Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 2063
    Raða eftir:
    19. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamótasamningur tryggir heildstæða og aðgengilegri meðferð við fíknsjúkdómi

    ​Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa undirritað nýjan heildarsamning um meðferð við fíknsjúkdómi. Samningurinn markar tímamót í íslenskri heilbrigðisþjónustu og felur í sér mikilvæga viðurkenningu á fíknsjúkdómi sem alvarlegum og langvinnum heilbrigðisvanda sem krefst samfelldrar og faglegrar meðferðar.

    19. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um þjónustu Frú Ragnheiðar með stórauknu fjármagni

    Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um framlengdan og breyttan samning um skaðaminnkandi þjónustu Frú Ragnheiðar fyrir einstaklinga með vímuefnavanda. Fjármagn til starfseminnar hækkar úr tæpum 23 milljónum króna í 50 milljónir króna á ársgrundvelli. „Eins og fram kemur í stjórnarsáttmála leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á að efla meðferðarúrræði vegna fíknivanda og auka fjármagn til málaflokksins. Skaðaminnkun og lágþröskuldaþjónusta í nærumhverfi þeirra viðkvæmu einstaklinga sem Frú Ragnheiður sinnir er liður í því að bæta þjónustu við fólk sem glímir við fíkn og mikilvægt fyrir samfélagið allt,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    18. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimsókn geðheilbrigðisráðherra Írlands – upphaf að samstarfi frændþjóða

    Mary Butler, geðheilbrigðisráðherra Írlands kom nýverið í heimsókn til Íslands til að efla samvinnu í geðheilbrigðismálum, deila reynslu og lausnum í þeim áskorunum sem þjóðirnar standa frammi fyrir. Það var heilbrigðisráðherra Ölmu D. Möller sönn ánægja að taka á móti Mary Butler og sendinefnd hennar. Sérfræðingar heilbrigðisráðuneytisins, heilbrigðisþjónustunnar og fulltrúar hagsmunasamtaka kynntu íslenska stefnumótun á sviðinu, þjónustu, áskoranir og tækifæri. Ráðuneytið færir þeim þakkir fyrir þeirra góðu kynningar og gagnlegu umræður.

    18. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á heilbrigðisviðbúnaði Íslands við bráðum lýðheilsuógnum

    Heilbrigðisráðuneytið birtir íslenska þýðingu á mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri.

    11. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Inflúensufaraldur á uppleið – einstaklingar í áhættuhópum hvattir til bólusetningar

    Einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu gegn inflúensu, einnig þótt þeir hafi þegar veikst af inflúensu í haust eða vetur. Heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili eru hvött til að gera eigin ráðstafanir varðandi almennar sóttvarnir til að minnka smitdreifingu innan stofnunar á flensutímanum. Inflúensan er fyrr á ferðinni en síðastliðna vetur, faraldurinn stendur yfir og er enn á uppleið. Fyrstu vikuna í desember lágu 27 einstaklingar á Landspítala með inflúensu.

    08. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vill draga úr vottorðaskrifum vegna veikindafjarvista

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra telur brýnt að skoða með haghöfum hvernig fækka megi veikindavottorðum og breyta verklagi við útgáfu þeirra með skilvirkni og gæði þjónustunnar að leiðarljósi. Heilbrigðisráðuneytið vinnur að því að fækka útgáfum vottorða og tilvísana til að draga úr skriffinnsku og hafa þegar verið stigin skref í þá átt. Markmiðið er að auka tíma lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks til að sinna sjúklingum, bæta þannig aðgengi að heilsugæslunni og styrkja hlutverk hennar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu.

    05. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að frumvarpi um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi sem hefur að meginmarkmiði að veita Lyfjastofnun heimildir til að bregðast við lyfjaskorti. Frumvarpsdrögin eru að miklu leyti samhljóma frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi en þó með breytingum sem raktar eru í greinargerð. Umsagnarfrestur er til 2. janúar.

    02. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigurður Þórarinsson skipaður forstöðumaður Stafrænnar heilsu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð Þórarinsson, tækni- og nýsköpunarstjóra Landspítala, í embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu – þróunar- og þjónustumiðstöðvar sem tekur til starfa 1. janúar 2026. Stafræn heilsa verður miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið, starfrækt sem hluti af heilbrigðisráðuneytinu á grundvelli 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Þar verða sameinuð verkefni sem áður hafa verið dreifð, t.d. hjá Landspítala, embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilbrigðisþjónustu og ráðuneytinu. Í hinni nýju einingu verður einnig áhersla á starfræna nýsköpun þar með talið samskipti og stuðning við aðila á markaði.

    26. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Funduðu með forstjóra, fulltrúum lækna og fagráði SAk vegna læknamönnunar

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri, aðstoðarmaður ráðherra og sérfræðingur ráðuneytisins á sviði mannauðsmála funduðu í gær með framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), fulltrúum lækna og fagráði SAk vegna erfiðrar stöðu á SAk við mönnun ákveðinna sérgreina, þá sér í lagi lyflækninga.

    25. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkjum úthlutað til nýrra verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið úthlutun 50 milljóna króna til sex verkefna sem styðja við markmið byggðaáætlunar stjórnvalda um eflingu fjarheilbrigðisþjónustu. Hæstu styrkirnir renna til verkefnis um fjarvöktun bráðveikra nýbura á landsbyggðinni og til innleiðingar á langtímaeftirliti með langveikum sjúklingum með nýtingu gervigreindar. Heilbrigðisráðuneytið fjármagnar 30 milljónir króna af styrkfjárhæðinni en 20 milljónir króna koma af byggðaáætlun.

    21. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjölmennasta heilbrigðisþingið til þessa – viðfangsefnið var endurhæfing

    Um 500 manns sóttu heilbrigðisþing um endurhæfingu – leiðir til betra lífs sem fram fór í gær og mikill fjöldi fylgdist með í beinu streymi. Þessi mikla þátttaka endurspeglar áhugann á viðfangsefninu, enda má ætla að um þriðjungur fólks þurfi á endurhæfingu að halda einhvern tíma á lífsleiðinni og fjöldi fagstétta með margvíslega menntun og sérhæfingu starfar á sviði endurhæfingar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra setti þingið og sagði þar meðal annars frá yfirstandandi vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar í þessum mikilvæga málaflokki. Þingið var haldið sem liður í því viðamikla verkefni en fjölmargir aðilar hafa þegar komið að verkinu, meðal annars á fjölmennri vinnustofu nýverið.

    21. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar á lögum um sjúkraskrár samþykktar á Alþingi

    Skýr ákvæði um aðgengi fólks að eigin sjúkraskrárupplýsingum og breytingar sem stuðla að þróun stafrænna lausna, betri þjónustu og bættu öryggi sjúklinga eru meginefni frumvarps Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkraskrár sem samþykkt var á Alþingi í vikunni. Markmið breytinganna er einnig að auka skilvirkni heilbrigðisþjónustu við landsmenn og draga úr skriffinnsku.

    19. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fullt hús á heilbrigðisþingi um endurhæfingu – bein útsending

    Endurhæfing – leiðir til betra lífs, er yfirskrift árlegs heilbrigðisþings heilbrigðisráðherra sem fram fer fimmtudaginn 20. nóvember á Hótel Hilton Nordica. Á sjötta hundrað manns hafa skráð sig á þingið og ekki húsrúm fyrir fleiri, en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Dagskráin er fjölbreytt og margir áhugaverðir fyrirlestrar um endurhæfingu ásamt pallborðsumræðum um skipulag endurhæfingar, áskoranir og framtíðarsýn. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við stefnumótun í endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins og er þingið liður í því starfi.

    18. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vill auka öryggi sérhæfðra sjúkraflutninga

    Alma D. Möller hefur falið Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) að undirbúa kaup á sjúkrabíl til sérhæfðra sjúkraflutninga, á grundvelli samnings SÍ við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ). Slíkur bíll myndi auðvelda og auka öryggi við flutning mjög veikra sjúklinga milli gjörgæsludeilda Landspítala eða fyrir sjúkraflug, við sérhæfðan sjúkraflutning nýbura og fyrirbura og aðra sjúkraflutninga milli stofnana þar sem öryggi er best tryggt með sérhæfðum búnaði.

    18. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vitundarvakning um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi

    Sóttvarnastofnun Evrópu helgar 18. nóvember vitundarvakningu um sýklalyf og í dag hefst jafnframt vitundarvika Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um sýklalyfjaónæmi. Tilgangurinn er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsfólk og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum. Hér á landi er notkun sýklalyfja og byrði af völdum ónæmra sýkla mest hjá elstu aldurshópunum. Sóttvarnalæknir helgar því árlegt málþing sitt um sýklalyfjanotkun því hjúkrunarheimilum.

    17. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Norrænt samstarf gegn áhrifum tóbaks- og nikótíniðnaðarins á lýðheilsu

    Heilbrigðisráðherrar Íslands, Noregs og Danmerkur hafa staðfest sameiginlegan vegvísi, með hliðsjón af grein 5.3 í rammasamningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaksvarnir. Vegvísirinn veitir leiðsögn um hvernig megi draga úr áhrifum tóbaks- og nikótíniðnaðarins á lýðheilsustefnu stjórnvalda.

    14. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðheilsuteymi fangelsa fært til Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að geðheilsuteymi fangelsa verði fært frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) til Landspítala (LSH). Ákvörðunin byggir á sameiginlegri greiningu stjórnenda og fagfólks HH og LSH sem telja rík fagleg rök mæla með tilfærslunni. Þar vegi þungt samlegðaráhrif við þjónustu Réttar- og öryggisgeðdeildar spítalans og einfaldari þjónustuferlar fyrir fanga. Þessi breyting fellur að markmiðum um að efla aðgengi og gæði heilbrigðisþjónustu við viðkvæma hópa og tryggja samfellda, samþætta og faglega þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Undirbúningur að yfirfærslunni hefst strax og er gert ráð fyrir að geðheilsuteymi fangelsa verði að fullu tekið til starfa á Landspítala 1. maí á næsta ári.

    14. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjónum beint að lyfjafölsunum á afmælisþingi Lyfjastofnunar

    Rík ástæða er til að vekja athygli á hættunni sem stafar af fölsuðum lyfjum en vitað er að lyfjafalsanir færast sífellt í aukana. Lyfjastofnun hélt nýverið afmælisþing í tilefni 25 ára afmælis stofnunarinnar og helgaði þingið umfjöllun um fölsuð lyf og ýmsar hliðar þessarar alvarlegu heilbrigðisógnar.

    13. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vitundarvakning um viðeigandi notkun myndgreiningar

    Samtök evrópskra geislavarnastofnana (HERCA) hafa sett af stað samskiptaherferð til að vekja athygli á og ýta undir notkun viðeigandi myndgreiningar. Geislavarnir ríkisins aðilar að samtökunum og stýra verkefninu hér á landi. Yfirskrift herferðarinnar er „Rétt myndgreining fyrir sjúklinginn minn“ og er markmiðið að vekja lækna sem senda sjúklinga í myndgreiningarrannsóknir til umhugsunar um hvað best sé fyrir sjúklinginn í hvert sinn og auka vitund um viðeigandi læknisfræðilega notkun jónandi geislunar til myndgreiningar.

    10. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir starf Píeta-samtakanna um 35 milljónir króna

    Heilbrigðisráðuneytið og Píeta-samtökin hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að styrkja starf samtakanna til að vinna gegn sjálfsvígum og efla forvarnir og fræðslu vegna sjálfsvígshættu og sjálfsskaða. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, og Hjálmar Karlsson og Gunnhildur Ólafsdóttir fyrir hönd Píeta-samtakanna, undirrituðu samkomulagið í liðinni viku sem kveður á um 35 milljóna króna styrk ráðuneytisins til Píeta.

    10. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir undirbúning náms í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Háskólann á Akureyri

    Heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Háskólann á Akureyri um tíu milljóna króna styrk vegna undirbúnings námsbrautar í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við skólann. Námið verður þriggja ára nám til BS-prófs (180 ECTS eininga nám á grunnstigi) og er stefnt að því að kennsla hefjist haustið 2026.

    06. nóv. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra sótti fund Evrópudeildar WHO

    Heilsa og vellíðan barna, aðgerðir til að sporna við ofbeldi gegn konum og börnum og nýsköpun á sviði lýðheilsu voru meðal áhersluverkefna sem fjallað var um á fundi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem haldinn var í Kaupmannahöfn í lok október. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sótti fundinn þar sem samþykkt var aðgerðaáætlun Evrópuskrifstofunnar til ársins 2030 (Second European Programme of Work 2026-2030). Áætlunin birtir forgangsröðun í heilbrigðismálum og sameiginlegar aðgerðir til að tryggja, efla og vernda heilsu fyrir alla og undirbúa heilbrigðiskerfi fyrir áskorunum framtíðarinnar.

    31. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með nöfn umsækjenda um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu- þróunar- og þjónustumiðstöðvar, sem auglýst var laust til umsóknar 10. október síðastliðinn. Tuttugu og fjórir sóttu um embættið.

    30. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breyting á lögum til að styrkja heilbrigðisviðbúnað í vá

    Frumvarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki hefur verið samþykkt á Alþingi. Lagabreytingin felur í sér lögfestingu á Evrópureglugerð (ESB) 2022/123 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu að því er varðar viðbúnað við krísu og krísustjórnun varðandi lyf og lækningatæki. Lögfest eru ​ákvæði um upplýsingaskyldu til Lyfjastofnunar Evrópu er varðar lyf og lækningatæki sem talin eru mikilvæg þegar bráð ógn við lýðheilsu eða meiriháttar atburður sem ógnar lýðheilsu stendur yfir, og til Lyfjastofnunar sem miðlar þeim áfram, hafi þær upplýsingar ekki þegar verið veittar, til Lyfjastofnun Evrópu.

    28. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Krabbameinsráð sett á fót

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sett á fót krabbameinsráð sem gegna mun hlutverki samráðsvettvangs um framkvæmd krabbameinsáætlunar. Skipun ráðsins er liður í aðgerðaáætlun í ​krabbameinsmálum sem samþykkt var á Alþingi í júní síðastliðnum.

    23. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi.

    23. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi.

    20. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Krafa um tilvísun til sjúkraþjálfara afnumin og verklagi breytt

    Núgildandi fyrirkomulag tilvísana og fyrirkomulag beiðna til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um aukinn meðferðafjölda í sjúkraþjálfun hefur reynst tímafrekt, ómarkvisst og kostnaðarsamt. Krafa um tilvísun sérfræðings, þurfi sjúkratryggður fleiri meðferðarskipti en sex, verður því afnumin 1. apríl 2026. Fleiri breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi þessara mála samhliða afnámi tilvísanaskyldunnar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir markmiðið að bæta stjórnsýslu, auka skilvirkni og draga úr sóun.

    15. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsugæslan þríefld í Hlíðunum

    „Heilsugæslan er hjartað í heilbrigðiskerfinu og starfsfólk hennar er púlsinn,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún ávarpaði starfsfólk og gesti við formlega opnun á starfsemi þriggja starfseininga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) í Skógarhlíð í gær. Auk heilsugæslu er þar til húsa Heilaörvunarmiðstöð HH og í þessum mánuði fluttist Geðheilsuteymi taugaraskana í þriðja rýmið í húsinu í Skógarhlíð sem HH hefur nú að fullu til umráða fyrir starfsemi sína.

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Stafræn heilsa

    Embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstöðumanns nýrrar einingar sem bera mun nafnið Stafræn heilsa - þróunar- og þjónustumiðstöð. Einingin verður hluti af heilbrigðisráðuneytinu og heyra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu og tryggja yfirsýn. Einnig að styðja við nýsköpun og þar með aðkomu einkaaðila. Til að byrja með munu verkefni Stafrænnar heilsu lúta að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum og nýsköpun. Auglýsing um embættið hefur verið birt á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 27. október næstkomandi.

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á heilbrigðisviðbúnaði við bráðri lýðheilsuvá á Íslandi

    Fulltrúar Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Evrópusambandsins (EU) luku nýlega mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri. Aðildarríki EES samningsins undirgangast slíkt mat á þriggja ára fresti. Niðurstaðan liggur nú fyrir í meðfylgjandi skýrslu. Skýrslan sem er á ensku verður þýdd á íslensku og birtist þýðingin innan tíðar.

    06. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi – eftirlit með innleiðingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra hafa staðfest áætlun um eftirlit með innleiðingu og framvindu verkefna aðgerðaáætlunar gegn sýklalyfjaónæmi.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Stafræn heilsa: Ný miðlæg eining til að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni, styðja við nýsköpun, þar með aðkomu einkaaðila og tryggja yfirsýn. Samhliða verður ráðist í styrkingu stjórnkerfis og stýringar stafrænnar heilbrigðisþjónustu.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmörkun á beitingu nauðungar – frumvarp til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og móta lagaramma um verklag þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá meginreglunni. Einnig eru lögð til ný ákvæði sem skilgreina nauðung og fjarvöktun auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa. Markmið frumvarpsins er að tryggja betur réttindi sjúklinga og er liður í viðbrögðum við athugasemdum umboðsmanns Alþingis og ítrekaðra tilmæla alþjóðlegra eftirlitsaðila um nauðsyn þess að settur verði skýr lagarammi um beitingu nauðungar.

    26. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Lyfjamál, Hagsýn í rekstri

    Breytingar á greiðsluþátttöku í lyfjakostnaði um næstu áramót

    Í kjölfar endurskoðunar á greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í lyfjakostnaði hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að gera breytingar á greiðsluþátttökukerfinu um næstu áramót.

    25. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Blóðbankinn fluttur í Kringluna

    Blóðbankinn hefur flutt starfsemi sína í Kringluna. Tímamótunum var fagnað með stuttu opnunarhófi í dag. Vonir eru bundnar við að staðsetning blóðbankans á einum fjölfarnasta stað höfuðborgarinnar verði til þess að fjölgi í hópi blóðgjafa. Til að mæta lágmarksþörfum heilbrigðiskerfisins þarf blóðbankinn um 16.000 blóðgjafir á ári, eða um 70 blóðgjafir á dag. Þörf er á 2.000 nýjum blóðgjöfum á ári í stað þeirra sem hætta að gefa vegna aldurs eða af öðrum ástæðum.

    24. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Læknamönnun á heilbrigðisstofnunum og lögmæti verktakasamninga

    Vegna frétta um uppsögn Sjúkrahússins á Akureyri á verktakasamningum við lækna sem nefndir hafa verið ferliverkasamningar, vill heilbrigðisráðuneytið koma á framfæri nokkrum atriðum sem greina á milli hefðbundinna verktakasamninga og samninga sem bera einkenni gerviverktöku og eru ólögmætir.

    22. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum

    Nýverið stóð stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið fyrir heilsdags vinnustofu með helstu haghöfum áfengis- og vímuefnameðferðarkerfisins og annarra velferðarkerfa. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn í mars síðastliðnum og fól honum það hlutverk að efla samskipti og samhæfingu milli þjónustuveitenda og stuðla að tímanlegri þjónustu fyrir notendur. Vinnustofan var haldin sem liður í því verkefni.

    18. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýbygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði í Fossvogi

    Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur fallist á umsókn Nýs Landspítala ohf. (NLSH) um að hefja deiliskipulagsgerð í Fossvogi með það fyrir augum að þar rísi framtíðarhúsnæði geðþjónustu Landspítala. Skipulagslýsing vegna verkefnisins var samþykkt á fundi ráðsins í gær. „Þetta eru stór tíðindi og gleðileg því varla er hægt að hugsa sér betri staðsetningu og umhverfi til að byggja upp húsnæði fyrir geðþjónustu sem uppfyllir nútíma kröfur um batamiðaða hönnun“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    12. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkja Bergið-headspace um 20 milljónir króna

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra og Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins-headspace undirrituðu í dag styrktarsamning sem kveður á um 20 milljóna króna fjárframlag ráðuneytanna til að styðja við starfsemi Bergsins. Hvort ráðuneyti um sig leggur til 10 milljónir króna. Samningurinn gildir til loka þessa árs.

    11. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, skoðaði aðstæður stofnunarinnar á Ísafirði þar sem er rekin sjúkradeild og heilsugæsla, auk þess að heimsækja hjúkrunarheimilið Eyri og hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Ráðherra nýtti jafnframt ferðina vestur til að heimsækja höfuðstöðvar Kerecis á Ísafirði.

    10. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Drög að frumvarpi tengt breyttu skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu til umsagnar

    Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu sem til fjölda ára hefur verið á hendi Heyrnar og talmeinastöðvar. Sett verður á fót sérhæfð, þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tekur að mestu við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar sem verður lögð niður. Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um niðurlagningu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    10. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Innsýn í þingmál heilbrigðisráðherra á 157. löggjafarþingi

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra er með þrettán þingmál á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 157. löggjafarþing. Þar af eru tíu lagafrumvörp, ein þingsályktunartillaga og tvær skýrslur til Alþingis. Sjö lagafrumvarpanna er áformað að leggja fram á Alþingi fyrir áramót. Þrjú þeirra hafa þegar verið samþykkt í ríkisstjórn og tvö af þeim voru lögð fram á Alþingi við setningu þingsins í gær.

    09. sep. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mat á stafrænni þróun á landsvísu Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    09. sep. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mat á stafrænni þróun á landsvísu Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    09. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Stafræn heilsa

    Stafræn þróun í heilbrigðiskerfinu – vegvísir til framtíðar

    Yfirgripsmikilli vinnu á vegum heilbrigðisráðuneytisins við formlegt mat á stafrænni þróun og gagnamálum í heilbrigðiskerfinu er lokið og hefur lokaskýrsla verkefnisins nú verið birt. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að skýrari forgangsröðun og samfellu í þjónustu, auknu aðgengi að gögnum og sameiginlegum innviðum sem tryggja skilvirkan og öruggan rekstur. Greiningunni og þeim tillögum sem birtast í skýrslunni er ætlað að vera vegvísir að stefnu til framtíðar.

    05. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forvörn gegn RS veiru tekin í almenna notkun fyrir ungbörn í fyrsta sinn á Íslandi

    Öllum ungbörnum undir sex mánaða aldri verður boðin forvörn gegn RS veirusýkingu frá og með október næstkomandi. Þetta er nýmæli. RS-veiran er algeng orsök öndunarfærasýkinga, sem leggst sérstaklega þungt á börn á fyrsta aldursári, og veldur árlega fjölda innlagna á sjúkrahús hérlendis og erlendis. Í alvarlegum tilvikum þurfa börn að leggjast inn á gjörgæslu og fá öndunarvélarstuðning. Mótefnið verður gefið á sjúkrastofnunum þar sem fara fram fæðingar eða 5 daga skoðun, sem og í ungbarnavernd á heilsugæslum. Eldri börn í áhættuhópum geta einnig fengið mótefnið á sjúkrahúsum eða heilsugæslum. Frá þessu er greint á vef embættis landlæknis.

    03. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lífsstílsmóttaka á heilsugæslu HSU fyrir börn með offitu gæti orðið fyrirmynd

    Undanfarin misseri hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) unnið að þróunar- og rannsóknarverkefni fyrir svokallaða lífsstílsmóttöku fyrir börn á heilsugæslustöðvum í umdæminu. Verkefnið hefur yfirskriftina ,,Kraftmiklir krakkar” og hefur það markmið að fást við offitu meðal barna á markvissan hátt. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir frumkvæði HSU mikilsvert framtak. Verkefnið lofi góðu og hún telji það geta orðið fyrirmynd að sambærilegri þjónustu á heilbrigðisstofnunum um allt land. Horft verði til þess við mótun aðgerðaáætlunar gegn offitu sem unnið sé að í ráðuneytinu.

    02. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sálfræðiþjónusta við fullorðna – gildistími tilvísana tvöfaldaður

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tvöfalda gildistíma tilvísana frá heilsugæslu sem er skilyrði fyrir meðferð fullorðinna hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum á samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Gildistíminn hefur verið sex mánuðir en verður tólf. Reglugerð ráðherra þessa efnis tekur gildi 15. september.

    02. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Hagræðing og tiltekt í heilbrigðiskerfinu

    Í upphafi árs tók heilbrigðisráðherra ákvörðun um að ráðast í 38 aðgerðir til hagræðingar og einföldunar í heilbrigðiskerfinu í samræmi við markmið ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um hagræðingu og hagsýni í ríkisrekstri. Aðgerðirnar eru mislangt komnar, fimm er þegar lokið en ráðuneytið hefur mótað skýra sýn á framhald þeirra aðgerða sem áfram er unnið að.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband