Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 3887
    Raða eftir:
    27. jan. 2025Forsætisráðuneytið

    Helfararinnar verði minnst árlega á Íslandi

    Í dag, 27. janúar, er alþjóðlegur minningardagur um helförina og í ár er þess minnst víða um heim að 80 ár eru liðin frá frelsun gyðinga úr fangabúðunum í Auschwitz.

    24. jan. 2025Forsætisráðuneytið

    Anna Rut, Anna Sigrún og Sveinbjörn ráðin aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar

    Anna Rut Kristjánsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir og Sveinbjörn Finnsson hafa verið ráðin aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar.

    23. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Forsætisráðherra skipar hagræðingarhóp

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp sem á að skila tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri þann 28. febrúar. Hópinn skipa Björn Ingi Victorsson formaður, sem er endurskoðandi og forstjóri Steypustöðvarinnar, Gylfi Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Hildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum og fyrrverandi yfirlögfræðingur Ríkiskaupa, og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara (LEB) sem áður var deildarstjóri hjá Valitor

    17. jan. 2025Forsætisráðuneytið

    Skipan ráðherranefnda samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um skipan ráðherranefnda. Alls verða sjö ráðherranefndir starfandi.

    16. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Bréf ráðherra til forstöðumanna um hagræðingu

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafa ritað forstöðumönnum hjá ríkinu bréf þar sem óskað er eftir hugmyndum og sjónarmiðum um hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins.

    15. jan. 2025Forsætisráðuneytið

    Þórarinn G. Pétursson skipaður í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað Þórarin G. Pétursson í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu til fimm ára frá og með deginum í dag.

    15. jan. 2025Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Jens Stoltenberg falið að gera tillögur um að efla öryggis- og varnarsamstarf NB8-ríkjanna

    Ríkisstjórnaroddvitar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) fólu fyrr í dag Jens Stoltenberg, fyrrum framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, að vinna að sjálfstæðri skýrslu og tillögum sem miða að því að efla samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála.

    06. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Flutningur ráðuneytisstjóra

    Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Ásdís Halla Bragadóttir flyst í embætti ráðuneytisstjóra félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Sigrún Brynja Einarsdóttir flyst í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.

    02. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Verum hagsýn í rekstri ríkisins

    Eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir, eins og fram kemur í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Ríkisstjórnin boðar í því skyni til samráðs við þjóðina undir yfirskriftinni Verum hagsýn í rekstri ríkisins.

    31. des. 2024Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti landsmönnum áramótaávarp sitt í kvöld.

    31. des. 2024Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Áramótaávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra 31. desember 2024

    desember 2024 / Forsætisráðuneytið Áramótaávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra 31. desember 2024 Góðir Íslendingar, gleðilega hátíð

    23. des. 2024Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Logi Einarsson er nýr samstarfsráðherra Norðurlanda

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, gegni stöðu samstarfsráðherra Norðurlanda.

    22. des. 2024Forsætisráðuneytið

    Kristrún Frostadóttir tekur við lyklavöldum í forsætisráðuneytinu

    Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, tók í dag við lyklavöldum í forsætisráðuneytinu úr hendi Bjarna Benediktssonar, fráfarandi forsætisráðherra. Kristrún sem er 36 ára er yngsti forsætisráðherra Íslandssögunnar.

    21. des. 2024Forsætisráðuneytið

    Ráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur skipað

    Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var skipuð á fundi ríkisráðs Íslands á Bessastöðum í dag.

    21. des. 2024Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundir á Bessastöðum í dag

    Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í dag, laugardaginn 21. desember.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1238/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Óskað var eftir aðgangi að verkferlum, skrá yfir send og móttekin erindi slökkviliðs Borgarbyggðar á ákveðnu tímabili og fyrri samskiptum kæranda við slökkviliðið. Afstaða slökkviliðs Borgarbyggðar var að kæranda hefði þegar verið afhent öll gögn sem varðaði málið. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að hluti af beiðni kæranda hefði ekki verið afgreidd í samræmi við ákvæði upplýsingalaga og vísaði honum til Borgarbyggðar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu, en staðfesti afgreiðslu Borgarbyggðar að öðru leyti.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1237/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum sem Icelandic Water Holdings hf. hefðu látið menningar- og viðskiptaráðuneyti í té vegna skoðunar ráðuneytisins á viðskiptum með hlutafé félagsins á grundvelli laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna beiðni kæranda var á því byggð að gögnin vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þeirra lögaðila sem í hlut ættu, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem deilt var um aðgang að og taldi að afhending þeirra til kæranda væri ekki til þess fallin að valda lögaðilunum tjóni. Var ráðuneytinu gert að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1236/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að upplýsingum í vörslu Skattsins um hlutafjáreign allra hluthafa sem fram kæmu í fylgiskjölum með ársreikningum tiltekinna fyrirtækja fyrir árið 2021. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að fylgiskjölin teldust ekki á meðal þeirra sem bæri að birta opinberlega samkvæmt 4. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006. Þá taldi nefndin að upplýsingar sem afmáðar hefðu verið úr fylgiskjölunum féllu undir ákvæði 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Var ákvörðun Skattsins því staðfest.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1235/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að tölvupóstum í vörslu Reykjavíkurborgar varðandi orlofsgreiðslur til fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkurborgar. Ákvörðun sveitarfélagsins byggðist á því að gögnin teldust vera vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og taldi að þau væru undirbúningsgögn sem rituð hefðu verið af starfsmönnum sveitarfélagsins til eigin nota, og hefðu ekki verið afhent öðrum. Þá taldi nefndin að ákvæði 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, ætti ekki við um innihald gagnanna. Var ákvörðun Reykjavíkurborgar því staðfest.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1234/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að dómsátt í vörslu Isavia ohf. um viðurkenningu á greiðslu skuldar. Ákvörðun Isavia að synja beiðninni byggðist á 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og að félaginu væri óheimilt að veita aðgang að gagninu því það varðaði mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þess lögaðila sem í hlut ætti. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gagnið og taldi að vandséð væri hvernig afhending þess til kæranda kynni að valda lögaðilanum tjóni. Var því lagt fyrir Isavia að veita kæranda aðgang að dómsáttinni.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1233/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslu Sjúkratrygginga Íslands sem vörðuðu útboð stofnunarinnar á liðskiptaaðgerðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum færi ýmist samkvæmt 5. eða 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin fór yfir þau gögn sem aðgangur hafði verið takmarkaður að og lagði fyrir Sjúkratryggingar Íslands að veita kæranda aðgang að tilteknum gögnum, en staðfesti synjanir stofnunarinnar að öðru leyti.

    13. des. 2024Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Unnið að úrbótum úrræða og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum

    Minnisblað með fyrstu tillögum starfshóps sjö ráðuneyta um úrbætur á úrræðum og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    03. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1232/2024. Úrskurður frá 3. desember 2024

    Deilt var um afgreiðslu dómsmálaráðuneytis á beiðni um gögn sem legið hefðu til grundvallar ákvörðun dómsmálaráðherra að fresta framkvæmd brottflutnings. Kærandi taldi að ráðuneytinu hefði verið rétt að afmarka beiðnina við gagn sem varð til eftir að ákvörðunin var tekin. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að gera athugasemd við hvernig ráðuneytið hefði afmarkað beiðnina. Þá taldi nefndin ljóst að afgreiðsla ráðuneytisins hefði ekki falið í sér synjun beiðni kæranda. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    03. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1231/2024. Úrskurður frá 3. desember 2024

    Deilt var um afgreiðslu ríkissaksóknara á beiðni um tölfræðiupplýsingar um kærur til lögreglu. Ríkissaksóknari hafnaði beiðninni og kvað að hjá embættinu lægi ekki fyrir gagn eða gögn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir og að embættinu væri ekki skylt að útbúa slíkt gagn á grundvelli upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa að slíkt gagn eða gögn lægju ekki fyrir. Þá taldi nefndin að embættinu væri óskylt að útbúa slíkt gagn. Var ákvörðun ríkissaksóknara því staðfest.

    03. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1230/2024. Úrskurður frá 3. desember 2024

    Óskað var upplýsinga frá Sýslumanninum á Vestfjörðum um hvers vegna tiltekið afsal væri skráð sem eignayfirlýsing í þinglýsingarhluta fasteignaskrár á fasteign hans. Úrskurðarnefndin fór yfir gögn málsins og taldi að samskipti kæranda við sýslumannsembættið væru hluti af máli sem varðaði þinglýsingu. Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, giltu lögin ekki um þinglýsingu. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    03. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1229/2024. Úrskurður frá 3. desember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu forsætisráðuneytis um ráðgjöf um túlkun siðareglna eða samþykki vegna aukastarfa ráðherra. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna beiðni kæranda var byggð á því að samkvæmt 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, næði réttur almennings ekki til aðgangs að slíkum gögnum. Úrskurðarnefndin fór yfir gögnin og taldi að þau féllu undir framangreint ákvæði upplýsingalaga. Var ákvörðun forsætisráðuneytis því staðfest.

    03. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1228/2024. Úrskurður frá 3. desember 2024

    Óskað var aðgangs að gögnum um mál sem formaður tiltekins ráðs í sveitarfélagi hefði tekið að sér að kanna. Formaðurinn kvaðst aðeins hafa undir höndum gögn sem kærendur hefðu sent honum og samskipti við kærendur. Úrskurðarnefndin taldi að beiðni kærenda hefði verið afmörkuð og þröngt og að þar með hefði ekki verið tekin afstaða til aðgangs að mögulegum öðrum fyrirliggjandi gögnum sem heyrðu undir beiðnina. Var beiðni kærenda því vísað til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    03. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1227/2024. Úrskurður frá 3. desember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Landspítala um uppflettingar í sjúkraskrá. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að synjun um aðgang að tilteknu excel-skjali hefði ekki átt að byggjast á því að um væri að ræða upplýsingar úr sjúkraskrám sjúklinga við spítalann eða að um væri að ræða upplýsingar um málefni sjúklinga sem lytu þagnarskyldu vegna hagsmuna þeirra. Var því beiðni kæranda vísað til Landspítala til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Beiðni um aðgang að bréfi til Persónuverndar var að auki vísað til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Ákvörðun um að synja beiðni um aðgang að bréfi til embættis landlæknis var hins vegar staðfest.

    27. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Símafundur við verðandi Bandaríkjaforseta

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti í gær símafund við Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, þar sem þeir ræddu góð samskipti ríkjanna, viðskipti og öryggis- og varnarsamstarf.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1226/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að samkomulagi Íslandsbanka hf. við Seðlabanka Íslands um að ljúka máli með sátt vegna brota Íslandsbanka við sölumeðferð eignarhluta ríkisins í bankanum, án yfirstrikana. Seðlabankinn taldi m.a. að þær upplýsingar sem strikað hefði verið yfir væru undirorpnar þagnarskyldu á grundvelli laga um Seðlabanka Íslands og laga um fjármálafyrirtæki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Seðlabankans með þeirri breytingu að ekki skyldi strika yfir ákveðnar upplýsingar sem væru opinberlega aðgengilegar.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1225/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst kæra vegna ófullnægjandi afgreiðslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á erindi kæranda. Úrskurðarnefndin taldi mega ráða af samskiptum kæranda við stofnunina að ekki væri óskað aðgangs að gögnum í skilningi upplýsingalaga heldur skýringum um þýðingu og túlkun á færslum í log-skrá í þinglýsingarkerfi fasteignaskrár. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1224/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að upplýsingum frá Skattinum um hvort tiltekið félag hefði staðið skil á greiðslu gjalda á grundvelli laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Ákvörðun Skattsins að synja kæranda um aðgang að upplýsingunum byggðist á því að þær væru undirorpnar þagnarskyldu samkvæmt lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að 20. gr. laganna teldist vera sérstakt þagnarskylduákvæði og að upplýsingarnar sem óskað væri eftir féllu undir ákvæðið. Var ákvörðun Skattsins því staðfest.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1223/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Vestmannaeyjabær óskaði eftir öllum upplýsingum í vörslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem legið hefðu til grundvallar ákvörðun ráðuneytisins að staðfesta hækkun á gjaldi fyrir heitt vatn í Vestmannaeyjum. Sundurliðaðar fjárhagsupplýsingar um afkomu hitaveitustarfsemi HS Veitna í Vestmannaeyjum voru ekki afhentar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að upplýsingalög tækju samkvæmt orðalagi sínu og markmiðum ekki til þeirrar aðstöðu þegar stjórnvöld óskuðu eftir upplýsingum hjá öðrum stjórnvöldum. Var kæru Vestmannaeyjabæjar því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    13. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar er komin út

    Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2024 er komin út. Skýrslan skiptist í fimm meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, vinnumarkað, laun og launaþróun sem flokkað er eftir mörkuðum og heildarsamtökum launafólks, kjarasamninga gerða í yfirstandandi samningalotu, auk sérstakrar umfjöllunar um heildarsamtök launafólks eftir mörkuðum.

    13. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Starfshópur fer yfir tjón bænda vegna kuldatíðar og skoðar stuðningsaðgerðir

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag tillögu matvælaráðherra um skipun starfshóps til að fara yfir tjón bænda vegna óvanalegs veðurfars fyrr á árinu og gera tillögur um útfærslu og umfang stuðningsaðgerða.

    08. nóv. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samantekt ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli

    Á fundi ríkisstjórnar 27. ágúst sl. var ákveðið að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að afla upplýsinga um banaslys sem varð í skipulagðri ferð í jöklaferð á Breiðamerkurjökli sunnudaginn 25. ágúst. sl. og skoða öryggi í íshellaferðum almennt.

    08. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Skýrsla forsætisráðherra um helstu verkefni stjórnvalda og framtíðarhorfur vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga

    Skýrslu forsætisráðherra um helstu verkefni stjórnvalda og mat á framtíðarhorfum vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga hefur verið dreift á Alþingi.

    07. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu efnahagsmála á haustmánuðum

    Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur birt skýrslu um stöðu efnahagsmála á haustmánuðum. Skýrslan var unnin að beiðni forsætisráðuneytisins sem óskaði í byrjun september eftir því að unnið yrði yfirlit um samspil verðbólgu og annarra hagstærða sem yrði tilbúið í lok október.

    06. nóv. 2024Sjálfbært Ísland, Velsæld, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði velsældarþing í Hörpu

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti í dag opnunarávarp á alþjóðlegu velsældarþingi (Wellbeing Economy Forum) sem fram fer í Hörpu. Þingið sem er haldið í annað sinn er skipulagt af embætti landlæknis í samstarfi við forsætisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið en dagskrá þess lýkur á morgun.

    01. nóv. 2024Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Forsætisráðherrar Norðurlanda vilja auka vægi stafrænnar þjónustu þvert á landamæri

    Aukin stafræn þjónusta þvert á landamæri gegnir lykilhlutverki í að auðvelda frjálsa för borgara, fyrirtækja, fjármagns, gagna, vara og þjónustu á Norðurlöndum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandanna sem funduðu í vikunni í tengslum við fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík. Í yfirlýsingunni kemur fram að flýta eigi fyrir framgangi stefnu frá 2019 um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.

    31. okt. 2024Velsæld, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um innleiðingu velsældaráherslna í áætlanagerð og ákvarðanatöku stjórnvalda

    Starfshópur sem ríkisstjórnin fól að vinna tillögur um markvissa innleiðingu velsældaráherslna ríkisstjórnarinnar í alla áætlanagerð stjórnvalda þ.m.t. gerð fjármálaáætlunar og frumvarps til fjárlaga, hefur skilað skýrslu til forsætisráðherra.

    30. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1222/2024. Úrskurður frá 30. október 2024

    Óskað var aðgangs að niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem gerð hefði verið árið 2022, sundurliðuðum eftir skólum og fögum sem prófað hefði verið í. Mennta- og barnamálaráðuneyti svaraði því til að ekki væru gefnar út niðurstöður fyrir einstaka skóla. Ráðuneytið byggi ekki yfir gögnum sem sýndu niðurstöður um frammistöðu í PISA-könnuninni fyrir einstaka íslenska skóla. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu ráðuneytisins í efa. Með vísan til þess að ekki lægi fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, var ákvörðun ráðuneytisins staðfest.

    30. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1221/2024. Úrskurður frá 30. október 2024

    Óskað var aðgangs að gögnum um mál sem formaður tiltekins ráðs í sveitarfélagi hefði tekið að sér að kanna. Formaðurinn kvaðst aðeins hafa undir höndum gögn sem kærendur hefðu sent honum og samskipti við kærendur. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa að ekki lægju fyrir frekari gögn en að framan greinir. Þar sem ekki lægi fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, var hin kærða afgreiðsla staðfest.

    29. okt. 2024Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Þátttaka forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra var viðstaddur setningu þings Norðurlandaráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Forsætisráðherra tók þar þátt í leiðtogaumræðum með forsætisráðherrum Norðurlandanna.

    29. okt. 2024Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Fjórði leiðtogafundur Norðurlandanna og Úkraínu fór fram á Þingvöllum

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna og forseti Úkraínu funduðu í gær á Þingvöllum. Um var að ræða fjórða leiðtogafund Norðurlandanna og Úkraínu en sá fyrsti fór fram vorið 2023.

    27. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Volodómír Selenskí kemur til Íslands

    Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til Íslands á morgun. Í heimsókn sinni mun hann funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og taka þátt í fjórða leiðtogafundi Norðurlandanna og Úkraínu.

    25. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1220/2024. Úrskurður frá 25. október 2024

    Isavia innanlandsflugvellir ehf. gerði kröfu um að úrskurðarnefnd um upplýsingamál frestaði réttaráhrifum úrskurðar nefndarinnar nr. 1219/2024 frá 10. október 2024, þar sem hagsmunir Colas Ísland ehf. og Isavia yrðu skertir með ófyrirsjáanlegum afleiðingum og óbætanlegum hætti yrði aðgangur veittur í samræmi við úrskurðarorð. Úrskurðarnefndin taldi sérstakar ástæður standa til þess að veita Isavia kost á að bera úrskurðinn undir dómstóla, m.a. með hliðsjón af því að ekki yrði séð að dómstólar hefðu tekið afstöðu til sambærilegs ágreinings og leyst hefði verið úr með úrskurði nefndarinnar varðandi afhendingu á einingarverðum samninga einkaaðila við opinberan aðila í þeim tilvikum þegar heildarfjárhæðir lægju fyrir. Var því fallist á kröfu Isavia að hluta til.

    18. okt. 2024Ræður og greinar, Forsætisráðuneytið

    Ávarp Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á Arctic Circle - 17. október 2024

    18 október 2024 / Forsætisráðuneytið Ávarp Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á Arctic Circle - 17. október 2024 Chairman of the Arctic Circle Assembly, Mr. Ólafur Ragnar Grímsson, former President of Iceland, Excellencies, distinguished guests, It is a great honour for me to open the Arctic Circle Assembly here in Harpa, an event that has become a permanent feature on the international stage

    18. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Breytingar á skipan ráðherraembætta

    Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í gær var fallist á tillögur um að veita Svandísi Svavarsdóttur, Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur lausn frá ráðherraembættum sínum.

    17. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum í dag

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum í dag, fimmtudaginn 17. október, kl. 18.

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband