Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 651–700 af 1862
    Raða eftir:
    29. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samhljómur um aukinn varnarviðbúnað og stuðning við Úkraínu

    Stríðsrekstur Rússlands gegn Úkraínu, undirbúningur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Washington í júlí á næsta ári, staðan á Vestur-Balkanskaga og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs voru efst á baugi á tveggja daga utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Brussel í dag. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    29. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Malaví, Utanríkismál

    Óháð úttekt staðfestir áþreifanlegan árangur Íslands í Malaví

    Áratugalangt samstarf Íslands við Mangochi-hérað í Malaví hefur skilað áþreifanlegum árangri fyrir íbúa héraðsins, að því er fram kemur í nýrri óháðri úttekt sem unnin var af alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu GOPA.

    27. nóv. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Íslenska utanríkisþjónustan tekur þátt í 16 daga alþjóðlegu átaki gegn kynbundnu ofbeldi

    Utanríkisráðuneytið er nú baðað roðagylltum ljóma til að vekja athygli á alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Sendiskrifstofur Íslands um allan heim taka sömuleiðis þátt í vitundarvakningunni á samfélagsmiðlum. Átakið hófst síðastliðinn laugardag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundu ofbeldi undir yfirskriftinni „Sameinumst! Fjárfestum í aðgerðum til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi gagnvart konum og stúlkum“ (e. UNiTE! Invest to prevent violence against women and girls).

    24. nóv. 2023Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherrar ræddu þróun öryggismála á fundi í Stokkhólmi

    Þróun öryggismála, aukinn varnarviðbúnaður og stuðningur við Úkraínu voru áherslumál á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem lauk í Stokkhólmi í gær.

    24. nóv. 2023Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu

    Færanlega neyðarsjúkrahúsið, sem Alþingi ákvað í vor að gefa úkraínsku þjóðinni, er komið til Úkraínu og hefur verið tekið í gagnið.

    21. nóv. 2023Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Úkraína, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og Uppbyggingarsjóður EES til umræðu í Brussel

    Samstaða með Úkraínu, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og staðan í viðræðum um næsta tímabil Uppbyggingarsjóðs EES voru í brennidepli á fundum utanríkisráðherra í Brussel í tengslum við fund EES-ráðsins í gær.

    17. nóv. 2023Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Íslensk stjórnvöld auka enn framlög til mannúðaraðstoðar á Gaza

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 100 milljóna króna viðbótarframlag vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Framlagið verður veitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC). Ráðherra kynnti aukin framlög á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

    16. nóv. 2023Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Árangur af þróunarsamvinnu Íslands og Malaví ræddur á fundi utanríkisráðherra

    Góður árangur af þróunarsamvinnu Íslands og Malaví, mikilvægi jafnréttismála og loftslagsmál voru ofarlega á baugi á fundi Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og Nancy Tembo, utanríkisráðherra Malaví, sem fram fór í morgun.

    16. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkismál

    Róbert Spanó kosinn í stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu

    Róbert Spanó var í dag kjörinn í stjórn alþjóðlegrar tjónaskrár fyrir Úkraínu sem tekur til eignaskemmda, manntjóns og alvarlegra meiðsla sem orðið hafa í stríði Rússlands í Úkraínu. Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi aðila að tjónaskránni sem fer fram í Strassborg í dag. Róbert, ásamt frambjóðanda Ítalíu, hlaut næstflest atkvæði á eftir frambjóðanda Þýskalands í eitt af sjö sætum stjórnarinnar.

    01. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Utanríkismál

    Um hundrað öryggis- og hermálafulltrúar ræddu kynjajafnrétti á Barbershop viðburði

    Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hvatti í opnunarávarpi á Barbershop rakararáðstefnu hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í gær til áframhaldandi áherslu á kynjajafnrétti í störfum ÖSE. Hann sagði að með þrautseigju myndi skilningur aukast og tækifæri skapast fyrir konur til að stíga af meiri festu inn á svið öryggis- og varnarmála í álfunni. Fastanefnd Íslands hjá ÖSE efndi til ráðstefnunnar í samstarfi við fastanefndir Bandaríkjanna, Belgíu, Finnlands, Kanada, Noregs, Svíþjóðar og Þýskalands.

    30. okt. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Yfirlýsing Íslands á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna

    Í atkvæðaskýringu að lokinni atkvæðagreiðslu á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna á föstudag kallaði Ísland með skýrum hætti eftir mannúðarhléi til að tryggja tafarlausa mannúðaraðstoð til óbreyttra borgara á Gaza. Þá hörmuðu íslensk stjórnvöld að ekki hafi náðst samstaða um málið, en breytingartillaga Kanada um fordæmingu á hryðjuverkum Hamas og gíslatöku sem voru upptökin að þeim átökum sem nú geisa náði ekki fram að ganga.

    20. okt. 2023Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Þétt dagskrá utanríkisráðherra á hliðarlínu Arctic Circle

    Hringborð norðurslóða - Arctic Circle var sett í Hörpu í gær en utanríkisráðuneytið er einn af bakhjörlum þingsins. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra var viðstaddur setningarathöfnina en ráðstefnan er nú haldin í tíunda sinn og yfir tvö þúsund gestir hafa boðað komu sína á hana að þessu sinni.

    14. okt. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Flóttafólk, Utanríkisráðuneytið, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Ísland styrkir neyðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna á Gaza

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að svara kalli Sameinuðu þjóðanna um framlög til neyðaraðstoðar í Palestínu með 70 milljóna króna framlagi fræa íslenskum stjórnvöldum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Framlagið bætist við reglubundið framlag Íslands til stofnunarinnar, sem er ein af samstarfsstofnunum Íslands í mannúðarmálum.

    13. okt. 2023Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Leiðtogafundur JEF í Svíþjóð

    Öryggi og varnir Evrópu voru megin fundarefni leiðtogafundar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) sem lauk í Svíþjóð í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sótti fundinn fyrir hönd forsætisráðherra. Ríkin ræddu þróun öryggismála, áframhaldandi stuðning við varnarbaráttu Úkraínu og framtíðarþróun JEF-samstarfsins.

    13. okt. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og stuðningur við Úkraínu ofarlega á baugi á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins

    Málefni Úkraínu og alvarlegt ástand fyrir botni Miðjarðarhafs voru fyrirferðamikil mál á varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í gær. Varnarmálaráðherra Ísrael ávarpaði ráðherrafundinn með fjarfundarbúnaði.

    04. okt. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra sótti ráðstefnu um öryggismál í Varsjá

    „Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er árás á okkar sameiginlegu gildi og alþjóðalög. Þótt norðurslóðir séu fjarri Úkraínu hefur stríðið þó áhrif á heiminn sem við búum í og þar af leiðandi Ísland.“ Þetta var á meðal þess sem fram kom í máli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á ráðstefnu um öryggismál, þar sem hún sat í pallborði með ráðherrum frá Bretlandi, Hollandi og Litáen. Ráðstefnan fór fram í Varsjá í Póllandi og lauk í dag.

    29. sep. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra heimsótti nýtt færanlegt neyðarsjúkrahús fyrir Úkraínu

    Tveggja daga opinberri vinnuheimsókn utanríkisráðherra til Eistlands lauk í dag. Í ferðinni átti hún fundi með Margus Tsahkna utanríkisráðherra og Hanno Pevkur varnarmálaráðherra. Auk þess kynnti ráðherra sér starfsemi netöryggisseturs Atlantshafsbandalagsins, sem Ísland á aðild að, í höfuðborginni Tallinn. Þá skoðaði hún uppsetningu á færanlegu neyðarsjúkrahúsi sem kostað er af íslenskum stjórnvöldum og verður afhent Úkraínu í nóvember, en sjúkrahúsið er hannað og framleitt í Eistlandi.

    26. sep. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Markmið ÖSE er að vernda frið

    Utanríkisráðherra tók þátt í sérstökum fundi fastaráðs Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sem fram fór í Vínarborg í dag og boðað var til vegna misbeitingar Rússlands á samstöðureglu stofnunarinnar. Bujar Osmani, utanríkisráðherra Norður-Makedóníu, sem nú gegnir formennsku í ÖSE, boðaði til fundarins.

    23. sep. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Aldrei verið jafn mikil þörf á fjölþjóðasamstarfi

    Mikilvægi þess standa vörð um gildi Sameinuðu þjóðanna, fjölþjóðasamstarf, mannréttindi og frelsi einstaklingsins var leiðarstefið í ræðu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Ástand mannréttinda í Afganistan og Íran, réttindi hinsegin fólks og innrásarstríð Rússlands í Úkraínu voru á meðal helstu umræðuefna ræðunnar.

    22. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra undirritaði fjóra nýja rammasamninga við stofnanir Sameinuðu þjóðanna í vikunni í tengslum við 78. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur sem hæst í New York. Í ráðherraviku allsherjarþingsins koma leiðtogar allra aðildarríkjanna 193 saman og hefur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótt fjölda viðburða í vikunni auk þess sem hún hefur fundað með utanríkisráðherrum fjölmargra ríkja bæði nær og fjær.

    21. sep. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið

    Ísland undirritar nýjan hafréttarsamning SÞ um líffræðilega fjölbreytni

    Utanríkisráðherra undirritaði í gær nýjan samning undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni í hafinu utan lögsögu ríkja (Biodiversity Beyond National Jurisdiction, BBNJ).

    19. sep. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Mikill stuðningur Íslendinga við alþjóðasamstarf

    Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna, eða 84,8 prósent, segja skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu. Þá segja 72,5 prósent þátttöku Íslands í alþjóðasamvinnu styrkja fullveldi Íslands og 76,9 prósent telja hagsæld Íslands að miklu leyti byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þetta er á meðal niðurstaðna árlegrar könnunar sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið um viðhorf almennings til ýmissa þátta í utanríkisþjónustu Íslands.

    19. sep. 2023Dómsmálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Löggæsla, Utanríkismál

    Norrænir dómsmálaráðherrar funduðu í Reykjavík

    Rætt var um ofbeldi í nánum samböndum, unga afbrotamenn og erfðafræði í afbrotarannsóknum.

    16. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland veitir fjárstuðning til uppbyggingar sjálfbærra fiskveiða í þróunarríkjum

    Íslensk stjórnvöld hafa undirritað samning við Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) um fjárstuðning til þróunarríkja við að koma á fót sjálfbærri fiskveiðistjórnun. Stuðningurinn nemur 500 þúsund svissneskum frönkum, en Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands í Genf, við sérstakt tilefni ásamt Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastýru Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

    14. sep. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Staða hinsegin fólks í Úganda og stuðningur við Úkraínu til umræðu á fundi með þróunarmálaráðherra Noregs

    Stuðningur við Úkraínu og staða hinsegin fólks í Úganda voru ofarlega á baugi á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Anne Beathe Tvinnereim, þróunarmálaráðherra Noregs, sem haldinn var í Ósló í gær.

    07. sep. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra segir breytt landslag kalla á aukið samstarf NB8-ríkjanna á alþjóðavettvangi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir breytt landslag heimsmála kalla á enn öflugra samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á alþjóðavettvangi.

    29. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Yfirmaður flugherstjórnar Atlantshafsbandlagsins í heimsókn á Íslandi

    James B. Hecker hershöfðingi og yfirmaður flugherstjórnar Atlantshafsbandalagsins (AIRCOM) og flughers Bandaríkjanna í Evrópu (USAFE) er í heimsókn á Íslandi. Hecker fundaði í dag með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þar sem þau ræddu átökin í Úkraínu, aukinn varnaviðbúnað Altantshafsbandalagsins og mikilvægi Íslands fyrir stöðuvitund á Norður-Atlantshafi.

    29. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Þátttaka utanríkisráðherra á ársfundi Vestnorræna ráðsins

    Málefni hafsins og fríverslun voru efst á baugi í máli utanríkisráðherra á ársfundi Verstnorræna ráðsins í Reykjavík í dag. Vestnorræna ráðið er þingmannavettvangur þjóðþinga Íslands, Færeyja og Grænlands en í ráðinu sitja 18 þingmenn, sex frá hverju landi. Utanríkisráðherrar landanna þriggja tóku auk þess þátt í klukkutíma umræðu á ársfundinum þar sem þeir fluttu árvörp og sátu síðan fyrir svörum.

    23. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Aukin þjónusta við íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum

    Utanríkisráðuneytið og Íslandsstofa hafa gert með sér samkomulag þess efnis að Íslandsstofa taki í auknum mæli að sér þjónustu við íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum með ráðningu viðskiptafulltrúa í völdum borgum. Samningurinn felur í sér að að fagleg samræming og verkstjórn þeirra viðskiptafulltrúa verði á ábyrgð Íslandsstofu.

    23. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við Úkraínu í brennidepli á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlanda

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda hittust á fjarfundi í dag undir stjórn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sem fer með formennsku í norræna hópnum í ár. Ráðherrarnir funduðu síðast á Ísafirði í júní. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og staðan í Úkraínu, Afganistan og Vestur-Afríku voru efst á baugi.

    13. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál

    Flugsveit bandaríska flughersins á Íslandi

    Flugsveit bandaríska flughersins er væntanleg til landsins í dag, sunnudaginn 13. ágúst, þar sem hún verður við æfingar með bandalagsríkjum í Norður-Evrópu. Um er að ræða þrjár B-2 Spirit flugvélar með allt að 200 manna liðsafla sem mun hafa aðsetur á öryggissvæðinu í Keflavík næstu vikur á meðan æfingar standa yfir.

    08. ágú. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Utanríkismál, Menningarmál

    Áslaug Arna á Íslendingadeginum í Gimli

    Hinn árlegi Íslendingadagur sem haldinn er í Gimli í Kanada fór fram um helgina. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var viðstödd hátíðarhöldin og ávarpaði gesti sem heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar í ár.

    04. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland undirritar samkomulag um vinnudvöl ungmenna í Kanada

    Samkomulag milli Íslands og Kanada um vinnudvöl ungmenna (e. Youth Mobility) á aldrinum 18 til 30 ára var undirritað í gær. Samningurinn kveður á um að ungmenni á þessum aldri geti ferðast og starfað í Kanada í allt að 12 mánuði, með möguleika á að framlengja dvölina um 12 mánuði.

    01. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Aukin viðvera Íslands í Kænugarði

    Utanríkisráðuneyti Íslands og Litáens hafa gert með sér samkomulag um að íslenskir stjórnarerindrekar fái vinnuaðstöðu í sendiráði Litáens í Kænugarði. Íslensk stjórnvöld áforma að auka viðveru í Úkraínu og sýna úkraínsku þjóðinni þannig samstöðu á tímum ólögmæts innrásarstríðs Rússlands.

    01. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu lögð niður

    Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu verður lögð niður frá og með deginum í dag, 1. ágúst. Fyrirsvar gagnvart Rússlandi og öðrum umdæmisríkjum sendiráðsins færist þar með til utanríkisráðuneytisins.

    31. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Þórshöfn, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samstarfsráðherra hélt opnunarávarp á Pride í Færeyjum

    Heimsókn samstarfsráðherra Norðurlandanna, Guðmundar Inga Guðbrandssonar, til Færeyja í síðustu viku var viðburðarík. Megintilgangur heimsóknarinnar var þátttaka í gleðigöngunni í Þórshöfn (Føroyar Pride), auk funda með ráðherrum í ríkisstjórn landsins og heimsóknum til norrænna stofnana í Færeyjum.

    26. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Flugsveit þýska flughersins á Íslandi

    Flugsveit þýska flughersins er væntanleg til landsins til æfinga og til að kynna sér aðstæður hér á landi. Um er að ræða sex Eurofighter Typhoon orrustuþotur ásamt fimmtíu liðsmönnum.

    17. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þingsályktunartillaga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands komin í Samráðsgátt

    Þingsályktunartillaga um stefnu stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu hefur verið lögð fram í Samráðsgátt. Samkvæmt lögum skal utanríkisráðherra leggja fram tillögu um stefnu í alþjóðlegum þróunarmálum fimmta hvert ár, en stefnan sem nú er lögð fram nær til tímabilsins 2024-2028. Í gegnum samráðsgátt óskar utanríkisráðuneytið nú eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila um stefnuna.

    14. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við konur í Afganistan

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita viðbótarframlög til stofnana og sjóða sem berjast fyrir mannréttindum kvenna og stúlkna í Afganistan. Veittar verða samtals 150 milljón króna sem renna til Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women), Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) og UN Women’s Peace and Humanitarian Fund (WPHF), sem er sjóður á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem veitir styrki til félagasamtaka sem eru leidd af konum.

    13. júl. 2023Utanríkismál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Bandaríkjaforseta

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Joe Biden Bandaríkjaforseta en fundurinn fór fram í Helsinki. Á fundinum var rætt um samstarf og samvinnu Norðurlandanna og Bandaríkjanna með áherslu á öryggismál, umhverfismál, tækniþróun og samfélagsleg málefni.

    12. júl. 2023Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Vilníus lokið

    Tveggja daga leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem fram fór í Vilníus lauk í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tóku þátt í fundinum.

    11. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra ávarpaði málþing lýðræðisafla Belarús

    Staða Belarús var umræðuefni á málsþingi sem haldið var á vegum skrifstofu Sviatlönu Tsikhanouskayu í Vilníus í morgun. Þórdis Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra var meðal frummælenda á fundinum ásamt Tsikhanouskayu, João Cravinho utanríkisráðherra Portúgals, Mantas Adomėnas aðstoðarutanríkisráðherra Litáens og Lauri Tierala ráðherraritara í utanríkisráðuneyti Finnlands.

    11. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Tvö fyrirtæki fá styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins

    Íslensku fyrirtækin Verkís og Fisheries Technologies hlutu á dögunum styrki til verkefna á sviði þróunarsamvinnu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins. Heildarframlag styrkja úr sjóðnum voru að þessu sinni tæplega 24 milljónir króna á móti framlagi fyrirtækjanna.

    10. júl. 2023Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Vilníus

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Vilníus á morgun og stendur fram á miðvikudag.

    05. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland kaupir búnað til sprengjuleitar fyrir Úkraínu

    Ísland, ásamt Norðurlöndunum og Litáen, tekur þátt í leiða þjálfunarverkefni í sprengjuleit og eyðingu sem hófst í mars síðastliðnum. Í tengslum við verkefnið hefur verið ákveðið að Ísland leggi til grunnbúnað fyrir þátttakendur að andvirði um 50 milljóna króna og nýtist við þjálfunina. Búnaðurinn verður fluttur til Úkraínu að loknu hverju námskeiði. Þar verður hann notaður við leit að jarðsprengjum og eyðingu.

    30. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Utanríkismál, Alþjóðamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samningur um réttindi á sviði almannatrygginga undirritaður við Bretland

    Ísland, Liechtenstein og Noregur skrifuðu í dag undir samning við Bretland um samræmingu almannatrygginga. Samningurinn er gerður þar sem reglur EES-samningsins gilda ekki lengur um Bretland og kveður á um framtíðarfyrirkomulag hvað varðar réttindi á sviði almannatrygginga, aðallega lífeyrisréttindi og sjúkratryggingar þeirra sem fara eða flytjast milli landanna.

    30. jún. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Netöryggi, Utanríkisráðuneytið

    Ísland gerist aðili að Freedom Online Coalition

    Ísland gerðist nýlega aðili að ríkjahóp um vernd mannréttinda á netinu, eða Freedom Online Coalition. Ísland varð 37. landið til þess að gerast aðili, en meðal aðildarríkja eru mörg nánustu samstarfsríki Íslands líkt og Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Bandaríkin, Bretland, Kanada og Holland. Samtökin hafa það að meginmarkmiði að efla virðingu fyrir mannréttindum á netinu og leggja þau áherslu á að netfrelsi og mannréttindi á netinu komist á dagskrá í alþjóðlegri stefnumótun.

    28. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Vinnustofa um öryggi neðansjávarinnviða haldin á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

    Um 70 sérfræðingar frá þátttökuríkjum sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) og öðrum samstarfsríkjum komu saman á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í vikunni til að taka þátt í vinnustofu um öryggi þjóðhagslega mikilvægra neðansjávarinnviða.

    27. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Moldóvu undirritaður á ráðherrafundi EFTA

    Ráðherrar EFTA-ríkjanna og efnahagsmálaráðherra Moldóvu, Dumitru Alaiba, undirrituðu í dag nýjan fríverslunarsamning að viðstöddum forsætisráðherra Moldóvu, Dorian Recean. Undirritunin fór fram á ráðherrafundi EFTA sem haldinn var í Schaan í Liechtenstein í dag. EFTA-ráðherrarnir áttu jafnframt fjarfund með efnahagsmálaráðherra Úkraínu, Yliia Svyrydenko, þar sem viðræðum um uppfærslu á fríverslunarsamningi EFTA við Úkraínu var ýtt úr vör.

    23. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Tvíhliða samstarf og viðskipti efst á baugi í heimsókn ráðherra til Grænlands

    Tvíhliða samstarf Íslands og Grænlands, bæði pólitískt og efnahagslegt, var í brennidepli í heimsókn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra til Grænlands í vikunni.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband