Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Heilbrigðismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 512
    Raða eftir:
    10. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um geðheilbrigðisþjónustu við fanga

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um tímamót í geðheilbrigðisþjónustu við fanga með stofnun sérstaks geðheilsuteymis í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag.

    10. des. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Geðheilsuteymi fanga sett á fót

    10 desember 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Geðheilsuteymi fanga sett á fót Heilbrigðisráðuneyti Í liðinni viku kynnti ég áform um stofnun sérstaks geðheilsuteymis fyrir fanga. Teymið mun sinna geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins en verkefnið er afrakstur metnaðarfullrar samvinnu heilbrigðis- og dómsmálaráðuneyta undanfarna mánuði. Samningur þessa efnis milli Sjúkratrygginga Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var undirritaður á fjölmiðlafundi í fangelsinu á Hólmsheiði í síðustu viku og ásamt mér kynntu Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hvernig unnið hefur verið að því að móta nýtt skipulag þessarar þjónustu við fanga

    06. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lög um heilbrigðisþjónustu endurspegli áherslur heilbrigðisstefnu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti í vikunni fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu. Áformaðar breytingar eru liður í því að hrinda í framkvæmd heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þannig að lögin endurspegli áherslur hennar.

    06. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samið um heimahjúkrun langveikra barna

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við sjö hjúkrunarfræðinga í samstarfi við Landspítalann um að sinna heimahjúkrun langveikra barna á höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn hefur verið undirritaður af samningsaðilum og staðfestur af heilbrigðisráðherra.

    04. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna

    Alls bárust 17 umsóknir um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 29. nóvember síðastliðinn. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012, um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

    02. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur um framtíðarskipan líknarþjónustu

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði til að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum. Ráðherra tók við skýrslunni og fékk greinargóða kynningu hópsins á efni hennar og tillögum á fundi í ráðuneytinu fyrir helgi.

    30. nóv. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjölbreytt þjónusta við aldraða

    30 nóvember 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Fjölbreytt þjónusta við aldraða Heilbrigðisráðuneyti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Árið 2019 voru 14% Íslendinga 65 ára og eldri, samanborið við 10% Íslendinga árið 1980. Spár Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, gera ráð fyrir því að árið 2050 verði 25% Íslendinga 65 ára og eldri. Hækkandi hlutfall aldraðra felur í sér áskoranir fyrir heilbrigðiskerfið, en líka tækifæri til þess að hugsa hlutina upp á nýtt, gera betur og breyta

    29. nóv. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum á Akranesi fjölgað um fjögur

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Höfða á Akranesi varanlega rekstrarheimild fyrir fjórum hjúkrunarrýmum sem þar hafa verið rekin tímabundið sem biðrými fyrir Landspítalann.

    28. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Löngu tímabær endurskoðun lyfjalaga

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Gildandi lög voru sett fyrir aldarfjórðungi og hefur síðan þá verið breytt tæplega fimmtíu sinnum. Miklar breytingar hafa orðið á sviði lyfjamála frá samþykkt gildandi laga árið 1994 og heildarendurskoðun laganna því nauðsynleg og löngu tímabær segir ráðherra.

    28. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsueflandi móttökur settar á fót um allt land

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 200 milljónum króna af fjárlögum næsta árs til að koma á fót heilsueflandi móttökum um allt land innan heilsugæslunnar. Framlagið kemur til viðbótar 130 milljónum króna sem ráðherra hefur ákveðið að verja til að efla þjónustu heimahjúkrunar. Móttökurnar verða ætlaðar eldra fólki og einstaklingum með fjölþætt eða langvinn heilsufarsvandamál. Markmiðið að tryggja þessum hópi þverfaglega og heildstæða heilbrigðisþjónustu og innleiða skipulagða heilsuvernd fyrir aldraða.

    27. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hámarksgeymslutími kynfruma lengdur

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð um tæknifrjóvgun þannig að hámarksgeymslutími kynfruma verði lengdur úr tíu árum í tuttugu. Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir ungt fólk sem af einhverjum ástæðum vilja geyma kynfrumur sínar lengur en nú er heimilt, til dæmis vegna illkynja sjúkóma, kynleiðréttingarferlis eða af öðrum ástæðum.

    25. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bygging 60 rýma hjúkrunarheimilis í Árborg hafin

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Árborgar tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili fyrir íbúa sveitarfélaga á Suðurlandi síðastliðinn föstudag. Byggingaframkvæmdir hefjast af fullum krafti í desember. Stefnt er að því að hjúkrunarheimilið verði tilbúið til notkunar haustið 2021. Með tilkomu heimilisins fjölgar hjúkrunarrýmum á svæðinu um 25 frá því sem nú er.

    21. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðnings- og ráðgjafarteymi langveikra barna með sjaldgæfa sjúkdóma tekið til starfa

    Stuðnings- og ráðgjafarteymi langveikra barna með sjaldgæfa sjúkdóma með miklar stuðningsþarfir hefur tekið til starfa á Landspítala. Teymið var sett á fót fyrir tilstilli 40 milljóna króna framlags heilbrigðisráðherra til spítalans í þessu skyni.

    21. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurnýjun sjúkrabílaflotans hafin – 25 nýir bílar keyptir

    Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um kaup á 25 nýjum sjúkrabílum liggur fyrir í kjölfar útboðs Ríkiskaupa. Þar með er endurnýjun sjúkrabílaflotans hafin í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí síðastliðnum. Reiknað er með að fyrstu bílarnir verði afhentir fullbúnir til notkunar í september á næsta ári. Frá þessu er sagt í tilkynningu á vef Sjúkratrygginga Íslands.

    19. nóv. 2019Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Úrskurður nr. 12/2019

    Kærð var málsmeðferð Embættis landlæknis á kvörtun sjúklings sem beindist að kæranda. Kærandi krafðist þess að viðurkennt væri að hinn óháði sérfræðingur sem landlæknir aflaði umsagnar frá hafi verið ófær um að sinna því hlutverki og þannig hafi málsmeðferð embættisins ekki staðist rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Hins vegar var þess krafist að viðurkennt væri að niðurstaða Embættis landlæknis hafi verið röng þar sem fullyrt hafi verið að kærandi hefði vanrækt læknisskyldur sínar. Ráðuneytið staðfesti málsmeðferð Embættis landlæknis og vísaði frá kæru á efnislegri niðurstöðu embættisins.

    19. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel heppnað heilbrigðisþing að baki

    Fjölmennt var á heilbrigðisþingi um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu síðastliðinn föstudag og margir fylgdust með þinginu í beinni útsendingu á vefnum. Hægt er að nálgast upptöku af þinginu í heild, glærur fyrirlesara hafa verið gerðar aðgengilegar og sömuleiðis fjöldi ljósmynda sem teknar voru af fyrirlesurum og gestum þingsins meðan á því stóð.

    15. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bein útsending frá heilbrigðisþingi

    Heilbrigðisþing er haldið í dag. Á fjórða hundrað manns eru skráð á þingið og komast færri að en vilja. Hér er hægt að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu sem hefst kl. 9.00 með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.

    14. nóv. 2019Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Úrskurður nr. 9/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um sérfræðileyfi í samfélagstannlækningum. Ráðuneytið felldi ákvörðun embættisins úr gildi og lagði fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnislegrar meðferðar að nýju að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna og þeirra sjónarmiða sem fram koma í úrskurðinum.

    14. nóv. 2019Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Úrskurður nr. 10/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem félagsráðgjafi. Ráðuneytið felldi ákvörðunina úr gildi og lagði fyrir embættið að veita kæranda starfsleyfi sem félagsráðgjafi.

    14. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Ísland ítrekar skuldbindingar á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðismála

    Fulltrúar Íslands áréttuðu áform ríkisstjórnarinnar um auknar aðgerðir á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis á alþjóðaráðstefnu um mannfjölda og þróun í Naíróbí í Kenya. Á fundum þeirra samhliða ráðstefnunni voru jafnréttis- og heilbrigðismál í brennidepli.

    14. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þarfir í sjöunda veldi

    Guðlaug Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, hefur í starfi sínu lagt áherslu á innleiðingu rauntímamæla, gæða og öryggisvísa. Hún hefur starfað við stjórnun heilbrigðisþjónustu í yfir tuttugu ár og setið í innlendum og erlendum fagnefndum innan heilbrigðisþjónustu. Guðlaug Rakel er meðal fyrirlesara á heilbrigðisþinginu á morgun og heldur þar erindi sem hún kallar „þarfir í sjöunda veldi."

    13. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lausnir 21. aldarinnar við langvinnum sjúkdómum - umfjöllunarefni á heilbrigðisþingi 2019

    Langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar eiga þátt í allt að 86% dauðsfalla í Vestur-Evrópu og taka til sín um 70-80% alls kostnaðar sem tengist heilbrigðismálum. Marga þessara sjúkdóma og dauðsfalla er hægt að fyrirbyggja eða takmarka með markvissu forvarnastarfi og lífsstílsmeðferð. ,,Í ljósi þess er óskiljanlegt að Íslendingar verji aðeins um 1,6% af heilbrigðisútgjöldum í forvarnir" segja þeir Tryggvi Þorgeirsson læknir og lýðheilsufræðingur og Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala. Á heilbrigðisþinginu á föstudaginn munu þeir fjalla um þetta og ræða hvernig auka megi þátttöku og virkni fólks í eigin meðferð, fyrirbyggja sjúkdóma og nýta betur ýmis gögn og tækni með aðferðum 21. aldarinnar.

    13. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjallað um lýðheilsu og mikilvægi heilsulæsis á heilbrigðisþingi

    Mikilvægi heilsulæsis í lýðheilsustarfi, jafnt í heilsueflingu og forvörnum verður umfjöllunarefni Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur sálfræðings og doktors í lýðheilsuvísindum, á heilbrigðisþinginu næstkomandi föstudag.

    12. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Ríkisstjórnin setur á fót stýrihóp um samræmingu viðbragða vegna fíkniefnamála

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja á fót stýrihóp um samræmingu viðbragða vegna fíkniefnamála. Stýrihópnum er ætlað að tryggja gott samstarf á milli ráðuneyta og stofnana í þessum málaflokki að því er varðar gagnkvæma upplýsingagjöf, forvarnir, meðferðarúrræði og fleira.

    12. nóv. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Minnkum skaða

    12 nóvember 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Minnkum skaða Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Hugmyndafræði skaðaminnkunar verður sífelld útbreiddari. Alþjóðlegu samtökin um skaðaminnkun hafa skilgreint skaðaminnkun sem stefnu, verkefni eða verklag sem miðar fyrst og fremst að því að draga úr heilsufarslegum, félagslegum og efnahagslegum afleiðingum notkunar löglegra og ólöglegra vímuefna án þess endilega að draga úr vímuefnanotkun. Það sem einkennir þessa leið er áherslan á að fyrirbyggja skaða fremur en að fyrirbyggja sjálfa notkunina

    11. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Forgangsröðun í fjárveitingum til umfjöllunar á heilbrigðisþingi 15. nóvember

    Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og framkvæmdastjóri bráða- og þróunarsviðs Sjúkrahússins á Akureyri er meðal fyrirlesara á heilbrigðisþingi næstkomandi föstudag. Þar ræðir hún um nauðsyn þess að forgangsraða fjárveitingum svo íslenskt heilbrigðiskerfi standi undir því markmiði að tryggja örugga og hagkvæma heilbrigðisþjónustu þar sem aðgengi landsmanna er tryggt og þjónusta á heimsmælikvarða.

    08. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framtíðarfyrirkomulag skimana fyrir krabbameinum

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela heilsugæslunni að annast skimun fyrir leghálskrabbameinum og að skimun fyrir brjóstakrabbameini verði á hendi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri þegar samningur Sjúkratrygginga Íslands við Krabbameinsfélag Íslands rennur út í lok árs 2020.

    07. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsugæslustöðvar á Akureyri verði tvær

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að við endurnýjun húsnæðis fyrir heilsugæsluþjónustu á Akureyri verði gert ráð fyrir tveimur starfsstöðvum heilsugæslu í bænum. Miðað er við að auglýsa eftir húsnæði fyrir stöðvarnar í byrjun næsta árs. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við vilja stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og tillögu ráðgjafafyrirtækis sem vann skýrslu um húsnæði heilsugæslunnar á Akureyri fyrir stofnunina í lok síðasta árs.

    06. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mælt fyrir frumvarpi um neyslurými á Alþingi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um ávana- og fíkniefni á Alþingi í gær. Með frumvarpinu er sveitarfélögum veitt heimild til að stofna og reka svokölluð neyslurými að fenginni heimild embættis landlæknis. Í fjárlögum eru tryggðar 50 milljónir króna til þessa verkefnis.

    06. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjallað um framhaldsmenntun lækna og mönnun til framtíðar

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem kanna á stöðu framhaldsmenntunar lækna hér á landi og koma með tillögur að því hvernig tryggja megi nægilegt framboð lækna með framhaldsmenntun svo unnt sé að manna íslenska heilbrigðiskerfið til framtíðar. Hópurinn á að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 10. janúar næstkomandi.

    02. nóv. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tölum um geðheilbrigði

    02 nóvember 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Tölum um geðheilbrigði Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Starfshópur sem ég skipaði til að setja fram leiðbeiningar um hvernig fjalla mætti um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum á fordómalausan hátt skilaði niðurstöðum sínum til mín nýlega. Hópurinn var skipaður í samræmi við stefnu og aðgerðaáætlun alþingis í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Hópurinn leitaðist við að kynna sér málið frá öllum sjónarhornum og fékk til fundar við sig fjölda sérfræðinga, s

    01. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heimahjúkrun efld með 130 m.kr. viðbótarframlagi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita samtals 130 milljónir króna af fjárlögum þessa árs til að styrkja mönnun í heimahjúkrun og auka þjónustuna, meðal annars með stuðningi við áform um að hagnýta velferðartækni í meira mæli. Auknir fjármunir renna til heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.

    01. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Viðamesta könnun á geðræktarstarfi í skólum sem gerð hefur verið

    Embætti landlæknis hefur gefið út nýja skýrslu um niðurstöður landskönnunnar á geðrækt, forvörnum og stuðningi við börn og ungmenni í skólastarfi á Íslandi. Könnunin var lögð fyrir á fyrri hluta þessa árs í öllum framhaldsskólum landsins og um 70% allra leik- og grunnskóla. Frá þessu er sagt á vef Embættisins.

    31. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Dr. Göran Hermerén á heilbrigðisþinginu 15. nóvember

    Dr. Göran Hermerén, prófessor emeritus við háskólann í Lundi í Svíþjóð flytur inngangserindi heilbrigðisþingsins 2019 sem haldið verður 15. nóvember næstkomandi. Upplýsingar um fyrirlesara og erindi þeirra, drög að dagskrá og form til að skrá þátttöku á þinginu er á www.heilbrigdisthing.is.

    31. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin þjónusta með opnun endurhæfingarrýma á Sauðárkróki

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) um að koma á fót aðstöðu með allt að fjórum rýmum til almennrar endurhæfingar við starfsstöð stofnunarinnar á Sauðárkróki. Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN segir þetta framfaraskref sem styrki starfsemina á Sauðárkróki og geri kleift að bjóða fleirum en ella endurhæfingu í nærumhverfi sínu.

    24. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Styrkir til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu 2019. Tilgangur styrkjanna er að stuðla að umbótum, nýbreytni og auknum gæðum í heilbrigðisþjónustunni. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember næstkomandi.

    24. okt. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra skrifar um kosti rafrænna fylgiseðla

    Þann 18. október síðastliðinn var haldinn hér á landi fjölmennur fundur íslenskra og erlendra sérfræðinga í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Umfjöllunarefni fundarins voru kostir rafrænna fylgiseðla lyfja með lyfjum en Ísland hefur haft forystu um innleiðingu rafrænna fylgiseðla á norrænum vettvangi. Innleiðing rafrænna fylgiseðla hefur verið eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar og er einnig sett fram sem markmið í ályktun Alþingis um lyfjastefnu til ársins 2020.

    22. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjölmennur vinnufundur um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu

    Undirbúningur að mótun þingsályktunartillögu um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu hófst formlega með fjölmennum vinnufundi sem heilbrigðisráðherra efndi til í liðinni viku. Heilbrigðisþing 2019 sem haldið verður 15. nóvember næstkomandi verður helgað þessu viðfangsefni og var vinnufundurinn haldinn til að leggja grunn að umfjöllun þingsins svo það verði sem árangursríkast.

    18. okt. 2019Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Úrskurður nr. 11/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi. Ráðuneytið felldi úr gildi ákvörðunina og vísaði málinu til nýrrar málsmeðferðar að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna og þeirra sjónarmiða sem koma fram í úrskurðinum.

    18. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál

    Norðurlandaþjóðirnar telja mikinn ávinning í því að innleiða rafræna fylgiseðla með lyfjum og vinna að því sameiginlega gagnvart Evrópusambandinu. Horft er til þess að rafrænir fylgiseðlar verði mikilvægur liður í því að sporna við lyfjaskorti og auka öryggi sjúklinga. Um þetta var fjallað á fjölmennum fundi íslenskra og erlendra sérfræðinga í Reykjavík í gær sem haldinn var í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    15. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þjónusta geðheilsuteyma efld með þátttöku borgarinnar

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu ásamt samningi sem kveður á um þátttöku þjónustumiðstöðva velferðarsviðs í verkefnum geðheilsuteyma heilsugæslunnar í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri staðfestu samkomulagið og samstarfsyfirlýsinguna við undirritun í dag. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir samstarfið marka tímamót og engan vafa leika á því að það muni efla og bæta þjónustu geðheilsuteymanna við notendur.

    11. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Dagskrá heilbrigðisþings 15. nóvember 2019

    Athygli er vakin á drögum að dagskrá heilbrigðisþings 15. nóvember 2019 þar sem fjallað verður um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Þingið verður haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá 8.30 – 16.00. Skráning fer fram á vefnum heilbrigdisthing.is og er fólk hvatt til að skrá sig með góðum fyrirvara.

    11. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði heilbrigðismála. Heilbrigðisráðherra mun leggja áherslu á að styrkja verkefni sem lúta að heilsueflingu aldraðra og kvennaheilsu. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 11. nóvember nætkomandi.

    10. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn – áhersla á forvarnir gegn sjálfsvígum

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) helgar alþjóðageðheilbrigðisdaginn sem er í dag, 10. október, forvörnum gegn sjálfsvígum. Á vef stofnunarinnar má m.a. finna fræðslumyndband fyrir kennara ásamt einblöðungum með upplýsingum fyrir ólíka markhópa, t.d. kennara, blaðamenn, heilbrigðisstarfsfólk, lögreglu og marga fleiri þar sem fjallað er um forvarnir gegn sjálfsvígum.

    07. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landspítali fær styrk til að þróa skilvirkari sérfræðiþjónustu við landsbyggðina

    Verkefni sem Landspítali vinnur að og felst í þróun tæknilausna til að stuðla að bættu aðgengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu hlaut nýverið 5. milljóna króna styrk af byggðaáætlun Alþingis. Verkefnið snýr annars vegar að beinum samskiptum sjúklinga við sérfræðinga sjúkrahússins og hins vegar að þróun tæknilegra leiða til að skapa skilvirkan og öruggan farveg fyrir ráðgjöf sérfræðinga Landspítala við heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðinni.

    05. okt. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gildi og forgangsröðun

    05 október 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Gildi og forgangsröðun Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Stjórnendur og starfsfólk heilbrigðiskerfisins standa daglega frammi fyrir fjölda erfiðra ákvarðana sem varða líf og heilsu fólks og forgangsröðun er því liður í daglegum störfum þess. Auknir möguleikar við greiningu og meðferð sjúkdóma með sívaxandi kostnaði gera auknar kröfur um að ríkið sem greiðandi heilbrigðisþjónustunnar forgangsraði því fjármagni sem er til umráða. Mikilvægt er að forgangsröðun af hálfu stjórnvalda byggi á skýrum viðmiðum og siðferðilegum gildum sem öllum eru kunn og ljós þegar erfiðar ákvarðanir eru teknar, hvort sem um er að ræða heilbrigðisstarfsfólkið eða sjúklingana

    04. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga

    Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 sem varðar stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til 18. október.

    04. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landskönnun á mataræði Íslendinga að hefjast

    Embætti landlæknis í samvinnu við Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands eru um þessar mundir að hefja landskönnun á mataræði og neysluvenjum landsmanna. Tilgangur könnunarinnar er að fylgjast með mataræði þjóðarinnar, þróun þess og breytingum. Hliðstæð könnun var síðast framkvæmd 2010-2011 en ástæða er til að ætla að breytingar hafi átt sér stað á mataræðinu frá þeim tíma.

    03. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla starfshóps um hjálpartæki afhent heilbrigðisráðherra

    Hópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði til að skoða fyrirkomulag varðandi hjálpartæki hér á landi og koma með tillögur til úrbóta, skilaði henni skýrslu með niðurstöðum sínum í dag. Tillögur hópsins eru í sex liðum og snúa meðal annars að greiðsluþátttöku, afgreiðslu og úthlutun hjálpartækja, mati á þörf fólks fyrir hjálpartæki, innleiðingu nýjunga og upplýsingamiðlun til notenda hjálpartækja.

    03. okt. 2019Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjálpartæki - skýrsla starfshóps

    október 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Hjálpartæki - skýrsla starfshóps Hjálpartæki - skýrsla starfshóps

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband