Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Samgöngur og fjarskipti
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 601–650 af 835
Raða eftir:
12. júl. 2017Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti

Fjölgun atvinnuleyfa til leigubifreiðaaksturs - reglugerð til umsagnar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um meðfylgjandi drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 397/2003 um leigubifreiðar. Í hjálögðum drögum er lagt til að atvinnuleyfum verði fjölgað um 100.

12. júl. 2017Innviðaráðuneytið, Póstþjónusta, Samgöngur og fjarskipti

Drög að frumvarpi til laga um póstþjónustu

Í drögum að frumvarpi til laga um póstþjónustu er lagt til að einkaréttur ríkisins verði lagður niður og opnað fyrir samkeppni á póstmarkaði. Jafnframt er lagt til að eftirlit með póstþjónustu verði einfaldað, m.a. eftirlit með gjaldskrá fyrir alþjónustu. Eftir sem áður verður alþjónusta, grunnþjónusta á sviði póstþjónustu, tryggð borgurunum og leitast við að gera það á sem hagkvæmastan hátt.

07. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á fjarskiptalögum

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingu á fjarskiptalögum nr. 81/2003 um CE-merkingar á fjarskiptabúnað. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið postur@srn.is til 10. ágúst næstkomandi.

07. júl. 2017Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Siglingar, Samgöngur og fjarskipti

Drög að breytingum á lögum um siglingavernd og lögum um loftferðir

Til umsagnar eru nú drög að breytingum á lögum um siglingavernd og lögum um loftferðir. Frumvarpið er til komið vegna ítrekaðra tilrauna til innbrota um borð í skip og loftför og ábendinga Samgöngustofu og hagsmunaaðila.

27. jún. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

Samráð hjá ESB um öryggi á vegum og í jarðgöngum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst opið samráð um öryggi á vegum og í jarðgöngum. Samráðið stendur til 10. september 2017 og geta hagsmunaaðilar tekið þátt í samráðinu og svarað spurningalista um verkefnið.

19. jún. 2017Innviðaráðuneytið, Póstþjónusta, Samgöngur og fjarskipti

Umsagnarfrestur framlengdur um drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd póstþjónustu

Framlengdur hefur verið frestur til að skila inn umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 26. júní næstkomandi og skulu þær berast á netfangið postur@srn.is.

16. jún. 2017Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Skýrsla um endurskoðun á rekstri flugvalla

Vinnuhópur, sem Ólöf Nordal, þáverandi innanríkisráðherra, setti á laggirnar í ágúst 2016, og falið var að skoða hvort breytingar á rekstrarfyrirkomulagi innanlandsflugvalla gætu stuðlað að hagkvæmari og skilvirkari almenningssamgöngum lauk störfum í maí sl. Niðurstaða hópsins er sú að gera eigi stærstu flugvellina fjárhagslega sjálfstæða þannig að notendagjöld flugvallanna endurspegli í auknum mæli raunkostnað við rekstur þeirra.

14. jún. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Nýjar gerðir ESB vegna niðurfellingar reikigjalda innleiddar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú innleitt nýjar gerðir Evrópusambandsins á sviði fjarskiptaþjónustu er lúta að því að fella niður reikigjöld innan Evrópska efnahagssvæðisins. Frá og með 15. júní 2017 falla reikigjöld niður innan EES. Í því felst að neytendur EES-ríkja munu greiða sama gjald fyrir farsímanotkun á ferðalögum innan EES og þeir greiða heima.

09. jún. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Vegasamgöngur

Átaksverkefni um umbætur í flutningum og samgöngum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hrundið af stað verkefni sem miðar að því að gera samgöngur og flutninga á vegum eins tæknilega og framast er unnt. Auka á samkeppnishæfni greinarinnar, gera hana umhverfisvænni og að starfsskilyrði innan greinarinnar verði sanngjörn þeim ellefu milljónum manna sem þar starfa.

07. jún. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Tóku þátt í ráðstefnu International Transport Forum

Fulltrúar Íslands tóku þátt í árlegum alþjóðlegum fundi samgönguráðherra í Leipzig í Þýskalandi á dögunum undir merkjum International Transport Forum, samtaka 57 ríkja um samgöngumál og flutninga. Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, tók þátt í fundinum fyrir hönd ráðherra og flutti kveðju hans. Einnig sat Hreinn Haraldsson vegamálastjóri fundinn.

06. jún. 2017Utanríkisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Utanríkismál, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

Samkomulag um loftferðir undirritað við Rússland

Aukin hámarkstíðni flugferða og þrír nýir áfangastaðir

01. jún. 2017Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti

Ný lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi taka gildi í dag

Ný lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi taka gildi í dag, 1. júní, og falla um leið eldri lög þess efnis úr gildi. Einnig hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra með heimild í nýju lögunum sett tvær nýjar reglugerðir sem taka gildi í dag. Þá taka gildi í dag breytingar á gjaldskrá Samgöngustofu.

19. maí 2017Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

Drög að breytingu á reglugerð um upplýsingaþjónustu flugmála til umsagnar

Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið kynnir drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um upplýsingaþjónustu flugmála. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið postur@srn.is til 25. maí næstkomandi.

04. maí 2017Siglingar, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Jón Gunnarsson fundaði með samgönguráðherra Kanada

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Marc Garneau, samgönguráðherra Kanada, ræddu ýmis sameiginleg mál ríkjanna á einkafundi þeirra í gær en báðir ráðherrarnir taka nú þátt í alþjóðlegum ráðherrafundi um hafnarríkiseftirlit sem fram fer í Vancouver í Kanada.

03. maí 2017Innviðaráðuneytið, Siglingar, Samgöngur og fjarskipti

Jón Gunnarsson ávarpaði alþjóðlegan ráðherrafund um hafnarríkiseftirlit

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, tekur þátt í alþjóðlegum ráðherrafundi um hafnarríkiseftirlit, þ.e. eftirlit ríkja með erlendum skipum sem koma í höfn, að þau uppfylli kröfur alþjóðasamþykkta. Fundurinn er haldinn í Vancouver í Kanada og mun ráðherra einnig hitta kanadískan starfsbróður sinn á fundi.

20. apr. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

Samið um Dýrafjarðargöng

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vegamálastjóri og forráðamenn verktakafyrirtækjanna Suðurverks og Metrostav frá Tékklandi skrifuðu í dag undir samning um gerð Dýrafjarðarganga en fyrirtækin áttu lægsta tilboð af fimm í verkið. Undirbúningur framkvæmda getur nú hafist.

14. mar. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Póstþjónusta, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

Heimsótti Póst- og fjarskiptastofnun og Samgöngustofu

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, heimsótti í dag Póst- og fjarskiptastofnun og Samgöngustofu. Starfsemin var kynnt fyrir ráðherra og fylgdarliði og hann heilsaði uppá starfsmenn.

15. feb. 2017Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Siglingar

Drög að breyttum reglum umbjörgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa til umsagnar

Drög að breytingum á reglum um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til og með 28. febrúar næstkomandi.

08. feb. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drögað lagabreytingum á sviði fjarskipta til umsagnar

Drög að breytingum á lögum um fjarskipti, lögum um Póst- og fjarskiptstofnun og lögum um fjarskiptasjóð eru nú til umsagnar. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til og með 15. febrúar næstkomandi og skal senda þær á netfangið postur@irr.is

01. feb. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög að breytingum á fjarskiptalögum til umsagnar

Drög að frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Tilgangur breytinganna er að styrkja lagastoð til að unnt verði að innleiða ákvæði Evrópureglugerðar um nethlutleysi. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið postur@irr.is til og með 6. febrúar næstkomandi.

01. feb. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Sérstökum byggðastyrk úthlutað til lagningar ljósleiðara

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið með vísan til markmiða byggðaáætlunar og umsagnar stjórnar Byggðastofnunar að verja allt að 100 milljónum króna úr fjárveitingu byggðaáætlunar til að styrkja sérstaklega uppbyggingu ljósleiðarakerfis í strjálbýlum sveitarfélögum.

27. jan. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drögað breytingum á fjarskiptalögum til umsagnar

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um fjarskipti eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Tilgangur breytinganna er að styrkja lagastoð til að unnt verði að innleiða ákvæði Evrópureglugerðar um nethlutleysi. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið postur@irr.is til og með 6. febrúar næstkomandi.

20. des. 2016Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ísland í öðru sæti á heimslista yfir upplýsingatækni

Ísland mælist í öðru sæti ríkja á lista yfir stöðu ríkja í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Fjölmargir þættir á sviði fjarskipta eru mældir svo sem aðgengi að gögnum og gæði þeirra, fjöldi fastlínunotenda og farsímanotenda, tölvueign, aðgengi að netinu, bandvídd og þróun verðlags í fjarskiptum.

19. des. 2016Almannaöryggi, Samgöngur og fjarskipti, Dómsmálaráðuneytið, Rit og skýrslur

Skýrsla um björgun og öryggi í norðurhöfum

Í skýrslu stýrihóps innanríkisráðherra: Björgun og öryggi í norðurhöfum er fjallað um forsendur fyrir efldri björgunar- og viðbragðsþjónustu á Íslandi sem þjóna myndi Norður-Atlantshafi.

20. apr. 2016Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Fjórtán sveitarfélög fá 450 milljóna króna styrk til ljósleiðaravæðingar

Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkrra sveitarfélaga og innanríkisráðherra skrifuðu í dag undir samninga um styrki fjarskiptasjóðs fyrir uppbyggingu ljósleiðara í sveitarfélögunum til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki. Alls fá 14 sveitarfélög styrki að þessu sinni til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara. Styrkur ríkisins er alls 450 milljónir króna. Meðal kostnaður ríkisins á hvern stað eru rúmar 400 þúsund krónur.

19. jan. 2016Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu til umsagnar

Drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Unnt er að senda umsagnir um frumvarpið á netfangið postur@irr.is til og með 31. janúar 2016.

14. des. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Síðari hlutihringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum boðinn út

Auglýst hefur verið á  vef Ríkiskaupa útboð á seinni verkhluta ljósleiðarahringtengingar á Vestfjörðum. Tilboð verða opnuð 28. janúar 2016. Stefnt er að verklokum sama ár. Þá verða Vestfirðir hringtengdir með ljósleiðara sem gerir núverandi afkastaminni og óáreiðanlegri varasambönd óþörf. Þannig eykst til muna áreiðanleiki fjarskipta á öllu landsvæðinu.

05. nóv. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Fyrsti fundur netöryggisráðs haldinn ívikunni

Fyrsti fundur netöryggisráðs var haldinn í innanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 3. nóvember en í ráðinu sitja fulltrúar opinberra aðila. Megin hlutverk ráðsins er að hafa umsjón með framkvæmd á stefnu stjórnvalda um net- og upplýsingaöryggi.

14. okt. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Löggæsla, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög aðlagafrumvarpi um eflingu netöryggissveitar til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að lagafrumvarpi um breytingar á lögum um almannavarnir sem fela meðal annars í sér að efla netöryggissveit sem hefur heyrt undir Póst- og fjarskiptastofnun og að hún verði flutt til ríkislögreglustjóra. Unnt er að senda ráðuneytinu umsögn um frumvarpsdrögin til og með 21. október næstkomandi. Skulu þau send á netfangið postur@irr.is

01. okt. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

ESB efnir til samráðs um framtíðarreglur varðandi fjarskipti

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur opnað samráð á tveimur sviðum um framtíðarreglur um fjarskipti í Evrópu. Í báðum tilvikum stendur samráðið til 7. desember næstkomandi.

11. sep. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Innviðaráðuneytið

Starfsmenn norska samgönguráðuneytisins heimsóttu innanríkisráðuneytið

Hópur starfsmanna deildar norska samgönguráðuneytisins sem sinnir flugmálum, fjarskiptamálum og póstmálum heimsótti innanríkisráðuneytið í gær. Starfsmenn ráðuneytisins fræddu Norðmennina og fengu til liðs við sig fulltrúa frá Isavia og Póst- og fjarskiptastofnun.

04. sep. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Annað, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir styrki

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins en næsta úthlutun styrkja fer fram í október. Frímerkja- og póstsögusjóður var stofnaður árið 1986 og gilda um hann reglur nr. 453/2001. Umsóknarfrestur er til 5. október næstkomandi.

03. júl. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Samið við Orkufjarskipti um hringtengingu ljósleiðara um Snæfellsnes

Í dag var undirritaður samningur milli fjarskiptasjóðs, f.h. innanríkisráðuneytisins, við Orkufjarskipti hf. um hringtengingu ljósleiðara um Snæfellsnes. Ekkert fjarskiptafélag bauð sig fram til verksins á markaðslegum forsendum og bauð sjóðurinn því út styrk í mars síðastliðnum. Þrjú tilboð bárust á bilinu 66 til 87 milljónir króna og áttu Orkufjarskipti hf. hagstæðasta tilboðið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 86 milljónir króna.

25. jún. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Samið við Mílu um hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum

Í dag var undirritaður samningur milli fjarskiptasjóðs, f.h. innanríkisráðuneytisins, við Mílu ehf. um fyrri hluta hringtengingar ljósleiðarastrengs um Vestfirði. Ekkert fjarskiptafélag bauð sig fram til verksins á markaðslegum forsendum og bauð sjóðurinn því út styrk í mars síðastliðnum. Þrjú tilboð bárust á bilinu 56,3 til 123 milljónir króna og átti Míla hagstæðasta tilboð. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 131 milljón króna.

21. maí 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Drög að reglugerð um póstdreifingu til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd póstþjónustu. Miðar breytingin meðal annars að því að draga úr kostnaði við dreifingu pósts. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um reglugerðardrögin til og með 1. júní 2015 og skulu þær berast á netfangið postur@irr.is.

28. apr. 2015Rit og skýrslur, Löggæsla, Persónuvernd, Fjarskipti, Persónuréttur, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Stefna um net- og upplýsingaöryggi kynnt í ríkisstjórn

Ólöf Nordal innanríkisráðherra lagði í morgun fram til kynningar í ríkisstjórn stefnu stjórnvalda um net- og upplýsingaöryggi fyrir tímabilið 2015–2026 ásamt aðgerðaáætlun til næstu þriggja ára.

24. apr. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Opnun tilboða í hringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum og Snæfellsnesi

Tilboð í hringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum og Snæfellsnesi voru opnuð í dag hjá Ríkiskaupum. Þrjú tilboð bárust í hvort verk. Öll tilboðin gera ráð fyrir verklokum árið 2015. Hagkvæmustu tilboðin eru vel undir kostnaðaráætlun.

24. apr. 2015Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur

Skýrsla um aðkomu einkaaðila að samgönguframkvæmdum komin út

Komin er út skýrsla starfshóps sem fyrrverandi innanríkisráðherra skipaði til að skoða aðkomu einkaaðila í umfangsmiklum samgönguverkefnum og fjármögnun þeirra. Starfshópurinn kannaði nokkur verkefni með tilliti til mögulegrar einkaframkvæmdar og setur hann í skýrslunni fram tillögur um hvort og hverjar þeirra gætu fallið undir þá leið.

20. mar. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ljósleiðarahringtenging um Snæfellsnes og Vestfirði boðin út

Auglýst hefur verið á vef Ríkiskaupa útboð á ljósleiðaratengingum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum en innanríkisráðherra fól fjarskiptasjóði fyrir skemmstu að stuðla að bættu öryggi fjarskipta á þessum landsvæðum. Stefnt er að því að unnt verði að skrifa undir verksamninga í byrjun maí.

11. mar. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Starfshópur skilar ráðherra skýrslu um landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða

Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði snemma árs 2014 um alþjónustu í fjarskiptum og útbreiðslu háhraða nettenginga hefur skilað Ólöfu Nordal innanríkisráherra skýrslu um landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Haraldur Benediktsson, formaður starfshópsins, og Páll Jóhann Pálsson, sem einnig sat í starfshópnum, skiluðu ráðherra skýrslunni í dag.

26. feb. 2015Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir

Starfshópur um gjaldtöku í innanlandsflugi skilar tillögum til innanríkisráðherra

Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði á síðasta ári til að kanna opinbera gjaldtöku í innanlandsflugi og mögulegar leiðir til að lækka farmiðaverð hefur skilað ráðherra skýrslu sinni. Í niðurstöðum er bent á að niðurfelling farþega- og lendingargjalda svo og virðisaukaskatts á aðföngum í innanlandsflugi myndi skila að meðaltali 1.700 króna verðlækkun á fluglegg. Þá bendir hópurinn á þá leið að bjóða út flugleiðir og skilgreina leyfilegt hámarksverð. Ólöf Nordal innanríkisráðherra tók við skýrslunni í vikunni og sagði að efni hennar yrði gaumgæft í ráðuneytinu.

23. feb. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ljósleiðarahringtenging undirbúin á Snæfellsnesi og Vestfjörðum

Fjarskiptasjóður hefur kallað eftir upplýsingum um markaðsáform fjarskiptafyrirtækja um lagningu og rekstur ljósleiðarahringtenginga um Snæfellsnes og Vestfirði. Innanríkisráðherra hefur falið sjóðnum að styrkja framkvæmdina reynist þess þörf.

19. nóv. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Dagur upplýsingatækninnar haldinn 27. nóvember

Dagur upplýsingatækninnar 2014 verður haldinn á Grand hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 27. nóvember. Fyrir hádegi fer fram fræðslufundur um öryggi opinberra vefja og eftir hádegi verður ráðstefna með yfirskriftinni: Byggjum, tengjum og tökum þátt.

18. nóv. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Leiðbeiningar um ljósleiðarauppbyggingu opinberra aðila

Póst- og fjarskiptastofnun hefur útbúið leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og aðra opinbera aðila vegna uppbyggingar ljósleiðarakerfa. Leiðbeiningarnar fela í sér upplýsingar um regluverk EES-samningsins á sviði samkeppni og ríkisaðstoðar, tæknikröfur, upplýsingar um kröfur í útboðum ásamt fyrirmynd að útboðsgögnum og að samningi við fjarskiptafyrirtæki um tengingu og rekstur ljósleiðarakerfa.

10. nóv. 2014Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Samgöngur og fjarskipti

Fræðsla, umferðareftirlit og framkvæmdir til að fækka banaslysum

Stjórnvöld vörðu um 366 milljónum á síðasta ári í þágu aukins umferðaröryggis samkvæmt umferðaröryggisáætlun samgönguáætlunar. Lögð var áhersla á sérstakar aðgerðir sem eiga að leiða til fækkunar slysa og lækkunar kostnaðar samfélagsins af umferðarslysum. Markmið stjórnvalda um aukið umferðaröryggi til ársins 2022 er tvíþætt; annars vegar að fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum það ár. Hins vegar að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni lækki að jafnaði um ekki minna en 5% á ári til ársins 2022. Þetta kemur fram í ársskýrslu um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar árið 2013 sem var að koma út.

05. nóv. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Frumvarpsdrög um flutning netöryggissveitar til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra til umsagnar

Drög að lagafrumvarpi um flutning netöryggissveitar frá Póst- og fjarskiptastofnun til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að starfssvið sveitarinnar verði víkkað. Unnt er að senda umsagnir um frumvarpið á netfangið postur@irr.is til og með 17. nóvember næstkomandi.

30. okt. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ný reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn

Reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar hefur tekið gildi og kemur í stað eldri reglugerðar um sama efni. Ástæða þessarar breytingar er sú að tilfærsla hefur orðið á verkefnum með sameiningu ráðuneyta, uppfæra þurfti lagatilvísanir í reglugerðinni og um leið var breytt nokkrum öðrum efnisatriðum.

15. sep. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra leggur til að fjarskiptasjóður styrki hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra var til andsvara við sérstaka umræðu á Alþingi í gær þegar staða og öryggi í fjarskiptum á landsbyggðinni og uppbygging háhraðatenginga í dreifbýli var til umfjöllunar. Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður var málshefjandi. Ráðherra kvaðst hafa lagt til við fjarskiptasjóð að styrkja lagningu ljósleiðara milli Súðavíkur og Brúar í Hrútafirði og myndi slík hringtenging bæta mjög rekstraröryggi almennra fjarskipta sem og neyðarfjarskipta.

08. sep. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Annað, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir styrki

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi. Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um í hvaða skyni sótt er um styrk.

27. maí 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

Drög að matslýsingu samgönguáætlunar og fjarskiptaáætlunar til umsagnar

Innanríkisráðuneytið kynnir um þessar mundir drög að matslýsingu fyrir samgönguáætlun 2015-2026 og fjarskiptaáætlun 2015-2026. Ráðuneytið leitar samráðs við almenning og hagsmunaaðila um matslýsinguna og er unnt að senda athugasemdir og ábendingar til 23. júní á netfangið samgongurad@irr.is.

• First
• Prev
• 11
• 12
• 13
• 14
• 15
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband