Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 651–700 af 3887
    Raða eftir:
    16. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók við undirskriftum um átakið Hnífalaus framtíð

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag á móti fulltrúum átaksins Hnífalaus framtíð. Þær Hrefna Dís Héðinsdóttir, Karen Birna Einarsdóttir Stephensen, Tinna Sigríður Helgadóttir og Valdís Eva Eiríksdóttir, úr Verzlunarskóla Íslands, afhentu forsætisráðherra á annað þúsund undirskriftir þar sem hvatt er til hertra laga um vopnaburð.

    16. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Unnið að brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla

    Forsætisráðherra skipaði í síðustu viku aðgerðahóp um brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Hópnum er m.a. falið að horfa heildstætt á umönnun og menntun barna og skoða hvort þörf sé á kerfisbreytingum til að loka umönnunarbilinu.

    15. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Lausnarbeiðni ríkisstjórnar samþykkt – forsætisráðherra leiðir starfsstjórn

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gekk í dag á fund Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Forseti féllst á beiðnina og fór fram á að ríkisstjórnin starfaði áfram sem starfsstjórn þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Forsætisráðherra staðfesti að hann myndi verða við því og leiða starfsstjórnina.

    11. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Efling opinberrar hagskýrslugerðar

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem skila á tillögum um hvernig megi efla Hagstofu Íslands sem miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu. Nefndinni er jafnframt falið að skila tillögum um hvernig megi best mæta auknum upplýsingaþörfum samfélagsins og nýta gervigreind við öflun, úrvinnslu og birtingu opinberra tölfræðiupplýsinga.

    11. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu

    Embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu var auglýst laust til umsóknar 19. september sl. og rann umsóknarfrestur út 10. október sl. Sjö sóttu um embættið. Forsætisráðherra mun skipa þriggja manna hæfnisnefnd til að fjalla um hæfni umsækjenda áður en ákvörðun verður tekin um skipun.

    10. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1219/2024. Úrskurður frá 10. október 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í tengslum við verðfyrirspurn Isavia þar sem leitað var tilboða í malbikun á Akureyrarflugvelli og samningsgerð við félagið Colas Ísland ehf. Ákvörðun Isavia að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnunum var að meginstefnu byggð á því að óheimilt væri að afhenda gögnin því þau vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Colas Ísland. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og lagði fyrir Isavia að afhenda kæranda hluta þeirra, en að öðru leyti voru ákvarðanir félagsins staðfestar.

    25. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1218/2024. Úrskurður frá 25. september 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að PDF-skjölum í vörslum Garðabæjar sem innihéldu yfirlit úr málaskrá sveitarfélagsins yfir mál og gögn sem varða kæranda og dóttur hans. Ákvörðun Garðabæjar að synja beiðni kæranda var byggð á því að PDF-skjölin væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, sem heimilt væri að takmarka aðgang að. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin uppfylltu ekki skilyrði upplýsingalaga að teljast vinnugögn. Beiðni kæranda var vísað til Garðabæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    25. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1217/2024. Úrskurður frá 25. september 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningum framkvæmdastjóra og útgerðarstjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs var á því byggð að gögnin vörðuðu málefni starfsmanna félagsins og væru því undanþegin aðgangi samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að ráðningarsamningar væru gögn í málum sem vörðuðu ráðningu einstakra starfsmanna í starf og því væri almennt heimilt að takmarka aðgang að slíkum samningum á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi hins vegar með vísan til þess að framkvæmdastjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs teldist til æðstu stjórnenda félagsins að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingum um launakjör hans sem fram kæmu í ráðningarsamningnum.…

    23. sep. 2024Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi um framtíðina

    Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykktu sáttmála um framtíðina í gær á leiðtogafundi í New York. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ákall um aukið traust í alþjóðlegri samvinnu eru meginatriði sáttmálans.

    23. sep. 2024Ræður og greinar, Forsætisráðuneytið

    Ávarp Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á leiðtogafundi um framtíðina í New York 22. september 2024

    23 september 2024 / Forsætisráðuneytið Ávarp Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á leiðtogafundi um framtíðina í New York 22. september 2024 Mr. President, Your Excellencies, Ladies and Gentlemen, First of all, let me join in celebrating the conclusion of the Pact for the Future together with the Declaration on Future Generations and the Global Digital Compact

    20. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Breytingar á skipulagi forsætisráðuneytisins

    Forsætisráðherra hefur staðfest breytingar á skipulagi forsætisráðuneytisins og hefur nýtt skipurit tekið gildi.

    11. sep. 2024Ræður og greinar, Forsætisráðuneytið

    Stefnuræða Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á 155. löggjafarþingi

    11 september 2024 / Forsætisráðuneytið Stefnuræða Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á 155. löggjafarþingi Virðulegi forseti. Góðir landsmenn

    11. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Stefnuræða forsætisráðherra og þingmálaskrá

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 155. löggjafarþing hefur nú verið birt á vef Stjórnarráðsins í samræmi við þingsköp Alþingis.

    11. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum

    Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1216/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál var vísað frá nefndinni, þar sem upplýsingalög gilda ekki um gögn í vörslu dómstóla um meðferð einstakra dómsmála.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1215/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nr. 1201/2024, með vísan til þess að úrskurðurinn væri haldinn verulegum annmarka. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki vísbendingar um að á úrskurði nefndarinnar væri haldinn annmarka sem leitt gæti til endurupptöku á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku var því hafnað.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1214/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku sem litið var svo á að lyti að tveimur málum sem lauk með úrskurðum árin 2020 og 2022. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki vísbendingar um að á úrskurðum nefndarinnar væru verulegir annmarkar að lögum. Beiðni um endurupptöku var því hafnað.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1213/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Vestmannaferjan Herjólfur ohf. synjaði beiðni um aðgang að rekstraráætlun félagsins fyrir árið 2024, með vísan til þess að áætlunin væri vinnugagn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að gagnið uppfyllti skilyrði þess að teljast vinnugagn. Þá væri í áætluninni ekki að finna neinar þær upplýsingar sem tilgreindar væru í 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Með vísan til þess var ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs staðfest.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1212/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Utanríkisráðuneyti synjaði beiðni um aðgang að samskiptum í tengslum við þá ákvörðun ráðherra að senda farþegaflugvél til Ísrael til að ferja heim Íslendinga sem þar væru strandaglópar. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á því að hluti gagnanna varðaði einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt, sbr. 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, auk þess sem annar hluti þeirra hefði að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál felldi úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem var byggður á 1. málsl. 9. gr. laganna og lagði fyrir ráðuneytið að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu að því leyti.…

    03. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Andri Lúthersson er nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins

    Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins.

    03. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Umboðsmaður barna afhenti forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2023

    Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í gær Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2023.

    02. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viljayfirlýsing um uppbyggingu Laugardalsvallar og nýjan frjálsíþróttaleikvang

    Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Reykjavíkurborg, Knattspyrnusamband Íslands og Frjálsíþróttasamband Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal.

    28. ágú. 2024Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin fundaði með sveitarstjórnarfólki á Norðurlandi vestra

    Sveitarfélögin Húnabyggð, Húnaþing vestra, Skagafjörður og Skagaströnd auk Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) ræddu við ríkisstjórnina um stöðu og þróun samfélagsins á Norðurlandi vestra á fundi í dag.

    21. ágú. 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Samgöngusáttmálinn, Samgöngur

    Ríkið og sex sveitarfélög gera samkomulag um uppfærðan samgöngusáttmála

    Styttri ferðatími, minni tafir, aukið umferðaröryggi, áhersla á að draga úr kolefnisspori, stórbættar almenningssamgöngur, fjölgun hjóla- og göngustíga og uppbygging stofnvega eru kjarninn í uppfærðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem undirritaður var í dag.

    16. ágú. 2024Ræður og greinar, Forsætisráðuneytið

    Um verðbólgu og ríkisfjármál

    16 ágúst 2024 / Forsætisráðuneytið Um verðbólgu og ríkisfjármál Bjarni Benediktsson forsætisráðherra skrifar Verðbólga er enn of mikil. Um það verður ekki deilt. Þó það sé lögum samkvæmt í verkahring Seðlabanka Íslands að stuðla að verðstöðugleika leika ríkisfjármál vitanlega stórt hlutverk

    16. ágú. 2024Forsætisráðuneytið

    Breytingar gerðar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

    16. ágú. 2024Forsætisráðuneytið

    Um verðbólgu og ríkisfjármál

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra skrifar um verðbólgu og ríkisfjármál.

    14. ágú. 2024Forsætisráðuneytið

    Samningur um lands- og vindorkuréttindi vegna Búrfellslundar undirritaður

    Í dag var undirritaður samningur milli íslenska ríkisins og Landsvirkjunar um lands- og vindorkuréttindi vegna Búrfellslundar, vindorkugarðs við Vaðöldu. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu samninginn og sagði forsætisráðherra fagnaðarefni að vindorkan verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins.

    07. ágú. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu

    Sex umsækjendur eru um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu sem auglýst var í júní.

    31. júl. 2024Forsætisráðuneytið

    Tómas Brynjólfsson skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

    Forsætisráðherra hefur á grundvelli niðurstöðu ráðgefandi hæfnisnefndar og að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, skipað Tómas Brynjólfsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára frá og með 1. ágúst nk.

    31. júl. 2024Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum 31. júlí 2024

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum í dag, miðvikudaginn 31. júlí, kl. 14.

    30. júl. 2024Forsætisráðuneytið

    Almenningur boðinn velkominn á Austurvöll vegna embættistöku forseta Íslands

    Athöfn vegna embættistöku forseta Íslands fer fram í Dómkirkjunni og Alþingishúsinu fimmtudaginn 1. ágúst og hefst dagskrá kl. 15.30.

    19. júl. 2024Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fjallaði um lýðræðisógnir og samkeppnishæfni á leiðtogafundi Evrópuríkja

    Lýðræði á tímum fjölþáttaógna, upplýsingahernaðar og falsfrétta, orkumál og málefni flóttamanna voru í brennidepli á leiðtogafundi Evrópuríkja á vettvangi EPC (e. European Political Community) í Bretlandi í gær. Bjarni Benediktsson forsætiráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd ásamt leiðtogum á fimmta tugs Evrópuríkja auk framkvæmdastjóra NATO, utanríkismálastjóra ESB og Úkraínuforseta sem flutti erindi um varnarbaráttuna gegn ólögmætu innrásarstríði Rússa. Þá bauð Karl Bretakonungur til móttöku að fundi loknum.

    17. júl. 2024Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sækir fund evrópskra þjóðarleiðtoga í Bretlandi

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun sækja leiðtogafund hins pólitíska bandalags Evrópuríkja (e. European Political Community, EPC) í Bretlandi á morgun.

    11. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og einarður stuðningur Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu var áréttaður á þriggja daga leiðtogafundi bandalagsins, sem lauk í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag. Bandalagsríkin ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að halda áfram að styrkja fælingar- og varnarstöðu sína samhliða því að efla samvinnu við helstu samstarfsríki til mæta nýjum áskorunum.

    10. júl. 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Traust til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla almennt gott

    Traust mælist hátt til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla á Íslandi í samanburði við önnur OECD-ríki. Félagslegt traust mælist jafnframt hátt hér á landi og fer vaxandi á milli mælinga.

    08. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Washington

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington D.C. á morgun og stendur fram á fimmtudag. Þar verður þess minnst að 75 ár eru liðin frá stofnun bandalagsins.

    04. júl. 2024Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir stefnu Íslands um sjálfbæra þróun til 2030

    Stefna Íslands um sjálfbæra þróun til ársins 2030 var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar þriðjudaginn 2. júlí. Í stefnunni er sett fram sú framtíðarsýn að stjórnvöld og samfélagið vinni sameiginlega að framgangi sjálfbærrar þróunar fyrir árið 2030.

    28. jún. 2024Forsætisráðuneytið

    Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri peningastefnu lætur af störfum um næstu áramót

    Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, hefur óskað eftir því við forsætisráðherra að láta af störfum í lok ársins þegar fimm ára skipunartíma hennar lýkur. Forsætisráðherra mun því auglýsa starf varaseðlabankastjóra peningastefnu síðar í sumar og skipa í embættið frá og með 1. janúar 2025.

    27. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Nýr tækniskóli rís í Hafnarfirði

    Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029.

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1211/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skattskrám ársins 2022 vegna tekna á árinu 2021, sem gerðar væru á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Skatturinn kvað ekki heimilt að afhenda gögnin með vísan til þess að upplýsingar í þeim væru háðar þagnarskyldu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að 117. gr. laga um tekjuskatt væri sérstakt þagnarskylduákvæði sem gengi almennt framar rétti til aðgangs að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum. Ákvæðið væri grundvallarregla á sviði skattaréttar um trúnað um tekjur og efnahag skattaðila, og umbeðnar upplýsingar féllu undir ákvæðið. Ákvæði 2. mgr. 98. gr. laganna væri undantekningarregla gagnvart þagnarskyldunni í 117. gr. laganna og fæli ekki í sér ríkari fyrirmæli um afhendingu skattskráa en berum orðum fælist í ákvæðinu.…

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1210/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að myndskeiði í vörslum Fiskistofu sem sýndi brottkast á fiski. Ákvörðun Fiskistofu að synja beiðninni byggðist að hluta til á því að afhending myndskeiðsins væri óheimil vegna hagsmuna útgerða og skipverja, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Nefndin taldi að þótt andlit skipverja hefðu í flestum tilvikum verið gerð ógreinileg teldust þeir engu að síður vera persónugreinanlegir í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá taldi nefndin að það að Fiskistofa hefði ekki á þeim tíma haft lagaheimild til þess að gera þær upptökur af skipverjum sem finna mætti í myndskeiðinu hefði áhrif á mat samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga.…

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1209/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsögnum nánar tilgreindra stjórnvalda sem ríkislögmaður hafði aflað í tilefni af bótakröfu kæranda sem beint var að embættinu. Ákvörðun ríkislögmanns að synja beiðninni byggðist á því að gögnin væru bréfaskipti við sérfróðan aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir framangreinda undanþágu í upplýsingalögum. Ákvörðun ríkislögmanns var staðfest.

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1208/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslum Fiskistofu. Ákvörðun Fiskistofu að synja beiðni kæranda var byggð á 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, með vísan til þess að meðferð beiðninnar tæki svo mikinn tíma eða krefðist svo mikillar vinnu að ekki teldist af þeim sökum fært að verða við henni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Fiskistofa hefði með fullnægjandi hætti sýnt fram á að skilyrði þess að ákvæðinu yrði beitt væru uppfyllt í málinu. Var ákvörðun Fiskistofu því staðfest.

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1207/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kærenda til aðgangs að umsögnum nánar tilgreindra stjórnvalda sem ríkislögmaður hafði aflað í tilefni af bótakröfu kærenda sem beint var að embættinu. Ákvörðun ríkislögmanns að synja beiðninni byggðist á því að gögnin væru bréfaskipti við sérfróðan aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir framangreinda undanþágu í upplýsingalögum. Hins vegar voru kærendur taldir eiga rétt til aðgangs að fylgigögnum sem fylgdu einni umsögninni. Að öðru leyti var ákvörðun ríkislögmanns staðfest.

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1206/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsögnum nánar tilgreindra stjórnvalda sem ríkislögmaður hafði aflað í tilefni af bótakröfu kæranda sem beint var að embættinu. Ákvörðun ríkislögmanns að synja beiðninni byggðist á því að gögnin væru bréfaskipti við sérfróðan aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir framangreinda undanþágu í upplýsingalögum. Ákvörðun ríkislögmanns var staðfest.

    25. jún. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1205/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs meðal annars að gögnum um bótakröfu og bótagreiðslu sveitarfélags til einstaklings. Ákvörðun sveitarfélagsins að synja beiðninni byggðist fyrst og fremst á því að óheimilt væri að afhenda gögnin því þau vörðuðu einkamálefni einstaklingsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og taldi þau hafa að geyma upplýsingar um einkamálefni einstaklingsins sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt. Var ákvörðun sveitarfélagsins því staðfest.

    25. jún. 2024Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu auglýst laust til umsóknar

    Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu.

    24. jún. 2024Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrstu alþjóðlegu jafnréttisverðlaunin til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur afhent í dag

    Grísku grasrótarsamtökin Irida Women‘s Center hlutu í dag ný alþjóðleg jafnréttisverðlun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women‘s Empowerment, sem afhent voru í fyrsta sinn á vettvangi Evrópuráðsins að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands og Guðmundi Inga Guðbrandssyni félags- og vinnumarkaðsráðherra.

    20. jún. 2024Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Kynjajafnréttisstefna Evrópuráðsins tekur mið af yfirlýsingu leiðtogafundarins í Reykjavík

    Ný kynjajafnréttisstefna Evrópuráðsins fyrir árin 2024-2029 hefur tekið gildi en henni var formlega hleypt af stokkunum í lok maí. Stefnan byggir á skuldbindingum aðildarríkja ráðsins, samþykktum tilmælum og leiðbeiningum um kynjajafnrétti.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband