25. sep. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál
Ráðherrafundur um fjölskyldu- og jafnréttismál í Helsinki
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem staddur er í Finnlandi á nú meðal annars í viðræðum við þarlend stjórnvöld um aukið samstarf á sviði félags- og jafnréttismála. Annika Saarikko, ráðherra fjölskyldu- og félagsmála, bauð Ásmundi Einari í heimsókn til að ræða verkefni sem eru sameiginleg embættum þeirra, í kjölfar fundar kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í mars síðastliðnum.