Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 3013
    Raða eftir:
    01. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný legudeildarbygging við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirritaði í liðinni viku samning vegna hönnunar á nýrri 10.000 fermetra legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri. Undirritunin fór fram við hátíðlega athöfn á Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 27. júní. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2028.

    28. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Miðstöð í öldrunarfræðum komið á fót

    Nýrri Miðstöð í öldrunarfræðum hefur verið komið á fót. Henni er ætlað að efla nýsköpun og þróun þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að safnað verði á einum stað saman upplýsingum um stöðu eldra fólks hér á landi.

    27. jún. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 19/2024

    Kærður var málshraði embættis landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Kærandi kvartaði til embættis landlæknis þann 24. júní 2021 en þegar kæra barst ráðuneytinu beið málið enn eftir að komast í umsögn hjá óháðum sérfræðingi. Ráðuneytið gerði ekki athugasemdir við að embætti landlæknis forgangsraðaði kvörtunum enda væri byggt á málefnalegum sjónarmiðum. Kvartanir til embættisins varði iðulega atvik sem beri að taka alvarlega og því beri ávallt að beita forgangsröðun af varfærni, svo sem embætti landlæknis geri. Engu að síður var það niðurstaða ráðuneytisins að málsmeðferðartími kvörtunarmálsins samrýmdist ekki kröfum 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

    27. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Nýr fjarskiptalæknir styrkir bráðaþjónustu á landsvísu

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja á laggirnar fjarskiptalækni bráðaþjónustu. Um er að ræða faglega ráðgjöf bráðalæknis fyrir Neyðarlínu, sjúkraflutninga og aðra veitendur bráðrar heilbrigðisþjónustu á landsvísu.

    20. jún. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillaga að aðgerðaáætlun - skýrsla starfshóps um krabbamein

    júní 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Tillaga að aðgerðaáætlun - skýrsla starfshóps um krabbamein Tillaga að aðgerðaáætlun - skýrsla starfshóps um krabbamein

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillaga að aðgerðaáætlun – skýrsla samráðshóps um krabbamein

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um nýja aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum til ársins 2030. Samráðshópur sem ráðherra skipaði í byrjun þessa árs til að vinna drög að slíkri áætlun skilaði niðurstöðum sínum í dag. Lagt er til að aðgerðaáætlunin endurspegli þau grunngildi sem fram koma í ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu þar sem m.a. er lögð áhersla á rétta þjónustu á réttum stað og forvarnir á öllum æviskeiðum. Enn fremur verði tekið tillit til breytinga og nýjunga á sviði greininga, meðferðar og þjónustu og breyttra viðhorfa til krabbameina frá því að fyrsta krabbameinsáætlunin var gerð.

    20. jún. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum

    júní 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum - skýrsla starfshóps

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmur milljarður króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum einum milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þetta er hæsta úthlutun úr sjóðnum til þessa. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt. Veitt voru framlög til 73 verkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Við úthlutun lagði stjórn Framkvæmdasjóðsins áherslu á verkefni sem stuðla að bættum aðbúnaði og auknu öryggi íbúa. Þar má nefna breytingu tvíbýla í einbýli, endurbætur á einkarýmum og sameiginlegum rýmum íbúa, bætta aðstöðu til endurhæfingar og þjálfunar, greiðara aðgengi innanhúss og utan og ýmis fleiri öryggismál auk almennra viðhaldsverkefna.

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum – skýrsla starfshóps

    Starfshópur heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Hlutverk hópsins var að greina stöðu þessara mála og gera tillögur um hvernig best megi koma til móts við þarfir þeirra einstaklinga sem um ræðir. Auk fulltrúa ráðuneytanna sátu í starfshópnum fulltrúar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Öryrkjabandalags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    13. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Börnum, öldruðum og öryrkjum tryggð greiðsluþátttaka fyrir tannlæknaþjónustu í samningi

    Nýr samningur tryggir greiðsluþátttöku tannlækninga fyrir börn, aldraða og öryrkja til næstu fimm ára. „Þessi heildarsamningur um þjónustu tannlækna er enn ein varðan á vegferð stjórnvalda til að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu og stuðla þannig að jöfnu aðgengi. Samningurinn gildir til fimm ára, líkt og nýgerður samningur um þjónustu sjúkraþjálfara og samningurinn um þjónustu sérgreinalækna. Ég óska samningsaðilum og þjónustuþegum til hamingju með þessi tímamót“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    13. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Netsala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra bendir á í bréfi til fjármála- og efnahagsráðherra að með netsölu áfengis sé grafið undan gildandi sölufyrirkomulagi á áfengi og grundvallarmarkmiðum stefnu stjórnvalda í lýðheilsumálum ógnað. Vísar hann m.a. til markmiðsákvæða áfengislaga og laga um verslun með áfengi og tóbak sem kveða á um að umgjörð smásölu áfengis skuli byggjast á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð.

    11. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mótuð verði stefna um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi og móta drög að stefnu þar að lútandi. Formaður hópsins er Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

    07. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Uppbygging Nýs Landspítala stenst kostnaðaráætlanir - fyrsti áfangi uppbyggingarinnar fullfjármagnaður

    Stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa hefur kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun Nýs Landspítala ohf. (hér eftir nefnt NLSH). Heildaráætlun NLSH kom síðast út haustið 2022. Í nýrri heildaráætlun kemur fram að heildaráætlun NLSH standist kostnaðaráætlanir, með einungis 0,6% fráviki. Það er óveruleg hlutfallsleg breyting í ljósi heildarumfangs verkefna NLSH og í ljósi krefjandi aðstæðna á heimsmarkaði.

    05. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um merkingar á tóbaksvörum, útlit umbúða o.fl.

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð sem felur í sér breyttar kröfur varðandi merkingar og útlit á umbúðum tóbaksvara, innihaldsefni og losun frá tóbaksvörum og kröfur um upplýsinga- og skýrslugjöf framleiðenda og innflytjenda á slíkum varningi. Umsagnarfrestur er til 24. júní næstkomandi.

    31. maí 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila - tillögur vinnuhóps

    maí 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila - tillögur vinnuhóps Endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila - tillögur vinnuhóps

    31. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Upplýsingar um kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum heilbrigðisráðuneytisins

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

    30. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi meðal áherslumála á 77. þingi WHO

    Sýklalyfjaónæmi er eitt af helstu umfjöllunarefnunum á 77. þingi Alþjóðaheilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO) sem nú stendur yfir í Genf. Sýklalyfjaónæmi er alþjóðlegt heilbrigðisvandamál sem ógnar heilsu manna og dýra, matvælaframleiðslu og umhverfi. Áætlað er að um 1,27 milljónir dauðsfalla á heimsvísu árið 2019 hafi verið tengd sýklalyfjaónæmi, og ef ekkert er að gert, gætu þessi dauðsföll orðið allt að 10 milljónir á ári fyrir árið 2050​​.

    22. maí 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 15/2024

    Kærendur kvörtuðu til embættis landlæknis vegna meintra mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu sem faðir þeirra naut í aðdraganda andláts hans á Landspítala. Af gögnum málsins var ljóst að faðir kærenda hafði leitað til Landspítala með bakverk og Covid-19 sýkingu. Var honum m.a. gefið lyf við sýkingunni sem hafði reynst sjúklingum vel við Covid-19. Kærendur höfðu óskað eftir því að lyfjagjöf yrði stöðvuð með lyfinu og var það gert. Heilsu föður kæranda hrakaði mikið eftir að hann lagðist inn og andaðist hann í kjölfarið á Landspítala. Ekkert kom fram í gögnum málsins eða undir rekstri þess sem benti til þess að vanræksla eða mistök hefðu átt sér stað við veitingu heilbrigðisþjónustunnar. Var málsmeðferð embættisins í málinu staðfest.

    21. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið við sjúkraþjálfara eftir fjögurra ára samningsleysi

    Nýr samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra: „Þetta eru mikil tímamót eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi sem hefur bitnað á notendum þjónustunnar. Með samningnum falla niður aukagjöld sem lögð hafa verið á þjónustuþega. Samningurinn stuðlar þannig að auknum jöfnuði. Jafnframt er kveðið á um margvíslegt þróunar- og gæðastarf þjónustunnar í þágu notenda“ segir Willum Þór.

    15. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skilgreining á fjarheilbrigðisþjónustu leidd í lög

    Frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi í gær. Þar með hefur verið leidd í lög skilgreining á hugtakinu fjarheilbrigðisþjónustu, ásamt frekari skýringum á þeirri þjónustu, tæknilausnum, verkefnum og verklagi sem falla undir hugtakið. Fjarheilbrigðisþjónusta er ört vaxandi hluti almennrar heilbrigðisþjónustu. Því er mikilvægt að gildandi löggjöf taki mið af þeirri þróun og einnig að öryggi viðkvæmra persónulegra upplýsinga við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu sé tryggt.

    14. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmarkanir á meðferðum til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð um takmarkanir á meðferðum sem felast í því að breyta útliti fólks án læknisfræðilegs tilgangs. Reglugerðardrögin einskorðast við tilteknar meðferðir, þ.e. sprautun fylliefna undir húð, sem geta valdið einstaklingum skaða ef eitthvað fer úrskeiðis. Hættuminni meðferðir, s.s. húðslípun, húðþétting og örnálameðferðir falla utan gildissviðs reglugerðarinnar.

    13. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Einfaldar tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Drög að reglugerðarbreytingum þessa efnis hafa verið birtar til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að bæta þjónustu og auka skilvirkni, meðal annars með áherslu á að tími lækna nýtist betur til að sinna beinni þjónustu við sjúklinga.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Efla þarf norrænt samstarf gegn sýklalyfjaónæmi

    Norrænir heilbrigðisráðherrar eru einhuga um nauðsyn þess að styrkja norrænt samstarf gegn sýklalyfjaónæmi. Svíþjóð fer á þessu ári með formennsku í norrænu ráðherranefndinni og mun m.a. leggja sérstaka áherslu á að tryggja greiðari og öruggari aðgang að sýklalyfjum. Þetta var meðal umræðuefna á árlegum fundi ráðherranna í Stokkhólmi. Stefnt er að því uppfæra og innleiða þverfaglega yfirlýsingu um sýklalyfjaónæmi sem norræna ráðherranefndin samþykkti árið 2015 og fjallar um þessi mál í víðu samhengi.

    07. maí 2024Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Almannaöryggi, Dómstólar, Fullnusta refsinga, Löggæsla, Réttarfar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Mælaborð birt vegna aðgerðaáætlunar um meðferð kynferðisbrota

    Vinna við aðgerðaáætlun til ársins 2025 um meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu heldur áfram af fullum krafti. Á vef Stjórnarráðsins hefur verið birt mælaborð um eftirfylgni þar sem hægt er að kynna sér stöðu einstakra atriða í aðgerðaáætluninni.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðild Íslands að FiNoSe – norrænu samstarfi um heilbrigðistæknimat fyrir ný lyf

    Ísland er orðið fullgildur aðili að norræna samstarfsvettvanginum FiNoSe um framkvæmd heilbrigðistæknimats (HTA) fyrir ný lyf. Samningur þessa efnis var undirritaður í Stokkhólmi 11. apríl sl. Landspítali tekur þátt í samstarfinu fyrir Íslands hönd en þar eru fyrir stofnanir frá hinum Norðurlandaþjóðunum fjórum sem vinna sameiginlega að heilbrigðistæknimati nýrra lyfja.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um beitingu atferlisvísinda til að efla lýðheilsu

    Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, hélt vinnustofu á dögunum um hvernig efla megi lýðheilsu með aðferðum atferlisvísinda og betri innsýn í menningarleg gildi innan samfélaga (e. behavioral and cultural insights).

    06. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Gervigreind

    Gervigreind á sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Formleg skimun fyrir augnsjúkdómum af völdum sykursýki hefur verið innleidd á sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fyrstri allra heilbrigðisstofnana. Við skimunina er notuð sérstök myndavél frá sprotafyrirtækinu RetinaRisk, sem styðst við gervigreind og metur líkur á skemmdum í augnbotnum. Lionsklúbbur Njarðvíkur veitti HSS veglegan styrk til kaupa á myndavélinni. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, frumkvöðlar frá RetinaRisk og fulltrúar frá Lionsklúbbnum heimsóttu HSS nýverið þar sem þessi nýjung í þjónustu stofnunarinnar var kynnt.

    26. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Almenn þátttaka í bólusetningum forsenda árangurs

    Evrópsk bóluefnavika stendur nú yfir og samhliða er haldið upp á hálfrar aldar afmæli bólusetningaráætlunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fyrir börn.

    18. apr. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðgjöf fyrir eldra fólk

    Mikil vinna hefur í vetur farið fram við að safna saman öllum upplýsingum sem mögulega geta varðað eldra fólk hér á landi. Upplýsingarnar er að finna á island.is undir heitinu Að eldast. Þar er núna einnig hægt að spyrja spjallmennið Ask um hvað eina en hann veit orðið talsvert um málaflokkinn.

    15. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir félagasamtök um 80 milljónir til verkefna á sviði heilbrigðismála

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur veitt 80 milljónir króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls voru veittir styrkir til 29 verkefna og námu styrkfjárhæðir á bilinu 800.000 kr. til 6000.000 kr. Hæstu styrkina hlutu Hjartaheill, Rótin, Gigtarfélag Íslands, Alzheimersamtökin og SÍBS.

    11. apr. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 12/2024

    Kærandi kærði málshraða Sjúkratrygginga Íslands þar sem stofnunin hafði ekki gengið til samninga við kæranda þrátt fyrir vilja kæranda þar um. Þá taldi kærandi einnig að Sjúkratryggingar hefðu ekki gætt að jafnræði við málsmeðferðina. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að Í 1. mgr. 49. gr. laga um sjúkratryggingar kæmi fram að ágreiningur um framkvæmd samninga og val á viðsemjendum sæti ekki endurskoðun ráðherra. Kæru samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, skal beint til þess stjórnvalds sem ákvörðun í máli verður kærð til. Þar sem ákvarðanir Sjúkratrygginga um framkvæmd samninga og val á viðsemjendum verður ekki skotið til ráðherra verður kærum sem varða málshraða stofnunarinnar um sama efni ekki heldur skotið til ráðuneytisins.…

    09. apr. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 13/2024

    Kærandi kærði niðurstöðu færni- og heilsumatsnefndar sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að forsendur fyrir færni- og heilsumati væru ekki nægjanlegar í tilfelli kæranda. Í umsögn færni- og heilsumatsnefndar, sem ráðuneytið óskaði eftir, kom fram að í kæru kæmu fram ný gögn í máli kæranda. Þá hefði nefndinni einnig borist frekari upplýsingar eftir að afgreiðslu málsins lauk. Með hinum nýju gögnum væri að samanlögðu komnar fram ástæður til að samþykkja umsókn kæranda um færni- og heilsumat. Var kæranda tilkynnt það af hálfu nefndarinnar. Af þeim sökum skorti kæranda lögvarða hagsmuni til að fá úrskurð um málið enda hafði hin nýja ákvörðun komið í stað hinnar kærðu ákvörðunar og kröfur kæranda teknar til greina að öllu leyti.

    08. apr. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 10/2024

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja tilkynningu um veitingu heilbrigðisþjónustu. Kærandi hugðist veita heilbrigðisþjónustu sem fólst í líkamsskoðun í kjölfar slysa og gefa út vottorð vegna afleiðinga þeirra miðað við fyrra líkamsástand. Embætti landlæknis taldi að slíkur rekstur heilbrigðisþjónustu væri einungis á færi lækna sem lokið hefðu sérfræðinámi í heimilislækningum. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að á heilbrigðisstofnunum störfuðu læknar undir faglega ábyrgum lækni, þ.e. yfirlækni og framkvæmdastjóra lækninga. Þrátt fyrir að almennum læknum gæti verið falið að rita vottorð í ákveðnum tilvikum eða undir ákveðnum kringumstæðum gæti það ekki sem slíkt orðið grundvöllur þess að þeir teldust þá þegar bærir til að bera ábyrgð á rekstri sem gengi út á slíkt.…

    05. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Þegar vísindarannsóknir og heilbrigðisþjónusta mætast - málþing 19. apríl

    Vísindasiðanefnd boðar til málþings föstudaginn 19. apríl kl. 13:00-15:30 í Veröld – húsi Vigdísar. Málþingið fjallar um upplýsingagjöf til þátttakenda í vísindarannsóknum um atriði sem varða heilsu þeirra.

    03. apr. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu 2023-2027

    apríl 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu 2023-2027 Aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu 2023-2027

    26. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Undirbúningur hafinn að stofnun vottaðrar viðbragðssveitar (EMT)

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur stofnað undirbúningshóp til að koma á fót EMT (Emergency Medical Team) viðbragðssveit á Íslandi. Ákvörðun um stofnun hópsins er tekin að undangengnu samráði í ríkisstjórn.

    26. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæpur milljarður kr. í styrki til lýðheilsuverkefna á Íslandi

    Embætti landlæknis leiðir tvö stór lýðheilsuverkefni á sviði heilbrigðismála sem nýlega hafa hlotið nærri 1,0 milljarð kr. í styrk frá Evrópusambandinu. Um 800 m.kr. renna til verkefnis sem felst í innleiðingu árangursríkra aðgerða til að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma. Hitt verkefnið snýr að aðgerðum til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Sá styrkur nemur um 113 m.kr. og mun styðja við framkvæmd verkefna í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda á þessu sviði.

    22. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið er endurflutt. Það var upphaflega lagt fram á 152. þingi. Síðan hafa verið gerðar á því nokkrar breytingar á grundvelli umsagna og umræðu um málið á Alþingi.

    21. mar. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Drög að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma

    mars 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Drög að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma Drög að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma

    21. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta landsáætlun Íslands um sjaldgæfa sjúkdóma

    Vinnuhópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði í október sl. til að móta drög að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma hefur skilað niðurstöðum sínum. Landsáætlun er ætlað að vera leiðbeinandi um þjónustu við einstaklinga og aðstandendur þeirra sem falla undir skilmerki um sjaldgæfa sjúkdóma. Ráðherra segir ríka þörf fyrir áætlun sem þessa. Þjónusta við þennan hóp sé margþætt úrlausnarefni sem kalli á mikið og gott samstarf margra aðila, þvert á ráðuneyti, stofnanir og stjórnsýslustig.

    21. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samnorrænt lyfjaútboð með áherslu á sýklalyf

    Ísland, Noregur og Danmörk hafa ráðist í sameiginlegt lyfjaútboð. Í útboðinu eru gerðar sérstakar kröfur varðandi sýklalyf með áherslu á að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þetta er þriðja sameiginlega stóra lyfjaútboð þjóðanna. Útboðin hafa stuðlað að bættu lyfjaöryggi og leitt til lægra lyfjaverðs sem hefur til að mynda sparað Landspítala um 100 milljónir króna á ársgrundvelli. Ávinningurinn er þó meiri þar sem heilbrigðisstofnanir um allt land njóta góðs af lægra innkaupaverði lyfja.

    19. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skipun nýrrar mats- og hæfisnefndar um sérnám lækna

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna í samræmi við ákvæði nýrrar reglugerðar nr. 856/2023 sem tók gildi 16. ágúst síðastliðinn. Nefndin er nú skipuð fimm sérfræðilæknum í stað þriggja áður. Formaður nefndarinnar er Ólafur Baldursson.

    15. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Lýðheilsustyrkir: Áhersla á að efla geðheilsu og félagsfærni

    ​Áhersla er lögð á að styrkja aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna og efla félagsfærni ásamt því að draga úr einmanaleika með styrkjum úr Lýðheilsusjóði sem úthlutað var við athöfn í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti í vikunni. Önnur áhersluatriði eru áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, næring, hreyfing og kynheilbrigði.

    15. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    102.000 einstaklingar nýtt sér þjónustu sérgreinalækna samkvæmt nýjum samningi

    Um 102.000 einstaklingar hafa nýtt sér þjónustu sérgreinalækna á grundvelli þjónustusamnings þeirra og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem tók gildi 1. september síðastliðinn. Meðan samningslaust var við sérgreinalækna innheimtu þeir viðbótarkomugjöld af sjúklingum til að mæta kostnaði umfram gjaldskrá sjúkratrygginga. Með þjónustusamningnum 1. september féllu þessi gjöld niður og áætlar SÍ að samningurinn hafi sparað þeim sem nýtt hafa þjónustu sérgreinalækna frá gildistöku samningsins um 1,3 milljarða króna.

    14. mar. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2022 til júní 2023

    mars 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2022 til júní 2023 Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2022 til júní 2023

    14. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný námsleið á meistarastigi um ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

    Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun er ný námsleið við Háskólann á Akureyri sem hefst næsta haust. Heilbrigðisráðuneytið veitti skólanum 7 milljóna króna styrk til að koma náminu á fót til að fylgja eftir áherslum í aðgerðaáætlun ráðuneytisins í þjónustu við fólk með heilabilun. Námsleiðin verður kynnt á opnun kynningarfundi háskólans mánudaginn 18. mars.

    08. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    SPOEX hefur opnað á Akureyri

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, var viðstaddur opnun Spoex á ljósameðferðarstofu fyrir psoriasis- og exem sjúklinga á Akureyri

    08. mar. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2024

    Kærandi kærði málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli samkvæmt 12. gr. laga nr. 40/2007, um landlækni og lýðheilsu. Taldi kærandi að andmælaréttar hafi ekki verið gætt við málsmeðferðina né hlutleysis. Þá hefði embætti landlæknis brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins við útgáfu álitsins. Ennfremur taldi kærandi að landlæknir hefði farið langt út fyrir umsögn óháðs sérfræðings og komist að niðurstöðu sem var langt umfram það sem tilefni var til. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að niðurstaða landlæknis hefði í öllum meginþáttum málsins samhljóða umsögn óháðs sérfræðings. Þá hefði kærandi fengið aðgang að og tækifæri til að tjá sig um öll gögn málsins.…

    08. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um aðgerðir varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um málefni sem varða offitu, holdafar, heilsu og líðan og leggja til stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð hefur lokið störfum. Í skýrslu starfshópsins eru skilgreind markmið ásamt tillögum um aðgerðir með áherslu á að efla lýðheilsu og draga úr neikvæðum heilsufarslegum afleiðingum offitu án þess að valda skaða.

    08. mar. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð – tillögur að aðgerðum varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan

    mars 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð – tillögur að aðgerðum varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan Stefnumarkandi áherslur í forvörnum,heilsueflingu og meðferð – tillögur aðaðgerðum varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan - skýrsla starfshóps

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband