Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1301–1350 af 1862
    Raða eftir:
    23. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf

    Ísland tekur þátt í gagnrýni á Sádi-Arabíu

    Ísland var í hópi ríkja sem í dag gagnrýndi ástand mannréttindamála í Sádí-Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Fastafulltrúi Ástralíu flutti ávarpið að þessu sinni og tók þar við keflinu af fastafulltrúa Íslands sem flutti yfirlýsingu fyrir hönd hópsins fyrr á árinu.

    20. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra styrkir tengslin við Bandaríkjaþing

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fundaði í vikunni með þingmönnum öldunga- og fulltrúadeildar Bandaríkjaþings með það að markmiði að efla tengslin á sviði efnahags- og viðskiptamála og kynna stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    12. sep. 2019Utanríkismál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Borgarnesfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna lokið

    Fundum utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í Borgarnesi lauk um hádegisbil í dag, en fundarhöld hófust í gær með síðbúnum sumarfundi norrænu ráðherranna. Alþjóða- og öryggismál og málefni norðurslóða voru í brennidepli á fundi NB8-ríkjanna, ásamt loftslagsmálum.

    11. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra bauð forsetahjónum Indlands til hádegisverðar á Þingvöllum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, bauð Shri Ram Nath Kovind, forseta Indlands, og Savita Kovind, forsetafrú, til hádegisverðar í Ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Þau ræddu loftslagsmál og möguleika Íslands og Indlands á auknu samstarfi á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Þá ræddu þau kynjajafnréttismál og fæðingarorlof.

    04. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundaði með varaforseta Bandaríkjanna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í kvöld. Fundurinn fór fram í húsnæði Landhelgisgæslunnar á Suðurnesjum skömmu eftir að forsætisráðherra kom til landsins frá Svíþjóð og Danmörku.

    04. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra og varaforseti Bandaríkjanna leiddu hringborðsumræður um viðskipti

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, leiddu hringborðsumræður um samstarf á sviði efnahags- og viðskiptamála og um vísinda- og menningarleg tengsl Íslands og Bandaríkjanna með forsvarsmönnum atvinnulífs beggja landa á fundi í Höfða

    03. sep. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkisráðuneytið

    Norræn framtíðarsýn í framkvæmd

    Samstarfsráðherrar Norðurlanda ræddu loftslagsbreytingar og nýja framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar á fundi í Edinborg í dag.

    03. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Forsætisráðherra ávarpar ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í Svíþjóð síðdegis í dag.

    02. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra og varaforseti Bandaríkjanna funda

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, munu hittast á fundi í tengslum við heimsókn hans til Íslands.

    27. ágú. 2019Innviðaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Heimsmarkmiðin, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra gestur á ungmennafundi um sjálfbæra þróun á Álandseyjum

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, var gestur á árlegum ungmennafundi á Álandseyjum, sem haldinn var um helgina.

    27. ágú. 2019Innviðaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Heimsmarkmiðin, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra gestur á ungmennafundi um sjálfbæra þróun á Álandseyjum

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, var gestur á árlegum ungmennafundi á Álandseyjum, sem haldinn var um helgina.

    21. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Grænland

    Guðlaugur Þór Þorðarson, utanríkisráðherra átti í dag fund með Ane Lone Bagger sem fer með utanríkismál í Grænlensku landsstjórninni þar sem ákveðið var að efla til reglulegs samráðs milli landanna. Hann er staddur í vinnuheimsókn á Grænlandi til að kynna sér starfsemi ýmissa fyrirtækja og sveitarfélaga en þónokkuð er um íslenskar fjárfestingar í þessum hluta landsins.

    19. ágú. 2019Dómsmálaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Formennska Íslands 2019, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók á móti kanslara Þýskalands á Þingvöllum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók á móti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, við Hakið á Þingvöllum í kvöld og gengu þær saman niður Almannagjá að ráðherrabústaðnum.

    19. ágú. 2019Dómsmálaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Formennska Íslands 2019, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók á móti kanslara Þýskalands á Þingvöllum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók á móti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, við Hakið á Þingvöllum í kvöld og gengu þær saman niður Almannagjá að ráðherrabústaðnum.

    19. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Formennska Íslands 2019, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra fundar með forsætisráðherra Finnlands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók síðdegis í dag á móti forsætisráðherra Finnlands, Antti Rinne, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

    09. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Milliríkjaviðskipti í brennidepli á fundi með bandarískum þingmönnum

    Aukið samstarf á sviði milliríkjaviðskipta og málefni norðurslóða voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og fjögurra bandarískra þingmanna í Reykjavík í dag.

    01. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Aldrei fleiri konur forstöðumenn sendiskrifstofa Íslands

    Í dag taka gildi flutningar á forstöðumönnum sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni. Með breytingunum eru konur nú í meirihluta forstöðumanna í tvíhliða sendiráðum Íslands í fyrsta sinn.

    16. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Innleiðingarhalli EES-gerða áfram innan við eitt prósent

    Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á eftir að innleiða 0,7 prósent EES-gerða hér á landi. Þetta er í þriðja sinn í röð sem innleiðingarhalli Íslands er eitt prósent eða minna, en það hefur aldrei gerst áður.

    12. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Mannréttindaráðið samþykkir ályktun Íslands um launajafnrétti

    Ályktun Íslands og fleiri ríkja um jöfn laun til handa konum og körlum var samþykkt einróma þegar hún kom til atkvæða í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf. Auk Íslands stóðu alls sjö ríki að ályktuninni.

    11. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ráðstefnu um fjölmiðlafrelsi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók þátt í ráðstefnu um fjölmiðlafrelsi sem fram fór í Lundúnum og lauk nú síðdegis. Ráðherra tók meðal annars þátt í pallborðsumræðum um öryggi blaðamanna þar sem hann lagði áherslu á að ríki létu til sín taka á vettvangi alþjóðastofnana

    11. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Ályktun Íslands um mannréttindaástand á Filippseyjum samþykkt

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun sem Ísland hafði lagt fram í ráðinu um stöðu mannréttindamála á Filippseyjum. Með samþykkt ályktunarinnar lýsir mannréttindaráðið formlega yfir áhyggjum af ástandinu á Filippseyjum, hvetur stjórnvöld í landinu til að stöðva aftökur á fólki án dóms og laga og draga þá til ábyrgðar sem hafa staðið fyrir slíku.

    28. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Fundað um viðskipta- og efnahagsmál með viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna

    Fulltrúi embættis viðskiptafulltrúa Bandaríkjaforseta (e. United States Trade Representative) og sendinefnd skipuð íslenskum embættismönnum, undir forystu utanríkisráðuneytisins, átti fund um viðskipta- og efnahagsmál í Reykjavík í gær.

    27. jún. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Mannréttindi og jafnrétti, Sendiskrifstofa, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna og fundar með framkvæmdastjóra Alþjóða Rauða krossins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag. Í ávarpi sínu ræddi forsætisráðherra um launajafnrétti sem réttindamál, hinsegin réttindi og réttinn til heilnæms umhverfis.

    27. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiskrifstofa

    Afvopnunarmál og Afganistan efst á baugi á fundi varnarmálaráðherranna

    Afvopnunarmál, staða og horfur í Afganistan og framlög aðildarríkja til varnarmála voru helstu umræðuefnin á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Brussel í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fundinn af hálfu Íslands en hann sótti jafnframt fund varnarmálaráðherra Norðurhópsins svonefnda þar sem viðbrögð við upplýsingaóreiðu voru ofarlega á baugi.

    26. jún. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundar með framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar SÞ og mannréttindastjóra SÞ

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna (OHCHR).

    24. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein lokið

    Staða fríverslunarviðræðna, horfur í alþjóðaviðskiptum, samskiptin við Evrópusambandið og Brexit voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu EFTA, sem fram fór í Liechtenstein í dag. Að frumkvæði Íslands verða ákvæði um jafnréttismál eftirleiðis hluti af samningsmódeli EFTA.

    24. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál

    Kostnaður vegna lögfræðiráðgjafar í tengslum við þriðja orkupakkann

    Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um kostnað vegna aðkeyptrar lögfræðiráðgjafar sem tengist þingsályktunartillögu um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 um breytingu á IV. viðauka (orka) við EES-samninginn.

    23. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Þrettán milljónum varið til verkefnis SÞ til stuðnings hinsegin réttindum

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal, sérstaks verkefnis sem skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna heldur utan um til að vinna að útbreiðslu réttinda hinsegin fólks hvarvetna í heiminum.

    23. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Deiliskipulag öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli

    Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast sam­kvæmt auglýsingu nr. 720/2015 um landfræðileg mörk öryggis­ og varnarsvæða.

    21. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Íslendingar velviljaðir þátttöku í alþjóðasamstarfi

    Þorri Íslendinga er jákvæður í garð alþjóðastofnana og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Þetta er niðurstaða könnunar sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið um viðhorf Íslendinga til alþjóðasamstarfs. Íslendingar eru sérstaklega jákvæðir í garð norræns samstarfs.

    21. jún. 2019Heimasendiherrar, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Sendiskrifstofa

    Loftferðasamningur við Úkraínu áritaður

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. júní 2019 / Utanríkisráðuneytið Loftferðasamningur við Úkraínu áritaður Sendinefnd Úkraínu naut íslenskrar rjómablíðu

    19. jún. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Fyrsti stjórnarnefndarfundur Norðurskautsráðsins í formennskutíð Íslands haldinn í Reykjanesbæ

    Ísland tók í byrjun maí síðastliðnum við formennsku í Norðurskautsráðinu til næstu tveggja ára. Dagana 18.-19. júní var fyrsti stjórnarfundur embættismannanefndar ráðsins, á formennskutíma Íslands, haldinn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Með fundinum er hrundið af stað röð reglubundinna funda Norðurskautsráðsins og tengdra viðburða sem fara munu fram víðsvegar um landið næstu tvö árin.

    12. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með forseta Þýskalands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Frank-Walter Steinmeier, forseta Þýskalands, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Formennska Íslands 2019

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi

    Öryggismál á Norður-Atlantshafi, fyrirhuguð verkefni Íslands í Kosovo, norrænt öryggismálasamstarf og fjölþátta ógnir voru aðalumræðuefnin á fundum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Stoltenberg er staddur hér á landi í heimsókn í boði forsætisráðherra.

    11. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar ræddu komu tyrkneska landsliðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi í morgun í síma við Mevlüt Çavuşoğlu, utanríkisráðherra Tyrklands, um komu tyrkneska karlalandsliðsins í knattspyrnu hingað til lands á sunnudaginn.

    07. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð við Bandaríkin og Japan

    Í dag fór fram fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna í reglulegu efnahagssamráði sem komið var á fót á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í febrúar síðastliðinn. Þá fór fram fyrsti fundur í tvíhliða efnahagssamráði milli Íslands og Japans í Tókýó.

    04. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Mannréttindamál og tvíhliða samskipti rædd á fundi með You Quan

    Tvíhliða samskipti Íslands og Kína, málefni norðurslóða og mannréttindamál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og You Quan, háttsettum embættismanni í miðstjórn kínverska Kommúnistaflokksins, sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    29. maí 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með bandarískri þingmannanefnd

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með bandarískri þingmannanefnd undir forystu Lisu Murkowski í Stjórnarráðinu í dag.

    29. maí 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Forsætisráðuneytið

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heldur fræðslufund um jafnlaunamál í samstarfi við forsætisráðuneytið

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) í samstarfi við skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu hélt fræðslufund um jafnlaunamál 27.-28. maí sl. Megintilgangur fundarins var að ræða aðgerðir Evrópulanda á sviði jafnlaunamála og miðla upplýsingum um lögin um jafnlaunavottun og reynslu Íslendinga af innleiðingu þeirra.

    24. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Greitt fyrir útflutningi á íslenskum framleiðsluafurðum til Kína

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ni Yuefeng, tollamálaráðherra Kína, undirrituðu í dag þrjár nýjar bókanir við fríverslunarsamning Íslands og Kína. Með bókununum opnast ný tækifæri fyrir útflutning á íslenskum framleiðsluafurðum til Kína.

    21. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland hlýtur viðurkenningu fyrir einarða baráttu fyrir jafnrétti

    Ísland hlaut í dag viðurkenningu fyrir einarða baráttu fyrir jafnrétti á norrænu viðskiptaráðstefnunni Womenomics í Kaupmannahöfn en það er í fyrsta sinn sem land eða þjóð hlýtur slíka viðurkenningu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók við viðurkenningunni fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hann hélt einnig opnunarávarp á rakarastofuráðstefnu sem haldin var við þetta tækifæri að íslenskri fyrirmynd.

    20. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Loftslagsmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    EES-ráðið fagnar 25 ára afmæli EES-samningsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirstrikaði sameiginlegan skilning á upptöku þriðja orkupakkans á fundi EES-ráðsins í Brussel í dag og skoraði á ESB að fella niður tolla á íslenskar sjávarafurðir. Utanríkisráðherrar Íslands, Noregs og Liechtenstein og fulltrúar ESB fögnuðu 25 ára afmæli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið á fundinum.

    17. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi Evrópuráðsins

    Framtíð Evrópuráðsins og staða mannréttindamála í Evrópu voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi ráðsins sem lauk í Helsinki í dag. Ráðið fagnar sjötíu ára afmæli um þessar mundir og sótti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra athöfn í tilefni þess.

    17. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi Evrópuráðsins

    Framtíð Evrópuráðsins og staða mannréttindamála í Evrópu voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi ráðsins sem lauk í Helsinki í dag. Ráðið fagnar sjötíu ára afmæli um þessar mundir og sótti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra athöfn í tilefni þess.

    15. maí 2019Menntamál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menntamálaráðherrar Íslands og Japans funda í Tókýó

    Ísland og Japan standa sameiginlega að alþjóðlegum ráðherrafundi um vísindi norðurslóða á næsta ári og af því tilefni fundaði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra með Masahiko Shibayama mennta- og vísindamálaráðherra Japans í dag.

    14. maí 2019Menningarmál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarsamstarf Íslands og Kína

    Menningarmálaráðherrar Íslands og Kína skrifuðu í gær undir samkomulag um menningarsamstarf landanna. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmála-ráðherra og Luo Shugang menningar- og ferðamálaráðherra Kína skrifuðu undir yfirlýsingu sem ætlað er að efla samstarf ríkjanna á sviðum sviðslista, myndlistar, barnamenningar, bókmennta, útgáfu og bókasafna.

    13. maí 2019Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Merkur áfangi í samskiptum Íslands og Kína: gagnkvæm viðurkenning háskólanáms

    Menntamálaráðherrar Íslands og Kína skrifuðu í fyrsta sinn undir samning um gagnkvæma viðurkenningu háskólanáms milli landanna.

    11. maí 2019Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mikilvægi nýsköpunar og vísindasamstarfs á norðurslóðum rætt í Shanghai

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði alþjóðlega ráðstefnu Hringborðs norðursins í Shanghai í dag og fjallaði í ræðu sinni um mikilvægi vísindasamstarfs og nýsköpunar fyrir stefnumótun og framþróun á norðurslóðum.

    10. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisviðskiptaráðherra Bretlands fundaði með Guðlaugi Þór

    Tvíhliða samskipti og framtíðarsamband Íslands og Bretlands eftir Brexit voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Liam Fox, utanríkisviðskiptaráðherra Bretlands. Fundur þeirra var haldinn á Nesjavöllum en Fox er staddur í heimsókn hér á landi.

    10. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Sameiginleg yfirlýsing EFTA-ríkjanna í EES um sérstöðu Íslands

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun sameiginlega yfirlýsingu Íslands, Noregs og Liechtenstein á fundi í sameiginlegu EES-nefndinni þann 8. maí þar sem sérstaða Íslands hvað varðar innri raforkumarkað ESB er áréttuð.

    • First
    • Prev
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband