Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1001–1050 af 3013
    Raða eftir:
    19. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta skóflustungan tekin að bílastæða- og tæknihúsi Nýs Landspítala

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýju 19.000 fermetra bílastæða- og tæknihúsi Nýs Landspítala við Hingbraut. Í húsinu verða 500 bílastæði og 200 hjólastæði. Nýlokið er jarðvinnu vegna uppbyggingar rannsóknahúss og vinna við að steypa upp meðferðarkjarna nýja spítalans er í fullum gangi.

    19. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt fyrir nýjum sóttvarnalögum á Alþingi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti í vikunni fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga á Alþingi. Meginbreytingar frá gildandi löggjöf sem lagðar eru til í frumvarpinu varða stjórnsýslu sóttvarnaráðstafana og opinberar sóttvarnaráðstafanir. Verði frumvarpið að lögum mun það breyta umtalsvert þeirri aðferðafræði sem kveðið er á um í gildandi sóttvarnalögum að því er varðar ákvarðanir um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Vegur þar þyngst tilkoma nýrrar farsóttanefndar sem tekur við hlutverki sóttvarnalæknis að hluta við að koma fram með tillögur að opinberum sóttvarnaráðstöfunum til ráðherra. Þannig mun frumvarpið hafa töluverð áhrif á stjórnsýslu sóttvarna.

    19. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt fyrir þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir tillögu til ályktunar Alþingis um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Tillagan tekur mið af ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu og er í henni lögð áhersla á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum.

    16. maí 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 10/2022

    Í málinu hafði kærandi kært synjun embættis landlæknis á því að verða við banni um að barn hennar fengi bólusetningu gegn Covid-19. Í úrskurði ráðuneytisins var talið að embætti landlæknis hefði afgreitt erindi kæranda með hliðsjón af ákvæðum barnalaga. Var það mat ráðuneytisins að afgreiðsla erindisins hefði ekki falið í sér töku ákvörðunar um réttindi eða skyldur í skilningi stjórnsýslulaga, sem væri kæranleg til ráðuneytisins á grundvelli þeirra laga. Þá hefði embættinu ekki borið að leggja málið í farveg stjórnsýslumáls sem lokið hefði með töku stjórnvaldsákvörðunar. Að þessu virtu var kærunni vísað frá ráðuneytinu.

    12. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga er í dag 12. maí

    Hjúkrunarfræðingar um allan heim halda í dag upp á alþjóðadag hjúkrunarfræðinga til að varpa ljósi á framlag hjúkrunarfræðinga til samfélagsins og mikilvægi starfa þeirra. Dagurinn er fæðingardagur bresku hjúkrunarkonunnar Florence Nightingale, oft kölluð „konan með lampann“ sem var brautryðjandi á sviði nútímahjúkrunar. Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga beinir því til stjórnvalda víðsvegar að fjárfesta í hjúkrun. Það sé grundvallaratriði til að mæta sívaxandi þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og takast á við þær áskoranir sem framundan eru.…

    12. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta skóflustungan að nýju hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ

    Heilbrigðisráðherra, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum og formaður ungmennaráðs Reykjanesbæjar tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili á Nesvöllum í Reykjanesbæ sl. föstudag. Á nýja heimilinu verður aðstaða fyrir 60 íbúa. Húsið verður 3.900 fermetrar að stærð og samtengt nýlegu 60 rýma hjúkrunarheimili sem fyrir er á Nesvöllum. Áætlað er að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2024.

    10. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstamiðstöð Landspítala – þróun og nýsköpun í göngudeildarþjónustu

    Einstaklingsmiðuð þjónusta, teymisvinna og nýsköpun eru lykilatriði í þjónustu brjóstamiðstöðvar Landspítala sem tók til starfa fyrir rúmu ári í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum við Eiríksgötu 5 í Reykjavík. Með opnun brjóstamiðstöðvar - göngudeildar var sameinuð á einum stað sérfræðiþjónusta Landspítala vegna brjóstaskimunar og greiningar og meðferðar brjóstameina. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, segir brjóstamiðstöðina byggja á nútímalegri nálgun við skipulag og veitingu göngudeildarþjónustu. Hún feli í sér fordæmi og fyrirmynd sem byggt verði á við áframhaldandi þróun göngudeildarþjónustu í starfsemi Landspítala.

    10. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Barnasáttmálinn, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Fyrirtaka Íslands hjá barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, áréttaði mikilvægi réttinda barna og aðgerðir íslenskra stjórnvalda til að festa þau enn betur í sessi í ávarpi fyrir barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf 4.–5. maí. Nefndin tók þá fyrir fimmtu og sjöttu skýrslu Íslands um framkvæmd Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

    09. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið um nýbyggingu fyrir 44 íbúa við hjúkrunarheimilið Hamra í Mosfellsbæ

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um stækkun hjúkrunarheimilisins Hamra í Mosfellsbæ. Reist verður nýbygging áföst heimilinu fyrir 44 íbúa. Þar með ríflega tvöfaldast stærð heimilisins með aðstöðu fyrir samtals 77 íbúa. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist seinni hluta næsta árs og að hægt verði að taka heimilið í notkun í ársbyrjun 2026.

    03. maí 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samráðsfundur með forstjórum heilbrigðisstofnana

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hélt í liðinni viku reglubundinn samráðsfund með forstjórum heilbrigðisstofnana ásamt starfsfólki ráðuneytisins. Slíkir fundir eru haldnir ársfjórðungslega og er markmið þeirra að ræða helstu áskoranir í heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma, efla samstarf stofnananna og deila þekkingu og reynslu. Á fundinum var sérstaklega rætt um heilbrigðisþjónustu við flóttafólk, bætta og skilvirkari þjónustu með aukinni hagnýtingu heilbrigðis- og velferðartækni og um áherslur í mannauðsmálum í kjölfar langvarandi vinnuálags í heimsfaraldri.

    29. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Fagráð um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu verður sett á fót

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja á fót fagráð um forgangsröðun í samræmi við ályktun Alþingis um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Fagráðinu er ætlað að leiða faglega umræðu um forgangsröðun og siðferðileg gildi að baki henni og veita leiðsögn á þessu sviði. Ákvörðun ráðherra byggist á niðurstöðu starfshóps sem skipaður var á grundvelli þingsályktunarinnar.

    29. apr. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2022

    Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis, um að veita honum áminningu vegna ólögmætra uppflettinga í sjúkraskrá, til ráðuneytisins. Í úrskurðinum vísaði ráðuneytið til þess að brot sem vörðuðu persónuvernd sjúklinga væru litin alvarlegum augum í lögum um sjúkraskrár og að brot kæranda hefðu lotið að þeim meginhagsmunum sem lögunum væri ætlað að vernda, þ.e. friðhelgi einkalífs sjúklinga. Var það einnig mat ráðuneytisins að aldur brotanna leiddi ekki til þess að embætti landlæknis hefði, á grundvelli meðalhófsreglna, borið að grípa til vægara úrræðis en áminningar. Var ákvörðun embættis landlæknis um að áminna kæranda því staðfest.

    22. apr. 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Ísland tekur sérstaklega á móti allt að 140 einstaklingum í viðkvæmri stöðu frá Úkraínu

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra um að fallast á útfærslu flóttamannanefndar um móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu vegna þess ástands sem hefur skapast í landinu í kjölfar innrásar Rússlands.

    19. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Allt að 750 milljónir í aðgerðir til að bregðast við félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19

    Allt að 750 m.kr. verður varið á þessu ári til sértækra aðgerða til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19. Þetta var ákveðið á síðasta fundi ríkisstjórnarinnar fyrir páska. Stjórnvöld hafa frá upphafi heimsfaraldursins lagt ​áherslu á að vinna gegn félagslegum og heilsufarslegaum áhrifum hans, einkum á viðkvæma hópa og eru þessar aðgerðir liður í því.

    13. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu

    Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hafa gert með sér nýjan samning um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu til næstu fimm ára.

    12. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra úthlutar 81,5 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði

    Hinn 11. apríl fór fram athöfn í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík þar sem heilbrigðisráðherra úthlutaði styrkjum úr Lýðheilsusjóði, að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs. Í ár var styrkjum úr Lýðheilsusjóði úthlutað til fjölbreyttra verkefna á sviði geðræktar, næringar, kynheilbrigðis, hreyfingar og íþróttaiðkunar, áfengis-, vímu- og tóbaksvarna auk almennrar heilsueflingar. Alls veitti heilbrigðisráðherra styrki til 151 verkefnis og nema þeir rúmlega 81,5 milljónum króna.

    12. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2022. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    08. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningar um aukið fjármagn til hjúkrunarheimila og úrbætur til framtíðar

    Fjármagn til hjúkrunarheimila verður aukið og þjónusta við íbúa bætt samkvæmt nýgerðum samningum Sjúkratrygginga Íslands um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Samningarnir eru til þriggja ára og nemur heildarfjármagn til þeirra tæpum 130 milljörðum króna. Á samningstímanum verður unnið að verkefnum sem miða að bættu rekstrarumhverfi heimilanna til framtíðar og auknum gæðum þjónustu þeirra.

    08. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra heimsækir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

    Heilbrigðisráðherra var í gær viðstaddur opnun nýrrar röntgendeildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Röntgendeildin er fyrsti áfangi tengdur endurbótum á nýrri aðstöðu bráðamóttöku stofnunarinnar.

    07. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðaheilbrigðisdagurinn tileinkaður loftslagsbreytingum og lýðheilsu

    Hinn 7. apríl ár hvert heldur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) stofndag sinn hátíðlegan með því að vekja athygli á tilteknu málefni sem er þýðingarmikið á alþjóðavísu fyrir heilsu einstaklinga og almennt heilbrigði. Að þessu sinni eru loftslagsmál í brennidepli og alvarleg áhrif mengunar á lýðheilsu. Stofnunnin áætlar að árlega megi rekja um 13 milljónir dauðsfalla til alvarlegra umhverfisáhrifa af mannavöldum. Sjónum er sérstaklega beint að mengun sem stuðlar að sjúkdómum á borð við krabbamein, astma og hjartasjúkdóma. Áhersla er lögð á hvernig samfélög þjóða geti tekið höndum saman um aðgerðir til að sporna við mengun og stuðla þannig að bættu heilbrigði og auknum lífsgæðum fólks um heim allan.

    06. apr. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 8/2022

    Í málinu höfðu almenn samtök kvartað til embættis landlæknis vegna aðgerða sóttvarnalæknis í tengslum við bólusetningar barna. Embætti landlæknis tók kvörtunina ekki til meðferðar og kærðu samtökin þá málsmeðferð til ráðuneytisins. Í úrskurði ráðuneytisins var rakið hverjir gætu fengið kvörtun á grundvelli 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu til meðferðar hjá landlækni, en það væri að meginstefnu til bundið við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Væri kvartandi annar en sjúklingur eða aðstandandi sjúklings þyrfti hann að hafa hagsmuna að gæta í máli til að kvörtun yrði tekin til meðferðar. Taldi ráðuneytið að ekki yrði séð að kærandi í málinu hefði lögvarinna eða sérstakra hagsmuna að gæta af því að fá álit landlæknis um þau atriði sem kvartað var undan.…

    04. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Sigurjón Jónsson verður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi. Sigurjón er með BSc próf í markaðsfræðum frá Auburn háskólanum í Alabama. Hann hefur á annað ár verið starfsmaður þingflokks Framsóknar og unnið að kynningarmálum og ýmsum öðrum verkefnum.

    04. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Vel heppnuð vinnustofa um þjónustutengda fjármögnun

    Stjórnendur og sérfræðingar stofnana og ráðuneyta sem koma að innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisþjónustu (DRG), sátu í liðinni viku tveggja daga vinnustofu sem heilbrigðisráðuneytið efndi til um þetta viðamikla verkefni. Erlendir sérfræðingar á þessu sviði frá alþjóðlegu samtökunum PCSI (Patient Classifications Systems International) voru í lykilhlutverki á námskeiðinu sem haldið var á Hótel Örk í Hveragerði. Samtökin eru vettvangur sérfræðinga sem starfa innan heilbrigðisstofnana, á sviði stjórnsýslu og í fræðasamfélaginu um allan heim. Markmið þeirra er að styðja við notkun þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisþjónustu og styrkja vísindalegan þekkingargrunn þessarar aðferðafræði.

    04. apr. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 7/2022

    Í málinu hafði kærandi kvartað til embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu í kjölfar slyss sem hann hafði lent í árið 1978, þá 14 ára gamall, sem mun enn hafa andlegar og líkamlegar afleiðingar. Embætti landlæknis vísaði kvörtun kæranda frá á grundvelli 4. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, þar sem atvik væru eldri en 10 ára og sérstakar ástæður mæltu ekki með því að kvörtunin yrði tekin til meðferðar. Í úrskurði ráðuneytisins var talið að litlar líkur væru á því að málið yrði upplýst með fullnægjandi hætti auk þess sem erfitt væri að meta hvort heilbrigðisþjónusta sem kæranda hefði verið veitt hefði samrýmst almennt viðurkenndum aðferðum þess tíma. Þá var það mat ráðuneytisins að málið hefði ekki almenna þýðingu fyrir eftirlitshlutverk embættis landlæknis.…

    04. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þróun Covid-19 faraldursins frá afléttingu sóttvarnaráðstafana 25. febrúar sl.

    Covid-19 faraldurinn hér á landi er á hröðu undanhaldi eftir að öllum takmörkunum vegna hans var aflétt 25. febrúar síðastliðinn. Á þeim tíma var gert ráð fyrir að víðtækt samfélagslegt ónæmi gegn faraldrinum, með allt að 80% hlutfalli bólusettra og/eða smitaðra, myndi nást síðari hlutann í mars. Þetta virðist hafa gengið eftir. Álag á heilbrigðisstofnanir fer minnkandi og smitum fækkandi sem m.a. má sjá af því að hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda greindra smita hefur lækkað. Í dag, 4. apríl, liggja 35 sjúklingar með Covid-19 smit á Landspítala, þar af 1 á gjörgæslu og hafa ekki verið færri síðan 12. febrúar síðastliðinn.

    01. apr. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu.​ Veittir verða styrkir til afmarkaðra verkefna og tæknilausna sem stuðlað geta að umbótum, nýbreytni eða auknum gæðum. Ekki eru veittir ferðastyrkir. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á heilsueflingu og nýtingu nýrra lausna til að auka gæði þjónustu og hagkvæmni. Verkefnin þurfa að hafa skýran ávinning fyrir heilbrigðisþjónustuna og þann hóp sem þjónustan beinist að. Styrkirnir eru veittir til stofnana á sviði heilbrigðismála, einstaklinga og fyrirtækja. Fyrirtæki eða einstaklingar sem sækja um styrki þurfa að gera það á grundvelli samstarfs við heilbrigðisstofnanir.

    28. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Yfirlýsing norrænna heilbrigðisráðherra um viðbúnað gegn heilbrigðisvá

    Heilbrigðisráðherra Norðurlandanna vilja efla norrænt samstarf til að styrkja heilbrigðisviðbúnað og viðnámsþol Norðurlandaþjóðanna og Evrópu í heild. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sótti fund norrænna heilbrigðisráðherra í Stafangri fyrir helgi þar sem ráðherrarnir undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu þessa efnis. Yfirlýsingin byggir á sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandaþjóðanna um eflingu norrænna almannavarna.

    28. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stækkun hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði – framkvæmdir hefjast í haust

    Hjúkrunarrýmum á Ísafirði fjölgar um tíu með viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði. Samningur heilbrigðisráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar um framkvæmdina hefur verið undirritaður. Framkvæmdir hefjast í haust. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tekið í notkun snemma árs 2024. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er rúmar 550 milljónir króna og greiðir ríkissjóður 85% kostnaðarins á móti 15% bæjarfélagsins.

    25. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málþing um upplýst samþykki í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði 1. apríl

    Vakin er athygli á málþingi Vísindasiðanefndar í Veröld, húsi Vigdísar þann 1. apríl kl. 12:30 – 15:30. Á fundinum verður fjallað um upplýst samþykki í vísindarannsóknum frá ýmsum hliðum, hvað það er og hvað það felur í sér. Markmiðið er að vekja umræðu og veita fræðslu um þetta málefni. Málþingið hefst með ávarpi Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Erindi flytja Sigurður Guðmundsson fyrrum landlæknir, Flóki Ásgeirsson lögmaður, og Henry Alexander Henrysson heimspekingur, en þeir þrír eiga allir sæti í vísindasiðanefnd, Ingileif Jónsdóttir, prófessor og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu og Salvör Nordal heimspekingur og umboðsmaður barna.…

    23. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar varðandi sýnatöku til greiningar á COVID-19 frá og með 1. apríl

    Þann 1. apríl nk. fellur úr gildi reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna sýnatöku til greiningar á COVID-19. Reglugerðin tók fyrst gildi 16. september sl. og fól í sér að einkaaðilar sem önnuðust hraðpróf til greiningar á COVID-19, t.d. vegna hraðprófsviðburða eða útgáfu vottorða fyrir ferðamenn, gátu boðið þá þjónustu endurgjaldslaust. Frá og með 1. apríl verður einkennasýnatöku áfram sinnt hjá heilsugæslu og heilbrigðisstofnunum. Þar verður einnig í boði sýnataka fyrir ferðamenn sem þurfa vottorð vegna ferðalaga gegn gjaldi. Það má gera ráð fyrir því að einkaaðilar bjóði áfram upp á sýnatöku en sem fyrr segir verður niðurgreiðslum hins opinbera vegna sýnatöku hjá einkaaðilum hætt 1. apríl nk.

    23. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nikótínvörur felldar undir lög um rafrettur samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra

    Gert er ráð fyrir að sömu reglur muni í meginatriðum gilda um nikótínvörur og nú gilda um rafrettur samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra sem hann mælti fyrir á Alþingi í gær. Meginmarkmiðið er að tryggja gæði og öryggi þessa varnings og tryggja með tiltækum ráðstöfunum að börn kaupi hvorki né noti nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

    23. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp heilbrigðisráðherra um stjórn Landspítala komið til umfjöllunar Alþingis

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu sem kveður á um skipan stjórnar Landspítala og er það nú komið til umfjöllunar velferðarnefndar Alþingis. Með skipun stjórnar er horft til þess að styrkja stjórnun og faglegan rekstur spítalans í ljósi hlutverks hans sem stærstu heilbrigðisstofnunar Landsins. Stjórninni er einnig ætlað að fylgja eftir ákvörðun um uppbyggingu gjörgæslu og bráðadeildar í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og gegna stefnumarkandi hlutverki í þeirri þróun.

    22. mar. 2022Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla um framtíðarþróun þjónustu Landspítala / (e. The future development of Landspítali’s services)

    mars 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Skýrsla um framtíðarþróun þjónustu Landspítala / (e. The future development of Landspítali’s services) The future development of Landspítali’s services Framtíðarþróun þjónustu Landspítala (íslensk þýðing)

    22. mar. 2022Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Viðmið um skipulag hjúkrunarheimila, 3. útgáfa

    mars 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Viðmið um skipulag hjúkrunarheimila, 3. útgáfa Viðmið um skipulag hjúkrunarheimila, 3

    22. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Uppfærð viðmið um skipulag hjúkrunarheimila

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest uppfærð lágmarksviðmið um byggingu og starfsemi hjúkrunarheimila. Þetta er þriðja útgáfa viðmiðanna sem síðast voru gefin út árið 2014. Markmiðið með endurskoðun þeirra er að bæta skipulag á hjúkrunarheimilum og stuðla að aukinni hagkvæmni í rekstri þeirra.

    18. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á framtíðarþróun þjónustu Landspítala til ársins 2040

    Heilbrigðisráðuneytið birtir skýrslu með greiningu á framtíðarþjónustu Landspítala til ársins 2040. Frá því að bygging nýs Landspítala hófst fyrir rúmum áratug hafa orðið margvíslegar breytingar í umhverfi heilbrigðisþjónustunnar. Þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu mun samhliða breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar halda áfram að vaxa á komandi árum. Það er því nauðsynlegt fyrir Landspítala að greina þörfina til að geta sinnt kjarnahlutverki sínu betur, í samspili við aðra þjónustuveitendur, til þess að mæta þeim áskorunum sem framundan eru. ​

    17. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Willum Þór fundaði með heilbrigðisráðherra Grænlands

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra átti í vikunni fund með Kirsten Fencker heilbrigðisráðherra Grænlands í Íslandsheimsókn hennar í vikunni. Helstu áskoranir heilbrigðiskerfanna, samningar milli þjóðanna á sviði heilbrigðismála og möguleikar frekara samstarfs og þekkingarmiðlunar, til dæmis við áframhaldandi uppbyggingu fjarheilbrigðisþjónustu, var meðal þess sem ráðherrarnir ræddu á fundi sínum.

    17. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Hlutföll kynja í nefndum heilbrigðisráðuneytis

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við jafnréttislög. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna þar sem hlutur kvenna er 56% á móti 44% hlut karla.

    15. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarpi um beitingu nauðungar vísað í samráðshóp

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verða við kalli Alþingis um aukið samráð við áformaðar breytingar á lögum um réttindi sjúklinga varðandi beitingu nauðungar. Að ósk hans hefur frumvarpið því verið tekið af dagskrá þingsins og mun hann setja á fót samráðshóp til að fjalla nánar um afstöðu notendahópa til málsins og mögulegar breytingar á frumvarpinu.

    15. mar. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið

    Farsælt samfélag fyrir alla – ráðstefna um tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Ráðstefnan er öllum opin og þátttaka er gjaldfrjáls.

    15. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Réttarstaða heilbrigðisstarfsfólks vegna alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu til skoðunar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að taka til skoðunar réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við tilkynningar og rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að bæta umgjörð og verklag við tilkynningar og rannsókn óvæntra atvika sem varða líf sjúklinga með áherslu á að auka öryggi sjúklinga almennt, styrkja öryggismenningu og skapa heilbrigðisstarfsfólki betri starfsskilyrði.

    11. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Unnið að bættri þjónustu við einstaklinga með endómetríósu

    Landspítali hefur að ósk heilbrigðisráðherra tekið saman upplýsingar um fjölda aðgerða vegna greiningar og meðferðar á endómetríósu (legslímuflakki) sem kalla ekki á sjúkrahúslegu og spítalinn telur unnt að útvista til annarra stofnana eða sjálfstætt starfandi sérfræðinga með þekkingu á sjúkdómnum. Ráðherra hefur jafnframt skipað starfshóp sem vinnur að því að greina hvernig þjónustu við einstaklinga með endómetríósu er nú háttað og gera tillögur um úrbætur.

    11. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðuneytið leitar að verkefnastjóra og lögfræðingi til starfa

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf verkefnastjóra í 18 mánuði á skrifstofu ráðuneytisstjóra, vegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2022-2023. Einnig er laust til umsóknar starf lögfræðings á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu. Þetta eru áhugaverð og fjölbreytt störf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.

    10. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030

    Birt hafa verið til umsagnar drög að þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Umsagnarfrestur er til 22. mars. Heilbrigðisráðherra hefur skipað samráðshóp til að setja fram aðgerðaáætlun um framkvæmd stefnunnar og verður hún fylgiskjal með þingsályktunartillögunni þegar hún verður lögð fyrir Alþingi. Formaður hópsins er Páll Matthíasson, doktor í geðlækningum.

    09. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðiskerfið undir miklu álagi – fólk hvatt til að gæta að smitvörnum

    Þótt öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum hafi verið aflétt hér á landi 25. febrúar síðastliðinn er faraldur Covid-19 ekki genginn yfir. Fjöldi smita greinist dag hvern og heilbrigðiskerfið er undir miklu álagi. Almenningur getur haft mikil áhrif á útbreiðslu smita með hegðun sinni. Fólk er því hvatt til að gæta vel að einstaklingsbundnum sýkingavörnum.

    08. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Fjaraugnlækningar á Vestfjörðum og efling fjarheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 20 milljóna króna framlag til að tryggja íbúum Vestfjarða greiðan aðgang að augnlækningum með uppbyggingu fjarlæknisþjónustu á því sviði. Ráðherra hefur einnig veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands 9 milljóna króna framlag til búnaðarkaupa í því skyni að efla fjarheilbrigðisþjónustu í umdæminu. Stærstur hluti fjárins kemur af byggðaáætlun til ársins 2024.

    08. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrstu 1000 dagar barnsins – niðurstöður norræns samstarfsverkefnis

    Nú liggja fyrir lokaniðurstöður norræna samstarfsverkefnisins; Fyrstu 1000 dagar barnsins á Norðurlöndunum sem Ísland efndi til í tengslum við formennskuár sitt í Norrænu ráðherranefndinni árið 2019. Verkefnið fólst í því að kortleggja hvernig Norðurlandaþjóðirnar hlúa að velferð og vellíðan barna á fyrstu æviárunum í gegnum meðgönguvernd, ung- og smábarnavernd, leikskóla og tengd þjónustukerfi og greina helstu styrkleika og veikleika í þessum efnum. Í lokaskýrslu verkefnisins eru lagðar fram tillögur til norrænna stjórnvalda um hvernig megi styðja betur við geðheilsu ungra barna og heilbrigt upphaf í lífinu.

    08. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Um 75 milljónir króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að heilbrigðismálum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 75 milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka sem vinna að heilbrigðismálum. Styrkir sem þessir eru veittir ár hvert af safnliðum fjárlaga til verkefna í þágu einstaklinga eða hópa, s.s. á sviði fræðslu og forvarna, ráðgjafar og stuðnings. Hæstu styrkina, 5,0 milljónir króna, hlutu Gigtarfélag Íslands, Bergið headspace, ADHD samtökin, Alzheimersamtökin, Rótin, Hjartaheill og SÍBS.

    02. mar. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Lyfjakostnaður lækkaður hjá lífeyrisþegum, börnum og ungmennum

    Hámarksgreiðsla aldraðra, örorkulífeyrisþega, barna og ungmenna í fyrsta þrepi greiðsluþátttökukerfis lyfja lækkar um rúm 20% úr 14.000 kr. í 11.000 kr., samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 1. apríl. Breytingin er í samræmi við markmið stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með áherslu á bæta stöðu viðkvæmra hópa og jafna aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu. Framlag ríkissjóðs vegna þessarar breytingar nemur um 270 milljónum króna á ársgrundvelli.

    01. mar. 2022Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Breyttar reglur um styrki vegna hjálpartækja fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum

    Sjúkratryggingar Íslands greiða nú styrki vegna tiltekinna hjálpartækja til íbúa hjúkrunarheimila sem áður hefur verið á hendi hjúkrunarheimilanna sjálfra að útvega og greiða fyrir. Þetta á t.d. við um tiltekin hjálpartæki vegna öndunarmeðferðar og blóðrásarmeðferðar, stoðtæki, stómahjálpartæki, göngugrindur, hjólastóla og fylgihluti með þeim og tölvur til sérhæfðra tjáskipta. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðir þessa efnis með gildistöku frá og með 1. mars. Markmið breytinganna er að bæta og auðvelda aðgengi íbúanna að hjálpartækjum. Að sama skapi léttir þetta kostnaði af rekstraraðilum hjúkrunarheimila sem nemur allt að 60 milljónum króna á ári.

    • First
    • Prev
    • 19
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband