Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 3013
    Raða eftir:
    23. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    Flestir hafa heyrt um berkla sem alvarlegan lungnasjúkdóm, en færri vita að margir sem komast í snertingu við bakteríuna veikjast aldrei. Þessir einstaklingar eru með berklasmit og það er ekki smitandi. Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á upplýsingum sem sóttvarnalæknir hefur tekið saman um berkla, hvernig þeir smitast, einkenni, greiningu, meðferð og forvarnir.

    23. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Styrking lágþrepageðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og foreldra

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt 53 milljónir króna til næstu þriggja ára til að innleiða á landsvísu stafræna heilbrigðistæknilausn sem valdeflir foreldra barna á aldrinum 5 – 12 ára með kvíðavanda, með gagnreyndum aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Lausnin er fullþróuð og hefur verið ákveðið að fela Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins tímabundna ábyrgð á stjórnun verkefnisins og faglegri umgjörð þess á landsvísu. Verkefnið hefur fengið heitið FLIKK – Netmeðferð fyrir foreldra barna með kvíða.

    23. feb. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 16.-20. febrúar 2026

    23 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 16. -20. febrúar 2026 16

    20. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að þingsályktun um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að tillögu heilbrigðisráðherra um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu. Þingsályktunartillagan er unnin upp úr skýrslu starfshóps sem falið var að vinna drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu og skilaði ráðherra skýrslu í júlí 2025.

    20. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt, drög að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Umsagnarfrestur er til 4. mars næstkomandi.

    17. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Uppbygging og efling réttar- og öryggisgeðþjónustu á Landspítala

    Nú stendur yfir stórt og viðamikið verkefni í réttar- og öryggisgeðþjónustu á Landspítala með það að markmiði að styrkja þjónustu við einstaklinga með flókinn og alvarlegan geðrænan vanda. ​Þörf fyrir þessa þjónustu hefur farið vaxandi á síðustu árum og því nauðsynlegt ​að ráðast í umbætur í starfseminni til að mæta henni. Verið er að stíga stór skref í þeirri vegferð með uppbyggingu á nýrri legudeild innan réttar- og öryggisgeðþjónustu spítalans, endurnýjun á húsnæði núverandi öryggisgeðdeildar samhliða eflingu göngudeildarþjónustu. Með breytingunum er gert ráð fyrir að reknar verði þrjár átta rúma legudeildir innan réttar- og öryggisgeðþjónustu.…

    17. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Drög að reglugerð um skólaheilsugæslu til umsagnar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að reglugerð um skólaheilsugæslu. Sérstök reglugerð um skólaheilsugæslu er markvert nýmæli og í samræmi við áherslumál ráðherra um þjónustu við börn. Með henni verður sett fram skýr skilgreining á fyrirkomulagi skólaheilsugæslu, þeirri þjónustu sem í henni felst og hvernig henni skuli háttað.

    16. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Tvö embætti forstjóra heilbrigðisstofnanna auglýst á árinu

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri og forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands laus til umsóknar. Skipunartími forstjóra SAk rennur út 31. ágúst næstkomandi og skipunartími forstjóra HSA rennur út 31. desember nk.

    16. feb. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 9.-13. febrúar 2026

    16 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 9. -13. febrúar 2026 9

    15. feb. 2026Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fækkaði árin 2019-2024 - miðað við fjölgun aldraðra

    15 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Hjúkrunarrýmum fækkaði árin 2019-2024 - miðað við fjölgun aldraðra Í fimm ára áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma 2019-2024 var lagt upp með að hjúkrunarrýmum á landsvísu myndi fjölga um rúmlega 540 og yrðu því 3. 430 í lok árs 2024. Raunin varð önnur því þeim fjölgaði einungis um 69 á þessu tímabili, sextíu og níu! Á sama tíma fjölgaði öldruðum umtalsvert og þörf fyrir hjúkrunarrými jókst

    11. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að þingsályktunartillögu um málefni offitu

    Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar drög að þingsályktun heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun um málefni offitu. Áætlunin er unnin upp úr tillögum starfshóps um offitu, holdafar, heilsu og líðan sem skilaði skýrslu til heilbrigðisráðherra í febrúar 2024, en byggir einnig á vinnu verkefnastjóra og þverfaglegri vinnustofu um málefni offitu á Íslandi sem haldin var á vegum ráðuneytisins í maí 2025. Umsagnarfrestur er til 25. febrúar næstkomandi.

    09. feb. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 8/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um að synja kæranda um þjónustu geðheilsuteymis taugaþroskaraskana og geðheilsuteymis […]. Kærandi byggði á því að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefði tekið stjórnvaldsákvörðun þegar honum var synjað um þjónustu geðheilsuteymis taugaþroskaraskana á þeim forsendum að hann félli ekki undir að vera með staðfesta þroskahömlun eða hamlandi einhverfu og þegar honum var synjað um þjónustu geðheilsuteymis […] á þeim grundvelli að hann væri á einhverfurófi. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefði með ákvörðuninni m.a. brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. og jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.…

    09. feb. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 2.-6. febrúar 2026

    09 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 2. -6. febrúar 2026 2

    08. feb. 2026Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilsa og líðan barnanna okkar

    08 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Heilsa og líðan barnanna okkar Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Grein birt á visir. is 8

    06. feb. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 7/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að vísa frá kvörtun á grundvelli 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Kærandi byggði á að tilteknir heilbrigðisstarfsmenn hefðu gerst sekir um vanrækslu og mistök við veitingu heilbrigðisþjónustu vegna eineltisúttektar á vinnustað. Embætti landlæknis byggði ákvörðun sína á að þrátt fyrir að um heilbrigðisstarfsmenn væri að ræða þá væri þjónusta þeirra ekki heilbrigðisþjónusta. Þá hefðu þeir ekki verið fengnir til verksins af hálfu kæranda heldur hefði vinnustaður hennar óskað eftir þjónustu þeirra. Í niðurstöðu heilbrigðisráðuneytisins kom fram að þrátt fyrir að um heilbrigðisstarfsmenn væri að ræða, þá væru ekki öll verkefni sem þeir kynnu að sinna heilbrigðisþjónusta.…

    06. feb. 2026Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Vökudeild Landspítala í 50 ár

    06 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Vökudeild Landspítala í 50 ár Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Við erum fjölmörg sem gleðjumst og fögnum um þessar mundir hálfrar aldar afmæli Vökudeildar Landspítala. Vökudeildin tók til starfa 2

    05. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjálfvirkum lyfjaskömmturum fjölgað til muna í heimahjúkrun

    Heilbrigðisráðherra hefur tryggt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg varanlegt fjármagn til að fjölga sjálfvirkum lyfjaskömmturum í heimahjúkrun um rúmlega 100. Fjölgun þeirra er í samræmi við mat þessara þjónustuveitenda á fyrirliggjandi þörf. Í heilbrigðisumdæmum landsins utan höfuðborgarsvæðisins meta þjónustuveitendur þörf fyrir nærri tvöfalt fleiri lyfjaskammtara en nú eru í notkun og fjölgun sem því nemur er í undirbúningi.

    05. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stórfelldar húsnæðisendurbætur og viðbygging við HSU á Selfossi

    Ráðist verður í gagngerar endurbætur og stækkun húsnæðis fyrir sjúkrahússþjónustu og heilsugæslu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Reist verður rúmlega 5.200 fermetra viðbygging til að mæta aukinni húsnæðisþörf og farið í gagngerar endurbætur og endurskipulagningu á meiri hluta eldra húsnæðis stofnunarinnar. Verkið verður unnið í þremur áföngum. Fyrsti áfanginn felst í endurnýjun og stækkun húsnæðis heilsugæslu, geðteymis og heimahjúkrunar. Sá áfangi er fullfjármagnaður, heimild Samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir liggur fyrir og því unnt að hefja vinnu við hann strax. Áætlað að ljúka framkvæmdum við fyrsta áfangann um mitt ár 2027.

    03. feb. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland aðili að erindi frá framkvæmdastjórnarfundi WHO í Genf um langvinna sjúkdóma

    Framkvæmdastjórnarfundur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fer nú fram í Genf, þar sem aðildarríki WHO fjalla um lykilmálefni í alþjóðlegu heilbrigðissamstarfi. Á fundinum tók Ísland undir sameiginlega yfirlýsingu um forvarnir og viðbrögð til að sporna gegn langvinnum sjúkdómum. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi á vef WHO.

    02. feb. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 26.- 30. janúar 2026

    02 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 26. - 30. janúar 2026 26

    01. feb. 2026Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Sterk heilsugæsla um allt land

    01 febrúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Sterk heilsugæsla um allt land Grein Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra og Jóns Magnúsar Kristjánssonar aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra Skipulag og þjónusta heilbrigðiskerfisins er mikilvægt hagsmunamál hverrar þjóðar. Á Íslandi eigum við gott heilbrigðiskerfi sem borið er uppi af framúrskarandi fagfólki

    29. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 6/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja lækni um sérfræðileyfi í undirsérgrein. Kærandi byggði á að samkvæmt eldri reglugerð hefði hann átt rétt á að fá útgefið sérfræðileyfi en hann sótti um stuttu eftir að reglugerð nr. 856/2023 tók gildi. Í umsögn embættis landlæknis kom fram að skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis væru ekki uppfyllt. Hvorki væri til marklýsing fyrir námið á Íslandi né hefði kærandi fengið útgefið sérfræðileyfi erlendis frá sem hægt væri að staðfesta á Íslandi. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að þar sem umsókn kæranda barst eftir gildistöku reglugerðar nr. 856/2023 væri farið með umsókn hans samkvæmt þeirri reglugerð, en ekki var kveðið á um sólarlagsákvæði í reglugerðinni að því er umsókn kæranda varðaði.…

    29. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 5/2026

    Útdráttur: Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að synja henni um starfsleyfi sem félagsráðgjafi á þeim grundvelli að hana skorti þekkingu í íslenskri félagsmálalöggjöf. Kærandi byggði á því að það samræmdist ekki meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins að bjóða henni ekki að nýta uppbótarráðstafanir vegna þess sem upp á vantaði, en félagsráðgjafadeild félagsvísindasviðs Háskóla Íslands hafði komist að þeirri niðurstöðu að nám kæranda væri að öðru leyti í samræmi við íslenskt nám í félagsráðgjöf. Þar sem ekki væri til fjármagn væri hins vegar ekki hægt að útbúa hæfnispróf. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að samkvæmt reglugerð nr. 483/2023 væri gert ráð fyrir að hægt væri að bjóða umsækjendum að gangast undir uppbótarráðstafanir, s.s.…

    28. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis að svipta lækni starfsleyfi á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 14/2007. Ákvörðun landlæknis var á þeim grunni byggð að kærandi hefði brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum með því að standa að ólögmætum rekstri heilbrigðisþjónustu ásamt því að sýna af sér tómlæti og virðingarleysi við skyldur sínar sem heilbrigðisstarfsmaður. Að mati ráðuneytisins var ljóst að veiting áminningar skv. 14. gr. laga um landlækni og lýðheilsu hefði ekki náð því markmiði sem að var stefnt að með ákvörðuninni, þ.e. að tryggja öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu. Ákvörðun embættis landlæknis um að svipta kæranda starfsleyfi var því staðfest.

    28. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið

    Elísabet Benedikz settur landlæknir

    Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi.

    28. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins um að synja einstaklingi um færni- og heilsumat. Kærandi byggði á að synjun á færni- og heilsumats hafi komið í veg fyrir að hann gæti fengið þá meðferð sem hann þurfi á að halda en jafnframt auki það líkurnar á því að hann fái þjónustu nær aðstandendum sínum ef hann fái slíkt mat. Færni- og heilsumatsnefnd byggði á að kærandi væri haldin sjúkdómi sem líkur væru á að hann læknaðist af að hluta til eða öllu leyti. Færni- og heilsumat gæti þ.a.l. ekki átt sér stað fyrr en ástand hans væri viðvarandi. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að kærandi hefði þá fengið tímabundna vistun í hjúkrunarrými en sú ákvörðun væri ekki til meðferðar hjá ráðuneytinu.…

    26. jan. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 19.- 23. janúar 2026

    26 janúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 19. - 23. janúar 2026 19

    21. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til umsagnar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035. Stefnudrögin eru unnin af starfshópi heilbrigðisráðherra sem skilaði ráðherra skýrslu sinni fyrir skömmu. Umsagnarfrestur er til 11. febrúar næstkomandi.

    21. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælaborð um aðgerðir í geðheilbrigðismálum

    Heilbrigðisráðuneytið vinnur að framkvæmd aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027, sem byggir á samþykktri stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Í aðgerðaáætluninni eru skilgreindar 27 aðgerðir sem miða að því að efla geðheilbrigðisþjónustu, auka aðgengi og stuðla að heildstæðri og notendamiðaðri þjónustu. Til að auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um framgang aðgerðanna hefur ráðuneytið sett upp mælaborð geðheilbrigðismála. Mælaborðið veitir yfirsýn yfir stöðu verkefna, helstu mælikvarða og framvindu og er ætlað almenningi og fagfólki sem vilja fylgjast með þróun í málaflokknum.

    19. jan. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 12.- 16. janúar 2026

    19 janúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 12. - 16. janúar 2026 15

    16. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að vísa frá tilkynningu kæranda um alvarlegt atvik. Kærandi byggði á því að atvikið hefði sannarlega verið alvarlegt, þá hefði hann að auki heimild til að tilkynna atvikið samkvæmt 10. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sbr. einnig 4. gr. laga nr. 103/2023. Embættinu hafi því borið að taka tilkynningu hans til efnislegrar meðferðar. Embættið byggði ákvörðun sína á því að atvikið hefði gerst fyrir gildistöku laga nr. 103/2023. Fyrir þann tíma hefði sjúklingi ekki verið heimilt að tilkynna alvarlegt atvik til embættisins. Af þeim sökum aðallega vísaði embættið tilkynningu kæranda frá.…

    15. jan. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili Hrafnistu opnað í Reykjanesbæ

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ í dag. Opnun heimilisins er mikilvægur áfangi í uppbyggingu hjúkrunarrýma um land allt. Hjúkrunarheimilið er samtengt Hrafnistu Nesvöllum sem er 60 rýma hjúkrunarheimili með heildstæðri þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Heildarfjöldi rýma á hjúkrunarheimilum á Suðurnesjum er nú orðinn 140.

    15. jan. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili Hrafnistu opnað í Reykjanesbæ

    Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ í dag. Opnun heimilisins er mikilvægur áfangi í uppbyggingu hjúkrunarrýma um land allt. Hjúkrunarheimilið er samtengt Hrafnistu Nesvöllum sem er 60 rýma hjúkrunarheimili með heildstæðri þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Heildarfjöldi rýma á hjúkrunarheimilum á Suðurnesjum er nú orðinn 140.

    12. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar í Krýsuvík og Hlaðgerðarkoti

    Undirritaðir hafa verið uppfærðir þjónustusamningar heilbrigðisráðuneytisins við Krýsuvík og Hlaðgerðakot fyrir árið 2026. Á báðum stöðum er veitt þjónusta fyrir einstaklinga sem þurfa langtímameðferð vegna vímuefnavanda. Í fjárlögum 2026 er veitt auknu fjármagni til meðferðar vegna fíknivanda í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Það gerir m.a. kleift að efla meðferðina í Krýsuvík og Hlaðgerðarkoti. Samanlegt fjármagn til þeirra verður rúmar 550 m.kr. á þessu ári sem er nærri 20% aukning frá síðasta ári.

    09. jan. 2026Innviðaráðuneytið, Umferð, Samgöngur, Heilbrigðisráðuneytið

    Samráðsgátt: Aldursmörk fyrir útgáfu ökuskírteina án læknisvottorðs hækkuð í 75 ár

    Í samráðsgátt stjórnvalda eru nú kynnt drög að breytingum á reglugerð um ökuskírteini (nr. 830/2011).

    07. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni styrktar til tækjakaupa

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni samtals 77 milljónum króna til endurnýjunar á tækjabúnaði. Ráðstöfun fjárins byggist á forgangsröðun í samræmi við brýnustu þarfir stofnananna. Víða er uppsöfnuð innviðaskuld sem mikilvægt er að mæta til að efla viðbragðsgetu stofnananna, tryggja gæði þjónustu og öryggi sjúklinga, bæta greiningar- og meðferðargetu og stuðla að hagkvæmari rekstri.

    07. jan. 2026Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun 2026-2027 með mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    júlí 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun 2026-2027 með mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 Aðgerðaáætlun 2026-2027 með mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    07. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Átak um bólusetningu gegn HPV veirunni

    Sóttvarnalæknir er að hefja átak um bólusetningu drengja sem fæddir eru árin 2008-2010 og verður bólusetning þessara árganga gjaldfrjáls í vetur. Sýnt hefur verið fram á að HPV bólusetning er mikilvæg leið til að fækka krabbameinstilfellum. Bólusetning gegn HPV veirunni hófst hér á landi árið 2011, fyrst eingöngu hjá stúlkum en hefur síðan verið útvíkkuð og fyrir tveimur árum var farið að bjóða slíka bólusetningu óháð kyni fyrir tiltekna aldurshópa. Síðastliðið sumar ákvað Alma D. Möller heilbrigðisráðherra að veita fjármagn til kaupa á HPV bóluefni fyrir óbólusetta drengi upp í 18 ára aldur. Átak fyrir árgang 2010 fór af stað hjá heilsugæslu síðastliðið haust og nú fer að koma að árgöngum sem komnir eru á næsta skólastig.

    06. jan. 2026Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný upplýsingagátt um almyrkvann

    Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar eru á einum stað upplýsingar um allt sem snertir almyrkvann og svör við spurningum sem kunna að brenna á fólki; hvar er best að fylgjast með almyrkvanum, hvenær verður hann og hvernig á að bera sig að þegar fylgst er með honum en líka hvort og hvar verður gripið til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar.

    05. jan. 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Meðferð við kæfisvefni – biðtími styttist úr sjö mánuðum í einn

    Með markvissri aðgerðaáætlun og innleiðingu á nýju verklagi tókst Svefnmiðstöð Landspítala á liðnu ári að stytta bið einstaklinga eftir meðferð við kæfisvefni úr sjö mánuðum í einn. Biðtíminn er nú innan þjónustumarkmiða. Tölur benda einnig til þess að meðferðarheldni þeirra sem hefja meðferð hafi aukist umtalsvert, eða um 20% á milli ára.

    05. jan. 2026Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 29. desember 2025- 2. janúar 2026

    05 janúar 2026 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 29. desember 2025- 2. janúar 2026 29

    05. jan. 2026Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 1/2026

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að taka kvörtun kæranda ekki til frekari efnislegrar meðferðar. Kærandi byggði á að skaðinn sem hún lenti í hafi ekki stafað af þekktum fylgikvilla. Þá hefði Embættinu borið að rannsaka mál hennar betur og kalla í því skyni eftir umsögn óháðs sérfræðings. Embætti landlæknis byggði á að samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sbr. 6. gr. laga nr. 103/2023 væri markmið með kvörtunarmálum að auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Mál kæranda félli ekki undir þau viðmið eftir rannsókn embættisins á málsatvikum þess. Kærandi hefði orðið fyrir sjaldgæfum en þekktum fylgikvilla. Gögn málsins bentu til þess að ekki hefði verið um mistök eða vanrækslu að ræða.…

    31. des. 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um mönnun á hjúkrunarheimilum

    desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun um mönnun á hjúkrunarheimilum Aðgerðaáætlun um mönnun á hjúkrunarheimilum (október 2025)

    30. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneytið styrkir innleiðingu Solihull – Togetherness á Íslandi

    Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt Geðverndarfélagi Íslands 8 milljóna króna styrk til að styðja við þýðingu og aðgengi að fræðslu- og námskeiðsefni úr hugmyndafræðinni Solihull - Togetherness, sem miðar að því að efla geðheilbrigði, tengslamyndun og farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækum og forvarnamiðuðum aðgerðum.

    29. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skjólshús sett á fót – nýtt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu

    Í dag skrifuðu félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir samstarfssamning við landssamtökin Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem ráðuneytin tvö leggja til samtals 122 m.kr. á móti 150-180 m.kr. framlagi Geðhjálpar. Stefnt er að því að opna skjólshúsið á fyrri hluta næsta árs (2026).

    29. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 22.- 26. desember 2025

    29 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 22. - 26. desember 2025 22

    22. des. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá ráðherra 15.- 19. desember 2025

    22 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagskrá ráðherra 15. - 19. desember 2025 15

    21. des. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir

    21 desember 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Grein birt á Visir. is 21

    19. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamótasamningur tryggir heildstæða og aðgengilegri meðferð við fíknsjúkdómi

    ​Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa undirritað nýjan heildarsamning um meðferð við fíknsjúkdómi. Samningurinn markar tímamót í íslenskri heilbrigðisþjónustu og felur í sér mikilvæga viðurkenningu á fíknsjúkdómi sem alvarlegum og langvinnum heilbrigðisvanda sem krefst samfelldrar og faglegrar meðferðar.

    19. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um þjónustu Frú Ragnheiðar með stórauknu fjármagni

    Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um framlengdan og breyttan samning um skaðaminnkandi þjónustu Frú Ragnheiðar fyrir einstaklinga með vímuefnavanda. Fjármagn til starfseminnar hækkar úr tæpum 23 milljónum króna í 50 milljónir króna á ársgrundvelli. „Eins og fram kemur í stjórnarsáttmála leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á að efla meðferðarúrræði vegna fíknivanda og auka fjármagn til málaflokksins. Skaðaminnkun og lágþröskuldaþjónusta í nærumhverfi þeirra viðkvæmu einstaklinga sem Frú Ragnheiður sinnir er liður í því að bæta þjónustu við fólk sem glímir við fíkn og mikilvægt fyrir samfélagið allt,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband