Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 1496
    Raða eftir:
    07. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Greinargerð um stöðu haf- og fiskirannsókna skilað til matvælaráðherra

    Jóhann Sigurjónsson, fyrrum forstjóri Hafrannsóknastofnunar, hefur skilað greinargerð um stöðu haf- og fiskirannsókna til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Greinargerðinni er ætlað að gefa yfirlit um stöðu haf- og fiskirannsókna á Íslandi, mikilvægi þeirra og leiðir til að efla þær á næstu árum og áratugum. Greinargerðin var unnin samkvæmt beiðni ráðherra og mun nýtast við þá vinnu sem hafin er á vegum ráðuneytisins um stefnumótun í sjávarútvegi.

    06. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Álitamál til umfjöllunar á þriðja fundi samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu

    Á þriðja fundi samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu kynntu starfshóparnir Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri hluta þeirrar vinnu sem hóparnir hafa unnið síðan Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti af stað verkefnið „Auðlindin okkar“ í júní sl. Hóparnir kynntu m.a. svonefndar kveikjur sem er samheiti yfir þær spurningar og þau álitamál varðandi sjávarútveg sem hóparnir hafa rýnt.

    06. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Atvinnuvegir

    Juergen Boos hlýtur Vigdísarverðlaunin 2022

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, veitti Juergen Boos, forstjóra Bókastefnunnar í Frankfurt, alþjóðlegu Vigdísarverðlaunin 2022 við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands. Verðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningarheima og þýðingastarfs. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Stuðningur Vigdísar við mikilvægi tungumála og menningar hefur öðrum þræði einkennt ævistarf hennar.…

    05. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Vinna hafin við kortlagningu stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi

    Í samræmi við stjórnarsáttmála og áherslur Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vinnur matvælaráðuneytið nú að heildarstefnumótun í sjávarútvegi undir yfirskriftinni „Auðlindin okkar“. Liður í því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi.

    04. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    „Auðlindin okkar“ opnar vefsíðu

    Vefsíðan audlindinokkar.is hefur verið opnuð. Þar má finna upplýsingar og gögn sem tengjast verkefninu Auðlindin okkar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ýtti úr vör í maí með skipan fjögurra starfshópa og samstarfsnefndar um sjávarútvegsstefnu. Verkefni hópanna Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.

    03. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Rebekka ráðin til matvælaráðuneytisins í verkefnið „Auðlindin okkar“

    Rebekka Hilmarsdóttir hefur verið ráðin í tímabundið starf sérfræðings á skrifstofu sjávarútvegs til að hafa umsjón með vinnu við gerð lagafrumvarpa og reglugerða í tengslum við stefnumótun matvælaráðherra í sjávarútvegi á kjörtímabilinu. Hún mun starfa með fjórum starfshópum matvælaráðherra við endurskoðun á fiskveiðilöggjöfinni ásamt samráðsnefnd um stefnumótun í sjávarútvegi - Auðlindin okkar.

    30. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra heimsótti SÍM

    „Það er stórkostlegt að sjá hversu vel er haldið utan um listamennina hjá samtökum íslenskra myndlistamanna. Mér fannst einstaklega gaman að hitta bæði íslenska listamenn sem hafa aðstöðu hjá þeim en einnig að hitta erlenda listamenn sem koma hingað sérstaklega til að skapa og fá innblástur,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra sem heimsótti vinnustofur Sambands íslenskra myndlistamanna á Seljavegi í dag.

    30. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Brynhildur ráðin framkvæmdastjóri Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunarinnar

    Brynhildur Benediktsdóttir, sérfræðingur í matvælaráðuneytinu, var ráðinn framkvæmdastjóri Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunarinnar (NAFO) á ársfundi stofnunarinnar sem var haldinn var dagana 19.-23. september sl.

    29. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Íslensk samtímalist í nýtt húsnæði

    Með kaupum íslenska ríkisins á hluta af nýframkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn mun íslensk samtímalist fá nýtt húsnæði en horft er til þess að sýningarrými verði á fyrstu hæð hússins á vegum Listasafns Íslands.

    28. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands

    Alls bárust sjö umsóknir um embætti safnstjóra Listasafns Íslands, en staðan var auglýst þann 27. ágúst sl. og umsóknarfrestur rann út þann 20. september sl.

    27. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Sveitarfélög, Atvinnuvegir

    Er þitt sveitarfélag menningarborg ársins 2028?

    Menningar- og viðskiptaráðuneyti minnir á auglýsingu Evrópusambandsins um titilinn Menningarborg Evrópu (e. European Capital of Culture - ECOC) árið 2028. Þó svo að orðið borgir komi fram í titlinum, þá eru engin stærðarmörk varðandi það hvaða borgir eða bæir geti sótt um.

    27. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Sveitarfélög, Atvinnuvegir

    Lilja opnaði nýtt menningarhús á Austurlandi

    Með tilkomu hússins batnar sviðlistaaðstaða og aðstaða til listsýninga til muna á svæðinu en nýr 247 fermetra svartur kassi (e. Black box) var meðal annars tekinn í gagnið sem mun nýtast listafólki til góðs bæði til sýninga og æfinga.

    26. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Innlausnarmarkaður 2022 með greiðslumark í sauðfé.

    Markaður fyrir greiðslumark í sauðfé verður haldinn í nóvember 2022.

    26. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Tilboðsmarkaður 1. nóvember 2022 með greiðslumark í mjólk

    Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. nóvember næstkomandi.

    23. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Fjárfesting í þekkingu á umhverfi sjávar besta leiðin

    Á öðrum fundi samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu kynnti Jóhann Sigurjónsson, fyrrum forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar, greinargerð um stöðu haf- og fiskirannsókna. Greinargerðin sem verður gerð opinber á næstu vikum er unnin að beiðni Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra og er ætlað að gefa yfirlit um stöðu haf- og fiskirannsókna á Íslandi, mikilvægi þeirra og leiðir til að efla þær á næstu árum og áratugum.

    23. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra heimilar flutning lamba með verndandi arfgerð gegn riðuveiki á milli landsvæða

    Samkvæmt ósk Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra samþykkt breytingu á reglugerð til að flytja megi á milli landsvæða lömb sem hafa verndandi eða mögulega verndandi arfgerð gegn riðu.

    20. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Ríkisstjórn, Atvinnuvegir

    Ríkisstjórnin styrkir Stórsveit Reykjavíkur á 30 ára afmælisári

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, afhenti Stórsveit Reykjavíkur þriggja milljón króna styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar á 30 ára afmælistónleikum þeirra á sunnudag.

    19. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Þráinn fékk heiðursverðlaun og Berdreymi verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna

    Kvikmyndagerðamaðurinn og rithöfundurinn Þráinn Bertelsson er heiðursverðlaunahafi Eddu verðlaunanna, en Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra afhenti honum verðlaunin á Eddu verðlaunahátíðinni. Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og eru heiðursverðlaun Eddunnar veitt einstaklingum sem hafa sett sitt mark á íslenska kvikmyndasögu með framúrskarandi störfum í þágu íslensks sjónvarpsefnis og kvikmyndagerðar.

    17. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Fjárlög, Atvinnuvegir

    Ný tónlistarmiðstöð fær 150 milljón króna framlag stjórnvalda

    „Í nýrri tónlistarstefnu er lögð áhersla á að Ísland er tónlistarland. Íslenskt tónlistarlíf hefur leitt af sér ríkan menningararf sem á fastan sess í hjörtum landsmanna auk þess að vera mikilvæg atvinnugrein. Tónlist er atvinnuskapandi og nauðsynleg útflutningsgrein Íslendinga og íslenskt tónlistarlíf einkennist af sköpunargleði. Áhersla stjórnvalda með nýrri stefnu og Tónlistarmiðstöð er að hlúa að tónlistargeiranum, styðja við bakið á tónlistarfólki og fagfólki og skapa þeim frjósaman jarðveg til vaxtar,” segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    16. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fyrstu greiðslur spretthóps greiddar út

    Samkvæmt tillögum spretthóps sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar vegna alvarlegrar stöðu landbúnaðar voru fyrstu greiðslur greiddar í dag. Greitt var álag á gæðastýringu í sauðfjárrækt ásamt álagi á framlög til geitfjárræktar, samtals 894,5 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að gripagreiðslur í nautgriparækt verði greiddar í næstu viku, samtals 235 milljónir.

    14. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning: Tryggir fjölbreytileika íslensks fjölmiðlamarkaðar

    Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta 25 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2022, en alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning.

    14. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Þróunarverkefni búgreina

    Fyrri úthlutun þróunarfjár búvörusamninga

    Matvælaráðuneytið hefur gengið frá fyrri úthlutun þróunarfjár búvörusamninga á árinu 2022. Alls var úthlutað tæpum 111 milljónum króna til 27 verkefna. Þrettán verkefni í sauðfjárrækt fengu styrki, að upphæð 42,5 milljónir, níu í nautgriparækt að upphæð 32,3 milljónir og fimm í garðyrkju að upphæð 36,1 milljón.

    14. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Fjárlagafrumvarp 2023: Áframhaldandi vöxtur íslenskrar kvikmyndagerðar

    Eitt af mikilvægustu verkefnum stjórnvalda er að skjóta fjölbreyttari stoðum undir íslenskt atvinnulíf og auka verðmætasköpun í hagkerfinu. Sérstök áhersla lögð á skapandi og hugvitsdrifnar greinar svo sem kvikmyndagerð í þeirri vegferð.

    13. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Almannaöryggi

    Ný stjórn Bjargráðasjóðs skipuð

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað nýja stjórn Bjargráðasjóðs til fjögurra næstu ára. Hina nýju stjórn skipa: Jóna Björg Hlöðversdóttir, formaður, bóndi, Björgum, Þingeyjarsveit. Jóhannes Sigfússon, bóndi, Gunnarsstöðum, Svalbarðshreppi. Guðrún Eik Skúladóttir, bóndi, Tannstaðabakka, Húnaþingi vestra.

    12. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Talað fyrir íslenskri tónlist í Los Angeles

    Íslensk tónlist og tónlistariðnaðurinn á Íslandi voru umræðuefni funda Lilju D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra með einu stærsta tónlistarfyrirtæki veraldar, Universal Music Group (UMG), ásamt því að heimsækja umboðsskrifstofuna Milk & Honey Management, sem fer meðal annars með umboð fyrir listamenn Dua Lipa og Kanye West & umboðsskrifstofuna John Silva Management sem heldur utan um listamenn eins Foo Fighters, Nirvana og Norah Jones.

    11. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Um 9 milljarða kvikmyndaverkefni til Íslands

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra leiddi sendinefnd á vegum Íslandsstofu og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) með áherslu á kvikmyndir og tónlist. Markmið ferðarinnar er að kynna Ísland sem áfangastað sköpunar, kynna íslenska menningu og hvetja til erlendrar fjárfestingar í skapandi greinum á Íslandi.

    08. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Safnstjóri Listasafns Íslands: Umsóknarfrestur til 20. september 2022.

    Embætti safnstjóra Listasafns Íslands er laust til umsóknar. Safnstjóri Listasafns Íslands stjórnar starfsemi og rekstri safnsins og mótar listræna stefnu þess.

    07. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Kynnti Ísland sem vænlegan tökustað fyrir Netflix

    Umgjörð kvikmyndagerðar á Íslandi og hækkaðar endurgreiðslur vegna kostnaðar í kvikmyndagerð voru ræddar á fundi Lilju D. Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með fulltrúum Netflix í Los Angeles ásamt því að kynna sér starfsemi fyrirtækisins.

    06. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

    Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

    05. sep. 2022Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Lilja fundaði með Edmund Phelps – Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði

    „Það var einkar ánægjulegt að hitta loksins Edmund Phelps og afar áhugavert að heyra hans skoðanir á málefnum líðandi stundar. Ljóst er að alþjóðahagkerfið er að fást við afar umfangsmiklar áskoranir í kjölfar heimsfaraldursins og svo innrásar Rússa í Úkraínu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    03. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Viðskipti, Ríkisstjórn, Atvinnuvegir

    Hálf öld frá einvígi aldarinnar: Haldin verður samkeppni um minnisvarða

    Um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því að skákeinvígi aldarinnar fór fram í Laugardalshöll milli þeirra Bandaríkjamannsins Bobby Fischers og Sóvíetmannsins Boris Spasskís. Þessara tímamóta var minnst í sal Skáksögufélagsins á Hótel Natura en einvígið er að mörgum talið einn hápunkta kalda stríðsins en skákmennirnir tveir tefldu röð skáka í Reykjavík í júlí og ágústmánuði árið 1972.

    02. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra veitir undanþágu fyrir innflutningi áburðar

    Að fenginni umsögn Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra veitt undanþágu frá reglugerð um hámarks innihald kadmíum í fosfór í innfluttum áburði.

    01. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

    Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1.september. Matvælaráðuneytinu bárust 99 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 23.

    30. ágú. 2022Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Land og líf - Landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt

    Aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt 2022-2026

    29. ágú. 2022Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Norðurslóðir, Viðskipti, Atvinnuvegir, Menningarmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Lilja fundaði með Douglas Jones

    Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Douglas Jones undirráðherra Bandaríkjanna í málefnum Evrópu og Evrasíu, funduðu um málefni norðurslóða og samstarf landanna ásamt Geir Oddssyni ræðismanni Íslands í Grænlandi. Fundurinn var hluti af ferð ráðherra á Grænlandsþing Hringborðs norðurslóða sem fór fram um helgina í Nuuk á Grænlandi.

    26. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða

    Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2022

    Mánudaginn 15. ágúst sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 301/2022 fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2022. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 25 gild tilboð í tollkvótann.

    26. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra endurnýjar samning um loftslagsvænan landbúnað

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, undirritaði í dag samning um verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður. Meginmarkmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og landnýtingu ásamt því að auka kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri. Verkefnið byggir á samstarfi Landgræðslunnar, Matvælaráðuneytis, Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins, Skógræktarinnar og Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins.

    26. ágú. 2022Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Verslun, Viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Undirrituðu samstarf um faggildingu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Ulf Hammarström, forstjóri sænsku faggildingarstofunnar SWEDAC, undirrituðu í dag endurnýjað og uppfært samkomulag um samstarf á vettvangi faggildingar. Samkomulagið styður við sameiginlega sýn Norðurlandanna á vegum norrænum ráðherranefndarinnar um að gera Norðurlöndin að sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Faggilding gegnir í því sambandi lykilatriði við að efla samkeppnishæfni og efla traust og fagþekkingu innan norrænu hagkerfanna.

    26. ágú. 2022Auðlindir, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Matvælaráðherra gefur út fyrstu sameinuðu stefnuna í landgræðslu og skógrækt

    Matvælaráðherra hefur gefið út fyrstu sameinuðu stefnuna í landgræðslu og skógrækt auk aðgerðaáætlunar. Stefnan er unnin samkvæmt nýlegum lögum um landgræðslu og um skóga og skógrækt. Stefna stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt felur í sér framtíðarsýn, gildi og áherslur í málaflokknum og endurspeglast að verulegu leyti í þeim lögum sem gilda um málaflokkinn. Stefnan ræðst einnig af þróun mála á alþjóðlegum vettvangi og skuldbindingum Íslands í samstarfi við aðrar þjóðir, svo sem á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðlegra stofnana.

    25. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar.

    24. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Atvinnuvegir

    Þorgeir Örlygsson fv. forseti Hæstaréttar leiðir starfshóp sem skoðar breytingu á stofnanaumgjörð samkeppnis- og neytendamála á Íslandi

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, hefur skipað starfshóp sem falið er að skoða leiðir til að skapa eftirliti samkeppnis- og neytendamála nýja stjórnsýslulega stöðu innan stofnanakerfis ríkisins. Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna er kveðið á um að stefnt verði að sameiningu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu. Þá er einnig stefnt að því að kannaðir verði eftir atvikum kostir á sameiningu við aðrar stofnanir þar með talið fyrirtækjaskrá, ársreikningaskrá og hlutafélagaskrá sem aukið geti samlegðaráhrif og skilvirkni í opinberu eftirliti.

    24. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Skipulagsmál, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum

    Opnað hefur verið verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. Umsóknarfrestur er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.

    19. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Matvælasjóður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra úthlutar 584,6 milljónum úr Matvælasjóði

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrk en 211 umsóknir bárust til sjóðsins.

    19. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Hönnun, Atvinnuvegir, Iðnaður, Neytendamál

    Faggildingar á Íslandi - Opinn kynningarfundur

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið og faggildingarsvið Hugverkastofunnar í samvinnu við Samtök verslunar- og þjónustu og Samtök iðnaðarins bjóða til opins kynningarfundar um málefni faggildingar á Íslandi. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 25. ágúst kl. 10-12 á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.

    19. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Siglingar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kynnir áform um að greiða fyrir orkuskiptum í sjávarútvegi

    Að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra hafa verið kynnt í samráðsgátt tvö áform um lagasetningu sem ætlað er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda fiskiveiðiflotans og hraða orkuskiptum í samræmi við markmið stjórnvalda.

    17. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra leggur grunn að metnaðarfullri stefnumótun í lagareldi

    Samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra er hafin vinna við gerð skýrslu á stöðu lagareldis á Íslandi. Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi.

    17. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Fyrsta íslenska tónlistarstefnan og frumvarp til heildarlaga um tónlist kynnt í Samráðsgátt

    „Þetta eru mikil tímamót, en með stefnunni og lögum um tónlist vinnum við að því að efla tónlist á landinu öllu og mörkum í fyrsta sinn heildarramma fyrir málefni tónlistar sem lengi hefur vantað. Með þessu viljum við búa tónlistinni hagstæð skilyrði til að vaxa og dafna um ókomna tíð,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    15. ágú. 2022Neytendamál, Rafræn viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Frumvarp um rafrænar skuldaviðurkenningar í Samráðsgátt

    Með breytingum sem lagðar eru til í frumvarpsdrögum um rafrænar skuldaviðurkenningar verður hægt að gefa út, undirrita og þinglýsa lánaskjölum vegna fasteignakaupa og bifreiðakaupa alfarið á rafrænu formi. Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur lagt fram frumvarp þess efnis í Samráðsgátt stjórnvalda en þjóðhagslegur ávinningur af rafrænum þinglýsingum er að lágmarki metinn 1,2 – 1,7 milljarðar króna.

    26. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

    Auglýst er eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á landbúnaðarvörum upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. september – 31. desember 2022.

    15. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Greiðslur til bænda í undirbúningi

    Unnið er að því í matvælaráðuneytinu að undirbúa greiðslur til bænda samkvæmt tillögum spretthóps sem matvælaráðherra skipaði í júní. Tillögurnar voru að styðja landbúnað sérstaklega með 2,5 milljarða króna framlagi.

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband