Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 151–200 af 3013
    Raða eftir:
    01. jún. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2026.

    29. maí 2026Innviðaráðuneytið, Samgöngur, Umferð, Heilbrigðisráðuneytið

    Reglugerð um ökuskírteini breytt: Læknisvottorðs ekki krafist fyrr en við 75 ára aldur

    Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini.

    28. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Ísland býður fram fulltrúa í framkvæmdastjórn WHO

    Ísland sækist eftir sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fyrir tímabilið 2027–2030. Áherslur Íslands eru m.a. mikilvægi öflugs alþjóðlegs samstarfs og samvinnu, gagnsæi og jafnræði í stjórnsýslu stofnunarinnar, jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og áhersla á öfluga heilsugæslu. Þá er lögð áhersla á að heilsa og velferð barna og ungmenna sé ávallt í forgrunni. Fulltrúi Íslands í framboðinu er Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Ásta hefur víðtæka reynslu af alþjóðlegu samstarfi innan WHO, OECD, ESB og Sameinuðu þjóðanna og gegnir nú formennsku í fastanefnd Evrópuskrifstofu WHO (SCRC).

    26. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Þórarna Gró sett forstjóri HSA frá 1. júní

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur til að gegna embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá 1. júní næstkomandi, þegar Guðjón Hauksson lætur af embættinu og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

    25. maí 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 18.- 22. maí 2026

    25 maí 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 18. - 22. maí 2026 18

    22. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Guðjón Hauksson skipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðjón Hauksson í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri frá 1. júní næstkomandi til fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. febrúar síðastliðinn. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við álit ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Guðjón hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

    Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Sama máli gegnir um Urðarhvarf sem opnað var í mars en þar eru 100 rými.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

    Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Sama máli gegnir um Urðarhvarf sem opnað var í mars en þar eru 100 rými.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur samþykkt aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Áætlunin miðar að því að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land.

    18. maí 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 11.- 17. maí 2026

    18 maí 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 11. - 17. maí 2026 11

    15. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum

    Heilbrigðisráðuneytið áformar að setja reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Mælt er fyrir um að þegar óskað er eftir þátttöku einstaklings í vísindarannsókn, skuli einnig óskað eftir samþykki hans fyrir upplýsingum um mikilvæga þætti sem varða heilsu hans, þ.m.t. erfðamengi, sem kunna að koma fram við framkvæmd rannsóknar. Kveðið er á um skyldu til að fræða viðkomandi þátttakanda um þessa þætti og hvaða þýðingu þeir geta haft fyrir hann. Virða skal rétt þátttakanda sem ekki vill fá slíkar upplýsingar og enn fremur upplýsa þátttakanda hvernig hann getur afturkallað samþykki sitt. Reglugerðin gildir um vísindarannsóknir á mönnum og er ætlað að tryggja hagsmuni þátttakenda.…

    11. maí 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 4.- 9. maí 2026

    11 maí 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 4. - 9. maí 2026 4

    07. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Nýr samningur tryggir líflínu Hjálparsímans 1717

    Heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu samning við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ) í dag um fjármögnun Hjálparsímans 1717. Samningurinn sem er til tveggja ára tryggir áfram mikilvæga þjónustu sem er opin allan sólarhringinn og veitir fólki sálfélagslegan stuðning þegar mest á reynir.

    07. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bráðaviðbragð í Öræfum komið í hendur heimamanna

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) hefur nú formlega afhent heimamönnum í Öræfum umsjón bráðaviðbragðs á svæðinu. Verkefnið markar mikilvægan áfanga í þróun þjónustunnar, þar sem heimamenn taka nú við ábyrgð á fyrsta viðbragði við bráðum veikindum og slysum.

    07. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Efnismikill ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

    Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) var haldinn á Akranesi í liðinni viku og þá kom einnig út ársskýrsla stofnunarinnar með yfirgripsmiklum upplýsingum um starfsemi ársins 2025, áherslur í starfi hennar og verkefnin framundan. Eftirtektarverður árangur hefur náðst á ýmsum sviðum starfseminnar, t.d. hafa aldrei verið gerðar fleiri liðskiptaaðgerðir en á síðasta ári, alls 421. Markvisst hefur verið unnið að gæðamálum og mannauðsmálum og ýmsar nýjungar hafa verið innleiddar til að efla stofnunina og þjónustu við íbúa í umdæmi hennar.

    06. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Veruleg fjölgun úrræða fyrir einstaklinga með heilabilun í samvinnu við Alzheimersamtökin

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Alzheimersamtökunum rekstrarfé til að opna 16 – 17 ný dagþjálfunarrými fyrir fólk með heilabilun strax á næsta ári og jafnframt vilyrði fyrir fjölgun rýma í 33 árið 2028. Alzheimersamtökin hófu rekstur sambærilegrar þjónustu með 33 rýmum á St. Jósefsspítala árið 2022 sem kallast Seiglan og verður nýja þjónustueiningin rekin undir sama nafni og á grundvelli sömu hugmyndafræði. Ráðherra sagði frá ákvörðun sinni þegar hún ávarpaði Lausnamót Alzheimersamtakanna sem fram fór í dag.

    05. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikilvægi brjóstagjafar fyrir heilsu barna og mæðra

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið embætti landlæknis að leiða vinnu við mótun stefnu um brjóstagjöf á Íslandi. „Það er mikilvægt að gefa þessu máli gaum, því brjóstagjöf er mikilvægt lýðheilsumál og fyrir liggja staðreyndir um jákvæð áhrif brjóstagjafar á heilsu barna og mæðra“ segir ráðherra. Brjóstagjöf hefur verið hröðu undanhaldi hér á landi síðustu ár og eru nú aðeins um 25% barna á brjósti eingöngu við 6 mánaða aldur sem er undir markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Það er ekki tilviljun að Alma tilkynni ákvörðun sína um að ráðast í þessa stefnumótun í dag, 5. maí sem er alþjóðlegur dagur ljósmæðra.

    04. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    04. maí 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 27. apríl- 1.maí 2026

    04 maí 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 27. apríl- 1. maí 2026 27

    27. apr. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagksrá ráðherra 21.- 24. apríl 2026

    27 apríl 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagksrá ráðherra 21. - 24. apríl 2026 21

    22. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heildarendurskoðun laga um tæknifrjóvgun í undirbúningi

    Heilbrigðisráðherra áformar að ráðast í heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996. Áform um breytingarnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 22. maí.

    21. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný heildstæð sóttvarnalöggjöf orðin að veruleika

    Alþingi samþykkti í dag frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 að undangenginni vinnu starfshóps sem skipaður var í júní 2021 til að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir. Frumvarpið hefur verið lagt fimm sinnum fyrir þingið og í meðförum þess hafa ýmsar breytingar verið gerðar á efni þess: „Vönduð og vel ígrunduð löggjöf um sóttvarnir er gríðarlega mikilvæg fyrir heilsu og velferð landsmanna ef vá steðjar að vegna farsótta. Hér hefur verið vandað til verka og öllum steinum velt við til að gera löggjöfina sem best úr garði. Ég fagna þessum stóra áfanga innilega,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. ​

    10. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um innri frágang meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut

    Heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, og Gísli H. Guðmundsson, framkvæmdastjóri byggingasviðs Ístaks hf., undirrituðu 31. mars samning um innanhússfrágang og stýringu framkvæmda í meðferðarkjarna nýs Landspítala. Um er að ræða einn stærsta samning verkefnisins við Hringbraut til þessa.

    09. apr. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 12/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja einstaklingi um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf. Kærandi byggði á að túlkun embættis landlæknis á skilyrðum reglugerðar nr. 1088/2012 sé of þröng. Kærandi hafi áratuga reynslu, stundað doktorsnám og framhaldsnám erlendis. Ákvörðun embættis landlæknis byggði á að nám kæranda erlendis hefði verið blandað nám og hún hefði fengið allan hluta námsins sem laut að félagsráðgjöf metinn. Þá hefði kærandi ekki lokið doktorsnámi í félagsráðgjöf en það væri skilyrði samkvæmt reglugerðinni. Þá gæti löng starfsreynsla og ritun fræðigreina ekki orðið grundvöllur að sérfræðileyfi. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis kæmu fram í reglugerð nr. 1088/2012. Skilyrðin væru skýr og afmörkuð.…

    08. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Stafræn heilsa, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi um Stafræna heilsu til umsagnar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að frumvarpi um Stafræna heilsu. Með frumvarpinu er lagður grundvöllur að uppbyggingu og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins sem Stafræn heilsa mun leiða.

    07. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sameiginlegt norrænt útboð til að tryggja afhendingaröryggi á krabbameinslyfjum

    Landspítali tekur þátt í samnorrænu útboði ákveðinna krabbameinslyfja og er þetta í fyrsta skipti sem þessi lyfjaflokkur er boðinn út í sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands. Tilgangurinn er að tryggja afhendingaröryggi lyfja sem verður æ erfiðara að útvega.

    06. apr. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 30. mars- 3. apríl 2026

    06 apríl 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 30. mars- 3. apríl 2026 30

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    01. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Fjármálaáætlun

    Heilbrigðisþjónustan sett í forgang í fjármálaáætlun 2027–2031

    Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2027–2031 er lögð skýr og markviss áhersla á uppbyggingu heilbrigðisþjónustu um land allt.

    01. apr. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Heimsókn ráðherra til Slökkviliðsins

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) til að kynna sér starfsemi þess með sérstaka áherslu á sjúkraflutninga.

    31. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    100 rýma samningur við Heilsuvernd mun létta verulega á Landspítala

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Teitur Guðmundsson forstjóri Heilsuverndar undirrituðu fyrr í dag samning um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16.

    30. mar. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 23.-27. mars 2026

    30 mars 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 23. -27. mars 2026 23

    26. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Umsækjendur um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsókna þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars.

    23. mar. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 16.- 20. mars 2026

    23 mars 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 16. - 20. mars 2026 16

    19. mar. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 10/2026

    Útdráttur: Kærandi kærði málsmeðferð embættis landlækni í kvörtunarmáli. Kærandi byggði á að læknir sem hann sótti heilbrigðisþjónustu til hafi gert mistök þegar hann tók hann af tilgreindum lyfjum. Embætti landlæknis tók ákvörðun um að taka kvörtun kæranda ekki til frekari efnislegrar meðferðar eftir yfirferð gagna málsins á grundvelli 2. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Embættið byggði á að gögn málsins bæru ekki saman og sjúkraskrárgögn styddu ekki við kvörtun kæranda. Þá hafi gögn málsins ekki bent með sér að niðurstöður rannsóknar myndu leiða til aukinna gæða eða aukins öryggis heilbrigðisþjónustu. Í niðurstöðu ráðuneytisins kemur fram að breyingar hafi orðið á lögum um landlækni og lýðheilsu með lögum nr. 103/2023.…

    17. mar. 2026Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Tillögur um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda kynntar í ríkisstjórn

    Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda.

    16. mar. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 9.- 13. mars 2026

    16 mars 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 9. - 13. mars 2026 9

    11. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Veitir félagasamtökum rúmar 90 milljónir króna til góðra verka

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 91 milljón króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls hlutu 40 verkefni styrk og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 5.000.000 kr.

    09. mar. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stóraukin þátttaka kvenna í krabbameinsskimunum

    Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast sett markmið um þátttöku. Alma D Möller heilbrigðisráðherra segir aukna þátttöku skipta gríðarlega miklu máli: „Skipulögð skimun fyrir krabbameinum getur bjargað mannslífum. Þannig má greina krabbamein á forstigi eða grípa inn í áður en krabbamein myndast og stórauka líkur á lækningu. Ég hvet konur til að mæta þegar boðið kemur“.

    09. mar. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 2.- 6. mars 2026

    09 mars 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 2. - 6. mars 2026 2

    03. mar. 2026Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Ég heyri og hlusta: Um heyrnarskimun í grunnskólum

    03 mars 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Ég heyri og hlusta: Um heyrnarskimun í grunnskólum Mynd: Heilbrigðisráðuneytið Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Í skoðunargreinum Vísis í dag er réttilega vakin athygli á mikilvægi heyrnar fyrir þroska og velferð barna okkar. Í greinum á borð við „Týndu börnin“ og „Heyrnin tengir okkur“ hafa sérfræðingar og aðstandendur lýst áhyggjum af því að börn með heyrnarskerðingu fái ekki þá þjónustu sem þau þurfa á að halda

    02. mar. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 23.-27. febrúar 2026

    02 mars 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 23. -27. febrúar 2026 23

    28. feb. 2026Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Innleiðing mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum LSH og SAk

    febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Innleiðing mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum LSH og SAk Innleiðing mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum LSH og SAk

    27. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Skipulagning nýrrar bráðamatsdeildar Landspítala í Fossvogi

    Nú standa yfir framkvæmdir við Landspítala í Fossvogi, þar sem innan skamms verður opnuð bráðamatsdeild í nýrri viðbyggingu við bráðamóttöku spítalans. Deildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er ætlað að dreifa álagi þannig að betur verði hægt að ráða við vaxandi verkefni. Skipulag deildarinnar verður að breskri fyrirmynd og hafa sérfræðingar þaðan verið Landspítala innan handar við undirbúning.

    27. feb. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 11/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun Landspítala um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu fæðisgjalds á sjúkrahóteli Landspítala. Kærandi byggði á að samkvæmt munnlegu samkomulagi hefði verið samið um gjaldtöku að hluta vegna fæðisgjalds á Landspítala. Reikningur vegna fæðisgjalds hafi hins vegar ekki verið í samræmi við samkomulagið. Samkvæmt Landspítala var ekki rukkað í fullu samræmi við reglugerð nr. 429/2019. Kærandi hefði í raun verið gert að greiða lægra gjald en samkvæmt reglugerðinni. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram samkvæmt réttri beitingu reglugerðarinnar hafi gjaldtaka Landspítala verið lægri en hún hefði átt að vera.…

    27. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. júní 2026. Umsóknarfrestur er til 23. mars næstkomandi.

    26. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heyrnar- og talmeinastöðin lögð niður 1. maí og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tekur við verkefnum hennar

    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður 1. maí næstkomandi og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við verkefnum hennar og þjónustuþegum. Frumvarp heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður.

    24. feb. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja einstaklingi um sérfræðileyfi í hjúkrun. Kærandi byggði á að sérfræðileyfi hefði áður verið gefið út á grundvelli sambærilegra forsendna og hún sótti um vegna. Þá hefði meistaranám í heilbrigðisvísindum verið talið uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 512/2013, um veitingu sérfræðileyfis. Í niðurstöðu embættis landlæknis kom fram að ekki væri rétt að sérfræðileyfi hefði áður verið veitt á þeim grundvelli sem kærandi sótti um á. Þá væri meistaranám í heilbrigðisvísindum ekki sérsvið innan hjúkrunar. Umsókn kæranda hafi verið send til umsagnar umsagnarnefndar hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands sem hafi ekki talið að kærandi uppfyllti skilyrði reglugerðarinnar til að hljóta sérfræðileyfi.…

    23. feb. 2026Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Minna um vopnaburð og börnum líður betur

    Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband