12. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál
Búið að semja við alla viðskiptabankana um veitingu viðbótarlána
Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fól Seðlabanka Íslands að annast framkvæmd á ábyrgðum ríkissjóðs (tengill á samning) og hefur bankinn undirritað samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann.