18. nóv. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins
Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2023
Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2023. Álögð gjöld á lögaðila nema 308,2 ma.kr. og hækka um 25,3 ma.kr. á milli ára. Stærstu einstöku breytingarnar er að finna í tryggingagjaldi sem hækkar um 15,6 ma.kr. á milli ára og þar á eftir kemur tekjuskattur lögaðila sem hækkar um 8,0 ma.kr. frá fyrra ári.