mánaða millibili frá árinu 2021. Viðskiptaskrifstofa utanríkisráðuneytisins leiddi samráðið fyrir Íslands hönd, en einnig tóku þátt fulltrúar skrifstofu alþjóðapólitískra málefna og sendiráðs Íslands í París. Pierre-Alexandre Miquel, staðgengill skrifstofustjóra á Evrópumálaskrifstofu franska utanríkisráðuneytisins fór fyrir sendinefnd Frakklands.

    05. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginlega viðbragðssveitin æfir eftirlit með mikilvægum neðansjávarinnviðum

    Sameiginlega viðbragðssveitin (Joint Expeditionary Force, JEF) hóf í vikunni mánaðarlanga æfingu undir heitinu Nordic Warden sem felur í sér aukið eftirlit með mikilvægum neðansjávarinnviðum í Norður-Evrópu. Verkefnið er hluti af viðbragðsáætlunum JEF og fylgir á eftir svipaðri æfingu frá því í desember síðastliðnum.

    03. jún. 2024Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Persónuréttur, Utanríkismál, Persónuskilríki, Þjóðskrá og fasteignaskrá, Dómsmálaráðuneytið

    Útgáfa hafin á nýjum nafnskírteinum

    Útgáfa á nýjum nafnskírteinum er hafin hjá Þjóðskrá Íslands í takt við auknar öryggiskröfur sem gerðar eru til persónuskilríkja.

    31. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í óformlegum fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Prag í dag og í gær. Meginefni fundarins var áframhaldandi stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu og annar undirbúningur fyrir leiðtogafund bandalagsins sem haldinn verður í Washington í júlí.

    29. maí 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Alþjóðaöryggismál til umræðu á fjölmennri ráðstefnu varnarmálaráðherra í Brussel

    Yfir sextíu varnarmálaráðherrar og fulltrúar alþjóðastofnanna víðsvegar að úr í heiminum komu saman til fundar í Brussel í gær og í dag á ráðstefnu Evrópusambandsins um öryggis- og varnarmál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í ráðstefnunni og fundaði jafnframt með Josep Borrel, utanríkismálastjóra ESB, og Anatolie Nosatîi, varnarmálaráðherra Moldóvu.

    29. maí 2024Utanríkismál, Evrópusamvinna, Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Áskoranir í alþjóðamálum og 30 ára afmæli EES-samningsins í brennidepli í Brussel

    EFTA-ríkin innan EES og Evrópusambandið (ESB) standa sameinuð í einörðum stuðningi sínum við Úkraínu. Þetta kom fram á fundi utanríkisráðherra Íslands, Noregs, Liechtenstein, Belgíu og fulltrúa Evrópusambandsins í Brussel í gær.

    27. maí 2024Utanríkismál, Mið-Austurlönd, Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna

    Ísland tilkynnir um ný áheit til mannúðarmála í Sýrlandi og grannríkjum

    Framlög Íslands til mannúðarmála í Sýrlandi og grannríkjum nema 820 milljónum króna næstu þrjú árin. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti þetta á árlegri framlagaráðstefnu fyrir Sýrland og grannríki sem haldin var í Brussel í dag.

    21. maí 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Þróun öryggismála á Norður-Atlantshafi í deiglunni

    Aukinn varnarviðbúnaður, nýjar varnaráætlanir Atlantshafsbandalagsins og þróun öryggismála á Norður-Atlantshafi voru í brennidepli á fundi yfirmanns herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk, Douglas G. Perry flotaforingja, og Jónasar G. Allanssonar, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sem fram fór í síðustu viku.

    17. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Evrópusamvinna, Úkraína, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    75 ára afmæli Evrópuráðsins fagnað á ráðherrafundi í Strassborg

    Mikilvægi samstöðu Evrópu um áframhaldandi stuðning við Úkraínu og efling lýðræðis og mannréttinda í álfunni bar hæst á ráðherrafundi Evrópuráðsins sem fram fór í Strassborg í dag. Um þessar mundir eru 75 ár liðin frá stofnun Evrópuráðsins, og var tímamótunum fagnað sérstaklega á ráðherrafundinum í dag.

    17. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Tvíhliða samstarf Íslands og Þýskalands til umræðu á fundum ráðuneytisstjóra

    Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Martin Eyjólfsson, átti pólitískt samráð í vikunni með kollegum sínum í utanríkis-, varnarmála- og þróunarsamvinnuráðuneytum Þýskalands. Fundað var með ráðuneytisstjórum sem fara með mannréttindi og fríverslun, alþjóða- og öryggispólitík, varnarpólitík og alþjóðlega þróunarsamvinnu, auk þess sem fundað var með Evrópumálaráðherra Þýskalands. Umræður snerust að miklu leyti um stuðning ríkjanna við Úkraínu, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og stöðu alþjóðamála í víðara samhengi, sem og mögulega samstarfsfleti Íslands og Þýskalands í Evrópu og víðar.

    15. maí 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Íslands og Eystrasaltsríkjanna í Georgíu

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litáens. Ferð ráðherranna var farin í framhaldi af sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8-ríkjanna) sem gefin var út síðasta föstudag.

    14. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Kosningar, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk, Sendiskrifstofa

    Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í aðalræðisskrifstofunni í Nuuk

    Senn líður að forsetakosningum, en kjördagur er 1. júní nk. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan er hafin, tekið er á móti kjósendum í húsakynnum aðalræðisskrifstofunnar á Hans Egedesvej 9, 3900 Nuuk.

    14. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði málþing í tilefni af 75 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins

    Grunngildin sem Atlantshafsbandalaginu er ætlað að verja, tengsl friðar og varna auk framlags Íslands til Atlantshafsbandalagsins fyrr og nú voru meginstef opnunarávarps Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á málþingi í tilefni af 75 ára afmæli Atlantshafsbandalagins sem fram fór í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag.

    10. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Ályktun um aukna þátttöku Palestínu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna samþykkt

    Ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi þingsins í dag. Ísland kaus með ályktuninni.

    08. maí 2024Utanríkismál, Evrópusamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ótvíræður ávinningur Íslands af EES-samstarfinu

    Innri markaður ESB er kjölfestumarkaður fyrir útflutning frá Íslandi og þátttaka í evrópskum samstarfsáætlunum hefur stóreflt íslenskt samfélag frá því að EES-samningurinn tók gildi árið 1994. Þetta var meðal þess sem fram kom í opnunarávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á málþingi sem haldið var í morgun í tilefni af 30 ára afmæli EES. Hún sagði undirritun EES-samningsins hafa verið mikið heillaspor fyrir þjóðina og að árangur Íslands af EES samstarfinu væri óumdeilanlegur.

    03. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Aukin samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Keflavík dagana 2. til 3. maí. Aukin varnarsamvinna ríkjanna, stuðningur við Úkraínu gegn árásarstríði Rússlands, ástandið í Miðausturlöndum og öryggi á norðurslóðum voru á meðal helstu umræðuefna fundarins.

    03. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Afríkuríkja funda í Kaupmannahöfn

    Versnandi öryggishorfur, staða alþjóðakerfisins og aukið samstarf á sviði viðskipta og fjárfestinga voru efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja sem fram fór í Kaupmannahöfn 2. og 3. maí. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn og þá tók Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, þátt í viðskiptadagskrá sem fór fram samhliða.

    03. maí 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Freetown, Utanríkismál

    Sendiskrifstofa Íslands í Síerra Leóne formlega opnuð

    Ný sendiskrifstofa Íslands í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, var formlega opnuð í gærkvöldi og var sérstök hátíðarmóttaka af því tilefni. Sendinefnd frá Íslandi er í Síerra Leóne um þessar mundir og sóttu Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Logi Einarsson þingmaður, opnunina. Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne, flutti ávarp og þá tóku Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, og Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, einnig til máls.

    02. maí 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja ræddu traust og náið samband þjóðanna

    Framkvæmd fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja, sem tók gildi árið 2006, var til umræðu á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Høgna Hoydal, utanríkisráðherra Færeyja, sem fram fór í Þórshöfn í vikunni.

    30. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Langtímastefna fyrir norrænt varnarsamstarf undirrituð

    Ný langtímastefna fyrir norrænt varnarsamstarf (NORDEFCO) til ársins 2030 var undirrituð á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna sem lauk í Þórshöfn í dag. Þá ræddu ráðherrarnir um mikilvægi áframhaldandi stuðnings til Úkraínu og þróun öryggismála á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Að þessu sinni áttu fulltrúar stjórnvalda í Færeyjum og Grænlandi einnig sæti á fundinum.

    29. apr. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stefna um stuðning Íslands við Úkraínu samþykkt á Alþingi

    Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu árin 2024 – 2028, var samþykkt mótatkvæðalaust á Alþingi í dag með breiðum stuðningi stjórnar og stjórnarandstöðu.

    29. apr. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stefna um stuðning Íslands við Úkraínu samþykkt á Alþingi

    Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu árin 2024 – 2028, var samþykkt mótatkvæðalaust á Alþingi í dag með breiðum stuðningi stjórnar og stjórnarandstöðu.

    26. apr. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið, UNHCR, Sameinuðu þjóðirnar

    Ísland undirritar nýjan rammasamning við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna

    Nýr rammasamningur um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til næstu fimm ára var undirritaður í Genf í gær. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands ásamt Filippo Grandi, framkvæmdastjóra UNHCR.

    24. apr. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Sjálfstæð þjóð með sterka rödd á alþjóðavettvangi

    Víðsjárverð staða alþjóðamála, átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, varnarbarátta Úkraínu sem og staða og stefna Íslands á alþjóðlegum vettvangi var í brennidepli í opnunarávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á árlegri ráðstefnu um alþjóðamál sem fram fór í Norræna húsinu í dag.

    23. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Fæðuöryggi, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands í Róm

    Aukinn stuðningur við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna

    Nýr rammasamningur um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) til næstu fimm ára var undirritaður í Róm í dag. Matthías G. Pálsson, fastafulltrúi Íslands hjá alþjóðastofnunum í Róm, undirritaði samninginn ásamt Cindy McCain, framkvæmdastjóra WFP.

    22. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar funda í NATO-Úkraínuráðinu

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu í NATO-Úkraínuráðinu komu saman á fjarfundi á föstudag til að ræða þróun stríðsins í Úkraínu.

    19. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC

    Stuðningur við Úkraínu efst á dagskrá á fundi með varautanríkisráðherra Bandaríkjanna

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hitti í dag Kurt Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Tvíhliða samstarf Íslands og Bandaríkjanna, stuðningur við Úkraínu og málefni Miðausturlanda bar hæst á fundinum, sem og málefni norðurslóða og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður í Washington í sumar. Samskipti við Kína voru sömuleiðis til umræðu.

    19. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC

    Utanríkisráðherra á ársfundum Alþjóðabankans

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tekur þátt í ársfundum Alþjóðabankans í Washington í dag og í gær en Ísland leiðir þátttöku kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í þróunarnefnd bankans á árinu 2024. Utanríkisráðherra situr bæði hádegisverð og fund nefndarinnar og flytur þar ávarp fyrir hönd kjördæmisins.

    16. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland eykur framlög sín til mannúðarmála í Súdan

    Alvarleg staða mannúðarmála í Súdan var meginefni alþjóðlegrar framlagaráðstefnu sem fram fór í París í gær. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins sótti fundinn fyrir Íslands hönd og tilkynnti um samtals 140 m.kr. framlag íslenskra stjórnvalda til mannúðarstarfs í Súdan á næstu tveimur árum.

    15. apr. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands á fundi með forsætisráðherra Úkraínu

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra átti fund með Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu, í dag. Fundur ráðherranna fór fram í flugstöðinni í Keflavík, þar sem úkraínski forsætisráðherrann var í stuttu stoppi á leið sinni til Bandaríkjanna.

    12. apr. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Samráð Íslands og Bandaríkjanna um efnahags- og viðskiptamál

    Samstarf Íslands og Bandaríkjanna í orku- og loftslagsmálum og hnattrænar áskoranir á sviði viðskiptamála var meðal þess sem var til umræðu í árlegu efnahagssamráði Íslands og Bandaríkjanna sem fram fór í Washington í gær.

    10. apr. 2024Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Stuðningur við Úkraínu efst á baugi á utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna

    Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, Úkraína og mögulegar leiðir til að efla stuðning við varnarstríð landsins á alþjóðavísu, og málefni Belarús voru í brennidepli á nýafstöðnum utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna sem fram fór í Visby í Svíþjóð að þessu sinni. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin skipa NB8-ríkjahópinn.

    05. apr. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Mannréttindi, Úkraína, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna endurnýjar ályktun um stöðu mannréttinda í Íran

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um stöðu mannréttinda í Íran sem lögð var fram af ríkjahópi undir forystu Íslands. Ályktunin tryggir annars vegar áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til þess að vakta og gefa reglubundna skýrslu um stöðu mannréttinda í Íran, og framlengir hins vegar um eitt ár umboð tímabundinnar óháðrar rannsóknarnefndar sem safnar upplýsingum og gögnum vegna hrinu grófra mannréttindabrota íranskra stjórnvalda í kjölfar víðtækra mótmæla eftir andlát Jina Mahsa Amini haustið 2022.

    04. apr. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins fögnuðu 75 ára afmæli bandalagsins

    Í dag, 4. apríl, eru liðin 75 ár frá stofnun Atlantshafsbandalagsins með undirritun Atlantshafssáttmálans árið 1949. Tímamótanna var fagnað á fundi utanríkisráðherra bandalagsins sem fram fór í Brussel í dag.

    27. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samstarfssamningur við Varðberg undirritaður

    Í tilefni af 75 ára afmæli Atlantshafssáttmálans hefur utanríkisráðuneytið gert samstarfssamning við Varðberg, félag um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Samstarfið snýr að kynningu og fræðslu á sviði öryggis- og varnarmála, í tengslum við 75 ára afmæli stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins. Utanríkisráðuneytið og Varðberg hafa átt í góðu samstarfi, bæði formlegu og óformlegu, allt frá stofnun félagsins.

    25. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Aukinn stuðningur við varnir Úkraínu

    Ísland mun styðja við innkaup Tékklands á skotfærum fyrir Úkraínu og leggja fjármuni í kaup á búnaði fyrir konur í úkraínska hernum. Lítið framboð hefur verið af skotfærum og hefur Tékkland, í samvinnu við helstu samstarfsríki Íslands, tekið að sér að útvega skotfæri fyrir stórskotalið Úkraínu sem gegnir lykilhlutverki við varnir landsins. Gert er ráð fyrir að um tveimur milljónum evra verði varið til verkefnisins af Íslands hálfu.

    22. mar. 2024Utanríkismál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Vínarferli ÖSE virkjað vegna mannréttindabrota í Rússlandi að frumkvæði Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin áttu frumkvæði að því að Vínarferli Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) var virkjað í dag, vegna mannréttindabrota og frelsisskerðinga í Rússlandi, m.a. vegna óréttmætra fangelsana og illrar meðferðar á pólitískum föngum. Að endingu stóðu 41 ríki að virkjun ferlisins , sem gerir aðildarríkjum kleift að krefjast svara frá rússneskum stjórnvöldum um úrbætur í mannréttindamálum á grundvelli samþykkta og tilmæla ÖSE.

    21. mar. 2024Atvinnuvegir, Utanríkismál, Nýsköpun, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    Sóknarfæri í skugga áfalla og ný tækifæri ofarlega á baugi í ávarpi ráðherra á ársfundi Íslandsstofu

    Sterk staða efnahagsmála, blómleg nýsköpun, óþrjótandi sóknarfæri og mikilvægi þess að snúa áföllum landinu í hag var til umfjöllunar í ávarpi Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra á ársfundi Íslandsstofu sem haldinn var í Grósku í gær.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband