15. maí 2009Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 14/2009
Kærandi fór í tímabundið launalaust leyfi frá starfi sínu hjá X að eigin ósk. Þann tíma er hann var í launalausu leyfi var hann ekki atvinnulaus í skilningi 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og hann hafði ekki misst fyrra starf sitt, sbr. 2. gr. laganna. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði a-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 14. gr. laganna, þar sem ekki var hægt að líta svo á að hann væri í virkri atvinnuleit meðan hann var með gildan ráðningarsamning.