28. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa
Utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á baráttuna gegn hlýnun jarðar, mannréttindi og endurbætur á alþjóðakerfinu í samræmi við grunngildi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sem hann flutti á allsherjarþinginu í kvöld. Utanríkisráðherra ræddi einnig óöldina í Sýrlandi og Jemen og skoraði á þau ríki sem ýta undir ófriðinn að beita sér frekar fyrir friði.