Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 2063
    Raða eftir:
    25. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Lögskipuðum hæfnisnefndum fækkað um þrjár

    Frumvarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um fækkun hæfnisnefnda varð að lögum frá Alþingi í gær. Með því verða lagðar niður þrjár fastar, lögbundnar hæfnisnefndir sem hafa haft það hlutverk að meta hæfni umsækjenda um stöður stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytisins. Með þessu er stefnt að aukinni skilvirkni og hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins.

    19. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Sameining heilsugæslustöðvanna á Dalvík og í Fjallabyggð

    Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur ákveðið að sameina heilsugæslustöð HSN á Dalvík og starfsstöð HSN í Fjallabyggð frá og með 1. september næstkomandi. Markmiðið er að efla mönnun heilbrigðisfagfólks á svæðinu og þjónustu við íbúa.

    18. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á stafrænni þróun og gagnamálum í heilbrigðiskerfinu

    Markviss stafræn þróun er lykilatriði til að bæta skilvirkni, nýtingu fjármuna og gæði heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Til að styðja við framfarir á þessu sviði er mikilvægt að fá heildstæða mynd af stöðu stafrænnar umbreytingar, meta hvernig núverandi lausnir nýtast og greina hvaða aðgerðir geta styrkt heilbrigðiskerfið til framtíðar.

    17. mar. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stefnumótun í heyrnarþjónustu - skýrsla starfshóps

    mars 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Stefnumótun í heyrnarþjónustu - skýrsla starfshóps Stefnumótun í heyrnarþjónustu - skýrsla starfshóps

    17. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla starfshóps um framtíð heyrnarþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði í júlí á liðnu ári til að móta tillögur um skipulag heyrnarþjónustu til framtíðar hefur skilað skýrslu með umfjöllun sinni og tillögum um framtíðarskipulag þjónustunnar. Áhersla er lögð á notendavæna þjónustu sem taki mið af alvarleika heyrnarskerðingar notendanna og að þjónustan sé veitt í samræmi við það á viðeigandi þjónustustigi. Er þá tekið mið af stigun heilbrigðisþjónustu í fyrsta, annars og þriðja stigs þjónustu í samræmi við íslenska heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    17. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla starfshóps um framtíð heyrnarþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði í júlí á liðnu ári til að móta tillögur um skipulag heyrnarþjónustu til framtíðar hefur skilað skýrslu með umfjöllun sinni og tillögum um framtíðarskipulag þjónustunnar. Áhersla er lögð á notendavæna þjónustu sem taki mið af alvarleika heyrnarskerðingar notendanna og að þjónustan sé veitt í samræmi við það á viðeigandi þjónustustigi. Er þá tekið mið af stigun heilbrigðisþjónustu í fyrsta, annars og þriðja stigs þjónustu í samræmi við íslenska heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    14. mar. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Breytt skipan öldrunarmála milli ráðuneyta tekur gildi 15. mars

    Forsetaúrskurður um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráðinu tekur gildi á morgun, líkt og greint er frá í frétt á vef forsætisráðuneytisins í dag. Ýmsar breytingar verða á skiptingu öldrunarmála milli heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem fær jafnframt nýtt heiti, þ.e. félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Hér er gerð nánari grein fyrir því hvað í breytingunum felst varðandi málefni aldraðra.

    14. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland hefur fengið um 2,4 milljarða kr. í styrki úr áætlun ESB á sviði heilbrigðismála

    EU4Health er áætlun Evrópusambandsins (ESB) á sviði heilbrigðismála sem hefur það markmið að styðja við nýjungar á sviði heilbrigðisvísinda, stuðla að umbótum og bættu öryggi heilbrigðisþjónustu, bæta heilsu, fyrirbyggja sjúkdóma og vernda borgara fyrir heilsufarsógnum þvert á landamæri. Núgildandi áætlun ESB sem er fyrir tímabilið 2021-2027 er með fjárhagsáætlun upp á 5,3 milljarða evra til styrkveitinga og hefur umfangið aldrei verið meira. Það sem af er tímabilinu hefur Ísland fengið um 2,4 milljarða kr. í styrki úr áætluninni og má gera ráð fyrir enn frekari styrkveitingum fyrir lok tímabilsins. Heilbrigðisráðherra hvetur stofnanir til að skoða þá möguleika sem felast í þátttöku í heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins því ávinningurinn sé mikill.

    14. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðist í innleiðingu mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum sjúkrahúsa

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að hefja innleiðingu verklags um mönnunarviðmið í hjúkrun á bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Hópnum er m.a. ætlað að kostnaðargreina viðmiðin, skilgreina mælikvarða mönnunar, og hvernig skuli bregðast við ónógri mönnun. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á síðustu áratugum benda til þess að sterk tengsl séu á milli mönnunar við hjúkrun og öryggis sjúklinga. Formaður starfshópsins er Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Vinnan byggir á niðurstöðum annars starfshóps sem Guðlaug Rakel fór einnig fyrir og var að mestu skipaður sömu fulltrúum.

    12. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýjar ráðleggingar um mataræði fyrir landsmenn

    „Við þurfum að stefna að því að gera holla valkostinn að auðveldasta kostinum“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í ræðu hjá embætti landlæknis í dag þegar kynntar voru nýjar íslenskar ráðleggingar um mataræði. Slíkar ráðleggingar voru fyrst gefnar út árið 1986 en hafa síðan þá verið endurskoðaðar fjórum sinnum. Í nýju ráðleggingunum er aukin áhersla á grænmeti, ávexti og heilkornavörur, minna ráðlagt af rauðu kjöti en áður og sérstaklega varað við neyslu á unnum kjötvörum. Fjallað er um neyslu orkudrykkja í leiðbeininingunum sem er nýmæli og eru skilaboð embættisins skýr þess efnis að orkudrykkir séu ekki ætlaðir börnum og ungmennum yngri en 18 ára.

    10. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsuskóla LSH tryggt aukið fjármagn til að efla þjónustu við börn

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt 36 milljóna kr. aukið framlag til Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins á þessu ári til að styrkja þverfaglega þjónustu fyrir börn í verulegri ofþyngd og fjölskyldur þeirra. Markvisst er unnið að því að stytta bið barna eftir þessari þjónustu og mæta betur sértækum þörfum þeirra. Eins hefur þörf fyrir aðkomu sérfræðinga að meðferð aukist, m.a. með tilkomu nýjunga á sviði lyfjameðferðar við offitu.

    07. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjármagn verði aukið í áfengis- og fíkniefnameðferð á þessu ári

    Þörf er á auknu fjármagni til að efla áfengis- og vímuefnameðferð og ljóst að innviðaskuld er í þessum málaflokki, sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í sérstakri umræðu á Alþingi í gær. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er fjármögnun meðferðarúrræða vegna vímuefnavanda sérstakt áherslumál og sagði ráðherra stefnt að því að veita 350 milljóna króna viðbótarfjármagni inn í málaflokkinn strax á þessu ári. Heildarfjármagn til málaflokksins er nú rúmlega 3,2 milljarðar króna á ári en nauðsynlegt er að bæta þar við og stendur yfir vinna við greiningu á fjárþörfinni sagði ráðherra. Hún vísaði jafnframt til vinnu starfshóps sem vinnur að heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum sem taka mun til forvarna, meðferðar, eftirfylgni, endurhæfingar og lagaumhverfis.

    06. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmt verklag fyrir þolendur heimilisofbeldis vekur athygli WHO

    Evrópudeild Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hefur sýnt áhuga á aðkomu heilbrigðisráðuneytisins að átaki stofnunarinnar til að sporna gegn ofbeldi í garð kvenna og stúlkna. Er þá horft til samræmds verklags fyrir þolendur heimilisofbeldis sem innleitt hefur verið á Landspítala. Sérfræðingur ráðuneytisins sem hefur leitt verkefnið frá upphafi fyrir hönd ráðuneytisins kynnti það á fundi með fulltrúum WHO fyrir skömmu og í framhaldi af kynningunni sýndi stofnunin áhuga á aðkomu ráðuneytisins að fyrrnefndu átaki.

    04. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsóknarfrestur í Framkvæmdasjóð aldraðra framlengdur til 10. mars

    Frestur til að sækja um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2025 hefur verið framlengdur til mánudagsins 10. mars. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    03. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vegna loka samnings við Janus endurhæfingu 1. júní næstkomandi

    Vegna yfirlýsingar Janusar endurhæfingar í dag varðandi samning við VIRK Starfsendurhæfingarsjóð og Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins vilja VIRK og ráðuneytið taka fram að þjónusta við þá einstaklinga sem verið hafa í endurhæfingu hjá Janusi samkvæmt samningnum verður áfram tryggð og munu VIRK, heilbrigðisráðuneytið og stofnanir þess vinna að leiðum til að tryggja það á næstu mánuðum. VIRK hefur í dag sent þjónustuþegum samningsins upplýsingar í gegnum „mínar síður“ um að þeim verði tryggð viðeigandi þónusta eftir að samningnum við Janus lýkur 1. júní næstkomandi.

    03. mar. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Langþráður áfangi að hefja skimun fyrir ristilkrabbameini

    Skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi er nú að hefjast og hópur landsmanna mun á næstu dögum fá boð um að taka þátt í skimun. Til að byrja með verður um 200 manns boðin þátttaka í prufuhópi en almennar skimanir munu hefjast um leið og prófunum lýkur.

    28. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Úthlutaði tæpum 100 milljónum kr. í styrki úr Lýðheilsusjóði

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra úthlutaði í gær 98 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði við athöfn á Hilton Reykjavík Nordica. Styrkir voru veittir til 153 verkefna um allt land sem öll miða að því að efla lýðheilsu.

    27. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    María Heimisdóttir skipuð landlæknir

    Jóhann Páll Jóhannsson, settur heilbrigðisráðherra, hefur skipað Maríu Heimisdóttur í embætti landlæknis til næstu fimm ára. Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Maríu mjög vel hæfa til að gegna embættinu miðað við fyrirliggjandi kröfur þar að lútandi.

    25. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðurlands

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í gær Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi (HSU), kynnti sér starfsemina á ýmsum einingum stofnunarinnar, ræddi við starfsfólk og fundaði með stjórnendum. HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu í heilbrigðisumdæminu sem nær allt frá Þorlákshöfn í vestri, austur á Höfn í Hornafirði og sinnir auk þess sjúkraflutningum um allt Suðurland. Forstjóri stofnunarinnar er Díana Óskarsdóttir.

    18. feb. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Rétt þjónusta á réttum stað

    febrúar 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Rétt þjónusta á réttum stað Rétt þjónusta á réttum stað - skýrsla starfshóps

    18. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rétt þjónusta á réttum stað – skýrsla starfshóps

    Starfshópur sem fjallað hefur um stöðu eins af meginmarkmiðum heilbrigðisstefnu um að veita rétta þjónustu á réttum stað, hefur skilað Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum. Gylfi Ólafsson formaður starfshópsins ásamt fleiri fulltrúum hópsins kynntu ráðherra skýrsluna á fundi í ráðuneytinu í gær.

    18. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný skýrsla WHO: Áframhaldandi einkasala ríkisins á áfengi er mikilvægt lýðheilsumál

    Einkasala ríkisins á áfengi er mikilvægur og árangursríkur hluti af áfengisstefnu Norðurlandaþjóðanna samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Norðurlöndin, að Danmörku frátalinni, eru öll með ríkiseinkasölu áfengis. Samkvæmt skýrslunni er heildarneysla áfengis mun minni hjá þessum þjóðum en í öðrum Evrópulöndum þar sem verslunin er frjáls. Niðurstaða skýrslunnar er sú að afnám einkasölu myndi að öllum líkindum leiða til aukinnar áfengisneyslu, heilsutjóns og félagslegra vandamála.

    18. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmarkanir settar á útlitsbreytandi meðferðir með fylliefnum

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð sem kveður á um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum. Markmiðið er að tryggja öryggi þeirra sem undirgangast meðferð með fylliefnum sem er sprautað eða komið með öðrum hætti fyrir, í eða undir húð, í vöðva eða annan vef.

    18. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir félagasamtök um tæpar 90 m.kr. til verkefna á sviði heilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur veitt 88,2 milljónir króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls voru veittir styrkir til 34 verkefna og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 6.000.000 kr.

    14. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Áform um sama gjald sjúkratryggðra fyrir röntgenmynd af brjóstum vegna krabbameinsleitar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um gjaldtöku fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum (mammografia) vegna krabbameinsleitar.

    10. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur skipaður um fóstur- og nýburaskimun

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögu að stefnu um fóstur- og nýburaskimun. Í stefnunni skal koma fram fyrir hverju eigi að skima, hvenær skuli boðið upp á skimun, hvernig hún skuli framkvæmd og hvar. Hópnum er einnig ætlað að fjalla um fósturvísagreiningar. Formaður starfshópsins er Henry Alexander Henrysson.

    07. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðheilsumiðstöð barna efld með áherslu á styttri bið eftir þjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag um aukið fjármagn til Geðheilsumiðstöðvar barna (GMB). Þetta gerir GMB kleift að fjölga stöðugildum í greiningarteymum miðstöðvarinnar um tvö í því skyni ​að stytta bið barna eftir þjónustu. Miðstöðin veitir annars stigs geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra um allt land. „Þessi ákvörðun endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar á að stytta bið barna eftir mikilvægri þjónustu og setja geðheilbrigðismál í forgang. Ég er sannfærð um að þetta er góð ákvörðun, því þörfin er brýn og með þessu fjárfestum við jafnframt í framtíðinni“ segir Alma.

    05. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjarskiptalæknir bráðaþjónustu á sólarhringsvakt vegna illviðris um allt land

    Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Landspítala að tryggja sólarhringsmönnun fjarskiptalæknis bráðaþjónustu meðan illviðri gengur yfir landið.

    05. feb. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi

    Drög að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áætlunin tekur til áranna 2025 til 2030. Í henni eru lagðar til 26 aðgerðir sem snúa að öllum stigum sjálfsvígsforvarna; forvörnum, íhlutunum og stuðningi eftir sjálfsvíg. Sjálfsvíg eru alvarlegur lýðheilsuvandi sem hefur víðtækar afleiðingar fyrir samfélagið allt. Árangursrík aðgerðaáætlun er því mikilvæg til að stuðla að bættri heilsu landsmanna.

    30. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðmann Ólafsson skipaður skrifstofustjóri fjármála

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Guðmann Ólafsson skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytinu. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda, líkt og kveðið er á um í lögum um Stjórnarráð Íslands.

    27. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að skilgreiningu á hlutverki SAk sem varasjúkrahúss

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að skilgreina hvaða kröfur Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) þurfi að uppfylla til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem varasjúkrahús Landspítala (LSH). Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um að SAk sé varasjúkrahús LSH en hvergi er skilgreint hvað felist í því hlutverki. „Þetta þarf að vera skýrt ef á reynir, þ.e. hvaða þjónustu sjúkrahúsið þarf að geta veitt og hvaða búnaður þarf að vera fyrir hendi, einkum á sviði bráðaþjónustu“ segir heilbrigðisráðherra.

    14. jan. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2023 til júní 2024

    janúar 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2023 til júní 2024 Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2023 til júní 2024

    13. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra heimsótti Lyfjastofnun

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti Lyfjastofnun í liðinni viku, fundaði með framkvæmdaráði stofnunarinnar og kynnti sér starfsemina. Lyfjastofnun starfar á grundvelli lyfjalaga sem hafa það meginmarkmið að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með öryggi sjúklinga að leiðarljósi.

    09. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar á sjúklingatryggingu tóku gildi 1. janúar

    Ný lög um sjúklingatryggingu tóku gildi 1. janúar síðastliðinn, ásamt nýrri reglugerð um iðgjöld vegna sjúklingatryggingar. Lögin fela í sér ýmsar breytingar sem styrkja réttarstöðu sjúklinga sem verða fyrir heilsutjóni í tengslum við veitta heilbrigðisþjónustu. Verklag við meðferð bótamála hefur verið samræmt og hámarksbætur hækkaðar um 50%, úr u.þ.b. 14 m.kr. í 21 m.kr.

    07. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fimm umsækjendur um embætti landlæknis

    Fimm sóttu um embætti landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar um miðjan desember síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út í gær.

    22. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alma D. Möller tekin við embætti heilbrigðisráðherra

    Alma D. Möller kom til starfa í heilbrigðisráðuneytinu í dag sem heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Alma tekur við embættinu af Willum Þór Þórssyni.

    17. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur við MetamorPhonics um endurhæfingu og inngildingu

    Ráðherrar heilbrigðisráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis undirrituðu fyrir skömmu styrktarsamning við MetamorPhonics um frumkvöðla- og samstarfsverkefni á sviði endurhæfingar. Samningurinn, sem gildir frá ársbyrjun 2025 til ársloka 2026, miðar að því að styðja við tónlistarverkefni sem nýtist einstaklingum í endurhæfingu. Endurhæfingarstarfið felst í námskeiðum og þátttöku í tónlistarsmiðjum. Áhersla er lögð á þátttöku fólks með geðvanda sem þurfa aðstoð til aukinnar þátttöku í samfélaginu og vinna þannig gegn jaðarsetningu hópsins. Verkefnið er unnið í samstarfi MetamorPhonics við Listaháskóla Íslands, Tónlistarborginga Reykjavík, Hörpu og starfsendurhæfingarstöðvar um allt land.

    10. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verkefnastyrkir til fjarheilbrigðisþjónustu á grundvelli byggðaáætlunar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið úthlutun styrkja til verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu á grundvelli byggðaáætlunar stjórnvalda. Kallað var eftir tillögum að verkefnum frá stofnunum heilbrigðisráðuneytisins. Alls bárust umsóknir um styrki til níu verkefna frá sex stofnunum. Við úthlutun styrkja var byggt á forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og ætlaðan ávinning af verkefnunum. Fimm verkefni hlutu styrk, samtals 43,2 milljónir króna.

    09. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hvítbók um lyfjafræðilega þjónustu í apótekum

    Birt hefur verið skýrsla starfshóps sem heilbrigðisráðherra fól að skrifa hvítbók um stöðumat lyfjafræðilegrar þjónustu í apótekum í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar og gera tillögur að úrbótum. Skýrslan er nú til umsagnar í samráðsgátt og er umsagnarfrestur til 6. janúar næstkomandi.

    09. des. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Skýrsla starfshóps - hvítbók

    desember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Skýrsla starfshóps - hvítbók Stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka í samanburði við nágrannalönd og tillögur - Skýrsla starfshóps - hvítbók

    09. des. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Almenn líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum - Skýrsla starfshóps

    desember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Almenn líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum - Skýrsla starfshóps Almenn líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum - skýrsla starfshóps

    09. des. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar - Skýrsla starfshóps

    desember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar - Skýrsla starfshóps Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar

    29. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vel heppnað heilbrigðisþing um heilsugæsluna – myndir og upptaka frá þinginu

    Yfir 300 manns sóttu árlegt heilbrigðisþing heilbrigðisráðherra sem haldið var á Reykjavík hótel Nordica í gær og fjöldi fylgdist með í beinu streymi. „Heilsugæslan, svo miklu meira…" var yfirskrift þingsins þar sem fjallað var um heilsugæslu í víðu samhengi, hugmyndafræði þjónustunnar, þróun hennar, stöðuna í dag og áskoranir og sóknarfæri til framtíðar. Upptaka frá þinginu er aðgengileg á vef ráðuneytisins og eins eru birtar hér svipmyndir frá því.

    29. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028 Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028

    29. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt skýrslu með uppfærðri stöðu framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2028. Á framkvæmdaáætluninni eru alls 934 rými, þar af fjölgun rýma um 724, en bætt aðstaða í 210 rýmum.

    29. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

    28. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að móta drög að fyrstu stefnu stjórnvalda á sviði skaðaminnkunar og leggja til aðgerðaáætlun á grunni hennar hefur skilað skýrslu með niðurstöðum sínum.

    28. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    „Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar“ – skýrsla starfshóps

    Staða mönnunar í læknisþjónustu á Íslandi, spá til næstu ára og tillögur um aðgerðir og leiðir til að tryggja mönnun þessarar mikilvægu þjónustu til framtíðar er viðfangsefni nýrrar skýrslu starfshóps, skipuðum af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra. Í skýrslunni er lögð fram tillaga að aðgerðaáætlun um þetta stóra verkefni.

    28. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps

    27. nóv. 2024Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Loftgæðum í skólum víða ábótavant

    Loftgæðum innandyra í skólabyggingum er ábótavant, en fjölmörg úrbótatækifæri eru til staðar m.a. með aukinni samræmingu vinnubragða, heildstæðra mælinga í föstum verkferlum, endurskoðun regluverks, meiri fræðslu og verkferlum vegna þrifa.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband