Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Norrænt samstarf
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 151–200 af 501
    Raða eftir:
    31. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Tilnefningar Íslands til verðlauna Norðurlandaráðs 2023

    Verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Ósló í kvöld. Alls eru 54 verk, verkefni og listamenn tilnefnd að þessu sinni. Verðlaunin eru veitt í tengslum við 75.þing Norðurlandaráðs í Noregi þar sem ráðherrar og þingmenn frá öllum Norðurlöndunum koma saman.

    27. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Spennandi dagskrá og öflugir fyrirlesarar á heilbrigðisþingi 14. nóvember

    Heilbrigðisþing 2023 verður haldið í Hörpu þann 14 nóvember. Dagskráin er afar metnaðarfull og með norrænu og alþjóðlegu yfirbragði. Þingið fer fram á ensku og hefur yfirskriftina: „Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare.“ Á vef þingsins eru allar upplýsingar um dagskrána og fyrirlesarana og þar fer skráning þátttöku fram.

    25. okt. 2023Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Norrænt samstarf, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Framtíðarskipulag og hlutverk byggðastefnu í öryggis- og viðbúnaðarmálum

    Norrænir ráðherrar byggðamála funduðu í Reykjavík í síðastliðinni viku og ræddu meðal annars öryggis- og viðbúnaðarmál út frá sjónarhorni byggðaþróunar.

    21. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Menningar- og viðskiptaráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fundaði í gær með Karen Ellemann framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

    19. okt. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Orka, Norrænt samstarf

    Orkuöryggi í brennidepli í norrænu samstarfi

    Orkumálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í Reykjavík í gær til að ræða áskoranir og lausnir í orkumálum, en Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár.

    18. okt. 2023Norrænt samstarf, Sveitarfélög, Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Útvíkkun aðgerða til annarra málefnasviða vekur athygli

    Útvíkkun aðgerða nýrrar sveitarstjórnaráætlunar til málefnasviða annarra ráðuneyta vakti athygli norrænna ráðherra og helstu norrænna sérfræðinga á sviði sveitarfélaga á samráðsfundi ráðherranna á Flúðum í liðinni viku

    18. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Nýr veruleiki kallar á nánara Norrænt samstarf

    Norðurlöndin þurfa að efla samstarf atvinnulífsins þegar kemur að grænum umskiptum, gervigreind og stafrænum umskiptum. Þetta var niðurstaða nýafstaðins norræns ráðherrafundar atvinnumála þar sem ráðherrarnir ræddu nýjan pólitískan veruleika og forgangsröðun í atvinnulífinu til ársins 2030.

    16. okt. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Orka, Umhverfi og náttúruvernd, Norrænt samstarf

    Orkuöryggi og almenningur – málþing um orkumál

    Norrænar orkurannsóknir, Norræna ráðherranefndinni og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið standa að málþingi um orkumál og almenning sem haldin verður á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 19. október kl. 9-12.

    05. okt. 2023Byggðamál, Norrænt samstarf, Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Nordregio Forum 2023: Ungir Norðurlandabúar lykillinn að velmegandi og grænum Norðurlöndum

    Vefráðstefna á vegum Nordregio, rannsóknarstofnunar um byggðaþróun og skipulagsmál, um framtíð Norðurlanda verður haldin miðvikudaginn 17. október næstkomandi kl. 8:30.

    28. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Áskoranir og verkefni fram undan í norrænni samvinnu rædd í Kaupmannahöfn

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, tók í dag þátt í ráðstefnu í Kaupmannahöfn um verkefni og áherslur í norrænni samvinnu á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar fram til ársins 2030.

    27. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Norrænir ráðherrar samþykkja yfirlýsingu um sjálfbærni í mannvirkjamálum

    Norrænir ráðherrar húsnæðis- og mannvirkjamála komu saman á fundi í Reykjavík í vikunni.

    26. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Norrænir jafnréttisráðherrar funduðu í Reykjavík

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrði fundi í Norrænu ráðherranefndinni um jafnrétti og hinsegin málefni í dag. Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár en nefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna.

    22. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Norrænt samstarf

    Hægt verði að nýta rafræn skilríki þvert á landamæri Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ætla að vinna saman að tæknilegum innviðum fyrir íbúa til að nota eigin rafræn skilríki til auðkenningar í öðrum löndum. Þetta segir í yfirlýsingu ráðherranefndar um stafræna, opinbera þjónustu ríkjanna en nefndin fundaði í Reykjavík í dag.

    19. sep. 2023Dómsmálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Löggæsla, Utanríkismál

    Norrænir dómsmálaráðherrar funduðu í Reykjavík

    Rætt var um ofbeldi í nánum samböndum, unga afbrotamenn og erfðafræði í afbrotarannsóknum.

    18. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Minnt á ráðstefnuna um áfengi og lýðheilsu þriðjudaginn 19. september

    Enn eru nokkur sæti laus á norrænu ráðstefnuna „Alcohol and Public Health in the Nordics“ sem fram fer á Grand hótel Reykjavík á morgun. Fyrirlesarar koma víða að og búa að víðtækri þekkingu og reynslu á sviði rannsókna og stefnumótunar á sviði áfengismála og forvarna. Þeir sem ekki komast geta fylgst með ráðstefnunni í beinu streymi. Ráðstefnan hefst kl. 8.45 með ávarpi Willum Þórs Þórssonara heilbrigðisráðherra.

    11. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Sameiginlegar norrænar áskoranir ræddar á fundi félags- og heilbrigðisráðherra Norðurlanda

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, stýrði í dag fundi félags- og heilbrigðisráðherra Norðurlandanna sem haldinn var að frumkvæði Íslands. Ísland fer nú með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og Guðmundur Ingi er samstarfsráðherra Norðurlanda. Um aukafund var að ræða sem fram fór á netinu og sat Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, fundinn sömuleiðis fyrir hönd Íslands.

    29. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Þátttaka utanríkisráðherra á ársfundi Vestnorræna ráðsins

    Málefni hafsins og fríverslun voru efst á baugi í máli utanríkisráðherra á ársfundi Verstnorræna ráðsins í Reykjavík í dag. Vestnorræna ráðið er þingmannavettvangur þjóðþinga Íslands, Færeyja og Grænlands en í ráðinu sitja 18 þingmenn, sex frá hverju landi. Utanríkisráðherrar landanna þriggja tóku auk þess þátt í klukkutíma umræðu á ársfundinum þar sem þeir fluttu árvörp og sátu síðan fyrir svörum.

    28. ágú. 2023Norrænt samstarf, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fundur NORDBUK á Íslandi

    Fundur NORDBUK, barna- og ungmennanefndar Norrænu ráðherranefndarinnar, fór fram 24. ágúst sl. Fundarstjórn var í höndum Íslands með dyggri aðstoð frá starfsfólki skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar sem að þessu sinni komu bæði frá Íslandi. Fundurinn er hluti af formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    25. ágú. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Norræn ráðstefna um áfengi og lýðheilsu 19. september

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis stendur fyrir norrænni ráðstefnu um áfengi og lýðheilsu á Grand hótel Reykjavík 19. september næstkomandi. Ráðstefnan er liður í viðburðum sem efnt er til í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Ráðstefnan fer fram á ensku og ber yfirskriftina Alcohol and Public Health in the Nordics.

    23. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Stuðningur við Úkraínu í brennidepli á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlanda

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda hittust á fjarfundi í dag undir stjórn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sem fer með formennsku í norræna hópnum í ár. Ráðherrarnir funduðu síðast á Ísafirði í júní. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og staðan í Úkraínu, Afganistan og Vestur-Afríku voru efst á baugi.

    31. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Þórshöfn, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samstarfsráðherra hélt opnunarávarp á Pride í Færeyjum

    Heimsókn samstarfsráðherra Norðurlandanna, Guðmundar Inga Guðbrandssonar, til Færeyja í síðustu viku var viðburðarík. Megintilgangur heimsóknarinnar var þátttaka í gleðigöngunni í Þórshöfn (Føroyar Pride), auk funda með ráðherrum í ríkisstjórn landsins og heimsóknum til norrænna stofnana í Færeyjum.

    13. júl. 2023Utanríkismál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Bandaríkjaforseta

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Joe Biden Bandaríkjaforseta en fundurinn fór fram í Helsinki. Á fundinum var rætt um samstarf og samvinnu Norðurlandanna og Bandaríkjanna með áherslu á öryggismál, umhverfismál, tækniþróun og samfélagsleg málefni.

    02. júl. 2023Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogafundur Norðurlandanna með Bandaríkjaforseta

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun sækja leiðtogafund Norðurlandanna og Joe Biden Bandaríkjaforseta í Helsinki 13. júlí nk. Fundurinn verður haldinn í kjölfar leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Vilníus 11. – 12. júlí.

    30. jún. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Við þurfum að gera meira með minna

    „Mikilvægt er að forgangsraða matvælaframleiðslu framtíðarinnar og íhuga hvernig við getum fætt sem flesta með lágmarksauðlindum á sjálfbæran hátt. Við þurfum einfaldlega að gera meira með minna“. Þetta var meðal þess sem fram kom í ávarpi Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra þegar nýjar norrænar næringarráðleggingar (NNR) 2023 voru kynntar á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar í Hörpu. Ráðherra taldi ráðleggingarnar mikilvægt innlegg í þá umræðu sem þarf að eiga sér stað á milli vísinda og matvælaframleiðslu til að geta tekist á við þá sameiginlegu áskorun sem fylgir sjálfbærri þróun.

    26. jún. 2023Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Fundi forsætisráðherra Norðurlandanna og Kanada lokið

    Formlegum fundi forsætisráðherra Norðurlandanna og Kanada sem fram fór í Vestmannaeyjum er lokið. Í yfirlýsingu fundarins ítreka ráðherrarnir mikilvægi samstarfs ríkjanna og heita því að efla það enn frekar, ekki síst á sviði öryggis- og varnarmála.

    25. jún. 2023Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada funda í Vestmannaeyjum

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada komu til Vestmannaeyja í kvöld. Árlegur sumarfundur norrænna forsætisráðherra fer fram þar á morgun en Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, er sérstakur gestur fundarins.

    16. jún. 2023Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Forsætisráðherra Kanada gestur á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í Vestmannaeyjum

    Sumarfundur forsætisráðherra Norðurlandanna verður haldinn í Vestmannaeyjum 25. – 26. júní nk. Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, verður sérstakur gestur fundarins.

    13. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði

    Stuðningur við Úkraínu og alþjóðasamfélagið, samskiptin við Rússland og staða mannúðarmála í Afganistan voru ofarlega á baugi á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda sem fram fór á Ísafirði í dag. Ísland er í formennsku norrænnar samvinnu í ár, þar á meðal í utanríkispólitísku samstarfi Norðurlanda, og því fer árlegur sumarfundur í samstarfinu fram hér á landi.

    12. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda á Ísafirði

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda koma saman til reglubundins sumarfundar á Ísafirði í vikunni. Ísland er í formennsku norrænnar samvinnu í ár, þar á meðal í utanríkispólitísku samstarfi Norðurlanda, og því fer fundurinn fram hér á landi.

    02. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Sumarfundur samstarfsráðherra Norðurlanda stendur yfir í Reykholti

    Sumarfundur samstarfsráðherra Norðurlanda fer nú fram í Reykholti í Borgarfirði. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, stýrir fundi enda Ísland með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Fundurinn hófst í gærmorgun og lýkur um hádegisbil í dag.

    01. jún. 2023Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf, Samgöngur

    Norrænir samgönguráðherrar funduðu í Lúxemborg um evrópska samvinnu

    Innviðaráðherra bauð samgönguráðherrum Norðurlanda til fundar í gærkvöldi í Lúxemborg í aðdraganda fundar ráðherraráðs ESB á sviði samgöngumála.

    01. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Samstarfsráðherrar Íslands og Álandseyja undirrita viljayfirlýsingu um samstarf á sviði sjálfbærrar þróunar

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, og Annette Holmberg-Jansson, samstarfsráðherra Norðurlanda á Álandseyjum, hafa undirritað viljayfirlýsingu um aukið samstarf varðandi sjálfbæra þróun. Undirritunin fór fram í tengslum við sumarfund samstarfsráðherra Norðurlanda sem nú stendur yfir í Reykholti í Borgarfirði.

    12. maí 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Grænar lausnir í forgrunni á fundi norrænna umhverfis- og loftslagsráðherra í Borgarfirði

    Aðlögun að loftslagsbreytingum, sjálfbær orka, grænar siglingaleiðir og alþjóðlegar plastviðræður voru meðal umræðuefna á fundi norrænna umhverfis- og loftslagsráðherra í Borgarfirði í gær.

    09. maí 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Friður, sjálfbærni og fundahöld á Álandseyjum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, heimsótti Álandseyjar í lok síðustu viku. Annette Holmberg-Jansson, samstarfsráðherra Álandseyja og félags- og heilbrigðisráðherra eyjanna fylgdi ráðherra og þau funduðu meðal annars um velferðarmál, norrænt samstarf og málefni sem eyjasamfélög eiga sameiginleg.

    03. maí 2023Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi Norðurlandanna með forseta Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, sem fram fór í Helsinki.

    03. maí 2023Menntamál, Norrænt samstarf, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tungumál sem lykill að samfélaginu og STEAM-greinar sem lykill að framþróun

    Leggja þarf meiri áherslu á tungumálakennslu barna með ólíkan tungumála- og menningarbakgrunn á Norðurlöndum og efla hæfni norrænna þjóða þegar kemur að STEAM-greinum. Þetta kom fram þegar norrænir ráðherrar menntamála ræddu mikilvægi menntunar fyrir skóla án aðgreiningar og þróun í nemendasamsetningu. Fundurinn var haldinn í Reykjavík sem liður í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    03. maí 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Norrænt samstarf

    Kynnti formennskuáætlun Íslands á sviði menningarmála

    Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár. Yfirskrift formennskunnar er Norðurlönd – afl til friðar.

    03. maí 2023Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogafundur Norðurlandanna með forseta Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í Helsinki í dag.

    02. maí 2023Norrænt samstarf, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mennta- og barnamálaráðherra Færeyja kynnir sér stefnu íslenskra stjórnvalda

    Mennta- og barnamálaráðherra Færeyja, Djóni N. Joensen, heimsótti mennta- og barnamálaráðuneytið í dag til að kynna sér stefnu íslenskra stjórnvalda í málefnum barna. Mennta- og barnamálaráðuneyti Færeyja er nýtt ráðuneyti þar í landi sem byggir m.a. á sömu nálgun og íslenska mennta- og barnamálaráðuneytið.

    28. apr. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Norrænn samvinna um lyfjamál styrkt með nýrri stefnu

    mráðsvettvangur Norðurlandaþjóða á sviði lyfjamála (Nordisk Lægemiddel Forum) hefur sett sér stefnu um samstarfið til ársins 2025. Megináherslur stefnunnar lúta að skapandi lausnum í samstarfi þjóðanna við útboð og kaup á lyfjum, öruggt framboð lyfja og sterka norræna rödd á evrópskum vettvangi.

    27. apr. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð hafa samið um verkefni í fjárhagsáætlun fyrir árið 2024

    Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð hafa samið um verkefni í fjárhagsáætlun fyrir árið 2024. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs samþykkti samninginn í mars og í gær samþykktu norrænu samstarfsráðherrarnir hann. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, er samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands.

    14. apr. 2023Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Norrænt samstarf, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Norrænn ungmennafundur um sjálfbær sveitarfélög

    Nordregio, rannsóknarstofnun á sviði byggðamála, stendur fyrir veffundi 26. apríl um leiðir til að virkja ungmenni við að skapa sjálfbært samfélag á Norðurlöndum.

    28. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Einarður stuðningur Norðurlandanna við Úkraínu

    Staða mála á alþjóðavettvangi var rædd á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í gær. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum þar sem Ísland gegnir formennsku í samstarfi utanríkisráðherranna á þessu ári. Einarður stuðningur ríkjanna við Úkraínu og samskipti stórveldanna voru ofarlega á baugi ásamt formennsku Íslands í Evrópuráðinu og málefnum Balkanskaga og Miðausturlanda.

    22. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Fatlað fólk fái greiðari aðgang að stafrænum lausnum

    Lykilatriði er að allir hafi aðgang að stafrænum lausnum eigi Norðurlöndin að ná þeirri framtíðarsýn að vera sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Sérstaklega þarf að tryggja að fatlað fólk geti nýtt sér stafrænar lausnir. Þetta er efni yfirlýsingar sem félags- og heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna samþykktu í dag í tengslum við fund sinn. Yfirlýsingin var undirrituð í Reykjavík en Ísland gegnir nú formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

    14. mar. 2023Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Norrænt samstarf, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Halla Nolsøe Poulsen ráðin framkvæmdastjóri NORA

    Halla Nolsøe Poulsen frá Færeyjum hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Norræna Atlantshafssamstarfsins (NORA).

    06. mar. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði 67. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á 67. fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW67) í New York. Forsætisráðherra tók einnig þátt í viðburði norrænna jafnréttisráðherra um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi á netinu.

    02. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Mikill áhugi á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál 23. mars

    Þekktir fyrirlesarar, íslenskir og erlendir, á sviði geðheilbrigðismála flytja erindi og taka þátt í vinnu- og málstofum um helstu áskoranir, strauma og stefnur sem snúa að geðheilbrigði og geðheilbrigðisþjónustu á norrænni ráðstefnu í Hörpu 23. mars næstkomandi. Þar koma einnig saman heilbrigðisráðherrar Norðurlandaþjóðanna til að ræða um þær áskoranir sem þeir telja stærstar og hvaða leiðir þeir telja færar til að takast á við þær á árangursríkan hátt.

    07. feb. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Kallað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2023

    Norðurlandaráð auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2023 og er þema verðlaunanna í ár sjálfbær framleiðsla og notkun á textíl.

    06. feb. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Fundaði með leiðtogum Norðurlandaráðs

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, fundaði í dag í Kaupmannahöfn með forseta Norðurlandaráðs, varaforseta og framkvæmdastjóra.

    31. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á Arctic Frontiers-ráðstefnunni

    Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsø í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra undirstrikaði hve skaðleg áhrif innrásin hefði haft á norðurslóðasamvinnu og ekki væri hægt að halda áfram eins og ekkert hefði í skorist.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband